Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Síða 8
FERÐATOSKUR
0
ný sending komin
Verð á góðum 70 cm töskum
frá kr. 2.060.- til kr. 5.530.-
Bókaverslun Jónasar Tómassonar sími 3123 ísafirði
#
bil
Við hefjum daginn snemma í sumar
og opnum alla virka daga kl. 7:00 -15:15
fj _ ^
7/7) Prentstofan Isrún hf.
Adalstræti35 • 4(X) (safjörður Sími 94-3223
FH - IBI 2:1
Kvennalið ÍBI lék sinn fyrsta leik í 2. deild á þriðjudagskvöldið, gegn FH.
Hafnfirsku stúlkurnar fóru að lokum með sigur af hólmi. Þær skoruðu tvö
mörk gegn einu marki IBI. Bæði mörkin voru skoruð í síðari hálfleik.
A myndinni má sjá IBI stúlkurnar í harðri en árangurslausri sókn gegn FH.
Patreksfjörður;
Festa kaup á
sjóflugvél
30. maí var haldinn flugdagur
á Patreksfirði. Meðal atriða á
flugdeginum var lendinga-
keppni og tóku 13 flugvélar þátt
í henni. Sigurvegari varð Jó-
hannes Jóhannesson úr
Reykjavík á TF-KOZ. Jóhannes
á ekki langt að sækja hæfileika
sína því hann er sonur Jóhann-
esar Snorrasonar flugstjóra
sem allir íslendingar þekkja.
Mikill áhugi er á flugi á Patreks-
firði um þessar mundir. Tvær litlar
flugvélar hafa þegar verið keyptar
og eru alls 24 aðilar eigendur að
þeim. Þriðja flugvélin er væntan-
leg innan skamms og er þar um
nokkuð óvenjulegan grip að ræða.
Flugvél þessi er af gerðinni Lake
Buccaner og getur lent bæði á sjó
Nokkur eftirvænting ríkir í
röðum þeirra sem fást við útgerð
og fiskvinnslu vegna þess að nú
hefur fiskverð verið gefið frjálst.
Frystihúsamenn hafa fundað um
málið og hefur heyrst að þeir
hyggist bjóða 10% hækkun frá
síðasta lögfesta fiskverði. Búist
er við fyrstu löndunum eftir þessa
breytingu eftir helgina.
Það óhapp varð hjá Frosta h/f
í Súðavík fyrir helgina að amm-
oníakleiðsla sprakk og varð mikil
mengun af. Unnið hefur verið
hörðum höndum að því að skipta
um umbúðir á öllum fiski sem þar
var í frystigeymslum.
BESSI landaði 13. júní 80 tonn-
um sem voru að mestu leyti
þorskur.
HAFFARI landaði 11. júní 20
tonnum af rækju.
ARNEY landaði 12. júní 11
tonnum, og sama dag landaði
ORRI 8 tonnum.
VALUR kom inn á laugardag
með 3,5 tonn og Sigrún með 4
tonn af rækju.
GUÐBJARTUR var í landi 13.
júní. Á mánudag var landað úr
honum tæpum 50 tonnum af
þorski sem allur fór til vinnslu í
húsinu. Guðbjartur er væntan-
legur inn á laugardag og fer svo
í slipp eftir helgina.
GUÐBJÖRG kom inn fyrir helgi
og var landað úr henni á mánu-
dag 21 tonni tii vinnslu í húsinu
og 42 tonn voru sett í gáma. Afl-
inn var nær eingöngu þorskur.
JÚLÍUS landaði á mánudag 70
tonnum af þorski. Af því fóru 39
tonn í gáma.
I síðustu viku lönduðu 8 hand-
færabátar hjá íshúsfélagi ísfirð-
inga samtals 16,5 tonnum af
þorski.
PÁLL PÁLSSON landaði 13.
júní 46,7 tonnum af þorski og fór
aflinn allur til vinnslu hjá Hrað-
frystihúsinu í Hnífsdal.
ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR
landaði í síðustu viku 173
tonnum. Elín fór út á mánudag
og er enn á veiðum.
GYLLIR fór út á þriðjudag og er
á veiðum.
SÖLVI BJARNASON iandaði á
Bildudal á mánudag 93 tonnum
sem voru að mestu leyti þorskur.
TÁLKNFIRÐINGUR landaði á
mánudag 133 tonnum mest
þorski.
Ágætur afli var i síðustu viku
hjá trillubátum frá Tálknafirði en
trillubátar eru nú í lögboðnu
stoppi út þessa viku. Þykir mörg-
um hart að þurfa að liggja i iandi
í veðurblíðunni.
Nú er iokið endurbótum á hafn-
araðstöðu Tálknfirðinga. Þarvar
bryggjan endurbyggð og breikk-
uð og kostuðu framkvæmdirnar
alls tæpar 9 milljónir.
SIGUREY landaði á Patreksfirði
þann 11. júní 181 tonni. Aflinn
var að mestu leyti þorskur Sigur-
ey fór svo ekki út fyrr en eftir
sjómannadag.
Reytingsafli var hjá handfæra-
bátum frá Patreksfirði í síðustu
viku.
DAGRÚN var í landi 12. júní með
157 tonn sem allt var tekð til
vinnsiu hjá (shúsfélagi Bolungar-
víkur.
GRINDVIKINGUR var í landi
sama dag með ca. 68 tonn af
frystri úthafsrækju.
FLOSI landaði 13. júní 5 tonnum
af rækju. Af því var um eitt tonn
cif fiski
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR
landaði 13. júní 4 tonnum af
rækju.
HEIÐRÚN kom inn á laugardag.
Á þriðjudag var landað úr henni
42 tonnum sem öll fóru í gáma.
Meginhluti aflans var þorskur.
HAFÞÓR er í slipp.
Enginn rækjubátur lagði upp
hjá Rækjustöðinni í síðustu viku.
Hjá Niðursuðuverksmiðjunni
lönduðu í sfðustu viku eftirtaldir
bátar:
GÍSLI ÁRNI, 26 tonnum,
ARNAR, 12 tonnum,
EGILL, 6 tonnum,
BERGUR, 12 tonnum,
ÍSLEIFUR, 21 tonni.
Hjá Bakka í Hnífsdal lönduðu
í síðustu víku
GUÐNÝ á iaugardag 7,4 tonnum
af rækju,
ORRI á föstudag 8,1 tonni.
Guðný er ein báta í föstum við-
skiptum við Bakka enn sem kom-
ið er.
SKINNEY fer á veiðar fyrir helg-
ina og leggur upp hjá Bakka.
FRAMNES landaði á Þingeyri í
síðustu viku 69,9 tonnum og var
sett af því í 5 gáma. Aflinn var
nær eingöngu þorskur.
SLÉTTANES landaði Í sömu
viku 50 tonnum af þorski og setti
f 5 gáma.
10 handfærabátar lönduðu á
Þingeyri í síðustu viku samtals
18 tonnum og 20 kílóum.
Hjá Samtak lönduöu eftirtaldir
rækjubátar f síðustu viku.
ERLING, 9 tonnum,
FÍFILL, 17 tonnum,
ÞÓRIR, 9 tonnum.
©
PÓLLINN HF.
— HUSQVARNA SAUMAVELAR
CLASSICA 100 - saumavél nútimans
OPTIMA 190 - fullkomin saumavél
Afborgunarskilmálar
Kennsla innifalin í verðinu
POLLINN
VERSLUN
RAFÞJÓNUSTA
SÍMI 3092
©
PÓLLINN HF.
og landi. Hægt er að draga hjólin
upp og lendir flugvélin þá á skíðum
eða flotholtum á sjó, eða vatni.
Vélin tekur þrjá farþega auk
flugmanns.
Oddur Guðmundsson útibú-
stjóri Landsbankans á Patreksfirði
sem er einn fjögurra eigenda flug-
vélarinnar sagði í samtali við Vest-
firska fréttablaðið að flugvélin
væri sú eina sinnar tegundar á
landinu. Hann sagði að sjóflugvél
gæfi mönnum tækifæri á mun fjöl-
breyttari ferðalögum, því alls stað-
ar væru vötn og sjór og víða hægt
að lenda. Flugvellir væru hinsveg-
ar bæði fáir og smáir.
Beðið er eftir því að flugvélin
verði ferjuð hingað til lands frá
Kanada. Þegar hún verður komin
þarf að afla tilskilinna leyfa fyrir
eigendur og kennara til þess að
fljúga henni.
Eigendur vélarinnar eru fjórir
saman í félagi en kaupverð vélar-
innar mun vera um það bil 1200
þúsund krónur.
Hreppar
sameinast
1. júlí næstkomandi gengur
formlega í gildi sameining Ketil-
dalahrepps og Suðurfjarðarhrepps.
Hið nýja sveitarfélag hlýtur nafnið
Bíldudalshreppur.
Sameining þessi var samþykkt
22. maí á sameiginlegum fundi
hreppsnefndanna beggja hrepp-
anna. Engar breytingar verða þó
gerðar á hreppsnefnd Suðurfarð-
arhrepps né annari skipan sveitar-
stjómarmála í hreppnum. Sveitar-
stjóri hins nýja Bíldudalshrepps
verður séra Flosi Magnússon á
Bíldudal sem gegnir embætti sveit-
arstjóra Suðurfjarðarhrepps og er
jafnframt sóknarprestur beggja
hreppanna.
1. desember 1986 voru 372 íbúar
í Suðurfjarðarhreppi og 21 íbúi í
Ketildalahreppi. Heildaríbúar-
fjöldi hins nýja Bíldudalshrepps
verður því 393 íbúar.
í tengslum við sameininguna
hefur verið rætt um að unnið verði
að bættum samgöngum, bættri
heilsugæslu, endurbótum á skóla-
húsnæði og byggingu íþróttahúss.
Einnig hafa landbúnaðarmál og
önnur atvinnumál verið rædd á
sameiginlegum fundum fulltrúa
hreppanna.
Að sögn Magnúsar Björnssonar
oddvita á Bíldudal er ekki enn
ákveðið hvort sameiningunni
verður fagnað sérstaklega þann 1.
júli n.k. Enn væri allt slíkt í athug-
un.
Veðurhorfur fyrir helgina
eru allgóðar. Þó gæti brugðið
til beggja vona ef háþrýsti-
svæði við Grænland lætur
undan lægð sem er á leið upp
að landinu.
Fari svo snýst vindur til
norðanáttar og kólnar. Á
hvom veginn sem fer ætti fl-
ug að geta gengið samkvæmt
áætlun.
Þó gæti þokan sem hefur
angrað okkur undanfama
daga sett strik í reikninginn.
.
vestfirska
á
hefur
heyrt
AÐ kvikmyndin ,,Flugan“ sem
sýnd var á fsafirði á dögunum
hafi farið yfir strikið eins og
sagt er. Þessi hugljúfa saga
um manninn sem breytist í
flugu hefur trúlega snert við-
kvæmar taugar f brjósti
margra, og einhverjar taugar í
maga sumra bíógesta. Stað-
festing þess blasti við gestum
þegar þeir gengu út að sýn-
ingu lokinni, því einhver hafði
skilað kvöimatnum á tröpp-
urnar.
AÐ Guðjón Ólafsson sem
fram að þessu hefur verið tal-
inn, næst eftirsóttasti pipar-
sveinn bæjarins, næst á eftir
yfirmanni sínum, sé nú kom-
inn með annan ef ekki báða
fætur í hnapphelduna. Já,
krosstré bregðast eins og
aðrir raftar.
AÐ Björg Baldursdóttir kenn-
ari f Reykjanesi, áður skóla-
stýra í Hnífsdal hyggist sækja
um stöðu skólastjóra við
Grunnskólann á ísafirði.
BILALEIGA
Nesvegi 5 • Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 • V/Miklatorg S 91 -25433
Afgreiösla á ísafjarðarflugvelli 0 94-4772
SENDUM BÍLINN
Opið allan sólarhringinn