Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Síða 1
2. tbl. 9. árg.
22. janúar 1983
vestfirska
FRÉTTABLASIÐ
FLUGLEIDIR
Panasonic
Panasonic
Panasonic
sqny Panasonic
Verslunin
Isafiröi sími 3507
Samkomulag um sölu flestra
eigna M. Bernharðssonar hf.
Hluthafar í M. Bernharðsson
h.f. skipasmíðastöð, hafa orðið
sammála um kaup og sölu sín
á milli á miklum hluta eigna
fyrirtækisins. Þrjár dætur
Marselíusar Bernharðssonar
og eiginmenn þeirra kaupa
Skipasmíðastöð í Suðurtanga,
ásamt vélum og búnaði, og
Guðmundur Marselíusson
kaupir dráttarbraut í Suður-
tanga ásamt verkstæðishúsi,
vélum og áhöldum og einnig
skrifstofubyggingu með áfastri
verslun og lagerhúsnæði.
Samkomulag þetta á sér
nokkurn aðdraganda. Eins og
lesendur rekur sjálfsagt minni
til var miklum hluta starfs-
manna fyrirtækisins sagt upp
störfum í byrjun nóvember s.l.,
og var fyrirtækið auglýst til
sölu. I því sambandi lét Guð-
mundur Marselíusson þess
getið í viðtali við Vestfirska að
ástæður þess að fyrirtækið
væri til sölu liggi fyrst og frem-
st í því að sumir hluthafanna,
sem eru ellefu talsins, vildu
selja, en aðeins fimm þeirra
starfa við fyrirtækið.
Það er skemmst frá að segja
að engin kauptilboð bárust í
fyrirtækið og ekki hefur ræst úr
með verkefni. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru nú fáir, allt of fáir
til þess að þeirra vinna dugi til
þess að standa undir rekstri á
eigum fyrirtækisins.
Til að tryggja áframhaldandi
rekstur gerðu hluthafarnir með
sér samkomulag á þriðjudag-
inn var, þess efnis að þau Guð-
mundur Páll Einarsson, Kristín
Marselfusdóttir, Ásgeir S. Sig-
urðsson, Messíana Marselíus-
dóttir, Þórður Pétursson og
Helga Marselíusdóttir kaupa
Naustið og Hveragerði, eða
með öðrum orðum stálskipa-
smiðjuna, en Guðmundur
Marselíusson kaupir gamla
slippinn ásamt skrifstofuhúsi
og tilheyrandi.
Hlutafélaginu M. Bernharðs-
son hefur ekki verið slitið og
það mun starfa áfram, að
minnsta kosti þangað til öðrum
eignum fyrirtækisins en þeim,
sem hafa verið seldar núna,
hefur verið táðstafað.
SV
Rekstur skíða-
svæðisins á
Seljalandsdal er
nú að komast í
fullan gang, að
því er íþróttafull-
trúi, Björn
Helgason upp-
lýsti blaðið um.
Svæðið er opið
alla daga nema
mánudaga, opn-
ar klukkan 10:30
og er opið til
klukkan 21:00 á
þriðjudögum og
fimmtudögum,
en aðra daga til
klukkan 19:30.
Sigrún Gríms-
dóttir rekur nú
alla greiðasölu í
Skíðheimum á
eigin reikning.
Nú þegar hafa
verið bókaðar
pantanir fyrir 200
skólanema af
Suðurlandi í feb-
rúar og mars.
SV
| Afli ]
Afli línubátanna hefur ■
| það sem af er þessum |
I mánuði verið þokkalega I
[ góður þegar gefur, og á- I
! gætur ef miðað er við að- ■
■ stæður. Litla Framnesið á ■
| Þingeyri er komið með um |
I 70 tonn og isafjarðarbát- |
I arnir með um 60 tonn að I
[ jafnaði. Rækjubátarnir eru J
[ farnir á veiðar aftur og hafa !
■ allir verið á veiðum að |
| undanförnu. (safjarðarbát- |
I unum og Súðavíkurbátun- I
I um hefur gengið ágæt- J
[ lega, ná auðveldlega kvót- J
[ anum. í Bolungarvík hefur J
I gengið þokkalega en mjög |
| dræmt er í Arnarfirðinum. |
| Togararnir hafa flestir |
| landað einu sinj í mánuð- |
I inum. Afli þeirra hefur yfir- I
[ leitt verið heldur smár að J
I vöxtum, en sæmilega góð- !
■ urfiskur, mest þorskur.
I SÚÐAVÍK:
I Bessi landaði 10. jan. 86 J
J tonnum.
| ÍSAFJÖRÐUR:
| Guðbjartur landaði 52 |
I tonnum 12. jan. Páll Páls- I
I son landaði 78 tonnum 10. J
I jan. Júlíus Geirmundsson J
I landaði 77 tonnum 10. jan. g
| og aftur 17. jan. sama g
I magni. Guðbjörg kom 12. I
I jan. með 124 tonn.
j BOLUNGARVÍK:
| Dagrún landaði 55 tonnum g
I þann 10. jan. og Hafrún I
I landaði sama dag 53 tonn- I
J um.
j SUÐUREYRI:
| Elín Þorbjarnadóttir land- |
I aði 55 tonnum 10. jan. og í I
1 gær landaði hún 63 tonn- J
S um.
Framboð Sjálfstæðisflokks
íVestfjarðakjördæmi ákveðið
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
manna á Vestfjörðum hélt þing
sitt um framboðsmál fyrir Al-
þingiskosningarnar, sem í
vændum eru, um síðustu helgi.
Þar urðu heitar umræður og
mikil skoðanaskipti, sem hafa
leitt til alvarlegra athugana á
að þeir óánægðu bjóði fram
annan lista í kjördæminu held-
ur en þann sem þingið sam-
þykkti.
Fulltrúar úr Barðastrandarsýslu
mættu til fundarins með fundar-
samþykkt að heiman frá sér þar
sem lagst er gegn prófkjöri og
fylgdu því sjónarmiði eftir.
Ákveðið var með 26 atkvæðum
gegn I7 að prófkjör skyldi ekki
viðhaft.
Þá fór að færast hiti í umræð-
urnar og Ólafur Kristjánsson í
Bolungarvík sagði sig úr kjör-
nefnd. Fundurinn samþykkti síð-
an framboðslista, þar sem
Matthías Bjarnason er efstur og
Þorvaldur Garðar er annar. í
þriðja sæti er Einar K. Guðfinns-
son í Bolungarvík og fjórða sætið
skipar Hilmar Jónsson á Patreks-
firði.
Margir sjálfstæðismenn í kjör-
dæminu eru mjög óánægðir með
að ekki skuli viðhaft prófkjör. en
segja þó að á fundinum hafi verið
unnið fullkomlega lýðræðislega,
en telja heldur að siðferðinu sé
ábótavant, þegar svona ákvörðun
er tekin.
Halldór Hermannsson á ísa-
firði hefur boðað nýjan fram-
boðslista í viðtali við DV og
Sigurlaug Bjarnadóttir hefur í
viðtali við Þjóðviljann gagnrýnt
fundinn. Eftir því sem blaðið hef-
ur fregnað eru margir af forustu-
mönnum flokksins í héraði ó-
ánægðir og eru þar nefndir t.d.
Ólafur Kristjánsson og Guð-
mundur H. Ingólfsson.
Við ræddum við Ólaf Krist-
jánsson og staðfesti hann ó-
ánægju sína í viðtalinu. Hann
sagðist lengi hafa barist fyrir
prófkjöri í flokknum og hann ætti
erfitt með að sætta sig við svo
ólýðræðislegar aðfarir að fá-
mennur hópur taki ákvarðanir
fyrir allan fjöldann í svo stóru
máli sem framboð er. Hann sagði
að mikill fjöldi sjálfstæðismanna
hefði haft samband við sig og
látið óánægju sína í ljósi. Hann
vildi þó ekki segja neitt ákveðið
um það hvort af öðru framboði
sjálfstæðismanna í kjördæminu
yrði. ., Það verður bara að koma í
ljós,“ sagði hann. Hann neitaði þó
ekki að það hefði komið verulega
til tals, en lýsti óánægju sinni með
að Halldór Hermannsson gæfi í
skyn að ágreiningurinn væri á
milli stjórnarsinna og stjórnar-
andstæðinga. „ Það eru algjörlega
óskyld mál. við erum að deila um
prófkjör og uppstillingu listans,"
sagði hann.
Á fundinum kom til umræðu
að Ólafur tæki þriðja sætið á
Framhald á bls. 2.
FLATEYRI:
Gyllir landaði 10. jan. 52
tonnum og er væntanlegur
í dag með ca. 100 tonn.
ÞINGEYRI:
Framnes I kom 10. jan.
með 44 tonn og aftur í gær
með um 80 tonn.
BlLDUDALUR:
Sölvi Bjarnason kom með
75 tonn þann 13. jan.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Tálknfirðingur landaði 70
tonnum 13. jan.
PATREKSFJÖRÐUR:
Sigurey seldi í Bretlandi í
fyrradag 117 tonn fyrir um
22 krónur kílóið.
h.........a