Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Síða 1

Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Síða 1
'—vestfirska— FRÉTTABLAÐ Alla leiö meó Ir lTI EIMSKIP l !r| Sími 3126 ÍÞRÓTTAVÖRUR í ÚRVALI ★ Fótboltaskór ★ Æfingagallar ★ Æfingaskór ★ Stuttbuxur ★ Boltar ★ Bolir Henson Adidas Björgvin Sighvats- son lætur af skóla- stjórn f lok þessa skólaárs læt- ur Björgvin Sighvatsson skólastjóri af stjórn Barna- skóla ísafjarðar. Björgvin hóf kennslustörf á ísafirði haustið 1943, en tók við skólastjórn Barnaskólans árið 1963, og hefur því gengt því starfi í 19 ár, en Björgvin mun eiga að baki lengstan starfsaldur opin- berra starfsmanna á ísa- firði. Auk starfa að kennslumálum, hefur Björgvin tekið virkan þátt í félagsmálum, verið bæjar- fulltrúi og forseti bæjar- stjórnar á ísafirði auk þess sem að vera forseti Al- þýðusambands Vestfjarða um skeið. f. Nýjar reglur um húsa- leigu bæjar- húsnæðis Nú er óðum að komast í framkvæmd ný reglugerð varðandi húsaleigu í leigu- húsnæði bæjarins. Að því er Haraldur Líndal Har- aldsson bæjarstjóri tjáði blaðinu, er gengið út frá 3,5% af brunabótamati húsnæðisins, en bruna- bótamat hækkar ársfjórð- ungslega. „Við erum farnir að kalla fólk til okkar til þess að ræða málin og gera grein fyrir reglunum, en húsaleigusamningun- um var sagt upp 1. apríl 1981.“ Aðspurður um hversu húsaleiga myndi hækka að meðaltali þá kvað bæjar- stjóri slíkt ekki hafa verið reiknað og hefði hann eng- ar fölur handbærar þar að lútandi. f. Skyndi- happ- drætti Skíðaráðs Skíðaráð ísafjarðar efndi til happdrættis á Silfurtorgi s.l. föstudag. Gátu menn þegar í stað séð hvort þeir hefðu hreppt vinning og blés það heilmiklu Iffi í stemmninguna þarna á Torginu. Fór margur maðurinn heim með rækju- poka eða skíðaútbúnað og var gerður góður rómur að þessu fyrirtæki Skíðaráðs. SinarfftAðfjiyimson k fí. <yW 7200 - iflS Sol uniýa’iOík SPQRTJ Helst þjófnaðir og innbrotamál,; sem rekur á okkar fjörur ! Á s.l. hausti, nánar tiltekið í október tók til starfa sérstök deild innan lögregiunnar í ísa- fjarðarumdæmi og heitir Rann- sóknarlögreglan á ísafirði. Jónas Eyjólfsson er starfsmað- ur þessarar deildar og við spurðum Jónas um ástæðuna fyrir því að þessi deild var stofnuð. „Það er alltaf þannig, að upp koma ákveðin mál í þetta stóru Um síðustu helgi kom hing- að rússneskt rækjumóðurskip, Irkutsk, með rækju úr Barents- hafi svo sem skýrt var frá að væri væntanlegt í síðasta tölu- blaði Vestfirska. Samkvæmt upplýsingum Sturlu Halldórs- sonar yfirhafnarvarðar, er þetta stærsta skip sem komið hefur til ísafjarðar og er 137 metrar að lengd og samkvæmt bókum Ljósm. Anfinn Jensen. Loyds er skipið 5217 tonn. Skipið mun hafa losað hér 450 tonn af frystri rækju, sem ætl- uð er til niðursuðu og er það meira magn er upphaflega var áætlað að kaupa hér. Þá sagði Sturla að um borð í skipinu væri 69 manna áhöfn, þar á meðal eiginkonur einhverra skipverja. f. bæjarfélagi, sem þurfa frekari úr- vinnslu og eins og mannafia hefur verið háttað hjá okkur þá hefur reynst erfitt að sinna málum, sem kannski virtust iítilfjörleg í upp- hafi, en krefjast svo bara mikillar úrvinnslu. Slík mál hafa ekki fengið þá úrvinnslu sem skyldi." Hvernig var unnið úr málum áður? „Áður voru mál unnin af al- mennurn lögreglumönnum og þá fylgdi hlutaðeigandi lögreglu- maður kannski málinu til enda, mál gátu jafnvel gengið á milli manna, upplýsingar hugsanlega brenglast o. s. frv.“ En hvert er þitt hlutverk, ef þú vildir skilgreina það? „Mitt hlutverk er að taka við kærum sem berast til lögreglunn- ar, og ef lögreglumenn telja, að mál þurfi frekari úrvinnslu, spurnig um skaðabótakröfur til dæmis, þá fæ ég málið sent. Ég boða fólk hingað til yfirheyrslu, ef málið er þess eðlis, að hægt er að boða, stundum þarf að hand- taka fólk.“ Hvaða mál rekur helst á þínar fjörur? „Þetta eru mest þjófnaðar- og innbrotsmál, bílþjófnaðir, þá er um að ræða líkamsárásir, skjala- fals, nú vinnuslys og öll meiri háttar slys. Inn í þessi mál koma síðan oft skaðabótakröfur, og það er gert ráð fyrir því í lögum að tjónþoli eigi kost á því að koma á framfæri skaðabótakröfu í refsi- máli. þannig að menn þurfi ekki að fara einkamálaleiðina. Er á þetta litið sem dómsátt ef skaða- bætur fást greiddar samkvæmt þessari kröfugerð." Hvernig er búið að deildinni tæknilega? „Ég get tekið fingraför á vett- vángi, ég hef fingrafaratösku og náttúrulega myndavél, annað í rauninni höfurn við ekki. En ég vil leggja áherslu á, að með til- komu þessarar deildar fær fólk úrvinnslu mála sinna með meira öryggi og fyrr en ella, það er reynt að gera það sem hægt er“. f. Afli SÚÐAVÍK: Bessi kom með rúm 162 tonn af grálúðu fyrir síð- ustu helgi. Valur er á trolli fyrir sunnan, en hefur gengið illa vegna gæfta- leysis. ÍSAFJÖRÐUR: Guðbjartur kom með 150 tonn á mánudag, einkum karfa. Páll Pálsson landaði 185 tonnum af grálúðu í vikunni. Júlíus Geir- mundsson landaði 215 tonnum á þriðjudag og Guðbjörg 280-290 tonnum á miðvikudag, einkum grá- lúðu. Línubátar hafa fiskaö vel, en þó hefur gefið illa síðustu daga. BOLUNGARVfK: Dagrún landaði rúmum 80 tonnum af grálúðu þann 30. apríl. Heiðrún landaði á þriðjudag 130 tonnum af grálúðu. SUÐUREYRI: Elín Þorbjarnardóttir land- aði 3. maí 10 tonnum af grálúðu. FLATEYRI: Gyllir landaði á mánudag 170 tonnum af grálúðu. ÞINGEYRI: Framnes I landaði fyrir helgi 150 tonnum. Fram- nes II var á þorski og held- ur er tregt á línuna. BILDUDALUR: Sölvi Bjarnason landaði á föstudag tæpum 96 tonn- um, aðallega grálúðu og einhverju af þorski. Síðasti dagur á rækjunni á mið- vikudag. TÁLKNAFJÖRÐUR: Tálknfirðingur er á leiðinni inn með um 150 tonn af grálúðu. PATREKSFJÖRÐUR: Sigurey kom inn rrcsð 140- 150 tonn af grálúðu fnu- bátar hafa verið mc -7 tonn að undanförnu. Lítill afli í net. Veður GOTT VEÐUR UM HELGINA? Hafliði Jónsson veður- fræðingur gerir ráð fyrir því ótrúlega, það er að segja góði veðri á Vest- fjörðum um helgina. Hann spáir suðaustlægri átt, björtu veðri og tiltölutega hlýju og þetta ætti að geta haldist fram á sunnudag, að því er hann telur.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.