Vestfirska fréttablaðið - 03.04.1986, Page 8
Bækur — Blöð — Tímarit — Eyðublöð
Allskonar litprentun
Tölvupappír, eigin framleiðsla
Prentstofan Isrún hf.
FRETTABLABIS
hefur
heyrt
Að loksins gefist ísfiröingum
kostur á að verða frægir að
endemum. Þátturinn „Á líð-
andi stundu" verður sendur
út frá fsafiröi á næsta miö-
vikudag.
Að til nokkurra árekstra hafi
komið þegar í Ijós kom að
bæði Litli Leikklúbburinn og
Tónlistarfélagið sóttust eftir
Félagsheimilinu í Hnífsdal á
sama tíma. Leikklúbburinn
hyggst frumsýna leikritið
Kviksand í kringum 20. apríl,
og um svipað leyti ætlar Tón-
listarfélagið á fjalirnar með
sinn árlega kabarett til styrkt-
ar húsbyggingunni. Málið
mun þó hafa verið farsællega
til lykta leitt.
Að afli línubáta á fjörðunum
hér sunnan við hafi verið með
tregara móti að undanförnu.
Til marks um það má nefna að
þegar verið var að landa afla
úr línubát á Flateyri á dögun-
um þá misstu löndunarmenn
einn steinbít í sjóinn. Skip-
stjórinn lét þá svo um mælt að
þetta hefði verið Ijóta óhappið
þvi þar fór helmingurinn af
aflanum.
Að ýmislegt í verðlagsmálum
ÁTVR þyki dálftið einkenni-
legt. Þannig er til dæmis allt
tóbak selt á svo hárnákvæmu
verði að ekki má skakka eyri.
Hafa Kaupmannasamtökin
nokkuð reynt til þess að fá
verðið „rúnnað af' en við-
leitni þeirra engan árangur
borið. Hins vegar er allt verð á
áfengi reiknað í tugum króna
og hefur svo verið lengi...
Að frámunalega léleg aðsókn
hafi verið að dansleikjum í
Hnífsdal um páskahelgina.
Haldnir voru tveir dansleikir á
aðfararnótt laugardags og
sunnudags. Dansgestir munu
hafa verið teljandi á fingrum
annarrar handar á þessum
tveimur samkomum. Það
fylgir sögunni að tveir ungir
menn sem héldu dansleikina
fyrir eigin reikning hafi tapað
um það bil 200 þúsund krón-
um á ævintýrinu.
Að gárungarnir sem svo oft er
vitnaö í segi að flugvélin sem
Flugleiðir hafa á leigu frá
Brítish Airways sé í rauninni
fengin frá British Museum.
Segja títtnefndir gárungar
einnig að samkvæmt þessari
nýju stefnu fólagsins sé verið
að ganga frá kaupum á Fokk-
er flugvél frá Finnair sem sé
sú sama og Flugleiöir seldu til
Finnlands þegar verið var að
„endurnýja" flugvélakostinn
fyrir nokkrum árum.
Á myndinni sjást þær Þuríður Pétursdóttir og Sigurlaug Guðmunds-
dóttir, sem urðu hnífjafnar í fyrsta sæti í 100 metra bringusundi. I
öðru sæti varð Pálína Bjömsdóttir og þriðja sæti Björg A. Jónsdótt-
ir. Nánari úrslit era á bls. 3.
Tílboð opnuð
í vegagerð
á Oshlíð
*
— Jón og Magnús sf. á Isa-
fírdi lægstir.
Tilboð f undirbyggingu fyrír slit-
lag á Óshlíð hafa veríð opnuð. Ætl-
unin er að vinna við undirbygging-
una nú i sumar, en slitlag á að
leggja sumarið ‘87. Um er að ræða
þann kafla vegaríns þar sem ekki
hefur þegar veríð lagt á varanlegt
slitlag, eða frá sorpbrennslustöð út
að Seljadal.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
14.929.000 krónur. Lægsta tilboðið
kom frá Jóni og Magnúsi sf á Isa-
firði, og hljóðaði það upp á 66% af
kostnaðaráætlun vegagerðarinnar,
eða 9.856.400 krónur. Hæsta til-
boðið kom frá Hagvirki 19.535.500
krónur, eða 130,8% af kostnaðará-
ætlun. Tilboð Kristjáns og Gísla,
Hólmavík, hljóðaði upp á 10.796
.400 krónur, sem er 72,3% af
kostnaðaráætlun og þriðja lægsta
tilboðið kom frá Gunnari og Eb-
eneser á Isafirði, 11.943.200 krónur
sem er 80% af kostnaðaráætlun.
F rambj óðendur
kynntir á skemmti-
kvöldi í Uppsölum
Á næstunni verður boðið uppá
nýbreytni i veitingahúsinu Uppsöl-
um á ísafirði. Hér eru á ferðinni
skemmtikvöld þar sem kynntir
verða frambjóðendur til bæjar-
stjómarkosninga á gamansaman
hátt. Verður þetta trúlega með
svipuðu sniði og siðastliðið haust,
það er að scgja matur og skemmti-
atríði innifalið i verði eins miða.
Eins og fyrr segir verða kosning-
amar skoðaðar í nýju ljósi og er
eftir því sem blaðið kemst næst um
frumsamin skemmtiatriði að ræða.
Ekki er vitað um höfund ennþá, en
eitthvað munu höfundar revíunnar
sem Litli Leikklúbburinn sýndi
síðastliðið vor hafa komið þar við
sögu. Að sögn forráðamanna Upp-
sala er stefnt að því að fyrsta
skemmtikvöldið verði laugardag-
inn 12. apríl.
Suðureyri:
Samgöngur
stórbatna
— Erni M. veitt sérleyfí til flugs
þangað. Fljúga sex sinnum í viku
til Reykjavíkur.
Eins og kunnugt er af blaða-
fregnum hefur flugfélagið Emir á
Isafirði nú fengið flugrekstrarleyfi
á flugleiðinni Suðureyri — Reykja-
vík. Araarflug hafði leyfi á þessari
flugleið áður, en höfðu ekki sinnt
flugi þangað alllengi vegna skorts á
flugvélum.
Hreppsnefnd Suðureyrarhrepps
ályktaði um málið í vetur og hvatti
til þess að Emi h/f yrði veitt leyf-
ið. Gekk það eftir og var fyrsta
ferðin farin á síðasta þriðjudag.
Að sögn Torfa Einarssonar til-
sjónarmanns hjá Emi hf verða
flognar sex ferðir í viku og er farið
frá Suðureyri kl. 9 á morgnana og
komið til Reykjavíkur kl. 10.
Að sögn Torfa hefur ekki enn
verið ákveðið hvort flugvélakostur
félagsins verður aukinn, en fyrst
um sinn verður flogið á Piper Aztec
á þessari leið.
BESSI fS landaði 1. apríl 80
tonnum.
GUÐBJARTUR landaði 24.
mars47 tonnum.
ORRI VfKINGUR OG GUÐNÝ
voru í páskafríi, en fóru í fyrsta
róðurinn á þriðjudag og
fengu misjafnan afla.
JÚLfUS GEIRMUNOSSON
landaði 22. mars 90 tonnum,
og erá veiðum.
GUÐBJÖRG seldi í Þýska-
landi fyrir páskana 255 tonn.
Var það mestmegnis karfi og
fékkst gott verð fyrir aflann.
PÁLL PÁLSSON landaði 21.
mars 44 tonnum úr seinni
túrnum sem farinn var fyrir
Hafrannsóknarstofnun. Hann
landaði svo aftur 29. mars
87,7 tonnum.
DAGRÚN landaði 22. mars 95
— 100 tonnum og fór stór
hluti aflans í gáma. Hún land-
aði síðan aftur 29. mars 60
tonnum og var sett í einn gám.
Netabátar i Bolungarvík
drógu upp fyrir páskana eins
og aðrir. Línubátar hafa lítið
róið og afli verið fremur treg-
ur.
Eitthvað virðist afli vera að
glæðast hjá rækjubátum.
HUGRÚN landaði 8 tonnum af
rækju á mánudag.
SÓLRÚN er væntanleg í land í
dag með um það bil 60 tonn af
rækju eftir hálfsmánaðar úti-
vist.
GYLLIR frá Flateyri landaði
22. mars 120 tonnum. Hann
landaði svo aftur á þriðjudag
90,8 tonnum og var helming-
ur aflans þorskur. Afli línu-
báta frá Flateyri er um þessar
mundirtalinn ífiskum.
ÞRYMUR landaði á Þingeyri
dagana 21. mars og 22.,
samtals 57 tonnum af neta-
fiski.
FRAMNES landaði 24. mars
16,7 tonnum og síðan á
þriðjudaginn 14 tonnum.
Framnesið hef ur átt við bilanir
að stríða og skýrir það þenn-
an trega afla.
SLÉTTANESIÐ seldi í Þýska-
landi fyrir páskana 136 tonn
af karfa, en gerðu ekki góöa
sölu og eru nú á veiðum fyrir
heimamarkaö.
ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR
landaði 23. mars 70 tonnum
og voru 40 tonn sett í gáma.
Síðan landaði hún aftur 31.
mars25,5 tonnum.
SÖLVI BJARNASON landaði
á Bíldudal 31. mars 105 — 7
tonnum.
TÁLKNFIRÐINGUR landaði
21. mars 100 tonnum og síð-
an aftur 29. mars, þá 88,6
tonnum.
SIGUREY frá Patreksfirði
lagði af stað í siglingu til
Þýskalands á þriðjudag með
130 tonnaf karfa.
Lítill afli hefur verið hjá
línubátum syðra.
VESTRI fékk 99,7 tonn af
slægðum netafiski í sex róðr-
um frá 17. — 24. mars.
BÍLALEIGA
Nesvegi 5 - Súðavík & 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 - V/Miklatorg S 91-25433
Afgreiðsla á ísafjarðarfiugvelli S 94-4772
Sendum bílinn
Opið allan sólartiringinn