Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Page 2
1 vestíirska I
FRETTABLASZÐ
Vlkublaö, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 - Skrifstofa
Hafnarstræti 14, sími 4011 - Opin virka daga frá kl. 10:00 —
12:00 og 13:00 — 17:00 - Bladamaður Sigurjón Valdimars-
son, sími 4212 - Útgefandi og ábyrgðarmaður Árni Sigurðs-
son, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100 - Verð í lausasölu kr.
12,00 - Auglýsingaverð kr. 60,00 dcm.- Smáauglýsingar kr.
100,00 - Áskriftarverð er lausasöluverð, reiknað hálfsárslega
eftirá - Prentun: Prentstofan ísrún hf. sími 3223.
Skipasmíðar
á ísafirði
M. Bernharðsson, skipasmíðastöð hf. hefur að undan-
förnu átt í erfiðleikum vegna verkefnaskorts. Fyrirtækið
hefur neyðst til að segja upp stórum hluta starfsmanna
sinna og sú starfræksla sem nú er í stöðinni nægir hvergi til
þess að standa undir föstum kostnaði fyrirtækisins. Verk-
efnaskortur í nýsmíði var aðalástæða uppsagnanna, en næg
verkefni hafa verið við viðhald eldri skipa.
Nú hefur orðið samkomulag meðal eiganda M. Bern-
harðsson hf. um að einn af hluthöfunum kaupi bátadráttar-
braut félagsins og viðgerðaraðstöðu, en þrír þeirra samein-
ast um kaup á skipasmíðastöðinni, þ.e. nýsmíðaaðstöðunni
í Suðurtanga. Skipadráttarbrautin í Suðurtanga verður
a.m.k. fyrst um sinn í eigu M. Bernharðsson hf., en unnið er
að því að Hafnarsjóður ísafjarðar komi inn í það dæmi, sem
eignaraðili.
Um mikilvægi skipasmíðaiðnaðar fyrir ísafjarðarkaup-
stað, hvort sem er nýsmíði eða viðgerðir, þarf enginn að
efast. Það er sjálfsögð krafa að á ísafirði sé unnt að sjá um
viðhald alls fiskiskipaflota Vestfirðinga. Þegar dráttarbraut-
in í Suðurtanga er komin í það lag, sem stefnt er að nú, þá
verður hægt að taka þar uppskip allt að 800 þungatonnum
en innan þeirra marka eru minnstu skuttogararnir.
En til þess að ísfirskur skipaiðnaður geti svo viðunandi sé
tekið allt viðhald hinna stærri fiskiskipa í samkeppni við
skipasmíðastöðvar í öðrum landshlutum, þá er óhjákvæmi-
legt að hann annist einnig verkefni í nýsmíði. Að öðrum
kosti er útilokað að halda þann mannafla, sem til þarf til
þess að Ijúka viðgerðarverkefnum á þeim skamma tíma,
sem skipin mega stoppa.
Skipasmíðaiðnaðurinn hefur um áratuga skeið verið einn
af traustustu hornsteinum atvinnulífsins. ísafjarðarkaup-
staður byggist öðru fremur á útgerð og fiskvinnslu. Skipa-
smíðaiðnaður, nýsmíði og viðhald, eiga þar miklu hlutverki
að gegna í framtíðinni, ekki síður en hingað til.
Smáauglýsingar ■
I BAHÁ'ÍTRÚIN
J Upplýsingar um BaháTtrúna
I eru sendar bréflega, ef ósk-
■ að er. Utanáskrift: Pósthólf
| 172, ísafirði. Opið hús að
| Sundstræti 14, sími 4071 öll
I fimmtudagskvöld frá kl. 21
I —23.
| --------------------------
! AL ANON FUNDIR
I fyrir aðstandendur fólks,
| sem á við áfengisvandamál
I að stríða, eru kl. 21:00 á
I mánudagskvöldum að Aðal-
[ stræti 42, Hæstakaupstað-
[ arhúsinu.
■ Upplýsingar eru veittar í
■ síma 3411 á sama tíma.
TIL SÖLU
er Silver Cross barnavagn.
Upplýsingar í síma 3931
I TILSÖLU
[ Mazda 626, 1600, árgerð
[ 1979. Bíllinn Iftur ágætlega
I út
| Upplýsingar í síma 6956
TIL SÖLU
Fínn bíll á hlægilegu verði.
Ford Comet, árgerð 1973 til
sölú. Kramið er gott en
boddíið þarnast viðgerðar.
Bíllinn selst á kr. 15.000,-
gegn staðgreiðslu.
Upplýsingar í síma 3385
TIL SÖLU
Mazda 929, árgerð 1977,
sjálfskiptur, vel með farinn.
Upplýsingar í síma 3421
TIL SÖLU
er bifreiðin VW Microbus
(Rúgbrauð) með .bilaða vél,
árgerð 1972. Sæti eru fyrir 7
farþega. Verð: 10-12 þúsund
krónur. Á sama stað er til
sölu barnavagn úr tágum,
baðborð og barnabakpoki.
Upplýsingar í síma 4181
TIL SÖLU
Plymoth Volare árgerð 1977,
6 cyl. sjálfskiptur, vökva-
stýri, ekinn 68 þúd. km. Bfll í
toppstandi.
Upplýsingar í síma 3856
TIL SÖLU
tveir Volvoar.
Annar er Volvo 144, árgerð
1969 og hinn er 245 árgerð
1975. Báðir bílarnir eru í á-
gætu ástandi og sá nýrri er
að koma úr sprautun.
Upplýsingar í síma 4044
TILSÖLU
Passap Duomatic prjónavél
með mótor.
Upplýsingar í símum 4288
eða 4101 eftirkl. 19:00
Orðið er laust
— Lesendadálkur —
Rífið kjaft við tölvuna
,,Rífiöi kjaft við tölvurnar,"
sagði ágætur maður í sjónvarp-
inu sunnudaginn 12. desem-
ber. Ég sá ekki betur en að sá
væri Jón E. Ragnarsson lög-
maöur og nú er ég honum inni-
lega sammála. Ég tek undir allt
sem hann sagði um tölvur, þær
eru viðsjárverðir gripir og þá
auðvitað fyrst og fremst vegna
þess að mennirnir sem mata
þær eru ekki fullkomnir. Hvoru-
tveggja er að menn geta gert
skyssur þegar þeir fóðra tölv-
una og einnig hitt að það er
engan veginn öruggt að þeir
ráði allir yfir nægilegri þekkingu
til þess aö gera þessa hluti
fullkomlega rétt. Þá getur vant-
að á þekkingu á efninu, sem
þeir eru að fóðra tölvuna á og
það er ástæðulaust fyrir okkur
„neytendur" að gera því skóna
að meðal þeirra, séu allir full-
færir í sínu starfi. Ég held aö
minnsta kosti að þar hljóti fólk
að vera mis vel starfi sínu vaxið,
alveg eins og í öðrum starfs-
greinum.
Það er sem sagt áskorun
okkar Jóns E. Ragnarssonar til
allra manna aö rífa kjaft við
tölvur. Það, að rífa kjaft, getur
út af fyrir sig verið býsna
skemmtilegt sport, en í mínum
huga er það allt annað og miklu
Framboð
Sjálfstæðis-
flokks
Framhald af bls. 1.
listanum. en hann lýsti þá strax
yfir að hann gæti ekki. samvizku
sinnar vegna tekið sæti á lista,
sem svona væri staðið að.
,.Á aðalfundi fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Barðastrandar-
sýslu var samþykkt að koma því á
framfæri að ekki yrði gengið til
prófkjörs, og til vara að það yrði
þá í þrengstu merkingu þess, þ.e.
miðast við flokksmenn ein-
göngu," sagði Hilmar Jónsson á
Patreksfirði, þegar blaðið ræddi
við hann um prófkjörið. Hann
hélt svo áfram:
í öðru lagi. og ekki síður. er
prófkjör nú illframkvæmanlegt
vegna ófærðar unt kjördæmið.
Við erum að hugsa um fleiri en
eingöngu ísfirðinga og Bol-
víkinga. Vilji menn hafa prófkjör.
verður að gefa sem flestum kost á
að taka þátt í því,“ sagði Hilmar.
Til stuðnings máli sínu nefndi
hann að fulltrúar af fjörðunum
hefðu þurft að fá varðskip til að
flytja sig til fundarins. Ferðin til
ísafjarðar hefði tekið 12 tíma frá
Patreksfirði. en 16 tíma til baka.
SV
stærra, sem þarna liggur að
baki. Til þess að vera fær um aö
rífa kjaft við tölvuna, verða
menn að hafa kynnt sér það
sem tala á um. Og þaö er heila
málið, að kynna sér það sem
stendur á tilkynningunni. Það
gildir einu, hvort tilkynningin er
krafa um greiðslu frá ríki eða
bæ, banka, tryggingum, síma
.útvarpi eða hverju sem vera
skal, eða þá uppgjör á því sem
viðkomandi á að fá greitt, svo
sem laun, tryggingabætur eöa
eitthvað annað. Aðalatriðið er
aö ef þú, lesandi góður fullviss-
ar þig ekki sjálfur um að allt sé
rétt, sem á tilkynningunni
stendur, átt þú á hættu að
verða fyrir fjártjóni, jafnvel veru-
legu fjártjóni.
Til að undirstrika enn frekar
nauðsyn þess að fylgjast vel
með, skal hér nefnt dæmi um
reynslu eins manns. Á tveggja
mánaða tímabili í haust fékk
hann fimm rangar tilkynningar.
Á þessum tilkynningum nam
skekkjan samtals um kr. 5.400,-
, manninum í óhag. Þessi mað-
ur er enginn sérfræðingur í
reiknikúnstum, en honum þótti
sumir liðir tilkynninganna ótrú-
legir og bað um skýringar á
viðkomandi stöðum. Þá komu
skekkjurnar í Ijós og voru leið-
réttar.
Það skal tekið fram að á
öllum stöðunum var manninum
Ijúfmannlega tekið og hann tel-
ur fráleitt að nokkur þeirra sem
hlut eiga að máli hafi ætlað að
yfirlögðu ráði að hafa af honum
fé. Þvert á móti hafi hér verið
mistök á ferðinni, sem öllum
þótti sjálfsagt að leiórétta.
Til frekari skýringar skal frá
því greint að ein tilkynningin
var frá banka, þar sem vísitölu-
hækkun á láni var ofreiknuð,
önnur frá Pósti og síma, þar
sem kostnaöurvið uppsetningu
nýs síma var ofreiknaður og
hinar þrjár voru unnar hjá fyrir-
tæki, sem tekur að sér að tölvu-
vinna bókhald og fleira fyrir
önnur fyrirtæki.
Það kann að vera aö þessi
maður hafi verið óvenju óhepp-
inn, þótt það sé engan veginn
víst. Vel er hægt að hugsa sér
að einhverjir hafi greitt umyrða-
laust eftir svona tilkynningum,
með það í huga að fyrst þser
komu frá svona „áreiðanleg-
um“ stofnunum, hljóti þær að
vera réttar.
Gangið aldrei út frá þeirri
forsendu, hún er einfaldlega
röng. Verið því reiðubúin
að rífa kjaft við tölvuna, en
betra er þó að byrja á að ræða í
rólegheitum við þá sem yfir
hana eru settir. Þá kann að
koma í Ijós að þið eruð ekki
eins illa á vegi stödd, fjárhags-
lega, eins og þið hélduð.
Jón Jónsson
AUGLÝSING
Vegna árshátíðar okkar
föstudag 21. janúar lokum við
kl. 19:30 að Hótel Hamrabæ
og kl. 20:30 í Hamraborg.
Opnum Laugardag kl. 11:00
ra
HOFEL _
HAMRABÆR
HAMRABORG HE