Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Side 2
2
li.<'
vestlirska
TTABLADID
Hugsjón yex
fískur um hrygg
Það er óhætt að segja að
tölvufyrirtækinu Hugsjón hafi
vaxlð flskur um hrygg frá því að
það var stofnað.
Hugsjón flutti í vetur á neðri
hæðina á Mánagötu 1. Fljótlega
var því of þröngur stakkur skor-
inn þar og hafa þelr nú lagt undlr
sig alla efrl hæðlna. Ræður nú
fyrirtækið yfir alls 200 fermetr-
um.
Að sögn Sigurjóns Haralds-
sonar framkvæmdastjóra og
eins aðaleiganda Hugsjónar
hefur fyrirtækið verið að breytast
að undanförnu. f fyrstu var bók-
haldsþjónusta stór þáttur í starf-
semi fyrirtækislns en nú er svo
komið að sala á tölvum og þjón-
usta við þær sem átti upphaflega
að vera aukabúgrein er orðin
aðalbúgreln. f kjölfar þessara
breytinga var starfsmönnum
fækkað og munu trúlega aðelns
þrír vlnna hjá Hugsjón þegar
reksturinn verður kominn í það
horf sem eigendur vllja.
Með því að aukið húsnæði er
fengið opnast möguleikar fyrir
Hugsjónarmenn að bjóða upp á
aukna kennslu á tölvur sem þeir
selja og vera með meira úrval af
þeim.
Aðalbækistöðvar Hugsjónar
verða á efri hæðinni í Mánagötu l
en á neðri hæðinni verður umboð
sjóvátryggingafélags og bílasölu-
umboð fyrir Ingvar Helgason.
Umsjón þeirrar starfsemi verður að
hluta til í höndum starfsmanna
Hugsjónar.
í síöista mánuði héldu þessi fimm börn hlutaveltu að Fjarðarstræti 27,
Isafirði. Ágóðinn af hlutaveltunni var 1.100 kr. og rann féð í húsbyggingar-
sjóð Tónlistarskóla ísafjarðar.
Bömin era (f.v.): Vilhelmína Una Hjálmarsdóttir, Haildóra Guðrún Jóns-
dóttir, Jóhann Benedikt Hjálmarsson, Davíð Sveinsson og Magnús
Jónsson.
19. júní
19.júní
Ársrit Kvenréttindafélags
íslands, 19. júní, er komið út í 37.
skipti. Efni blaðsins er sem fyrr
helgað málefnum jafnréttis milli
kvenna og karla og kennir að þessu
sinni margra grasa í því efni.
„Ég hlakka til þess dags...“ er
fyrirsögn á forsíðuviðtali við for-
seta íslands, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur. í löngu og skemmtilegu
viðtali ræðir Rannveig Jónsdóttir
við forsetann um uppvaxtarárin,
um hvað hún telur hafi mótað per-
sónu sína mest, um viðhorf sín tíl
þjóðernisins, til kvenna og ótal
margt fleira forvitnilegt.
Það er ekki á hverjum degi sem
forseti landsins veitir tímariti
einkaviðtal, en 19^ júnj hefur að
því leyti sérstöðu að þetta er í ann-
að skipti sem blaðið birtir við frú
Vigdísi viðtal frá því hún settist í
forsetastól fyrir sjö árum.
íþróttir og konur er að öðru leyti
það efni sem á stærstan hlut í blað-
inu. Velt er upp spurningunni
hvort jafnrétti ríki á vettvangi
íþróttanna. Rætt er við fjölda af-
rekskvenna sem leggja stund á
keppnisgreinar nú, svo og sund-
stjömuna Hrafnhildi Guðmunds-
dóttur sem gerði garðinn frægan
fyrir 15 - 20 árum.
„Ef Bjarni Fel væri kona...“
heitir ein nokkurra greina í þessum
efnisflokki og fjallar um þátt fjöl-
miðla í þeirri mynd sem almenn-
ingur fær af íþróttum kvenna.
Af öðru efni má nefna viðtöl við
þær Jórunni Viðar tónskáld og
Valborgu Bentsdóttur kvenrétt-
indakempu í marga áratugi. Mar-
grét Heinreksdóttir fréttamaður
rekur þær breytingar sem orðið
hafa á stöðu kvenna í stjómmálum
frá því í síðustu alþingiskosningum
og spyr: „Er V það sem við
viljum?" Jafnframt svara 7 valin-
kunnir einstaklingar spurningunni
hvað leiðir séu vænlegastar til að
konum fjölgi á þingi.
Mishermi
í viðtali við Bemódus Halt-
dórsson í Bolungarvík sem birt-
ist í síðasta tbl Vestfirska frétta-
blaðsins er ranglega farið með
nafn eins þegar Asberg Krist-
jánsson skipstjóri á Hörpu ÍS
frá ísafirði er sagður vera
Sigurðsson.
Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessu.
Dagskrárgerðarmenn frá grænlenska útvarpinu voru hér á ferð á dögunum. Grönlandsradio er eina útvarpsstöðin
í Grænlandi. Grænlensku útvarpsmennirnir unnu hér efni um ísafjörð og tóku viðtöl við heimamenn. Þeir ferðuðust
einnig um nágrenni ísafjarðar fóra meðal annars í skoðunarferð í frystihús Hjálms h/f á Flateyri. Héðan héldu
þeir til Akureyrar. Þessi mynd var tekin af þeim Jens Egede, Hendrik Fisker og Stepan Hammelæ fyrir utan Hótel
Isafjörð ásamt vestfirskum starfsbróður Finnboga Hermannssyni.
• •
Oldruðum
boðið
í sumar-
dvöl
Rauðakross deildirnar á Vest-
fjörðum hafa s.l. 5 ár staðið fyrir
sumardvöl aldraðra. Ríkt hefur
mikil gleði og ánægja í þessum
ferðum. Þessir hópar eru orðnir
velkynntir hvar sem þeir koma.
í ár verður flogið til Norðulands.
Dvalið verður í sumarhótelinu í
Þelamörk dagana 15. til 22. ágúst.
Farið verður þaðan í eins til Gísladóttur í síma 7770 og hjá Ás-
tveggjadagaferðirumNorðurland laugu Árnadóttur í síma 7798, frá
Allar upplýsingar og pantanir ogmeð25. júnífrákl. 19.00-21.00
verða fengnar hjá Sigrúnu G. alla daga.
Sumarferð Kiwanis
Hin árlega sumarferð Kiwan-
ismanna á ísafirði með eldri borg-
urum verður farin með Fagranes-
inu sunnudaginn 21. júní. Brottför
kl. 10.00 f.h. úr bátahöfninni.
Siglt verður inn í Reykjanes, þar
sem snæddur verður hádegisverð-
ur, farið í skoðunarferð um ná-
grennið og ef til vill farið í sund-
laugina.
Harmonikuleikarar verða með
í förinni. Þeir sem áhuga hafa á
þessari ferð láti vita í síma 3303
(Sturla).
Kiwanisklúbburinn Básar.
VESTFIRÐINGAR
Hvers konar herraföt
saumuð eftir máli:
Jakkaföt
^ Einkennisföt, fyrir fyrirtaeki og stofnanir
kem á staöinn ef um hóp er aö ræða
Stakir jakkar Einnig saumað
Stakar buxur, úr tillögðum
með eða án efnum
fellinga
Komdu við í Garðastrætinu - í leiðinni
þar færðu „smart“ föt hjá Karli Jóhanni
Garðastræti 2, II. h. Reykjavfk ® 91 -17525