Frjáls Palestína - 01.11.2009, Qupperneq 13
12 FRJÁLS PALESTÍNA FRJÁLS PALESTÍNA 13
Bloggað á Gaza 24. maí
Í dag fórum við um þau svæði á
Gazaströndinni sem urðu verst úti í
sprengjuárásum Ísraela. Við keyrðum
lengi eftir götum þar sem ekkert var að sjá
nema leyfar af húsum og verksmiðjum.
Það eru stærðar svæði þar sem ekkert
stendur eftir af heilu hverfunum. Sums
staðar hafa íbúar eyðilagðra húsa slegið
upp tjöldum.
Eldri kona gekk til okkar og sagði
okkur með miklum tilþrifum frá afdrifum
fjölskyldu sinnar og eigna. Hún lýsti sök
á hendur Bandaríkjanna sem stæðu á
bak við Síonistana í Ísrael.
Það er greinilegt að sprengjuregn
Ísraela hefur beinst að því að refsa
fólkinu fyrir að vera Palestínumenn.
Skipulagt dráp á búfénaði, vísvituð
eyðilegging heimila og ýmissa bygginga
sem hafa engann hernaðarlegan tilgang
sýnir þetta skýrt.
Yfirlýst markmið Ísraela var að ráðast
gegn Hamas.
Niðurstaðan er hinsvegar sú að
Hamas-samtökin eru enn sterkari en
áður og öll eyðileggingin að því leiti til
einskis. Niðurstaðan er annaðhvort sú að
ísraelsk stjórnvöld eru svona heimsk eða
að tilgangurinn var allann tímann sá að
hindra að almenningur á Gazaströndinni
geti lifað því lífi sem allir kjósa sér ef þeir
eiga frjálst val.
Bloggað á Gaza 25. maí
Nú er ferð okkar til Gaza á enda. Við
erum komin í gegnum varðstöð Ísraela
í Erez. Til þess að komast frá Gaza þarf
að fara í gegnum 11 hlið. Við vorum
samferða tveimur Palestínskum konum,
önnur háöldruð og hin með smábarn á
handlegg. Hluti af aðferðum Ísraela miða
að því að niðurlægja Palestínumenn.
hátölurum. Þessi bið er eingöngu gerð til
þess að gera fólkinu lífið leitt. Mjög lítil
umferð er um þetta fangelsishlið og fáum
hleypt í gegn, það er því ekki vegna anna
sem allt tekur svo langan tíma.
Skyndilega opnast stálhurðir og þar er
farangurinn setur á færiband. Eftir það er
farið í glerbúr og þar fá menn að híma um
stund. Loks er ferðalöngunum hleypt inn
í annað glerbúr og þar næst opnast klefi
þar sem hver og einn er skannaður frá
hvirfli til ilja – skann1inn snýst í kringum
mann og fyrirskipanir um að rétta upp
hendur koma úr gjallarhorni. Það er
engin manneskja sjáanleg en greinilegt
er að einhver sér þig því þeir bregðast
við hverri þinni hreyfingu.
Konan sem var með barn á handlegg
þurfti að fara þrisvar inn í skannann með
barnið. Röddin var ekki ánægð með
eitthvað og loks kemur í ljós skraut sem
tilheyrir höfuðbúnaði konunnar. Eftir að
skönnun lýkur þá er gegnið í gegnum
tvöfalt hlið og loks inn í herbergi þar sem
taskan bíður. Svo tekur við skoðun á
töskum, næst er maður kominn í stærri
sal og því næst kemur dvöl í litlu búri þar
sem tveir landamæraverðir spyrja mikið
um ferðina og tilgang hennar. Að lokum
Eftir að við höfum farið í gegnum
landamæragæslu stjórnvalda á Gaza
þá tekur við kílómeters löng ganga með
allan farangur í steikjandi sólarhita.
Við fengum burðarkarla til að rogast
með farangurinn að fyrsta hliðinu. Þar
tekur við 500 - 700 metra langt búr. Við
drógum töskurnar þann spöl og þar tók
við hálftíma bið í búri sem bauð ekki
uppá neitt nema malbikað gólf og suð í
þarf að ganga spöl að næsta hliði og þá
er maður loksins kominn í gegn. Gamla
konan komst í gegn en sú með barnið
var send til baka.
En á Gaza eru 1,5 milljón manna enn
innilokaðar við hörmulegar aðstæður.
Eftir margra mánaða bið eftir leyfi frá Ísraelsstjórn hélt hópur
Íslendinga til Gaza þann 18. maí
2009. Tilgangur fararinnar var að
færa fötluðum Gaza búum gervifætur
í kjölfar hinna miklu árása Ísraela
yfir jól og nýár. Össur Krist insson
stoðtækjasmiður og hans fólk hafa
hannað sérstaka gerð gervifóta fyrir
fólk á svæðum þar sem aðstæður
eru erfiðar og aðkallandi. Félagið
Ísland-Palestína safnaði fé til kaupa
á gervifótunum og alls voru keyptir
30 fætur. Á Gaza skrifaði ég nokkur
blogg á Moggablogginu sem lýsa
vel upplifun minni vikuna sem við
dvöldumst á staðnum.
Bloggað á Gaza 21. maí
Ég er staddur á hóteli í Gazaborg og er
að reyna að sundurgreina í huganum allt
það sem ég hef upplifað hér á tveimur
dögum. Í rauninni líður mér líkt og að heil
vika sé liðin frá þeirri stundu þegar við
gengum í gegnum fangelsismúra Ísraela
inn í stærsta fangelsi heims. Hér býr 1,5
milljón manna við skort og stöðugan
ótta við loftárásir. Í gær keyrðum við
um hverfi þar sem fallbyssukúlur Ís ra-
ela féllu fyrir þremur dögum og í dag
heyrðum við sprengingar og skot hvelli
og fréttum síðar að Ísraelar hefðu drepið
tvo Palestínumenn.
Ég er, ásamt Ingvari Þórissyni, að
kvikmynda leiðangur til Gaza sem farinn
er í þeim tilgangi að færa Palestínu-
mönnum að gjöf 30 gervifætur sem
félagið Ísland-Palestína heftur safnað
fyrir undir forystu formannsins Sveins
Rúnars Haukssonar.
Össur Kristinsson er með okkur hér
ásamt þremur starfsmönnum sem sjá
um að setja gervifæturna á og kenna
Palestínumönnum tæknina.
Við erum búnir að ræða við heilbrigð-
is starfsmenn hér og lýsingarnar á hörm-
ungunum eru ótrúlegar. Við höfum einnig
séð ljósmyndir af fórnarlömbum Ísraels-
hers sem eru svo hroðalegar að það er
ekki hægt að sýna þær opinberlega.
M.a. sjá afleiðingar nýrra vopna sem
Ísraelar notuðu óspart. Þessi vopn eru
hönnuð af slíkri grimmd að það er erfitt
að trúa orðum læknanna sem tóku
þessar myndir. En þær tala sínu máli.
Palestínumenn eru ótrúlega þrautseigt
fólk og úrræðagott. Til þess að sigrast
á aðstæðum þá grafa þeir göng undir
landmærin til Egyptalands og flytja mikið
magn af allskonar varningi. Talið er að
stundum séu allt að 300 göng í notkun
samtímis. Ísraelski flugherinn varpar oft
sprengjum til að eyðileggja göngin en
Gazabúar grafa stöðugt ný göng. Það
er lífshættulegt og við heyrðum sögur
af fólki sem hefði dáið í göngum sem
Ísraelum tókst að sprengja. Meðal þess
sem er flutt um göngin dag hvern eru
mörg þúsund lítrar af bensíni.Fólkið hér
er mjög vinsamlegt og forvitið um okkur,
enda ekki mörgum útlendingum hleypt
inn í fangelsið til þeirra. Í gærkvöldi
gengum við frá ströndinni heim á hótelið
og stoppuðum í bakaríi. Þegar að við
ætluðum að borga fyrir vörurnar þá
sagði afgreiðslumaðurinn að þetta væri
ókeypis. Þá var túlkurinn okkar búinn
að segja honum hver við værum og þá
sagði hann að þetta væri það minnsta
sem hann gæti gert fyrir fólk sem væri
hingað komið til að hjálpa Gazabúum.
Bloggað á Gaza 23. maí
Í dag hittum við nokkra sjómenn sem
reyna að stunda sjóinn við strendur
Gaza. Samkvæmt Oslóarsamkomulag-
inu eiga Palestínumenn 20 km. landhelgi
sem þeir geta stunda sínar veiðar. Og
hafa reyndar gert frá fornu fari.
Nú er svo komið að Ísraelar banna
þeim að fara lengra út en 3 km – ef þeir
hætta sér lengra er skotið á þá.
Samil er einn þeirra 3500 fiskimanna
sem reyna að hafa lifibrauð af fiskveiðum.
Nýlega skutu ísraelskir hermenn, sem
dóla hér úti fyrir á herskipum, á hann og
hann missti vinstri hendina. Hann var þá
ekki kominn lengra en 2,5 km. frá landi.
Hann getur lítið stundað sjómennsku á
næstunni. Enda er það tilgangur Ísraela
með sífelldum árásum á fiskimenn
sem eru ekki að gera annað en það
sem fiskimenn gera um allan heim.
Ísraelar vilja svelta fólkið á Gaza. Með
því að banna þeim að fara lengra en 3
km frá ströndinni þá koma þeir í veg fyrir
að þeir nái til gjöfulustu fiskimiðanna.
Í höfninina í Gaza streymir skólp frá
borginni. Hún er orðin þrælmenguð
en Ísraelar koma í veg fyrir viðgerð
á biluðu hreinsunarkerfi Gazabúa.
Ísraelar eiga kannski eftir að sjá eftir
þessu þar sem mengunin mun einnig
berast til þeirra. Það er ekki langur
vegur yfir til stranda Ísraels, maður
sér yfir til þeirra með berum augum.
Eftir
Hjálmtý
Heiðdal
Þessi nýju vopn drepa ekki fórnarlambið
í öllum tilfellum, en valda áverkum sem
valda ævilöngum örkumlum. Þannig
verð ur fórnarlambið stöðug áminning um
vopna yfirburði Ísraela og verður jafnframt
óvinnufær byrði á þjóðfélaginu.
Hátt í tvöhundruð manns þurfa gervi-
fætur eftir árásirnar um jól og áramót.
Gazabúinn Hosni missti báða fæt8ur
í árásum Ísraela. Hér gengur hann sín
fyrstu skref með nýjum gervifótum
frá Össur Kristinssyni og félögum
Bloggað á Gaza 22. maí
Það getur verið erfitt að blogga á Gaza
- rafmagnið fer nokkrum sinnum á dag.
Það er ein birtingarmynd umsátursins
því Ísraelar banna aðflutning á marg-
víslegum nauðsynjum. Meðal bannvöru
er allt byggingarefni sem nota má til að
endurreisa húsin sem þeir lögðu í rúst.
Rústir á Gaza. Ingvar Þórisson tökumaður kvikmyndar eyðilegginguna.
Ísraelar sprengdu mikið af húsum sem höfðu ekkert hernaðarlegt gildi
eins og fram kemur í Goldstone skýrslunni.
Sveinn Rúnarformaður félagsisn Ísland Palestína, ræðir við Samil fyrr ver-
andi sjómann. Ísraelar ráðast sífellt á fiskimenn sem hætta sér á miðin við
Gazaströnd. Í einni slíkri árás missti Samil framan af hendi og er óvinnufær
síðan.
Bloggað frá stærsta
fangelsi heimsins