Vestfirska fréttablaðið - 23.05.1985, Blaðsíða 5
vestíirska
vsstfirska
4
ntETTABLADW
vastfirska
rRETTABLADlD
5
Isafjarðarkaupstaðar
Hlíf, íbúðir aldraðra
— starfsmaður —
Starfsmaður óskast til símavörslu- og af-
greiðslustarfa. Um er að ræða 65% starf.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma 3805.
Húsnæði óskast
óskað er eftir 4 herbergja fbúð eða einbýlis-
húsi fyrir skólastjóra Iðnskólans.
Upplýsingar gefnar í síma 3502 eða 4215.
Bæjaistjórinn á ísafirði.
Tilboð í utanhúsmálun
Tæknideild ísafjarðarkaupstaðar f.h.
bæjarsjóðs óskar eftir tilboðum í utan-
húsmálun á eftirfarandi húsum:
Hlíf, íbúðum aldraðra, Engjavegi 15 og Elli-
heimili, Mánagötu 5.
Útboðsgögn fást á skrifstofu bæjarsjóðs
ísafjarðar. Frestur til að skila tilboðum er
til mánudags 3. júní kl. 11:00 og verða þau
opnuð að viðstöddum þeim tilbjóðendum,
sem þess óska.
Tæknideild ísafjarðarkaupstaðar
Síminn okkar
er 4011
I vestfirska
FRETTABLADID
ATVINNA
Okkur vantar starfsfólk.
Um er að ræða fastráðningu og sumarstarf.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
útibúið á ísafirði
o
W
La\Í
LEGGUR
OG SKEL
falauerslun barnanna
LEGGUR
OG SKEL
fataverslun barnanna
Nýkomnar stretchbuxur
í sumarlitunum
Nr. 1 — 16
Leggur og skel
sími 4070
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, afa og sonar
Inga S. Hermannssonar
Krók 3, ísafirði
Gerður Elísadóttir, Jóna Guðmunda Ingadóttir,
Asdís Sigrún Ingadóttir, Ingi Þórarinn Friðriksson
Guðmunda Vigfúsdóttir, Hermann Sveinsson
— segir Gísli Magnússon þjálfari
einhverjum nýjum mönnum upp
í flokkinn í sumar?
„Sko, það er nú þannig með
annan flokkinn að það var ekk-
ert af strákum þar í fyrra. Það
var ekki hægt að setja annan fl-
okk í íslandsmót af þvi að þeir
voru ekki nógu margir. Þeir
hafa því ekki fengið neina
reynslu. Ég held að það hafi
verið þrír eða fjórir strákar úr
öðrum flokki sem æfðu með
okkur í fyrra. Ég hef ekki séð
annan flokkinn héma ennþá en
það er alltaf opið hjá okkur fyrir
stráka sem við getum notað.
Mér finnst eðlilegast að byggja
þetta upp með mönnum héðan.
Ég hef alltaf verið fylgjandi því
að halda hópinn á þeim stað þar
sem mennimir búa. Liðið er frá
þessum stað og auðvitað á að
nýta stráka héðan ef þeir eru
frambærilegir. Það sem hefur
vantað er að fá jarðveginn í lag.
I mörg ár var ekkert gert fyrir
yngri strákana. Það var fyrst í
fyrra sem byrjað var með átak í
þjálfun yngri flokkanna.“
— Hverju spáir þú um röð efstu
liða í deildinni í sumar?
„Ég veit það ekki. Við ætlum
að vera í einu af efstu sætunum.
Það er það eina sem ég veit.“
— Hverjir verða þá erfiðustu
keppinautamir?
„Ég hef trú á að það verði
Vestmannaeyingar og KS á
Siglufirði eru alltaf mjög erfiðir
og svo eru náttúrulega Völs-
ungar.
— Hvað með liðin sem féllu í
fyrra, KA og Breiðablik?
„Ég veit það ekki. Það eina
sem ég veit um þessi lið er að
þau unnu sina leiki í fyrstu um-
ferðinni en ég hef ekkert séð
þau spila. Þeir segjast hafa misst
marga menn en ég veit að það
er ekki allt. Það eru margir sem
hafa ekki mikla trú á okkur af
því að við misstum menn. En
það er mjög erfitt að spá um
þetta. Það er frekar hægt að spá
um neðri hlutann. Mér skilst að
Njarðvíkingamir séu mjög
slappir og Leiftur sem kom upp
í fyrra verður sjálfsagt líka á
botninum. Það er spuming með
Skallagrím frá Borgamesi en ég
býst við að þeir verði líka neð-
arlega. Hin liðin eru öll mjög
jöfn og berjast sjálfsagt öll um
toppsæti í deildinni. Það er
náttúrulega útilokað fyrir okkur
að ætla okkur annað en í efsta
sætið, hvað sem verður.“
Knattspyrnulið ÍBÍ í íslandsmótinu,
2. deild árið 1985
Leikmenn meistaraflokks ÍBÍ sumarið 1985 ásamt þjálfara og formanni KRÍ. Aftari röð:
Jakob Þorsteinsson, form. KRÍ. Jón Pálmi Pétursson, Haukur Magnússon, Guðjón
Reynisson, Atli Geir Jóhannesson, Guðmundur Jóhannsson, Rúnar Guðmundsson,
Viktor Guðmundsson, Benedikt Einarsson, Jakob Tryggvason og Gísli Magnússon,
þjálfari. Fremri röð: Gunnar Guðmunsson, Helgi Indriðason, Kristinn Kristjánsson,
Ragnar Rögnvaldsson, Guðmundur Kristjánsson, Heiðar Sigtryggsson, Ömólfúr Odds-
son og Stefán Tryggvason. Á myndina vantar Rúnar Vífilsson, Jón Oddsson, Jóhann
Torfason og Ingvald Gústafsson.
Þjálfari ísfírðinganna er nú, annað árið í röð, Gísli
Magnússon. Undir hans stjóm náði liðið fjóröa sæti í
annarri deild í fyrra, eftir frekar slaka útkomu í fyrstu
leikjum sumarsins. Eins og fram kemur í viðtalinu er
eitt helsta vandamálið hve erfitt er að ná liðinu saman
til æfinga áður en keppnistímabilið hefst. En fyrsta
spumingin var um það, hvemig nýbyrjað keppnis-
tímabil legðist í þjálfarann.
— Hvemig leggst nýbyrjað
keppnistímabil í þjálfarann?
„Ég held að það leggist bara
vel í mig. Það sem maður er
svolítið hræddur við er byrjun-
in, því að við erum á sitt hvor-
um staðnum með strákana og
erfitt að ná liðinu saman til æf-
inga. Við höfum gert dálítið af
því að fara með strákana héðan
til Reykjavíkur um helgar því
að þeir eru færri hér en þar. Svo
var þessi ferð til Belgíu, hún
gerði mikið gagn. Ég held að
þetta sé samt bara allt í lagi. Að
vísu erum við með alveg nýja
menn í framlínunni sem við
verðum að skóla til.“
— Nú em þetta allt menn sem
hafa spilað með meistaraflokki
áður sem em í liðinu. Er von á
Eðlilegt að byggja liðið upp
með heimamönnum
Jakob Þorsteinsson heitir formaður KRÍ. Líklega
er enginn öfundsverðnr af að sjá um rekstur á svo
dýrri og óarðbærri útgerð sem það vissulega er að
halda úti liði í Islandsmóti í knattspyrnu. Jakob var
spurður um hans álit á möguleikum liðsins og hvern-
ig reksturinn gengi.
„Jú, það má segja að það hafi
virkað eins og vítamínssprauta
á liðið. Fylkismenn eru sterkir
og fljótir og þetta voru dýrmæt
stig. Ég mundi segja að við höf-
um verið heppnir að vinna
þennan leik. Það háði okkur
líka mikið að það var leikið á
að gera eitthvað róttækt í
þessu með ferðakostnaðinn.
Það hefur verið rætt manna á
milli að félögin utan af landi
taki sig hreinlega saman og neiti
þátttöku í íslandsmótinu nema
eitthvað yrði gert til að leiðrétta
þennan mun á ferðakostnaði
„Ég vil láta í ljósi ósk um það
að bæjaryfirvöld standi við gef-
in loforð um malarvöll, að hann
komist sem fyrst í gagnið því
það háir okkur mjög, aðstöðu-
leysið. Einnig vil ég hvetja alla
ísfirðinga til að styðja vel við
bakið á sínum mönnum í bar-
IBI í 1. sæti
— eftir tvo leiki
„Fyrirsjáanlegt að endar
— segir Jakob Þorsteinsson, formaður KRÍ
— Hvernig leggst nýbyrjað
keppnistímabil í formann KRÍ?
„Það leggst ekkert sérstak-
lega illa í mig og ekki vel heldur.
Þetta verður miklu erfiðara en í
fyrra og þar kemur inn í að KA
og Breiðablik féllu niður í aðra
deild. Það verða að mínu mati 6
lið sem berjast um sæti í fyrstu
deild. Þau eru ÍBÍ, KA, Breiða-
blik, Völsungur, ÍBV og Fylkir.
— Hverjir heldurðu að verði
efstir?
„Þessi sex lið eru að mínu
mati mjög jöfn. Það sem háir
okkur í þessari baráttu er að við
höfum misst framlínuna á einu
bretti. Þar á ég við Guðmund
Magnússon, Jóhann Torfason
og Atla Einarsson. Þetta er
geysilegt skarð sem verður
erfitt að fylla upp í og getur
tekið tíma að koma í gott horf.
Knattspyrna byggist á því að
skora mörk. Annars sýnist mér
að þetta sé nú að fara í gang.
Við erum búnir að vera með
nokkuð marga æfingaleiki og
erum miklu betur undirbúnir
en í fyrra. Þetta er líka annað
árið hjá þjálfaranum og hann
þekkir mannskapinn betur. Að
öllu þessu meðtöldu vonar
maður að þetta geti gengið og
við verðum þama ofarlega á
blaði.“
— Hvaða nýir menn koma í
staðinn fyrir þá sem fara?
„Sú ánægjulega breyting
hefur orðið að við höfum end-
urheimt okkar gömlu ísfirð-
inga, eins og bræðurna Jón og
Örnólf Oddssyni og Hreiðar
Sigtryggsson sem var mark-
vörður hér áður. Síðan er efni-
legur maður úr Þrótti, Haukur
Magnússon, sem gekk í okkar
raðir í vor og er mjög sterkur og
efnilegur leikmaður. Jón Odds-
son hefur reyndar ekki getað
spilað með okkur ennþá vegna
meiðsla sem hann varð fyrir í
fyrra þegar hann lék með
Breiðabliki. Að mati sérfræð-
inga hefur hann byrjað að spila
of snemma eftir meiðslin og
hefur ekki náð sér nægilega
vel.“
— Ykkur tókst að vinna fyrsta
leikinn. Varð það góð byrjun á
keppnistímabilinu?
gervigrasinu þar sem meirihluti
okkar manna er óvanur að
spila. Þetta er svipað og að spila
á innivelh, boltinn hoppar allt
öðruvísi en á malarvelli og
venjulegum grasvelli. Þetta háði
okkar mönnum mikið í leikn-
um. Menn voru þama eins og
óvitar, vissu ekkert hvert bolt-
inn var að fara.”
— Ef við snúum okkur þá að
rekstrinum á Knattspyrnuráði.
Nú kostar það mikla peninga
sem fara í ferðalög, að borga
þjálfara kaup og svo frv. Hvern-
ig gengur ykkur að ná endum
saman?
„Ég held að það sé alveg
fyrirsjáanlegt að endar nást ekki
saman. Hjá okkur er borðliggj-
andi ferðakostnaður upp á 1.6
milljónir hjá öllum flokkum.
Þetta er orðið ansi mikill höf-
uðverkur og satt að segja þá geri
ég mér ekki grein fyrir því
hvernig á að vera hægt að
standa undir þessu öllu lengur.
Þetta háir flestum félögum á
landsbyggðinni sem ég hef haft
spurnir af og til þess að við get-
um haldið þessu áfram þá þarf
nást ekki saman“
félaganna úr Reykjavík annars
vegar og af landsbyggðinni hins
vegar. Ég hef um það upplýs-
ingar að eitt fyrstu deildarfé-
lagið í Reykjavík fór með 60
þúsund krónur í ferðakostnað
árið 1984 á sama tíma og við
vorum með 1200 þúsund. Núna
er eins og ég sagði áðan borð-
liggjandi hjá okkur ferðakostn-
aður upp á 1.6 milljónir í sumar
og það gera sér allir ljóst að
þetta getur ekki haldið svona á-
fram öllu lengur.”
áttunni í sumar með því að
mæta á völlinn.“
Það má segja að ísfirðingar
hafi átt óskabyrjun í íslands-
mótinu í knattspyrnu, 2. deild, í
ár. Þeir eru búnir að leika tvo
leiki og hafa unnið þá báða. Þar
með eru þeir í 1. sæti deildar-
innar með 6 stig og hagstæðara
markahlutfall en Vestmannaey-
ingar sem einnig hafa unnið sína
tvo fyrstu leiki.
Fyrsti leikurinn var gegn
Fylki frá Reykjavík og fór hann
fram á gervigrasvellinum í
Reykjavík. Örnólfur Oddsson
skoraði eina mark leiksins fyrir
Isfirðinga. Að sögn Gísla
— Eru þá uppi einhverjar hug-
myndir um að aðildarfélög KSÍ
leggi í eitthvað púkk til að
styrkja þá sem hafa hæstan
ferðakostnað?
„Það kom fram tillaga á KSÍ
þingi 1983 um að það yrði
stofnaður sérstakur jöfnunar-
sjóður og að það greiddu öll
knattspyrnufélög í landinu í
þennan sjóð sem síðan yrði út-
hlutað úr miðað við ferða-
kostnað félaga. Þetta var skít-
fellt af fulltrúum
Reykjavíkurfélaganna.“
— Að lokum?
Ömólfur Oddsson skorar með skalla í leik ÍBÍ og Völsunga.
Magnússonar var mikið rok og
fátt um fína drætti í þessum
leik. Isfirðingar voru óvanir
gervigrasinu sem er mjög hart
miðað við þá velli sem þeir eru
vanir, en engu að síður náðist
sigur í leiknum og það er fyrir
mestu.
Á sunnudaginn sóttu Völs-
ungar frá Húsavík ísfirðinga
heim og var leikið á malarvell-
inum á Skeiði. Leiknum lauk
með sigri Isfirðinga, 4:0. Loka-
tölur leiksins gefa ekki alveg
rétta mynd af gangi leiksins þar
sem Völsungar voru mikið með
boltann og áttu mörg færi, þó
þeim tækist ekki að skora. Is-
firðingar nýttu sín færi hins
vegar vel og verðskulduðu sigur
í skemmtilegum leik. Fyrsta
markið kom þegar 25 mínútur
voru liðnar af leiknum. Þvaga
hafði myndast fyrir framan
mark Völsunga sem hafði mis-
tekist að hreinsa frá og Guðjón
Reynisson náði að skjóta í gegn
um þvöguna í mark. Annað
markið kom svo ekki fyrr en í
seinni hálfleik. Þá skoraði
Guðmundur Jóhannsson eftir
að markmaður Völsunga hafði
varið frá Ömólfi en ekki náð að
halda boltanum. Rétt á eftir
skoraði Ömólfur 3. markið með
skalla og síðasta markið átti svo
Kristinn Kristjánsson, fallegt og
yfirvegað skot eftir góða fyrir-
gjöf Guðjóns Reynissonar.
Vonandi verður þessi byrjun
ísfirðingum gott veganesti í
baráttunni í sumar og ekki veitir
þeim af því að vísast verða mörg
lið í harðri baráttu um 1. deild-
arsætin.