Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 4
vestfirska
4
NÝJA
HEILSU GÆ SLU ST ÖÐIN
á Torfnesi verður almenningi til sýnis
frá kl. 14:00 til 18:00 n.k. sunnudag 23.
janúar, en stefnt er að því að stöðin
verði tekin í notkun í næstu viku.
ísafirði 18. janúar 1983
Stjórn heilsugæslustöðvar
á ísafirði
Póstur og sími
Laust starf
Staða ritsímaritara er laus.
Upplýsingar veitir stöðvarstjóri
Póstur og sími
ísafirði
Foreldrar og
annað áhugafólk
um skfðafþróttír
Kynningarfundur fyrir vetrarstarfið
verður haldinn að Uppsölum miðviku-
daginn 26. janúar n.k. kl. 20:30.
Skorum á alla að mæta.
Kosið verður í foreidraráð.
SKlÐARÁÐ ÍSAFJARÐAR
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu.
Guðrúnar Friðriku Pétursdóttur
frá Kvíum
Hlíðarvegi 45
ísafirði
Eyjólfur G. Ólafsson, börn, tengdabörn, barna-
börn og aðrir vandamenn.
rRETTABLADin
Annáll íþróttamanna
árið 1982
Starf Skíðaráðs ísafjarðar
hefur verið mjög umfangs-
mikið á síðasta starfsári.
Stærsti þáttur í starfsemi
ráðsins er skíðaþjálfun og
kennsla, 150 þátttakendur
voru á skíðanámskeiðum
s.l. vetur og hefur þátttaka
farið ört vaxandi undanfar-
in ár. 5 þjálfarar voru á
vegum S.R.I. í lengri eða
skemmri tíma, þar af var
sænski þjálfarinn Bobo
Nordenskjöld í um mánað-
artíma. Aðrir þjálfarar voru
í alpagreinum Sigurður
Jónsson, Kristín Úlfsdóttir
og Sigrún Grímsdóttir, þá
var Þröstur Jóhannesson
þjálfari í göngu. S.R.I.
þakkar þessu fólki vel unn-
in störf. Þetta er fjórða árið
í röð sem ráðið er með
skipulega þjálfun fyrir
skíðafólk á aldrinum frá 7
ára og upp í okkar besta
keppnisfólk. Árangur af
þessu starfi er að skila sér
betur og betur með hverju
árinu sem líður. Má benda
þessu til staðfestingar á ár-
angur ísfirsku barnanna á
Andrésar Andarleikunum
s.l. vetur, komu þessi börn
með 32 verðlaun með sér
heim, og voru í öðru sæti
fyrir fjölda verðlauna á hér-
að.
Árangur var mjög góður í
Bikarmótum S.K.Í. og er
óhætt að fullyrða að hann
hefur aldrei verið betri síð-
an mót þessi byrjuðu. Is-
firðingar unnu 23 sigra í
þessum mótum. Einar
Ólafsson var þrefaldur Is-
landsmeistari í göngu
17—19 ára og einnig var
hann verðugur fulltrúi okk-
Annáll íþróttamanna
fyrir árið hefur verið
fastur liður í jólablaði
Vestfirska fréttablaðsins
undanfarin ár. Ekki var
unnt að koma annálnum
í jólablaðið 1982, en
hann birtist hér og í
næstu blöðum. Umsjón
með annálnum hefur
Björn Helgason, íþrótta-
fulltrúi, en Valur Jón-
atansson hefur ritað
skíðaannálinn, sem hér
birtist.
ar á Heimsmeistaramótinu í
Noregi og stóð sig best af
íslendingunum. Einar var
kjörinn skíðamaður ársins
1982 á Islandi. Stella
Hjaltadóttir vann sigur í öll-
um þeim mótum sem hún
tók þátt í, vann 5 Bikarmót,
tvöfaldur Islandsmeistari í
göngu 16—18 ára einnig
Sigurður H. Jónsson
unglingameistari í sínum
rétta aldursflokki 13—15
ára. Sigurður H. Jónsson
vann 10 sigra í Bikarmótum
og Guðmundur Jóhannsson
tvo, þeir unnu því saman 12
sigra af 18 mögulegum í
alpagreinum. Sigurður var
Bikarmeistrari S.K.Í. 1982
og Guðmundur í öðru sæti.
Af þessu má sjá að mikið
starf liggur hjá S.R.Í. í fjár-
öflun og öðrum störfum
S.R.Í. leggur meira fé í starf
sitt en nokkuð annað Skíða-
ráð á landinu. Kostnaður
við rekstur ráðsins s.l. ár var
rúmlega 400 þúsund. Þrátt
fyrir að þetta mikið fjár-
magn hafi farið í starfsem-
ina, er langt frá því að við
höfum getað styrkt okkar
besta keppnisfólk eins mik-
ið og við hefðum viljað.
Mótahald aðildarfélaganna
gekk vel og voru öll mót
haldin sem voru á móta-
skrá. S.R.Í. hélt þrjú milli-
héraðamót, Þorramótið,
Öldungamót og svo bar
hæst Unglingameistaramót
Islands sem er umfangs-
mesta skíðamót sem Skíða-
sambandið úthlutar. Kepp-
endur voru 153, og fóru
fram 15 keppnisgreinar á
þrem dögum.
Það segir sig sjálft að
mikinn undirbúning og gott
skipulag þarf til að mót sem
þetta geti farið fram svo vel
sé. Með geysilegri vinnu
fjölmargra starfsmanna
mótsins, tókst að ljúka því
með sóma. S.R.f. vill þakka
bæjarstjórn, fjölda fyrir-
tækja og einstaklinga sem
styrktu starfsemina á síðasta
ári.
Það eru mörg verkefni
framundan og ber þar hæst
Skíðamót íslands sem hald-
ið verður hér um páskana.
Það er stórmót sem þarfnast
mikils mannafla og von-
umst við til að hinir ýmsu
aðilar taki okkur vel ef til
þeirra verður leitað, svo
okkur takist að framkvæma
þetta mót á sem glæsilegast-
an hátt. Það er hægt með
samstilltu átaki eins og
sýndi sig með Unglinga-
meistaramótið s.l. vetur og
var það mót ísfirðingum til
sóma. ^_______
Guðmundur Jóhannesson.