Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Page 2
I vestfirska I
FRETTABLADiS
Vikublað, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 -
Skrifstofa Hafnarstræti 2, sími 4011 - Opin virka
daga frá kl. 13:00 — 17:00 - Blaðamaður Finnbogi
Hermannsson, sími 4057 - Útgefandi og ábyrgðar-
maður Árni Sigurðsson, Fagraholti 12. ísafirði. sími
3100 - Verð í lausasölu kr. 7,00 - Áskriftarverð er
lausasöluverð, reiknað hálfsárslega eftirá - Prentun:
Prentstofan fsrún hf., sími 3223.
Þegar Björgvin Sighvatsson lætur af störf-
um nú í vor, sem skólastjóri Barnaskóla
Isafjarðar eftir giftudrjúg störf við skólann,
fyrst sem kennari í tuttugu ár og síðan
skólastjóri í nítján ár, þá er ljóst að taka
verður ákveðna stefnu hvað varðar stjórn
grunnskólans hér á ísafirði.
Samkvæmt grunnskólalögunum eru þeir
skólar, sem áður hétu barnaskólar og ungl-
ingaskólar nú ekki lengur aðskildir, heldur
sameiginleg stofnun undir heitinu grunn-
skóli. Hér á ísafirði hafa til þessa starfað og
starfa enn, tveir barnaskólar og gagnfræða-
skóli, sem falla undir grunnskóla. Skólastjór-
ar eru þrír, en almennt er talið að nemenda-
fjöldi og umfang stofnunarinnar, (Grunn-
skólans á ísafirði), sé ekki slíkt að það sé
nauðsynlegt að sá háttur sé hafður um stjórn
hennar. Eðlilegast er að stefnt verði að því að
einn skólastjóri starfi við stofnunina, en að
yfirkennarar verði við þær grunnskólaeining-
ar, sem nú eru síarfræktar í bæjarfélaginu,
tveir, eða þrír eftir ástæðum.
Það liggur fyrir að grunnskólaeiningarnar
hér á eyrinni búa við mjög þröngan kost í
húsnæðismálum. Sem stendur kemur það
meðal annars til af því, að menntaskólinn
heldur enn stórum hluta þess húsnæðis, sem
tilheyrir grunnskólanum, þ.e. gamla barna-
skólahúsinu, vegna þess, hve dregist hefur á
langinn að byggja kennsluhúsnæði M.í. Nú
hillir þó undir það að framkvæmdum við þá
byggingu fari að ljúka og þá ættu húsnæðis-
mál grunnskólans að leysast. Þá eru uppi
áform um að tengja gagnfræðaskólahúsið við
hið nýrra húsnæði barnaskólans og einnig að
tengja gamla barnaskólahúsið við hið nýja.
Grunnskóli
r
a
tímamótum
I hugmyndum um breytingar á skipulags-
og stjórnunarþáttum grunnskólans, sem
Björgvin Sighvatsson, skólastjóri setti fram í
bréfi til skólanefndar í febrúar s.l. leggur
hann m.a. til að ráðinn verði skólafulltrúi
ísafjarðar, sem annist skipulags- og fjármál
stofnunarinnar í umboði bæjarstjórnar. Fari
skólafulltrúinn með fjármálalega stjórn og/-
eða eftirlit, hvað varðar þá skóla, sem bæjar-
félagið á aðild að lögum samkvæmt.
Telur Björgvin m.a. að með þessu fengist
meiri festa og verulega aukið eftirlit með
fjármálalegum viðskiptum bæjarfélagsins
vegna skólanna við þær ríkisstofnanir, sem
með þessi mál fara.
Hér skal ekki dómur á það lagður, hvort
slíkt starf á rétt á sér. I umfjöllun um þá
tillögu, þarf að fara fram nákvæmt mat á
því, hvort sá kostnaður, sem það hefur í för
með sér fyrir bæjarfélagið sé réttlætanlegur.
Það ræðst svo að sjálfsögðu af því, hvort fé,
sem þannig yrði út lagt myndi skila sér aftur
í formi aukins sparnaðar og hagkvæmni í
rekstri grunnskólans.
Sú staðreynd að Björgvin Sighvatsson, sá
skólamaður, sem Isfirðingar eiga hvað mest
að þakka á undanförnum áratugum lætur af
störfum nú í vor, kallar á að þessi mál verði
tekin til afgreiðslu nú þegar, með framtíðar-
skipulag grunnskólans í huga.
f—............................
Frá Vestfirska
fréttablaðinu
1. Allt aðsent efni í blað vikunnar
verður að hafa borist okkur fyrir
hádegi á mánudegi.
2. Auglýsingahandrit verða að berast
fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi.
Allar ábendingar um fréttaefni eru
þegnar með þökkum. Finnbogi svar-
ar f síma 4011 og Arni í síma 3223.
Auglýsendur vinsamlega hafið sam-
band við Árna i síma 3223.
Vestfirska fréttablaðið.
-*
---SmáaugEýsingar
TILSÖLU
Sunbeam 1500, árgerð
1972. Seist ódýrt.
Upplýsingar í síma 7265.
TIL SÖLU
Volvo 244 DL, árgerð 1977,
ekinn 50 þús. km., upp-
hækkaður. Bifreiðin er vel
með farin og í topp standi.
Upplýsingar í síma 6158.
TILSÖLU
Datsun Cherry, árgerð
1979, ekinn 35 þús. km.
Upplýsingar í síma 3034 og
3024 í vinnutíma.
BARNASTÓLL
á reiðhjól óskast til kaups.
Upplýsingar í síma 3653.
TILSÖLU
Mazda 929, árgerð 1977.
Gullfailegur bíll.
Upplýsingar í síma 6927 og
6987.
TILSÖLU
4ra herbergja íbúð, neðri
hæð að Hreggnasa 3,
Hnífsdal.
Upplýsingar í síma 3384 á
kvöldin.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir að taka á leigu
3-4 herbergja íbúð á (sa-
firði frá 1. september.
Vinsamlegast hafið sam-
band við Anfinn í Prentstof-
unni ísrúnu eða í síma
4262.
REiÐHJÓL
Til sölu er 12 gíra DBS
keppnisreiðhjól.
Upplýsingar í síma 3060 á
kvöldin.
ÍBÚÐ ÓSKAST
4ra - 5 herbergja íbúð ósk-
ast á leigu.
Upplýsingar í síma 4282.
BARNAGÆSLA
Vantar barnapíu fyrir 2ja
ára telpu í sumar, frá kl.
8:00 — 12:00.
Konný í síma 3183.
HERBERGIÓSKAST
Reglusaman, ungan mann
vantar herbergi frá og með
26. maí til mánaðamóta
ágúst/september.
Upplýsingar í síma 3043.
LEIGUSKIPTI
Vil taka á leigu íbúð á ísa-
firði. Get boöið leiguskipti
á íbúð í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 4076
eftir kl. 20:00.
TILSÖLU
Datsun Sunny, árgerð
1980, ekinn 24.600 km.
Skipti á ódýrari bíl koma til
greina.
Upplýsingar í síma 7421.
TILSÖLU
Bifreiðin ( 20, Toyota
Cressida station, árgerð
1978, ekin 42 þús. km.
Endurryðvarinn. — Með 9
nýlegt pústkerfi.
Upplýsingar í síma 3682,
Haukur Eggertsson.
BÍLASKIPTI
Úska eftir að skipta á
Skoda Amigo, árgerð
1977, keyrðum aðeins 30
þús. km. og nýrri bíl. Milli-
greiðsla 20.000 til 30.000
kr.
Upplýsingar í síma 4269.
TILSÖLU
Suzuki TS 50, árgerö 1980.
Upplýsingar í síma 3448
eftir kl. 19:00.
TILSÖLU
Nýlegur Silver Cross
barnavagn.
Upplýsingar í síma 4260.
Hlíf og David Tutt með
hljómleika, laugardag
Á laugardaginn kemur halda þau Hlíf
Sigurjónsdóttir, fiðluleikari og David Tutt,
píanóleikari hljómleika í Alþýðuhúsinu á
ísafirði og hefjast þeir klukkan 17:00. Efn-
isskráin er fjöibreytt og verða m.a. leikin
verk eftir Sehubert, Brahms, Beethoven,
Kreisler og Sarasate.
Hlíf Sigurjónsdóttir er ísfirðingum að
góðu kunn en hún lauk burtfararprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík 1974, þar
sem hún var nemandi Björns Ólafssonar.
Hún stundaði nám hjá Franco Gulli við
háskólann í Indiana 1975 — 1977 og hjá
Lorand Fenyves við háskólann í Toronto
1977 — 1979. Þá var Hlíf styrkþegi við
Listaskólann í Banff i Kanada. Hlíf hefur
kennt við Tónlistaskóla Isafjarðar í vetur.
Hún hefur víða komið fram opinberlega,
bæði hér á íslandi og erlendis.
David Tutt stundaði nám í heimalandi
sínu, Kanada, en lauk B.A. prófi frá há-
skólanum í Indiana. Kennari hans þar var
Gyorgy Sebok. David Tutt hefur unnið til
margra verðlauna, þar á meðal gullverð-
launa Tónlistarháskólans í Toronto. Síð-
ustu tvö árin hefur hann verið styrkþegi við
Listaskólann í Banff.
TRILLUBÁTUR TILSÖLU
TIL SÖLU Fiat 125 P, árgerð 1975,
Nýlegur 4,5 lesta trillubát- ekinn 43 þús. km.
ur með stafnklefa (3 kojur, Upplýsingar í síma 3323 á
upphitun) og stýrishúsi. kvöldin.
Boiurinn er enskur, úr
trefjaplasti og innrétting BIFREIÐ TIL SÖLU
að mestu úr timbri. Vél 32 Til sölu er bifreiðin í 334,
ha. Saab, 3 rafknúnar Mazda 323 station, árgerð
handfæravindur, Simrad 1979, ekin 30 þús. km.
dýptarmælir, vökvaspil og Upplýsingar í síma 6165
vökvastýri.. Tvöföld fiski- eftir kl. 19:00.
lest með ísgeymslu í bak-
borði. Rafkerfi samkvæmt VIL KAUPA
fyrirmælum Siglingamála- gamalt en nothæft hring-
stofnunar. Talstöð. spólu segulbandstæki.
Upplýsingar gefur Þorgils í Sigfús B. Valdimarsson,
síma 96-61505. sími 3049.
TÚNÞÖKUR
Talsvert magn af túnþök-
um verður til sölu í vor.
Hafið samband við Halldór
í síma 7748.
TIL SÖLU
Hillman Hunter, árgerð
1970, lítur vel út og er í
góðu lagi.
Upplýsingar í síma 7282.
TILSÖLU
Bifreiðin í 2340, Volvo GL,
árgerð 1980. Vel með far-
inn bfll.
Upplýsingar í síma 3207
eftirkl. 17:00.