Frjáls Palestína - 01.11.2009, Side 9
8 FRJÁLS PALESTÍNA FRJÁLS PALESTÍNA 9
188 viðtöl, 300 frásagnir einstaklinga, – allt að 10.000 blaðsíður. 30
myndbönd og 1300 ljósmyndir.
Þetta er bakgrunnur skýrslunnar sem
Richard Goldstone fyrrum saksóknari
stríðsglæpadómstólanna í málefnum
Júgóslavíu og Rúanda afhenti Mann-
réttindaráði Sameinuðu þjóðanna í síð-
ustu viku.
Niðurstaðan er skýr: Það ber að
kæra Ísrael fyrir Alþjóðlega sakamála-
dómstólnum fyrir stríðsglæpi og ef til vill
glæpi gegn mannkyni.
Undir lokin nefnir skýrslan að „alvar-
leg brot á alþjóðalögum“ hafi átt sér
stað, og hún endar með að skora á að
mannréttindadómstóll Sameinuðu þjóð-
anna biðji öryggisráð S.Þ. að vísa Ísra-
el áfram til Alþjóðaglæpadómstólsins
(ICC).
Nefndnarmennirnir fjórir voru skipaðir
af formanni mannréttindaráðsins í apríl
með það markmið að „rannsaka öll
brot á alþjóðlegum mannréttindum og
alþjóðlegum mannúðarlögum sem kynnu
nokkurn tímann að hafa verið framin
í tengslum við hernaðaraðgerðirnar á
Gaza á tímabilinu frá 27. desember
2008 til 18. janúars 2009, hvort heldur í
aðdraganda þeirra, á meðan þeim stóð
eða í kjölfar þeirra“.
Án Ísraels
Skýrslan var gerð án samvinnu við
Ísrael. Ísraelsstjórn neitaði að taka
þátt í rannsóknunum á Gaza og Vest-
urbakkanum. Meðlimir Goldstone-
nefndarinnar þurftu þess vegna að
fara til Egyptalands til þess að komast
þaðan inn á Gaza. Þeir komust ekki
inn á Vesturbakkann, þar sem Ísrael
neitaði þeim um það. Nefndin fundaði
þess vegna með fulltrúum palestínsku
heimastjórnarinnar í Amman í Jórdaníu.
Nefndin átti líka marga fundi með Hamas-
stjórninni á Gaza.
Nefndin mælir með að að Ísraelsstjórn
á suðurhluta Ísraels og þar með ekki
gert greinamun á borgaralegum og
hernaðarlegum skotmörkum. „Þessar
aðgerðir geta reynst stríðglæpir og
glæpir gegn mannkyni“ stendur þar.
En Goldstone-skýrslan nefnir líka að
hernumin þjóð hafi rétt til andspyrnu
samkvæmt alþjóðlegum reglum Sam-
einuðu þjóðanna. Og umfjöllunin um
Hamas og andspyrnuhreyfingarnar vegur
lítið í 574gra blaðsíðna langri skýrslunni.
Hamas fær þó eins og Ísrael þrjá
mánuði til að hefja óháða rannsókn,
annars á öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna að taka afstöðu til þess hvort
Alþjóðaglæpadómstóllinn eigi líka að
höfða mál gegn samtökunum.
Goldstone-skýrslan
Hægt er að nálgast Goldstone-skýrsluna
á ensku á eftirfarandi vefslóð: http://
www.2ohch r.o rg /eng l i sh /bod ies /
hrcounc i l /spec ia lsess ion/9 /docs/
UNFFMGC_Report.prd
Nútímavopn
Samkvæmt Goldstone-skýslunni fram-
kvæmdi ísraelski herinn aðgerðina „með
háþróuðustu vopnum sem hann réði yfir
og Ísraelsher fullyrti að það hefðu nánast
engin mistök orðið“.
* Ísraelar brutu einnig gegn grund-
vallarsamþykktum þegar þeir „gerðu ekki
greinamun á hernaðarlegum skotmörkum
og öðrum skotmörkum“ og heraflinn var
gjörsamlega „óháður hlutföllum“ – en
Ísraelar vissu vel að skothríðin gæti „valdið
umtalsverðri eyðileggingu og mannfalli“.
* Ísraelskt herlið hóf „beinar árásir gegn
borgurum sem ollu dauða“.
* Hina tíðu „árásir á borgara stríddu
gegn hefðbundnum þjóðarrétti á grund-
velli mannúðarástæðna“ þar sem það var
„ekki hægt réttlæta þær með því að vísa til
hernaðarnauðsynjar“ og þær voru framdar
„ólöglega og að ásettu ráði“.
* Nefndin telur það líka stríðsglæpi
að „eyðileggja innviði iðnarins, matvæla-
framleiðslu, vatns- og skólpkerfi og
íbúðarhús“.
* Ísrael braut þjóðarrétt með því að „varpa
sprengjum á íbúðarhús almennra borgara
og beita kröftugu sprengiefni og hvítum
fosfór, þar á meðal á skrifstofu Sameinuðu
þjóðanna fyrir palestínska flóttamenn
(UNRWA), sem hafði boðið á milli 600 og
700 borgurum húsaskjól“.
* Ísrael braut einnig stríðslög með því
að „ráðast vísvitandi á og eyðileggja“
borgaralegar byggingar eins og PLC
– palestínska þinghúsið á Gaza sem og
helsta fangelsið þar.
* Ísraelsku hermennirnir „skutu á borg-
ara sem þeir reyndu að yfirgefa heimilin
sín til að komast á öruggari stað og veifuðu
hvítum fánum“.
„Kerfisbundið tillitsleysi“
Í Goldstone-skýrslunni er ályktað að
palestínsku lögreglumennirnir sem Ísrael
drap þann 27. desember 2008 „hafi haft
diplómatískt friðhelgi og þess vegna hafi
Ísrael brotið alþjóðleg mannréttindalög”.
* Ísraelski heraflinn braut gegn al-
þjóðarétti með því að sýna kerfisbundið
tillitsleysi í notkun sinni á hvítum fosfór og
á svæðum í byggð og með því að „nota
Palestínumenn sem mannlega skildi“.
* Ísrael leyfði ekki að særðir yrðu fluttir
burt og meinaði aðgang að sjúkrabílum.
* Aðvaranir Ísraels
gegn íbúum svæðisins
„geta ekki verið álitnar
nægilegar“. Til dæmis
er það „hættuleg iðja að
varpa sprengjum efst á
byggingar og er fremur
árás heldur en aðvörun“.
* Ísrael þrýsti líka á Palestínumenn sem
voru teknir til fanga að „veita upplýsingar
um Hamas, palestínskt andspyrnufólk
og göng. Þetta brýtur gegn fjórða Genfar-
sáttmálanum“.
* Ísrael braut einnig gegn 27. málsgrein
fjórða Genfarsáttmálans með því að
„meðhöndla fanga á ómannúðlegan hátt“.
* Hin tveggja ára langa herkví á Gaza er
samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna
„hóprefsing þar sem einangrun og fátækt
eru hagnýttar“.
* Ísrael sviptir Palestínumenn, tekjum,
húsnæði, vatni, ferðafrelsi og réttinum til
að yfirgefa landið sitt og snúa til baka, sem
samkvæmt skýrslunni er „glæpur gegn
mannkyni“.
Vesturbakkinn
* Ísrael brýtur einnig stríðslög á Vest-
urbakkanum með því að skjóta alvöru
kúlum og nota leyniskyttur til þess „að
grafa á ólöglegan hátt undan friðsamlegum
mótmælum“, stendur í skýrslunni.
* Ísrael brýtur einnig gegn Alþjóða-
sáttmálanum um borgaraleg og stjórn-
málaleg réttindi (ICCPR) með því að
setja Palestínumenn á Gaza og og
Vesturbakkanum í varðhald án ákæru,
sönnunargagna eða réttarhalda. „Þetta er
ekki í samræmi við alþjóðalög“ er fullyrt í
skýrslunni.
* Ísrael brýtur einnig gegn ICCPR með
því að hafa hneppt fulltrúa á palestínska
þinginu í varðhald og „hindra þá í að sinna
embættisskyldum sínum“.
* Ísrael brýtur þjóðarrétt með því að
reisa „auðmýkjandi eftirlitsstöðvar á Vest-
urbakkanum“.
* „Ísrael brýtur gegn fjórða Genfar-
sáttmálanum, málsgrein 46 með því að
„rífa íbúðarhús á Vesturbakkanum“, lýkur
Goldstone skýrslan orðum sínum.
Genfarsáttmálinn
Hægt er að fræðast nánar um Genfar-
sáttmálann og vernd almennra borgara á
Vísindavefnum: http://visindavefur.hi.is/
svar.php?id=4780 og á heimasíðu Alþjóða
Rauða Krossins: http://www.icrc.org/ihl.nsf/
a385ec082b509e76c41256739003e636d/
6756482d86146898c125641e004aa3c5
(á ensku).
Þýðing: Einar Steinn Valgarðsson.
Í Goldstone-skýrslu Sam-einuðu þjóðanna er hvatt
til þess að Ísrael verði
kært fyrir Alþjóðlega saka-
máladómstólnum.
Hér eru helstu atriðin í
skýslunni.
Í skýrslu Goldstone-nefndarinnar hjá
Sameinuðu þjóðunum er fullyrt að nefnd-
in hafi fundið „sterkar sannanir fyrir því að
stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni hafi
verið framdir í átökunum á Gaza“.
* Nefndin ályktaði að Ísrael hafi „brotið
alvarlega gegn 4. Genfarsáttmálanum
hvað varðar vísvitandi dráp“ og að Ísraelskt
herliðið hafi „vísvitandi valdið fólki, sem eiga
að njóta verndar samkvæmt sáttmálanum,
miklum þjáningum“.
* Niðurstaðan er, að „eins og mál
stand[i] sé ástæða til að telja þetta
einstaklingsbundið, refsivert athæfi“ .
* Ísrael „skipulagði aðgerðina á Gaza“ á
tímabilinu frá desember til janúar, eftir að
hafa tekið um það „pólitíska ákvörðun“.
* Ísraelsstjórn réttlætti aðgerðina með
því að vísa til elflaugaárása gegn Ísrael, en
í skýrslunni segir: „Á meðan Ísraelsstjórn
hefur reynt að halda því fram að aðgerðir
hennar hafi fyrst og fremst verið viðbrögð við
eldflaugaárásum og hún hafi beitt rétt sínum
til sjálfsvarnar, þá telur nefndin að árásinni
– allavega að hluta til – hafi verið ætlað
annað: að ráðast á íbúa Gaza í heild“.
Skýrsla Sameinuðu þjóðanna
varð að veruleika, þrátt fyrir
tilraunir Ísraels til að aftra henni
Skyggnst á bak við
Goldstone-skýrsluna
Sönnunargögnin
gegn Ísrael
fái þrjá mánuði til að framkvæma
rannsókn á Gaza-stríðinu. En Goldstone,
sem er sjálfur suður-afrískur gyðingur,
efast um að Ísrael muni standa fyrir
„trúverðugri rannsókn á hinum meintu
afbrotum“. Hann hvetur Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna til þess að standa sjálft
fyrir rannsókn og skila skýrslu innan sex
mánaða.
Goldstone biður einnig öryggisráðið
um að skipa sérfræðinganefnd til að
fylgjast með rannsókninni þar til Ör-
yggisráðið ákveður að vísa málinu til
Alþjóðaglæpadómstólsins.
Palestínumennirnir
Í skýrslunni segir líka að Hamas og
palestínskar andspyrnuhreyfingar hafi
skotið eldflaugum og sprengikúlum
Kröfur Sameinuðu
þjóðanna
gagnvart Ísrael
Goldstone skýrslan hvetur til ákærra á hendur Ísrael í mörgum löndum.
Í hinni sérlega efnismiklu skýrslu Sam-
einuðu þjóðanna frá Goldstone-nefndinni
eru gerðar margar kröfur á hendur Ísrael, og
skorað er á þjóðir heims að bregðast við.
* Nefndin skorar á þau lönd sem hafa skrifað
undir Genfarsáttmálan, að hefja sjálf réttarhöld
við eigin dómstóla vegna „alvarlegra brota á
Genfarsáttmálanum“. Einnig segir í Goldstone
skýrslunni að það „beri að lýsa eftir þeim sem
grunaðir eru um glæpi“.
* Ísrael á að láta Palestínumenn sem hafa
verið handteknir í tengslum við hernámið lausa.
* Ísrael á ekki að afneita eigin löndum þegar
þeir „gagnrýna“ gjörðir Ísraelsstjórnar.
* Einnig stendur þar að það „ber[i] að styðja“
ísraelsk og palestínsk mannréttindasamtök.
* Ísrael á að hætta „mótaðgerðum gagnvart
þeim Palestínumönnum og Ísraelum sem
unnu með Sameinuðu þjóðunum við gerð
skýrslunar“.
* Sameinuðu þjóðirnar eiga að aðstoða
við enduruppbyggingu Gazasvæðisins og
„fjarlægja hvítan fosfór, sprengikúlubrot með
volframi og önnur eiturefni“.
* Ísrael á að hætta að hefta streymi
þeirra mörg hundruð miljóna dala sem al-
þjóðasamfélagið hefur úthlutað til endur-
uppbyggingar á Gaza.
* Goldstone-skýrslan ályktar að Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna „eigi að taka afstöðu
til þess hvort leyfa eigi að beita hvítum fosfór,
flechette-sprengikúlum og volframi í hernaði“.
* Ísrael á að aflétta herkvínni, opna
landamærin til Gaza og „veita ferðafrelsi“.
* Ísrael á að leyfa fiskveiðar innan við 20
sjómílur út fyrir Gaza.
* Sameinuðu þjóðirnar eiga að halda
ráðstefnu um „hvernig Genfarsáttmálanum er
framfylgt á herteknum svæðunum og Gaza“
stendur í hinni 574gra blaðsíðna skýrslu.
Upplýsingar um vopn:
DIME-sprengjan
DIME-sprengjan (Dense Inert Metal Explosive)
innniheldur lítinn hólk með volframi, zinki og
tini sem borast af krafti í fórnarlambið.
Flechette
Sprengikúlur sem innihalda 5000 málmflísar
sem eru hvassar eins og rakvélarblöð, og tæta
allt lifandi í sundur á hundrað ferkólómetra
svæði.
Hvítur fosfór
Hvítur fosfór veldur gríðarlegum sprengingum
og stórum hvítum reykskýjum. Hitinn frá
sprengingunum veldur stórum brunasárum
á fólki. Verði manneskjur fyrir fosfór étur
hann sig af áfergju inn í þær og hann er
krabbameinsvaldandi.