Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Page 1
23. tbl. 13. árg. 19. júní 1987
Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjómarskrifstofa og aug-
lýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 17:00.
Síminn er 4011, svarað er allan sólarhringinn. Blaðamaður: Páll Ásgeirsson. Samstarfs-
maður Hlynur Þór Magnússon. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir. Útgefandi og
ábyrgðarmaður: Ámi Sigurðsson, ritstjóri, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun:
Prentstofan ísrún hf., (safirði. Verð í lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er lausasöluverð
reiknað hálfsárslega eftirá.
Bolungarvík:
B. M. Vallá setur
upp steypustöð
Steiniðjan hf. sem er fyrirtæki í
eigu Kaupfélags ísfirðinga hef-
ur fram að þessu setið eitt að
allri steypusölu á ísafirði og
nágrenni. Fyrirtækið á fimm
steypubíla auk dælubíls og hef-
ur selt um það bil 5000 rúm-
metra af steypu árlega. Forráða-
menn fyrirtækisins segja að til
þess að halda velli þurfi salan
að nema 6000 rúmmetrum ár-
lega. Steiniðjan festi kaup á
tveimur steypubílum í vor. Var
það gert til þess að fyrirtækið
væri í stakk búið til þess að
sinna steypusölu til radarstöðv-
arinnar á Stigahlíð, en hún verð-
ur steypt upp í sumar. Til þess
þarf rúma 1000 rúmmetra af
steypu. Ekki hefur verið samið
við neinn um steypusölu til
byggingarinnar. Nú hefur B.M.
Vallá steypustöð í Reykjavík
sótt um og fengið leyfi til þess
að setja upp færanlega steypu-
Stöð í Bolungarvík.
BM Vallá hyggst flytja allt efni til
steypunnar í skipum frá Reykja-
vík.
Fyrirtækið sótti einnig um
afslátt af hafnargjöldum vegna
flutninga á steypuefni, en fékk
ekki.
Auk radarstöðvarinnar er um
að ræða, byggingu vegskála á
Óshlíð, viðbyggingingu við
grunnskólann í Bolungarvík og
hafnarframkvæmdir í Bolungar-
vík. Samtals er hér um að ræða
tæpa 2000 rúmmetra af steypu.
Halldór Antonsson verkstjóri
hjá Steiniðjunni sagði í samtali
við Vestfirska fréttablaðið að
fyrirtækið hefði fjárfest í tveim-
ur steypubílum, gagngert til
þess að vera í stakk búið til þess
að sinna þessum auknu verk-
efnum og því kæmi þeim í opna
skjöldu að annað fyrirtæki
hyggðist ná fótfestu á þessum
markaði um skamman tíma.
Halldór kvaðst álíta að ef af því
yrði að BM Vallá setti upp
steypustöð í Bolungarvík, þá
væri Steiniðjan í nokkrum vand-
ræðum. Steypubílarnir sem
keyptir voru vegna þessa kost-
uðu 3 milljónir.
Steypan í radarstöðina myndi
kosta tæpar sjö milljónir frá
Steiniðjunni. Upplýsingar um
verð á rúmmetra af steypu frá
BM Vallá, fengust ekki, en sam-
kvæmt öruggum heimildum er
það talsvert lægra.
Víglundur Þorsteinsson for-
stjóri BM Vallá viidi ekki segja
neitt um þetta mál. Hann sagði
það vera í athugun hvort upp-
setning steypustöðvar í Bol-
ungarvík borgaði sig.
Jón Friðgeir Einarsson verk-
taki í Bolungarvík sagði að rad-
arstöðin ætti að verða fokheld í
sumar. Hér væri um að ræða
1200 fermetra hús sem væri
steypt í hólf og gólf.
I sólskini á 17. júní á ísaflrði
Sjómannadagur 1987
Hátíðahöld sjómannadagsins
á ísafirði fóru vel fram í blíð-
skaparveðri. Kl. 14.00 á sunnu-
dag söfnuðust menn saman við
íþróttavöllinn þar sem haldnar
voru ræður, sjómenn heiðraðir,
ræður haldnar, verðlaun afhent
og keppt í reiptogi og fótbolta.
Sveit Norðurtangans sigraði
í kvennaflokki, en sveit Júlíusar
Geirmundssonar í karlaflokki.
Kapparnir af Júlíusi sigruðu
líka í reiptogi.
Félagar úr Harmonikufélagi
ísafjarðar léku nokkur lög við
góðar undirtektir. Skemmti-
kraftarnir Edda Björgvinsdóttir,
Júlíus Brjánsson og Eggert Þor-
leifsson skemmtu.
Það voru sjómennirnir Sig-
urður Helgason á ísafirði og
Finnbogi Jósepsson í Hnífsdal
sem voru heiðraðir fyrir störf að
sjómennsku.
Lúðrasveit Tónlistarskóla ísafjarðar lék undir stjóm Jóns Heimis Sigur-
björnssonar.
Bergrós Kjartansdóttir flutti ávarp
fjallkonunnar.
Hátíðahöldin hófust með fjölmennri skrúðgöngu um götur bæjarins.
Sveitir frá Páli Pálssyni og Júlíusi Geirmundssyni keppa í
róðri. Júlíus sigraði. Félagar úr Harmonikufélagi ísafjarðar skemmta.
Hermann Skúlason tekur við bikar fyrir kappróður.
Stulli ásamt óþekktri konu úr slökkviliðinu.
Nýkomið mikið úrval af veiðvörum
-----Allt til Isixveiöa.-
SRORTVÖRUDEILD
£marQutymnsson li . i/inu 7'200 'JfUJtvn4fU( tUÁ
* MÁr EIMSKIP STRANDFLUTNINGAR MAFOSS Á ÍSAFIRÐI TVISVAR í VIKU
Vöruhús sími 4556 • Skrifstofa sími 4555