Vestfirska fréttablaðið - 09.10.1980, Page 3
vestfirska
TTABLASIS
3
RUNAR HELGI:
* *
UT I BLAINN
AFLAKÓNGAR OG ADRIR DÁNUMENN
Það var um daginn þegar ég
var að stússast í drasli, sem
víða má finna í heimahúsum,
að ég rak nebbann í gulnuð
blöð. Það var þess konar á-
rekstur sem stundum verður á
götum úti og lyktar í hvitu slöri
og hrísgrjónaaustri, sem í
þessu tilviki merkir einfaldlega
að ég setti upp sólgleraugun
mín og fór að þjösnast á prent-
verkinu. Ég las:
ég til að mynda fengið mér
togara og orðið aflakóngur?
Þú? Ætli það. Hahaha. Maður
þarf náttúrulega að þekkja eitt-
hvað til, vita hvernig fiskurinn
gengur — svo framarlega sem
það er hægt — og kunna að
nota þau tæki sem maður hefur
í höndunum. Svo vegur líka
þungt að hafa góðan mann-
skap, vana menn. Það held ég
nú.
mál fyrir utan sjómennskuna?
Áhugamál já. Nú á dögum
verða víst allir að hafa áhuga-
mál, hobbí. Ég skal segja þér
að ég hef bara hreint ekki mátt
vera að því að eiga áhugamál,
frekar en sjómenn almennt.
Starfið hefur alla tíð verið mitt líf
og ekki gefist margar tóm-
stundir. Ég les svolítið — aðal-
lega blöðin, og Sjávarfréttir —
og einnig hef ég gaman af að
Uss, blessaður vertu, það
tekur enginn mark á þeim sem
eitthvað vit hefur á fiski. Þetta
eru fæðingarhálfvitar, einsog
unglingarnir segja, strákatittir
sem ekki hafa migið í saltan sjó
og fá út þrjá og hálfan þegar
þeir leggja saman tvo og tvo.
Blessaður vertu, það vantar
fleiri blaðsíður í þá. Þeir vita
andskotann ekkert hvað þeir
gera, enda veltist allur flotinn
um af hlátri í hvert skipti sem
þeir opna ginið.
Nú eru þetta langskóla-
gengnir menn.
Já, en einhvern veginn virðist
manni sem menntunin standi
ekki alltaf í réttu hlutfalli við
tímann á skólabekknum. Þetta
er óskaþleg sóun á fjármunum
maður, skólahaldið, uss. Það
Já, það er stefnan, á því
byggist hinn hraði uppgangur
byggðarlagsins. Það hefði
maður nú haldið.
En er ekki þessi samkeppni
um tonnin milli togara dálítið
varasöm?
Nei, ekki fæ ég nú séð það.
Samkeppni er góð til að auka
mönnum kapp.
Hvað með gæðin, verða þau
ekki fyrir barðinu á tonnakapp-
hlaupinu?
Jú, að vísu kemur það fyrir,
en ekki oft, mjög sjaldan.
En er þá ekki ástæða til að
leggja meiri áherslu á gæðin,
og þar með verðmætin, heldur
en tonnafjöldann?
Jú, vissulega, vissulega, en
það er nú kannski hægara sagt
en gert einsog ástandið er í
TOGARINN KÚTTI KUGGUR
AFLAHÆSTUR ÞRIÐJA ÁRIÐ f
RÖÐ
Með mér og þessari fyrir-
sögn tókust með það sama
heitar ástir, enda fyrirbærið ég
uppalið innanum ugga og slor í
mesta sjávarplássi heims. Því
kom ég sitjandanum fyrir á
huggulegum stað, svo hann
stæli ekki senunni, og hélt á-
fram að lesa:
„Einsog bæjarbúar vita, þá
hefur hið kunna aflaskip, togar-
inn Kútti Kuggur, orðið afla-
hæst yfir heila landið þriðja árið
í runu. Slíkt er afrek gott, og ef
svo heldur sem horfir hlýtur
þetta skip okkar að komast í
Guiness heimsmetabókina fljót-
lega og verða landsfrægt um
allan heim.
En hvað liggur að baki því-
líkri aflasæld? Það hlýtur að
vera annað og meira en ein-
skær hundaheppni eða glópa-
lán, það sér hvur heilvita maður
í hendi sér. Til að forvitnast um
staðreyndir málsins sætti
blaðamaðurinn lagi meðan
skipið leit við í höfninni um
daginn, að ná tali af hinum
mikla aflakóngi Balla Bunu. Eft-
ir nokkurn eltingaleik við hinn
önnum kafna mann tókst að
króa hann af í ríki sínu, brúnni.
Skjótlega var gengið á manninn
með spurningar.
Nú ert þú aflakóngur enn
einu sinni. Þú hefur oft orðið
aflakóngur um ævina er það
ekki?
O jú, nokkrum sinnum hef ég
nú orðið það.
Hve oft heldurðu?
Það er ekki svo ýkja oft, mað-
ur hefur svosem ekkert verið að
telja það. Ætli það séu ekki
svona 8 til 10 skipti í það heila,
eitthvað þar um bil.
Jahá. það er nú alldeilis vel
af sér vikið.
O ég veit það svosem ekki.
Ertu aflamaður af guðs náð?
Af guðs náð, ég veit það nú
satt að segja ekki, maður hefur
nú ekki hugsað mikið útí þá hlið
málsins, maður bara gerir sitt
besta. Svo verður hitt að koma í
Ijós við Gullna hliðið. Haha.
Annars veit ég svosem ekki
hvort ég get kallast beint afla-
maður þó ég hafi stundum hitt
á að afla sæmilega, það verða
aðrir að dæma um.
Já, einmitt það, jahá. Hvernig
tilfinning er það nú að verða
aflakóngur þriðja árið í röð?
Hvernig tilfinning, ég veit það
nú ekki, maður er nú ekki að
velta sér mikið upþúr tilfinning-
um á sjónum. Jú, ætli það sé
ekki eitthvað svipað því að
sigra í einhverri íþróttakeppni,
uppstökki og tvístökki eða hvað
þetta heitir nú allt ha. Ég gæti
trúað því, annars veit ég það
ekki.
En hvernig fer maður nú að
því að vera aflakóngur einsog
þú? Lumarðu á einhverju trixi?
? nei. Maður bara rær og
fiskar eftir bestu getu.
Nú hlýtur maður að þurfa að
eitthvað til að bera, ekki gæti
„Ja, því verður ekki neitað, að stundum er gaman að fiska."
- Leó Ijósmyndastofa.
En hvað er það nú öðru
fremur sem hefur svo oft gert
þig að aflakóngi, eitthvað hlýt-
urðu að hafa fram yfir aðra
skipstjóra?
Ég veit það nú ekki. Ef eitt-
hvað er, þá erða líklega það að
ég hef alla tíð sótt stíft, ekki
látið veður aftra mér oft.
Þykir þér gaman að fiska?
Ja, því verður ekki neitað að
stundum er gaman að fiska,
einkum þegar vel gengur, en
annars lít ég nú fyrst og fremst
á þetta sem vinnu, lifibrauð.
Þetta er þá ekki nokkurs kon-
ar laxveiðidella hjá þér?
Nei, nei, það vil ég nú ekki
meina. Ég tek mér t.d. alltaf
gott frí á hverju ári.“
Hér leit ég uppúr þessu ein-
kennilega viðtali. Ég var satt
best að segja ekki alveg viss
um hvert blaðamaðurinn var að
fara með sínum skringilegu
spurningum. En í leit að botni
hélt ég áfram að lesa:
„Hver eru þín helstu áhuga-
BILASALAl
Grensásvegi11
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KL. 9- 19
(nema sunnudaga)
Símar:
83085 og 83150
BILALEIGAN VÍK
Grensásvegi11
Sími 37688
Eftir lokun,
símsvari 37688
ferðast þegar færi gefst.
Já, það er einmitt það. Svo
við víkjum nú að öðru, er næg-
ur fiskur í sjónum?
Já, tvímælalaust, enginn vafi
á því, aldrei verið meiri fiski-
gengd en einmitt nú. Það er allt
morandi langt inná firði, ekki
séð jafn mikinn fisk í mörg ár.
Það held ég nú. Menn eru al-
mennt sammála um það.
Ekki fiskifræðingarnir?
eru eintómir aumingjar og let-
ingjar sem koma útúr þessum
stofnunum, og þetta fólk á að
erfa landið.
Þú telur semsagt að af nógu
sé að taka í sjónum þrátt fyrir
bölsýni fiskifræðinga?
Já, ekki nokkur vafi á því,
það er augljóst.
Og þú vilt leggja uppúr því
að veiða sem allra mest á sem
skemmstum tíma?
dag.
En værirðu þá til í að gefa
aflakóngsnafnbótinni líf?
Ja, jú því ekki það, því ekki
það.“
Hér lauk þessu voðalega
viðtall. Ég sá ekki betur en að
þessum sóma fslands, Balla
Bunu, hefði verið stillt upp við
vegg og hann látinn afneita
sjálfum sér. Ég kastaði blaðinu
umsvifalaust.
Nú draga allir fram
prjónana!
PLÖTULOPI — HESPULOPI — HOSUBAND
PRJÓNUM
GRIMMT
f SKAMMDEGINU I
Kínverskur
kristall
Prjónagarn
verölisti
Zareska — Super
Sport 1.390
Zareska — Marianne ... 622
Zareska — Mia 485
Zareska — Tambourin 981
Zareska — Adoreé 1.410
Zareska — Mohair 861
Zareska — Colorado ... 620
Zareska — Go-
Go-Grattie ... 565
Zareska — Amigo 1.060
Zareska — Ebro 920
Zareska — Maris 1.015
Kid — Mohair 969
Hjerte — Fnug ... 635
Hjerte — Trine 364
Hjerte — Combi crepe 849
Super wash — Planeta 990
Fleur Mohair ... 891
Boheme 420
Suprema 630
Skútugarn — Smash ... 491
Skútugarn — Formula . 395
Peder — Most ... 560
Orsa ... 530
Leithen — Gamma 840
Leithen — Flash ... 623
úrvali
Sinarfíuðfjiiwsson k jf.
Sími 7200 — Bolungarvík