Vestfirska fréttablaðið - 09.10.1980, Page 6
[ vestMa
FRETTABLADID
að saka. En annað eins óráðsrugl
og þetta kvæði hélt ég. að próf-
semjandi væri ekki þekktur fyrit
að bera á borð. Ég skora á frú
Önnu að birta þetta kvæði og
sýna fram á ágæti þess. Ef henni
tekst það sannfærandi að sýna
fram á. að kvæði þetta sé við hæfi
unglinga, sem þreyta grunnskóla-
próf. þá skipti ég um skoðun. En
prófin eru námsskrá. Kennarar
kenna bókmenntir í samræmi við
það, sem prófin benda til. Þannig
hefur frú Anna, eins og aðrir
íslenskukennarar, fengið óbein
fyrirmæli um, hvernig kenna eigi
Ijóð.
Og enn vil ég spyrja frú Önnu:
Er hún því sammála, að grunn-
skólapróf í íslenzku sé haldið á
miðjum vetri hvers árs? Finnst
henni það ekki slíta sundur og
trufla eðlilega og skipulega
kennslu?
„ALLIR KENNARAR ERU
MÓÐURMÁLSKENNARAR."
Svo tók Indriði Gíslason til
orða í grein, sem hann skrifaði í
Morgunblaðið fyrir nokkrum ár-
um. Ég hef að vísu gagnrýnt ís-
lenzkukennara. I títt nefndu við-
tali við mig í þessu blaði gagn-
rýndi ég hvers konar „fræðinga"
og stjórnmálamenn fyrir lélegt
málfar. Það er hastarlegt, en sýnir
galla íslenzks skólakerfis, að jafn-
vel langskólagengnir menn skuli
gera sig seka um málvillur, sem
íslenzkukennarar á grunnskóla-
stigi berjast gegn. En ég minntist
ekki á kennara aðra en íslenzku-
kennara. Því miður eru þeir
margir hverjir hirðulausir um
málfar sitt. Þeir gera sér ekki
grein fyrir þeim sannindum. sem
felast í þeim orðum Indriða
Gíslasonar, sem ég vitnaði í hér
að framan. Þessir menn kunna
kannski vel sitt fag. En er það
nóg?
Ég hef séð stærðfræðikennara
skrifa grein og fyrirsögn hennar
var: „Missir fjölskyldufaðirs."
Annar stærðfræðikennari sagði á
kennarafundi eitthvað á þessa
leið: „Ég hef aldrei leitað til fað-
irs hans.“ Er nokkur furða þótt
íslenzkukennurum veitist róður-
inn erfiður.
LOKAORÐ.
Það er margt, sem ég gæti bætt
við það, sem ég hef þegar sagt í
þessari grein og ég hef ekki svar-
að nær því öllu, sem fram kom í
síðasta eintaki þessa blaðs, en ef
ég gerði það yrði grein mín allt of
löng. En ég vil þó til viðbótar
benda á, að með grunnskólakerf-
inu er verið að gera fólk að fag-
aulum. Þar á ég við val milli
námsgreina í 9. bekk. Um það
gæti ég skrifað aðra langa grein.
Þá gæti ég líka skrifað um það
agaleysi, sem alls konar nýjungar
og brölt leiða af sér. En hér læt ég
staðar numið að sinni.
Sk.Ben.
Blómasúlurnar
eru komnar
TVÆR GERÐIR
OG TVEIR LITIR
*
Blómabúðin
ÍSAFIRÐI — SÍMI4134
Starfskraftur
óskast
í verslun okkar. Þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Upplýsingar í síma 3720 eftir kl. 19:00
Ffensillinn
ÍSAFIRÐI
Kaupfélag ísfirðinga
vefnaðarvörudeild
Nýkomið
★ Velour og frotté
í baðsloppa
Rúmfataefni
Gæsadúnn
★ Gardínuefni
kjólefni
Loðefni
$ miPIÍifG ÍSFIROINCA
VEFNAÐARVÖRUDEILD SÍMI 3246
L
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Tvö samliggjandi skrifstofuherbergi,
eða til líkra nota, eru til leigu á neðri
hæð hússins Fjarðarstræti 15, ísafirði.
Sér inngangur. Stærð herbergjanna
beggja með forstofu er um 48 ferm. Á
sömu hæð, við hliðina á hinum herbergj-
unum, er herbergi til leigu, en það er um
15 ferm.
Þeir sem kynnu að hafa hug á að
leigja umrætt húsnæði, hafi samband
við undirritaðan fyrir 15. þ.m.
ísafirði, 8. október 1980
Jón Á. Jóhannsson
sími 3104
Tilkynning frá Fisk-
veiðasjóði íslands
um umsóknir um
lán á árinu 1981
Á árinu 1981 verða veitt lán úr Fiskveiðasjóði
fslands til eftirtalinna framkvæmda í sjávarút-
vegi:
1. TIL FRAMKVÆMDA I FISKIÐNAÐI.
Eins og áður verður einkum lögð áhersla á
framkvæmdir er leiða til aukinnar hagkvæmni í
rekstri og bættrar nýtingar hráefnis og vinnuafls
og arðsemi framkvæmdanna. Ekki verða veitt
lán til að hefja byggingu nýrra fiskvinnslustöðva,
eða auka verulega afkastagetu þeirra, sem fyrir
eru á þeim stöðum, þar sem talið er að næg
afköst séu þegar fyrir hendi til vinnslu þess afla,
sem gera má ráð fyrir að til falli í byggðarlaginu
2. TIL FISKISKIPA.
Lán verða veitt til skipta á aflvél og til tækja-
kaupa og endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og
hagkvæmt, svo og einhver lán til nýbygginga
innanlands.
Umsækjendur um lán skulu skila umsóknum
sínum á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim
gögnum og upplýsingum sem þar er getið, að
öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina.
(Eyðublöðin fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs Is-
lands, Austurstræti 19, Reykjavík).
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1980.
Umsóknir er berast eftir þann tíma verða ekki
teknar til greina við lánveitingar á árinu 1981,
nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Allar eldri
umsóknir þarf að endurnýja.
Lánsloforð Fiskveiðasjóðs skal liggja fyrir, áður
en framkvæmdir eru hafnar.
Til sölu
er þessi
9 manna
VW microbus.
Upplýsingar
í síma 3526
milli kl. 19 og 20
Hrafn Snorrason
Félagsfundur
verður haldinn n.k. laugardag, 11. októ-
ber í Skátaheímilinu, Mjallargötu 4, kl.
13:00
FUNDAREFNI:
I. Vetrargeymsla
II. Húsbyggingarmál
III. önnurmál
Áríðandi er að félagsmenn mæti, ekki
síst bátaeigendur.
STJÓRNIN
□ Bílasöluumboö
□ Bílabúð
□ Bílaverkstæöi
□ Bílamálun
Vélsmiöjan Þór hf.
Símar: 3041 — 3057 — 3711