Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Side 5
I vestíirska
rRETTASLAD'D
Stjórn Orkubúsins bjart-
sýn á lausn fjárhags-
vandans
— Úr skýrslu stjórnarformanns O.V. á aðalfundi.
Ólafur Kristjánsson, formað-
ur stjórnar Orkubúsins flutti
hina árlegu skýrslu og rakti í
upphafi aðdragandann að
stofnun búsins. Þá leit hann
yfir farinn veg þessara fimm
ára sem liðin eru frá stofnun og
gat hinna miklu umsvifa fyrir-
tækisins, en um er að ræða
þjónustu við svo að segja hvert
heimili og einstakling og nær
öll atvinnufyrirtæki í fjórðungn-
um. Formaður varpaði fram
spurningum sem eðlilegt er að
vakni á þessum tímamótum.
Hefur stofnun Orkubús Vest-
fjarða orðið Vestfirðingum til
hagsbóta? Og aukið öryggi
þeirra í orkumálum? Hafa fram-
kvæmdir orðið meiri nú en
ætla má að hefðu orðið að
óbreyttu fyrirkomulagi? Hefur
orkuverð lækkað? Og formað-
ur svaraði þessum spurningum
ekki beint: „Ofangreindum
spurningum mun ég ekki reyna
að svara beint, en vona að svör
verði að finna í skýrslu stjórnar
og embættismanna svo og í
hinni almennu umræðu hér á
eftir."
Þá kom fram í skýrslu for-
manns, að á starfsárinu hafa verið
haldnir 12 formlegir stjórnar-
fundir, þar af tveir með aðal- og
varamönnum.
Varðandi framkvæmdir Orku-
búsins sagði formaður meðal
annars: „Á síðasta aðalfundi
Orkubús Vestfjarða fylgdi með í
fyrsta sinn 5 ára framkvæmdaá-
ætlun. Slík áætlun getur aldrei
orðið mjög nákvæm, en er eigi að
síður stefnumarkandi fyrir um-
rætt tímabil. Sú fimm ára áætlun
sem kynnt er á þessum fundi
sýnir, að verulega dregur úr fram-
kvæmdaþörf á árunum 1984 —
1986.“ Þá minntist formaður á
þau risavöxnu verkefni á vest-
firskan mælikvarða sem væri
bygging hita- og fjarvarmaveitna
á Isafirði, í Bolungarvík og á
Patreksfirði, sem nú væru á loka-
stigi, en framkvæmdir þessar
væru liður í því að útrýma olíu til
húshitunar.
Miklum fjármunum hefur ver-
ið varið til uppbyggingu aðveitu-
stöðva, flutningslína milli byggða
sem og styrkingu og aukningu
dreifikerfa innan bæja, að því er
formaður tekur fram í skýrslu
sinni og í því sambandi minntist
hann á sérstöðu Vestfirðinga í
uppbyggingu varaafls. Vitnaði
formaður til greinar Jakobs Ól-
afssonar, sem hann ritaði nýlega í
Vestfirska fréttablaðið. Að þessu
verður nánar vikið í umfjöllun
um skýrslu Orkubússtjóra, Kristj-
áns Haraldssonar.
Formaður Orkubússtjórnar
rakti síðan niðurstöður starfshóps
um skipurit Orkubúsins, en hann
starfaði innan stjórnarinnar, en á
síðasta aðalfundi var gerð grein
fyrir áfangaskýrslu. Starfshópur
þessi, sem í eru þeir Ólafur Kristj-
ánsson, Aage Steinsson og Guð-
mundur H. Ingólfsson, starfaði
áfram og í framhaldi af því fól
stjórnin stjórnarformanni að eiga
viðræður við sem flesta starfs-
menn Orkubúsins. Um þessar
viðræður skilaði stjórnarformað-
ur síðan skýrslu til stjórnar í des-
ember 1981, einnig var skýrslan
afhent Orkubússtjóra og deildar-
stjórum sem trúnaðarmál.
Starfshópurinn um skipuritið
hefur starfað allt starfsárið og
skilað greinargerð, sem rétt þótti
að leggja fram og var merkt fund-
arskjal 14 á aðalfundi.
HLUTLAUS ÚTTEKT
Á haustmánuðum 1981 taldi
stjórnin tímabært að verða við
tillögu aðalfundar þess árs að
verða við tillögu fundarins um
hina hlutlausu úttekt. Rekstrar-
stofan í Kópavogi annaðist þetta
verkefni og vann Tómas Sveins-
son undirbúningsvinnu að því
fyrir Rekstrarstofuna. Tómas
fylgdi skýrslu sinni úr hlaði á
fundinum, en skýrsla stjórnar tek-
ur að sumu mið af þeirri vitneskju
og tillögugerð, sem henni er
kunnugt um að kemur fram í
skýrslu Rekstrarstofunnar, að því
er fram kom í máli formanns.
Skýrslan sjálf var fundarskjal á
aðalfundinum.
VESTURLÍNA
Þá vék formaður að Vesturlínu
og að þeim fundargögnum aðal-
fundar er innihalda greinargerð
þá sem afhent var forsætis,- iðn-
aðar- og fjármálaráðherra í marz
s.l. Með þessari greinargerð
fylgdu 18 fylgiskjöl allt frá stofn-
fundi til þess dags, að greinar-
gerðin var endanlega frágengin.
Þetta leiddi til þess að boðað var
til fundar með fyrrgreindum ráð-
herrum og fulltrúum Orkubús
Vestfjarða. í framhaldi af því var
Fyrir þig og
blómin þint
ftjSHík < V1
FLOWERPOT SPIKES
■ -
★ Áburðar-
stautar
fyrir grænar
plöntur og
blómstrandi
plöntur
★ Algjört
nýmæli í
umönnun
blómanna!
★ Þægileg, hreinleg áburðargjöf, sem
gefur toppárangur.
Blómabúðin
ísafirði — Sími 4134
' *
Hlífarkonur
Munid fundinn, þridjudaginn 11. maí
kl. 21:00
Mœtid vel og stundvíslega.
Stjórnin
Frá aðalfundi Orkubús Vestfjarða. Ljósm. Finnbogi.
30 tíl 60% afsláttur!
Verslunin
ísafirði
Vegna breytingar á
húsnæði bjóðum við
30% — 60% afslátt
af fatnaði fram yfir
helgi!
Barnaföt með heil-
miklum afslætti
★ Bolir frá tíu krónum
★ Buxur frá fimmtíu krónum
★ og fleira og fleira