Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Page 4
ísafjarðarkaupstaður
Starfsfólk á elliheimili
Starfsfólk vantar til starfa á elliheimilinu við
Mánagötu nú þegar.
Upplýsingar veitir forstöðukona í síma 94-
3110.
Akstur í Tungudal
Nú í sumar aka strætisvagnar Strætisvagna
ísafjarðar h.f. þrisvar á dag inn á tjaldstæðið
í Tungudal.
Ferðirnar eru í tengslum við ferðir frá Silfur-
torgikl. 10:30, 14:30 og 18:30.
Bæjarstjórinn á Ísafrrði.
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
Friðlandið á Hornströndum
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi reglum
um friðlandið á Homströndum:
1. Hvers konar meðferð skotvopna er öllum
bönnuð nema samkvæmt sérstakri heim-
ild sýslumanns mánuðina júní til sept-
ember og utan þess tíma einungis heimil
landeigendum til hefðbundinna nytja.
2. Öll veiði er bönnuð, bæði fugla og fiska,
nema með leyfi viðkomandi landeigenda.
3. Öll umferð vélknúinna farartækja, þ.á.m.
torfærutækja, beltabifhjóla og jeppabif-
reiða, er bönnuð utan vega og merktra
slóða, nema leyfi Náttúmvemdarráðs
komi til.
16. júní 1987
Sýslumaðurirm í ísafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein.
Þegar þú kemur suður, þá tekur
þú við bilnum frá okkur á
Reykjavíkurflugvelli.
Svo skilur þú hann eftir á sama
stað, þegar þú ferð.
Bílaleiga
vJlJ X u I IV Carrental
BORGARTÚNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015
HELLUSTEYPA
TIL SÖLU
Hellusteinn s/f ísafirði sem er hellusteypu-
fyrirtæki í fullum rekstri ásamt tækjum og
fylgihlutum, m.a. tveimur steypuvélum,
mótum, víbratorum, snjóblásara o.fl.
Nánari upplýsingar hjá
Tryggva
Guðmundssyni hdl.
Hrannargötu 2, ísafirði, S 3940
og Júlíusi Veturliðasyni
Fagraholti 4, S 3643
Fer ekki að verða
tímabært að
stinga við fótum?
í vor mátti lesa í Velvakanda
og Víkverja Morgunblaðsins
um „nokkrar af þeim aðskilj-
anlegu „sporslum“ sem sýnist
sífellt fara fjölgandi á reikning-
um þjónustufyrirtækja“ eins og
þar segir orðrétt. Meðal annars
er sagt frá fyrirtæki sem sendi
mann út í bæ til vinnu. Þegar
reikningurinn síðan birtist hét
einn liðurinn „verkstjórn“, þó
maðurinn hefði verið einn við
vinnu.
Annar viðskiptavinur hafði
nýverið fengið reikning frá bif-
reiðaverkstæði þar sem einn
liðurinn hét „sætishlífar“ og lét
hann þau orð falla að nú væru
þeir kræfustu famir að taka
gjald fyrir að óhreinka ekki hjá
manni sætin í bílnum. Um ára-
mótin sendi Orkubú Vestfjarða
út tilkynningu um nýtt gjald,
sem þeir nefna „innheimtu-
gjald“. Það er skilgreint þannig
að það sé „gjald til að láta skil-
vísa notendur sjálfa greiða
kostnaðinn sem hlýst af van-
skilum þeirra“.
Til að ekkert fari milli mála
þá er það skilgreint enn frekar
sem „gjald til greiðslu kostnað-
ar við vanskilainnheimtu og
undirbúning að lokun“ og er kr
535.
Dráttarvextirnir virðast ekki
duga lengur til þess að greiða
kostnað við vanskilainnheimtu
eða þennan undirbúning undir
lokun, í hverju sem hann er nú
fólgin. Ég hélt að annaðhvort
væri lokað eða ekki lokað.
Póstur og Sími kallar þetta ein-
faldlega lokunar og opnunar-
gjald og virðist ekki þurfa neinn
undirbúning að því að loka.
Orkubúinu finnst sjálfsagt að
herða þurfa á allri innheimtu
um leið og iðnaðarráðuneytið
minnkar niðurgreiðslu á raf-
magni til orkunotenda á Vest-
fjörðum, sem fá þá um leið
hærri orkureikning frá Orku-
búinu.
Er ekki hægt að taka undir
Víkverja sem segir„Fer ekki að
verða tímabært að stinga við
fótum. Gerast þeir ekki einum
of hugvitssamir mennirnir sem
búa til þessa reikninga? Eða
hvemig líst Neytendasamtök-
unum til dæmis á þá aðferð að
heimta gjald af mönnum fyrir
að spilla ekki eigum þeirra."
Hjarta,
spaði, tígull,
lauf
Safnarðu spilum? Ef ekki áttu
þá spil í fórum þínum sem þú
villt gefa spilasafnara? Birna
Kristjánsdóttir Stórhólsvegi 5 á
Dalvík hafði samband við Vest-
firska fréttablaðið og bað það að
koma því á framfæri að öll spil
sem fólk vildi, eða gæti losnað
við væru vel þegin. Þessari bón
er hér með komið á framfæri.
ísafjörður:
Mengun í PoIIinum?
í krikanum við Bensínstöð-
ina við Hafnarstræti liggur
afar stórt skolpræsi í sjó
fram. Á lognkyrrum dögum
má sjá ýmis sýnishorn af úr-
gangi fljóta þarna í Pollinum
aðeins steinsnar frá því þar
sem sjóskíðakappar eru að
skvampa við íþrótt sína.
Þarna rennur til sjávar skólp
frá efri bænum og nýja
sjúkrahúsinu og Hlíf og fleiri
stöðum.
Árið 1985 var gengið frá
dælubrunni og lagðar ýmsar
leiðslur til þess að hægt væri
að færa úttakið í sjó við
norðanverða Eyrina. Þegar
eru til leiðslur undir Hafnar-
stræti og Eyrargötu. Það eina
sem vantar er leiðsla með-
fram kirkjugarðinum ásamt
úttaki í sjó við Fjarðarstræti.
Vestfirska fréttablaðið
hafði spurnir af því að íbúar
við Hafnarstræti og víðar
væru orðnir langeygir eftir
því að þessu verki yrði lokið.
Þær upplýsingar fengust hjá
tæknideild ísafjarðarkaup-
staðar að frágangur og lagn-
ing leiðslu meðfram kirkju-
garði væri inni á 3 ára fram-
kvæmdaáætlun og ætti að
fara í það á næsta ári, þ.e
1988 að koma frárennsli
þessu í endanlegt horf.
Skolpið fellur til sjávar í Pollinn.