Vestfirska fréttablaðið - 29.05.1980, Síða 3
I vestfirska
rRETTABLAHD
Okkar veruleiki ekki sviðsettur
— Rætt við Vigdísi Finnbogadóttur
Mikið vatn er til sjávar runn-
ið síðan Vigdís Finnbogadóttir
vakti eftirtekt alþjóðar í
frönskukennslu sjónvarpsins
fyrir þokkafulla framkomu og
náði þessari íslensku heims-
frægð á svipstundu sem ýmsír
aðrir berjast fyrir alla ævi. Víða
liggja þræðir örlaganna og
hvern hefði grunað þá að örlög
þessarar fasprúðu konu og ís-
lensku þjóðarinnar ættu
kannske eftir að samtvinnast
með eftirminnilegum hætti og
að þessi örlög yrðu að veru-
legu leyti ráðin um borð í fs-
firskum skuttogara langt úti á
hafi á því herrans ári 1980? Um
síðustu helgi kom forsetafram-
bjóðandinn hingað til Fsafjarð-
ar í kosningaleiðangur og vísi-
teraði nágrannabyggðarlögin í
leiðinni. Vestfirska fréttablaðið
náði af henni tali skömmu eftir
miðnætti aðfaranótt annars í
hvítasunnu, er hún var nýkom-
in af vellukkuðum kosninga-
fundi í Bolungarvfk. Við spurð-
um hana hvernig hefði gengið.
—Mér hefur fundist þetta mjög
gaman, sagði Vigdís. Ég hef notið
þess til hins ýtrasta.
—Hvað er svona skemmtilegt?
—Það er svo gaman að hitta
fólk. Ég er búin að vera leikhús-
stjóri lengi í tiltölulega stóru leik-
húsi og horfi á 60 þús. manns
streyma inn í það á hverju ári og
ég hef aldrei haft tækifæri til að
tala við þetta fólk fyrr. Ég hef
alltaf horft í bakið á öllum þess-
um fjölda, en núna stend ég alltí-
einu andspænis því og fæ að og
fæ að skiptast á skoðunum við
það.
—Sérðu eftir því að hafa gefið
þig í þetta?
—Nei, þetta hefur veitt mér
miklu meiri gleði en svo að mig
geti iðrað þess.
—Þessi spurning er orðin nokk-
uð velkt, en látum hana flakka:
finnst þér að það eigi að auka
völd forseta Islands?
—Nei, ég er heldur á móti því.
f landi þar sem. lýðræði er í
hávegum haft finnst mér að eng-
ina einn maður eigi að hafa of
mikil völd. Forfeður okkar, sem
stofnsettu Alþingi, höfðu næman
skilning á þessu. Þeir gættu þess
að fela engum einum of mikil
völd. Þetta er til marks um visku
þeirra, því að þá voru konungsríki
hér allt í kringum okkur.
FULLTRÚI ÁKVEÐINNA
MENNINGARSTRAUMA
—Hvað var það fyrir utan
skeytið fræga frá áhöfninni á
Guðbjarti sem réði úrslitum um
að þú gafst kost á þér í þetta
embætti? Kom það til álita í þín-
um huga að kona hefði ekki gegnt
embættinu áður?
—Nei, það kom ekki svo mjög
til álita í mínum huga. Eins og þú
veist var ég búin að segja nei, en
það hlaut að breyta afstöðu minni
að farið var að safna undirskrift-
um og ég beðin að endurskoða
ákvörðun mína. Á undirskriftar-
listunum voru nöfn manna, sem
ég met mjög mikils. Þeir voru úr
öllum stéttum þjóðfélagsins og
þeir voru menn, sem mér finnst
að standi undir íslenskri menn-
ingu - þá á ég við íslenska verk-
menningu og innan hennar er
bæði menning hugar og handar.
Fram kom að litið var á mig sem
fulltrúa ákveðinna menningar-
strauma, bæði vegna þeirrar
stöðu sem ég gegni og einnig hef
ég unnið að landkynningu og
kynningu á íslensku þjóðfélagi
um langt árabil - hvað íslenskt
þjóðfélag er og hverjir við íslend-
ingar erum.
—Ert þú herstöðvarandstæð-
ingur?
—Hver er ekki herstöðvarand-
stæðingur? Þekkir þú nokkurn Is-
lending, sem vill af fúsum og
frjálsum vilja hafa erlendan her í
landinu sínu? Eða yfirleitt nokk-
urn mann af nokkru þjóðerni sem
vill hafa erlendan her í landinu
sínu? Ég er persónulega svo lán-
söm að þekkja engan slíkan. Aft-
ur á móti líta margir vinir mínir
og margir, sem að framboði mínu
standa, á hersetuna sem illa nauð-
syn. En forsetinn hvorki getur né
á að fara með nein völd í þessu
máli. Embætti forseta á að vera
hafið yfir íhlutun í deilumál.
Hann á að koma fram til sátta,
bera klæði á vopnin. Við vitum
að þjóðin er klofin í afstöðu sinni
til herstöðvarinnar og ég virði
skoðanir allra manna. Ekki ein-
asta finnst mér að allir menn eigi
að vera frjálsir að skoðunum sín-
um heldur eigi allir menn að hafa
frelsi til að tjá skoðanir sínar.
—Líka forsetinn?
—Já, auðvitað. En ég vona að
við eignumst forseta, sem hefur
þann þroska til að bera að hann
blandi sér ekki á óheillavænlegan
hátt í deilumál þjóðarinnar.
STJÓRNARSKRÁRVAND-
KVÆÐI
endurnir eru einstakir mann-
kostamenn að allra dömi og að
eigin sögn líka. Skiptir í rauninni
máli fyrir þjóðina hver þeirra
verður forseti. Mætti ekki allt eins
varpa um þá hlutkesti?
—Já, þetta er snjöll spurning.
Þessa spurningu hef ég ekki feng-
ið áður. Þetta er í rauninni mál til
íhugunar. Mér finnst nú samt að
þjóðin eigi að fá að ráða þessu
sjálf og heldur fyndist mér það
óheppilegt að fara að varpa hlut-
kesti um forsetaembættið á Is-
landi. Væri það ekki að taka
lýðræðisleg völd af þjóðinni?
—Hvernig litist þér á að verða
forseti lýðveldisins méð rúman
fjórðung á bak við þig?
—Hér eru vandkvæði á ferð-
inni í sambandi við stjórnarskrá
og kosningalög. En þá ber þess að
geta að jafnvel þótt við fyndum
þá lausn að kjósa aftur, þá er búið
að þrengja því upp á þjóðina að
kjósa um einhverja tvo einstakl-
inga, sem stór hluti hennar óskar
kannske ekki eftir að hafa í þessu
embætti. Ég vona að einhver af
þessum mannkostamönnum, sem
eru í framboði, hafi þann þroska
til að bera að hann eða hún geti
ráðið fram úr þeim vanda að hluti
þjóðarinnar hefði kannske valið
einhvern annan.
—Nú ert þú leikhússtjóri og
þekkir leiksviðið vel. Er forseti
Islands ekki mesti leikarinn á
stærsta sviðinu og með flesta á-
horfendurna?
—Ekki veit ég um það. leikarar
eru ávallt að leika hlutverk, sem
aðrir hafa skrifað. Þeir leika það
hlutverk undir leikstjórn. Og þeir
leika það inni í sérstökum heimi,
sem settur er á svið. Ég tel að
ísland eigi þeirri gæfu að fagna
að veruleiki okkar er ekki svið-
settur. Hann er alvara. Enginn
forseti á að fara eftir einhverri
ákveðinni rullu. Hann á að vera
hann sjálfur, eðlilegur og látlaus
umfram allt. Ég mundi ekki vilja
sjá einhverja leiklistartilburði í
forsetanum.
—Nú eru viðsjárverðir tímar á
Islandi og í heiminum öllum. Er
það eftirsóknarvert að verða for-
seti við slíkar kringumstæður?
—Við höfum sagt í gegnum
árin að síðustu tímarnir séu alltaf
harðastir og verstir. Það er erfitt
að dæma um hvort það er eftir-
sóknarvert að vera forseti nú á
tímum, en þjóðfélagið er þannig
uppbyggt að einhver verður að
sinna því embætti og ef einhver
hluti þjóðarinnar treystir ein-
hverri ákveðinni persónu til að
gera það, þá er það eins og hver
önnur þegnskylda að svara því
kalli.
—Hvernig muntu taka því ef
þú ferð halloka í forsetakosning-
unum?
—Ég mun taka því með karl-
mennsku.
FASTEIGNA
VIÐSKIPTI
Stórholt 7; Enn eru 4 íbúðir
óseldar í 9 íbúða fjölbýlis-
húsinu, sem Eiríkur og Ein-
ar Valur s.f. eru að byggja
á Fjarðarsvæðinu. Hér er
um að ræða 3 117 fm. íbúð-
ir 4ra-5 herbergja og eina
3ja herbergja 78 fm. íbúð-
irnar eru enn boðnar á
upphaflegu verði, sem er
kr. 31.000.000 á stærri í-
búðirnar en kr. 26.500.000
á minni. Vegna mikilla
verðhækkana neyðast selj-
endur til að hækka verð
íbúðanna um a.m.k. 5% að
hálfum mánuði liðnum.
Hlíðarvegur 33; Neðri hæð
í fjórbýlishúsi. 3ja her-
bergja íbúð ásamt 40 fm.
bílskúr. Laus um miðjan
júlí.
Hlíðarvegur 7; 3ja her-
bergja íbúð á 3. hæð ásamt
íbúðarherbergi í risi, hlut-
deild í verslunarhúsnæði
og bílskúr í smíðum. íbúðin
er laus.
Vitastígur 8, Bolungarvík;
Mjög fallegt álklætt einbýl-
ishús á tveim hæðum. Laust
fljótlega.
Traðarland 4, Bolungarvfk;
Byggingarframkvæmdir að
140 fm. einbýlishúsi.
ARNAR G.
HINRIKSSON
HDL.
Aðalstræti 13 fsafirði
Sími3214
Hópferðabilar,
48 manna, 25 manna og 21
manns.
Leigubíll 5 farþega.
Sendibílaþjónusta.
Þórdís Guðmundsdóttir
Ásgeir Sigurðsson
Seljalandsvegi 76
Sími3666
Til sölu
er 3ja herb. íbúð í miðbænum á ísafirði.
Tilboð óskast. Réttur áskilinn, að taka
hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
Upplýsingar í síma 3108 ísafirði.
Menntaskólinn
á ísafirði
SKOLASLIT
Menntaskólans á ísafirði 1980 fara fram í
Alþýðuhúsinu laugardag 31. maí kl.
14:00, og verða þá nýstúdentar braut-
skráðir.
Skólameistari
etj-
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við
andlát og jarðarför systur okkar
Sigríðar Margrétar Oddsdóttur
Valgerður Oddsdóttir
Guðmundur Oddsson
Oddur Oddsson
ísafjarðarkaupstaður
Sundnámskeið
Sundhöll ísafjarðar heldur sundnám-
skeið fyrir börn á aldrinum 6-8 ára.
Námskeiðið hefst 2. júní og því lýkur 13.
júní. Þátttökugjald kr. 3.000
Tilvalið tækifæri að undirbúa sig fyrir
skólasund næsta haust.
Innritun hjá íþróttafulltrúa alla daga kl.
10-11 f.h. til 30. maí n.k.
íþróttafulltrúi
—Vigdís, allir forsetaframbjóð-
Vigdfs Finnbogadóttir