Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Qupperneq 5
5
vesilirska
FRETTABLADID
Á myndinni hér til hliðar má sjá Byl^ju Héðinsdóttur starfsmann Þórdunu
við lokafrágang á framleiðslunni. Á myndunum að ofan er Bylgja við
átöppun og Sigurður að hræra í blöndunni eftir að hafa bætt leynilegu
töfraefni útí pottinn.
Græna
þrunian
Það eru sjálfsagt ekki allir sem
vita að á ísafirði er starfrækt
áburðarverksmiðja. Fyrirtækið
Þórduna sem Sigurður SigurðssOn
rekur og hefur aðstöðu í Blóma-
búðinni, hefur frá því um áramót
framleitt og selt blómaáburðinn
Grænu Þrumuna.
Samsetning Grænu Þrumunnar
er auðvitað leyndarmál enda fékk
blaðamaður ekki að yfirgefa verk-
smiðjuna fyrr en hann hafði svarið
þagnareið. Formúluna fékk Sig-
urður hjá gömlum manni og
endurbætti hana síðan.
Eftirspurn eftir áburði þessum
hefur farið vaxandi að sögn Sig-
urðar framkvæmdarstjóra Þór-
dunu. Er nú svo komið að verk-
smiðjan annar varla eftirspurn.
s
A
Neytendafélag Isafjarðar og nágrennis:
I andarslitrunum
Sigríður Haraldsdóttir flytur eríndi á aðalfundinum.
Aðalfundur Neytendafélags
Isafjarðar og nágrennls var
haldinn á Hótel Isaflrði á
fimmtudagskvöld 11. júní. Til
fundarins voru mættir 5 stjórn-
armeðlimir félagsins, 2 almennir
félagar, einn fyrirlesari og einn
blaðamaður. Fimm af sjö stjórn-
armeðlimum gengu úr stjórn að
þessu sinni. Ekki tókst að fá
nema fjóra í þeirra stað. Jón Jó-
hannesson formaður lét af
störfum og í hans stað var kjörin
Bára Snæfeld.
I skýrslu fráfarandi formanns
kom fram að eins og fundarsókn
reyndar vitnaði um er Neytendafé-
lagið í greinilegri afturför. Félög-
um fækkar og er nú svo komið að
félagatalan nálgast hundraðið of-
anfrá. Starfsemi félagsins var á síð-
asta ári aðallega fólgin í útgáfu
Bamings en það er málgagn sem
dreift er ókeypis til allra íbúa á
Isafirði og í nágrenni. Blöðungur
þessi kom út þrisvar á árinu og er
það með strjálla móti. Fjárhagur
félagsins er verri en oft áður og
stafar það af færri félögum.
Að loknum aðalfundarstörfum
flutti Sigríður Haraldsdóttir hús-
mæðrakennari erindi um rétt neyt-
enda. í auglýstri dagskrá fundarins
hafði verið minnst á væntanlegar
niðurstöður úr verðkönnun sem
Verðlagsstofnun gerði á Isafirði í
byrjun maí. Umræðum um þær
niðurstöður varð að fresta þar sem
tölur liggja enn ekki fyrir. I máli
Jóns formanns kom fram að í þeim
væri helst að vænta staðfestingar á
því hvort sú umræða sem framhef-
ur farið um verðlagsmál á Isafirði
og á Vestfjörðum í vetur hefur haft
einhver áhrif til lækkunar vöru-
verðs.
Nefnd sem skipuð var að frum-
kvæði bæjarstjórnar Isafjarðar til
þess að grafast fyrir um orsakir
hærra vöruverðs á tsafirði miðað
við aðra landshluta, hefur nú lokið
störfum.
Nefndin hélt allmarga fundi en í
henni áttu sæti fulltrúi neytenda,
fulltrúi frá bæjarstjórn Isafjarðar
og fulltrúi frá kaupmönnum.
Á síðasta fundi nefndarinnar var
rætt við fulltrúa kaupmanna hér í
bæ og skipst á skoðunum við þá.
Þar lét Benedikt Kristjánsson
kaupmaður í Vöruval á ísafirði
bóka að hann teldi kannanirnar
hefðu ekki gefið rétta mynd af
verði í Vöruval, þar sem ekki hefði
verið lokið endurskipulagningu í
kjölfar eigendaskipta þegar verðið
var kannað. Taldi hann að versl-
unin stæði mun betur að vígi nú en
þegar síðasta könnun var gerð.
Ulfar Ágústsson sem sæti átti í
nefndinni fyrir hönd kaupmanna
lét bóka að hann teldi matvöruverð
á Isafirði ekki óeðlilegt í ljósi
þeirrar þróunar sem átt hefur sér
stað undanfarin ár. Úlfar varaði við
því að gengið væri of nærri mat-
vöruversluninni, því þá gæti hún
ekki sinnt því mikilvæga þjónustu-
hlutverki sem henni væri ætlað.
Nefndarmenn urðu svo sammála
um að umræðan sem skapast hefur
um verðlag á Isafirði hafi leitt til
breytinga til betri vegar fyrir neyt-
endur. Vonir standa til þess að það
álit verði staðfest þegar niðurstöður
birtast úr verðkönnun þeirri sem
minnst var á hér að framan.
I ljósi þess áhuga sem almenn-
ingur á ísafirði og nágrenni sýnir
málefnum neytendafélagsins og sé
litið til fundarsóknar í ár og í fyrra,
verður ekki annað séð en neyt-
endafélagið sé í andarslitrunum.
Heilsu þess hefur farið hrakandi að
undanförnu og hægt andlát því
líklega framundan.
Jóhann Magnússon og Halldóra Jóhannsdóttir taka við nýjum bíl.
Vélsmiðjan Þór:
250 bílar
Á bílasýningu sem Vélsmiðj-
an Þór hélt um helgina í tilefni
af 45 ára afmæli fyrirtækisins
var afhentur 250 bíllinn sem
fyrirtækið selur síðan sala á
nýjum bílum hófst á þeirra
vegum árið 1983.
Það voru hjónin Jóhann
Magnússon og Halldóra
Jóhannsdóttir sem tóku við bif-
reið af gerðinni Toyota Camry
og var auk þess færður blóm-
vöndur í tilefni dagsins.
Gífurleg sala hefur verið í
nýjum bílum það sem af er
þessu ári og búið að selja frá
áramótum hvorki meira né
minna en 80 bíla. 46 Toyotur,
32 Mözdur og tveir Renault
bílar hafa farið um hendur
sölumannanna í Þór.
Á sýningunni á föstudaginn
var sýndur glænýr sportbíll af
gerðinni Toyota Celica sem
fenginn var vestur í tilefni sýn-
ingarinnar. Auk þess afhenti
sölumaður frá P. Samúelsson
Vélsmiðjunni viðurkenningu
frá Toyota fyrir góðan árangur í
sölu, en salan hér er langt yfir
meðaltali miðað við það sem
gengur og gerist.