Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Qupperneq 4

Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Qupperneq 4
4 véstiiria I rRETTABLADID Þrír leikir — Þrír sigrar Eins og menn vita ávann knattspyrnulið ÍBf sér rétt til þátttöku í 1. deild 1982. Árang- ur liðsins í fyrra vakti að vonum mikla athygli jafnt heima- manna svo og annarra lands- manna, enda fátítt ef ekki eins- dæmi að knattspyrnulið vinni alla sína heimaleiki eins og ÍBf gerði. Eiga áhugasamir áhorf- endur og stuðningsmenn þar stóran þátt. Eftir að Magnús Jónatansson þjálfari hafði verið endurráðinn síðastliðið haust og fundað hafði verið með liðsmönnum um undir- búning fyrir næsta keppnistíma- bil, kom sú hugmynd fram að fara í æfingabúðir erlendis áður en mótið byrjaði hér heima. Voru menn sammála um að slíkt gæti verið veigamikill liður í undir- búningnum og var þá horft til reynslu annarra liða. Fljótlega uppúr áramótum var þetta síðan endanlega ákveðið og undirbún- ingur hafinn og var þeim Pétri Í.B.Í. íKöln. Ljósm. Halldór Jónsson. Geir og Halldóri Jónssyni falið að möguleikum var ákveðið að fara Þann 5. apríl var síðan haldið sjá um málið fyrir hönd stjórnar til Kölnar í Þýskalandi á vegum utan og flogið til Luxemborgar en KRÍ. Eftir könnun á ýmsum ferðaskrifstofunnar Atlantik. þaðan keyrt til Kölnar. í hópnum VÉLSMIÐJAN ÞÓR HF. Þá er komió 40 að því, sem NYJUNG! Sjálfstæð gormafjödrun; aó aftan allir hafa þeðið eftir! Á laugardaginn kl. 14:00 — 17:00 sýnum við og seljum BMW 315. 316. 518 bifreiðar. Hugmyndin aö baki # hönnunar hins nýja ^ Mazda 929, var aö skapa bíl, sem væri einstakur meðal bíla í sama stærðarflokki. Við erum þeirrar skoðunar, að þetta hafi tekist. I hinum nýja Mazda 929 fara saman renniiegar og fallegar útlitslínur og rúmgott og glæsilegt Á sunnudaginn kl. 14:00 — 17:00 verður Mazda flotinn kominn á staðinn og þá sýnum við og seljum Mazda 323. 626. 929 bifreiðar. farþegarými, þar sem þægindi og öryggi eru í fyrirrúmi. Og vélin, sem er mjög hljóðlát, er í senn bæði aflmikil og sérlega sparneytin. Já, hinn nýi Mazda 929 er eins og sniðinn fyrir nútímafólk, rúmgóður, sparneytinn og nýtísku- legur í útliti og að tæknilegri gerð. Vélsmiöjan ISA JOROUR Simnefni: Vélar Simi 3711 og 3041 Postholf 69 Nnr 9355-0609 BIFREIÐADEILD sem fór, voru 19 leikmenn, þjálf- ari, þrír stjórnarmenn í KRl og Hans Haraldsson frá Atlantik. Var hópurinn í jökkum sem Ljón- ið á ísafirði hafði gefið. Allur aðbúnaður og æfingaað- staða var til fyrirmyndar og ekki yfir neinu að kvarta og menn undu sér þarna vel. Þó var ekki um hvíldarferð að ræða, því æft var tvisvar á dag, kvölds og morgna, nema þá daga sem spilað var við þýsk lið. Hinn kunni knattspyrnumaður, Janus Guð- laugsson, hafði útvegað þrjá æf- ingaleiki og var sá fyrsti við lið úr fjögur þúsund manna bæ, Habbelrath, og fór fram 8. apríl. Eftir að skipst hafði verið á veif- um hófst fyrsti leikur ísfirsks knattspyrnuliðs á þýskri grund og er skemmst frá því að segja að leikurinn vannst 6:2. Að leik loknum buðu heimamenn upp á hressingu í félagsheimili sínu. Þann 10. var leikið við iið skipað áhugamönnum og liðsmönnum úr varaliði Fortuna Köln og hafði það lið unnið 13 síðustu leiki sína að sögn Janusar og taldi hann ÍBl eiga litla möguleika. I upphafi leiks var líka ljóst að liðsmenn Fortuna töldu ÍBÍ létta andstæð- inga og ætluðu að hér yrði um smá kennslustund að ræða. Þeim brá hinsvegar í brún þegar svo virtist sem þeir væru sjálfir orðnir nemendur. ÍBÍ réð lögum og lof- um á vellinum og þegar flautað var til leiksloka (til mikils léttis fyrir leikmenn F. Köln) var stað- an 3:0 fyrir ÍBl og hafð'i þá dóm- ari leiksins (jafnframt þjálfari heimamanna) dæmt af okkur nokkur mörk á heldur hæpnum forsendum. Var íslenski hópurinn að vonum ánægður með þessi úrslit og þá jafnframt hvað okkar menn unnu vel saman. Horft á landsleik. Pétur Geir Helgason og Hans Haraldsson. Síðasti leikurinn fór fram í Wesselingen sem er þrjátíu þús- und manna bær um 20 km. frá Köln. Eftir að skipst hafði verið á veifum og ieikurinn hafinn kom í ljós að hér var greinilega á ferð- inni sterkara lið en hin fyrri. Þó fór svo að baráttuvilji og leikgleði liðsmanna ÍBl færði þeim sigur, 2:0. Eftir leikinn buðu heima- menn upp á veitingar og var þá skipst á árnaðaróskum og kveðj- um. Leikirnir í ferðinni unnust því samtals 11:2 og vona menn að þetta verði upphaf góðs gengis í 1. deildinni í sumar. Leikmenn sýndu að þeir eru þegar komnir í góða þjálfun og liðsandinn góður. Þátttakendur í ferðinni voru sam- mála um að hún hafi þjónað þeim tilgangi sem að var stefnt. Ó.H.Ó

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.