Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Qupperneq 6

Vestfirska fréttablaðið - 06.05.1982, Qupperneq 6
vestfirska rRETTABLADID TUDOR RAFGEYmm ðQ líf, LJOSVAKINN Sími 7373 — Bolungarvík SÚÐAVÍKURHREPPUR Útboð Tilboð óskast í viðgerð á stíflu og lagningu aðveituæðar fyrir Vatnsveitu Súðavíkurhrepps. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Súðavíkurhrepps og á Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen, Fjarðarstræti 11, ísa- firði, gegn 500,00 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á Verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsen, ísa- firði, merkt: VATNSVEITA í SÚÐAVÍK TILBOÐ og skulu þau hafa borist Verkfræði- skrifstofunni eigi síðar en föstudaginn 21. maí kl. 15:00 og verða þau þá opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda er viðstaddir verða. Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Vestfírðingar Það er alltaf opið hjá okkur, hvort sem er á nóttu eða degi. Verið velkomin. Söluskálinn Bær Gistingin Bæ Reykhólasveit Stjórn O.V. bjartsýn... Framhald af bls. 5 haldinn fundur með þingmönn- um Vestfjarða sem lýstu ánægju sinni með greinargerðina og vinnubrögð stjórnar vegna þessa máls. Skýrslan í heild sinni er rökstuðningur við kröfur Orku- búsins um bætur vegna seinkunar Vesturlínu, orkuskorts og sölu- skilmála. Er tjónið reiknað á verðlagi 1. febrúar 1982, kr. 41.793.000,00 (eða tæplega 4,2 milljarðar gamalla króna). For- maður rakti ekki frekar gang Vesturlínumálsins, en kvað and- rúmsloftið sem ríkti á ráðherra- fundinum gefa tilefni til bjartsýni fremur en hitt. SURTARBRANDUR Formaður stjórnar Orkubúsins lýsti þá ánægju sinni með fram- komna þingsályktunartillögu Vestfjarðaþingmanna um rann- sókn og hagnýtingu surtarbrands á Vestfjörðum. Taldi hann að hagnýting slíks orkugjafa, ef hag- kvæmt reynist að nýta hann, gæti orðið til þess að efla byggð og renna stoðum undir traustara at- vinnulíf á Vestfjörðum. LOKAORÐFORMANNSí ÁRSSKÝRSLU Ólafur Kristjánsson, stjórnar- formaður Orkubús Vestfjarða, sagði að lokum í ársskýrslunni: „Stofnun Orkubús Vestfjarða og rekstur þess, er stærsta sameig- inlega verkefni sem sveitarstjórn- armenn á Vestfjörðum hafa ráðist í til þessa. Miklar vonir voru og eru bundnar við starfsemi og rekstur Orkubúsins. Því er ekki að leyna, að til er fámennur hópur manna, sem var í upphafi á móti stofnun Orkubús Vestfjarða, og telja að orkumálum Vestfirðinga væri betur komið fyrir undir stjórn aðila utan Vestfjarða. Þess- ir aðilar taka nú gjarnan undir þá skoðun, að háu orkuverði sé um að kenna stofnun Orkubúsins, og slæmum rekstri þess. Mér er ljóst að margt má betur fara og aðhald þarf að vera mikið og meira á flestum sviðum. Gæta þarf hagsýni í framkvæmdum og leita leiða til sparnaðar í rekstri og ódýrari dreifingu orkunnar. Rekstrarstaða fyrirtækisins er veik, stofnkostnaður fram- kvæmda mikill, fjármagn dýrt og gjaldskrá fyrirtækisins má ekki vera hærri en hún er í dag. Við verðum samt að berjast áfram svo settum markmiðum verði náð. Við eigum að hlusta vel á alla gagnrýni og ábendingar sem leiða til betri stjórnunar og þjónustu. Úrtöluraddir þarf að kveða niður og sameiginlega eig- um við að vinna þannig, að við getum verið stolt af þessu fyrir- tæki okkar. Ég bið um hreinskipta umræðu um stöðu Orkubús Vestfjarða á þessum fundi, rök fylgi gagnrýni, vandamál skilgreind og krufin til mergjar, þá mun okkur takast að skapa jákvætt hugarfar til Orku- bús Vestfjarða. Samstjórnar- mönnum mínum vil ég þakka gott samstarf á starfsárinu, um leið og ég þakka Orkubússtjóra og starfsmönnum Orkubúsins fyr- ir ánægjulega samvinnu og gott starf 1 þágu Orkubús Vestfjarða. Sérstaklega vil ég þakka stjórn- armanni og forstöðumanni tækni- deildar, Aage Steinssyni, fyrir mikið og gott starf innan Orkubús Vestfjarða, en hann hefur nú sagt upp starfi hjá fyrirtækinu. Á eng- an tel ég hallað þótt ég leyfi mér að halda því fram, að enginn einn einstaklingur hér á Vestfjörðum, hafi lagt meira að mörkum en Aage Steinsson, til orkumála hér í fjórðungnum. Við árnum honum heilla í nýju starfi um leið og við þökkum honum gæfurík störf. RokkaÖá Eyrinni Framhald af bls. I son er einnig eigi lengur með- limur hljómsveitarinnar, og nú er þessir gæðamenn aðeins Að lokum þetta: Það er von mín að þessi fundur auki sam- stöðu okkar, umræður verði mál- efnalegar og okkur auðnist að finna leiðir sem treysta starf og stöðu Orkubús Vestfjarða.'1 f. fjórir. Guðmundur Hjaltason bassi, Kristinn Níelsson gítar, Sigurður Sigurðsson trumbur, og Bjarni Brynjólfsson raddari. Rokkað á eyrinni voru aðrir tónleikar hljómsveitarinnar, sem vonandi heldur sínu efni- lega samstarfi áfram. Húrra fyrir gæðakvartettin- um Allsherjarfrík. Ps. Við viljum þakka að- standsendum Alþýðuhússins fyrir alla fyrirgreiðslu og von- um að um áframhaldandi sam- starf verði að ræða. ísRokk HLH. " > ORKUBÚ VESTFJARÐA Stakkanesi 1 - Pósthólf 220 400 Isafjörður STARF UMSJÓNARMANNS Laust er til umsóknar starf umsjón- armanns á Suðureyri. Óskað er eftir rafvirkja eða vélstjóra í starfið. Upplýsingar um starfið veitir Jakob Ólafsson í síma 94-3211. Umsóknir um starfið sendist bréf- lega til: ORKUBÚ VESTFJARÐA Rekstrardeild Stakkanesi 400 ísafjörður fyrir 20. maí næstkomandi. ORKUBÚ VESTFJARÐA Plastbátaeigendur athugið! Nú er rétti tíminn til þess að huga að viðhaldi bátsins. Tek að mér viðhald og viðgerðir á plastbátum. Vönduð vinna, geri fast tilboð þér að kostnað- arlausu. Upplýsingar í hádeginu og á kvöldin í síma 7787, Flateyri. ST ARFSKRAFT VANTAR við afgreiðslustörf í byggingavöru- verslun okkar. Upplýsingar í síma 3472. KAUPFÉLAG (8FIRÐIAGA Byggingavörur — Sími 3472 SMIÐIR ÓSKAST Fnni- og útivinna Eiríkur og Einar Valur CCV Upplýsingar í síma 4288 — 4289 r TILBOÐ ÓSKAST Tilboð óskast í neðri hæð hússins Hlíðarvegur 29, ísafirði. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar gefur Guðmundur Þórðarson Sími3888

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.