Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Side 5
vestfirska
TRETTABLADID
Ýmsar íþróttafréttir
Einmenningur
hjá Bridge-
félaginu
Einmenningskeppni, sem
jafnframt er firmakeppni,
hefst hjá Bridgefélagi ísafjarð-
ar í kvöld. Keppnin stendur í
þrjú kvöld og er spilað á
fimmtudögdum.
Vetrarstarf félagsins hófst um
miðjan september og var spiluð
frjáls spilamennska framanaf. Þá
komu Dýrfirðingar í heimsókn og
spiluðu með ísfirðingum, tvisvar
sinnum. Að sögn blaðafulltrúa fé-
lagsins, Arnars G. Hinrikssonar
eru slíkar heimsóknir mjög vel
þegnar og vildi hann koma hvatn-
ingu á framfæri til fólks í
nágrannabyggðunum, sem hefur
áhuga á bridge, að koma á
fimmtudagskvöldum og spila
með.
í nóvember hófst tvímennings-
keppni félagsins og var hún spil-
uð í fjögur kvöld. Hlutskarpastir
urðu Arnar G. Hinriksson og
Kristján Haraldsson. í öðru sæti
urðu Sigurður Ólafsson og Þor-
steinn Geirsson, í þriðja sæti
Birgir Valdimarsson og Einar V.
Kristjánsson og Ása Loftsdóttir
og Páll Áskelsson skipuðu fjórða
sætið.
Að jafnaði hafa spilað um 20
manns á fimmtudagskvöldum hjá
félaginu. Og eins og fyrr sagði
hefst einmenningurinn í kvöld og
þá eru allir spilarar hvattir til að
mæta.
SV
Skíðagöngu
námskeið
Á mánudaginn var hófst
skíðagöngunámskeið á Torf-
nessvæðinu að tilstuðlan
íþróttafulltrúa og Þrastar
Jóhannessonar. Námskeiðið
er fyrir byrjendur og hafa um 60
þátttakendur verið skráðir, að
miklum meiri hluta konur.
Kennslan fer fram á Torfnes-
svæðinu á troðnum og upplýst-
um brautum.
Kennarar á námskeiðinu eru
Þröstur Jóhannsson og Anna
Gunnlaugsdóttir.
SV
Tvö bad-
minton mót
Tennis og badmintonfélag
ísafjarar hefur starfað vel á yfir-
standandi starfsári, þrátt fyrir
þröngan húsakost. Haldin hafa
verið tvö tvíliðamót á vegum
félagsins í vetur, haustmót og
jólamót. Á haustmótinu kepptu
34, en keppendur voru 38 á
jólamótinu. Sigurvegarar á
haustmótinu urðu Tryggvi Sig-
tryggsson og Óli Reynir Ingi-
marsson en á jólamótinu sigr-
uðu Björn Helgason og Einar
V. Kristjánsson..
Árleg keppni félagsins við
starfsmenn Flugleiða verður á
ísafirði 28. og 29. janúar. Þar
verður keppt bæði í einliðaleik
og tvíliðaleik. Til þessa hefur
sigurinn fallið sitt á hvað í
keppni þessara liða og verður
vafalaust spennandi að fylgjast
með keppninni í þetta sinn.
SV
Gera það
gott í
körfu-
boltanum
Körfuboltamenn ísfirðinga
hafa gert það gott að undan-
förnu og sannað að þeir geta
gert fleira við boltann en að
sparka honum. Liðið er nú í
annarri deildinni og keppir þar
í riðli með Bræðrunum í
Reykjavík, sem er körfuboltalið
sem 1. deildar menn KR-inga í
fótbolta hafa með sér, H.K. úr
Kópavogi og Vík í Mýrdal.
Liðið er búið að leika fjóra
ieiki af sex í riðlinum og hefur
unnið alla, er með fullt hús
stiga. ísfirðingarnir hafa leikið
báða leikina við liðið frá Vík og
vann þá báða með miklum yfir-
burðum, sömuleiðis unnu þeir
Bræðurna með yfirburðum í
fyrri leiknum við þá en rétt
mörðu sigur gegn H.K. Nú eiga
þeir eftir að leika tvo leiki, ann-
an við Bræður og hinn við H.K.
og ,,Að því loknu förum við í
úrslit" sagði einn keppend-
anna við blaðið
SV
Einar Ólafsson, skíðamaður ársins tekinn tali
„Skíðin eru númer eitt66
Einar Ólafsson er ungur Is-
firðingur, sem var kjörinn
skíðamaður ársins 1982, þegar
sérsamböndin innan íþrótta-
sambands íslands ákváðu á
dögunum hver hefði verið
þeirra besti maður á síðast-
liðnu ári. Einar stundar nám í
Menntaskólanum á ísafirði,
svona þegar hann má vera að,
vegna keppnisferða. Vestfirska
náði í Einar á mánudagskvöld-
ið var, þar sem hann var stadd-
ur í Reykjavík, nýkominn til
landsins úr keppnisferð um
nokkur Evrópulönd og var að
bíða eftir að veðurguðunum
þóknaðist að leyfa honum að
halda ferðinni áfram til fsa-
fjarðar. .
Eftir að hafa óskað honum til
hamingju með titilinn og ágætan
árangur í ferðinni, sem hann var
að ljúka, spurðum við hann
hvernig honum félli að bera titil-
inn og hvort hann hefði átt von á
honum.
„Mér fellur mjög v.el við hann.
þetta er mikil upphefð. Jú, ég átti
frekar von á þessu, aðrir höfðu
ekki staðið sig svo sérstaklega á
árinu að ástæða væri til að búast
við öðru."
— Hvað var það sem lyfti þér
upp í sætið?
„Þrotlausar æfingar. Og svo á
ég mörgum mikið að þakka. Þar
vil ég nefna bræðurna Guðjón og
Davíð Höskuldssyni, sem þjálf-
uðu mig og Norðmanninum Per
Axel Knutsen, sem ég var hjá um
tíma og ég hef æft eftir hans
prógrammi síðan 1979. Þá má
ekki gleyma Skíðaráði ísafjarðar
og ísfirðingum öllum, sem hafa
stutt mig vel. Það er mikill stuðn-
ingur að finna að fólkið heima
stendur með mér, eins og ég finn
vel að það gerir. En fyrst og síðast
þakka ég foreldrum mínum.“
— Segðu svolítið frá ferðinni,
sem þú varst að koma úr.
„Við vorum nokkrir saman
þarna úti, en við kepptum bara
tveir, við Ingólfur Jónsson úr
Reykjavík. í Kastelruth í Ítalíu
kepptum við í heimsbikarmóti í
2000 m. hæð. Það var 30 km
ganga og þar voru ekki allir þeir
bestu með. Þar varð Norðmaður-
inn Thor Hákon Holte sigurveg-
ari á l:l7.0l kl.st. Við Ingólfur
heldur aftan við miðjan hóp, ég á
l:25,18 en Ingólfur á 1:26,40.
Frá Ítalíu fórum við til Austur-
ríkis og vorum þar í þrjá daga
þaðan fórum til Þýskalands til
keppni á öðru heimsbikarmóti.
Þar var keppt í 15 km göngu og
þar voru flestir þeir bestu með.
Þar sigraði Svíinn Jan Ottoson á
40,13 mín. Þar voru um 90 kepp-
endur, eins og á Ítalíu, og okkur
gekk svipað þar, nema þar var
Ingólfur á undan mér á 44,46 en
ég var á 45,53.“
— Hvað er svo framundan?
„Það er bikarmót á Siglufirði
um aðra helgi og annað á Isafirði
viku seinna. Svo er önnur utan-
landsferð. Þá förum við löggurn-
ar, Kristján Rafn á Isafirði á
heimsmeistaramót lögregluþjóna
á Ítalíu. Við förum út 18. febrúar
og verðum í viku í Seefeld í
Austurríki fyrir mótið.
Á ftalíu verðum við viku til tíu
daga og Ingólfur Jónsson ætlar að
fylgja okkur. Frá ftalíu förum við
Ingólfur svo til Noregs og kepp-
um í heimsbikarmóti í Holmen-
kollen og trúlega keppum við á
tveim til þrem sterkum mótum
öðrum í Noregi.
Og svo verður maður líka að
reyna að standa sig á heimaslóð-
um og halda sig að keppni þar.
Nú er svo eru olympíuleikarnir á
næsta ári..“
— Er hægt að segja að þú sért
orðinn atvinnumaður á skíðum?
„Nei, en ég er mjög vel styrktur
heima, og þeim mun betur sem ég
stend mig betur.“
— Hvernig heldurðu að prófin
gangi í vor?
„Það verður erfitt, en ég reyni
samt að klára þau. En skíðin eru
númer eitt,“ sagði kappinn ungi.
SV
Dansleikur
í Góðtemplarahúsinu
laugardagskvöld kl. 23:00 — 3:00
Borðapantanir frá kl. 22:30
Borðum haldið til kl. 23:30
Ásgeir og félagar
íbúð til sölu
Neðri hæð að Tangargötu 30
4 herb. og eldhús.
Upplýsingar í símum
3704 og 3880
eftirkl. 19:00
ÍSFIRÐINGAR — VESTFIRÐINGAR
S.R.Í. var stofnað 14. des-
ember 1947 og var þetta því
35. starfsár ráðsins. Það er
von okkar í núverandi
stjórn að starfsemi þess eigi
eftir að eflast og stuðla að
uppbyggingu skíðamála á
ísafirði, eins og það hefur
gert frá stofnun þess. Aðal-
fundur Skíðaráðsins var
haldin í október s.l. Þeir
Hafsteinn Sigurðsson,
Þröstur Jóhannesson, Jónas
Gunnlaugsson og Óskar
Kárason gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs i '■ tjórnina.
Núverandi stjórn vill þakka
þeim fyrir vel unnin störf á
liðnum árum. Stjórn S.R.Í.
er nú þannig skipuð: Sig-
urður Gunnarsson formað-
ur, Einar Valur Kristjáns-
son varaformaður, Valur
Jónatansson gjaldkeri, Við-
ar Konráðsson ritari, Þor-
lákur Baxter áhaldavörður,
Páll Sturlaugsson vararitari
og Geir Sigurðsson með-
stjórnandi.
Fyrir hönd S.R.Í.
Valur Jónatansson
Þorrinn
byrjar í dag
Við viljum minna á, að eins og
undanfarin ár þá bjóðum við
ÞORRAMA TíMIKLU ÚR VALI OG
ÞORRABAKKANA VINSÆLU
MMiWHH — V erslun
Sundstræti 34 — Sími 4013