Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 1
Fermingar um hvítasunnu Á bls. 8 birtum við nöfn fermingarbarna á Patreksfirði, Bíldudal, Þing- eyri, Flateyri, Suðureyri, ísafirði, í Súða- vík og í Bolungarvík. Athuga- semd frá Tryggva formanni KRÍ Um það leyti sem Vestfirska var að fara í prentun, á fimmta tím- anum síðdegis á miðvikudag, kom Tryggvi Sigtryggsson formaður Knattspyrnuráðs ísafjarðar að máli við okkur, mjög ósáttur vegna viðtals við hann í BB sem þá var að koma út. Einkum vildi hann mótmæla eftirfarandi, sem eftir honum er haft í blaðinu: „Mikið af þessum skuldum upp á 1,5 milljón eru smáskuldir frá ýmsum aðilum sem hafa ekkert rukkað okkur í tvö ár og við erum að vona að þær detti út með tím- anum.“ - Meira um þetta mál í Vest- firska í næstu viku. Minnisvarði um Ragnar H. Ragnar Ákveðið hefur verið að reisa Ragnari H. Ragnar minnisvarða á ísafirði og færa bænum að gjöf. Sá varði, sem rísa mun á túni gamla sjúkrahússins, á að vera hvort tveggja í senn minningartákn um mannrækt hins fallna höfðingja og framlag í þágu listsköpunar og fegrunar þess bæjar, sem hann lagði í fjóra áratugi alla alúð sína í að auðga og efla með fordæmi sínu og leiðsögn. Leitað hefur verið til lista- mannsins Jóns Sigurpálssonar um gerð minnisvarðans. Hann vinnur nú að listaverki, sem hann kallar KUML. Um verður að ræða 25-30 fermetra torf- og grjóthleðslu, sem verður um 1 metri að hæð. Á miðri hleðslunni verður um 3 metra grágrýtisbjarg, sem verður sagað í fernt. Yfirborð bjargsins verður hrjúft og óunnið, en sagarsárið verður hins vegar slípað og á þá fleti meitluð einhver þau orð um lífið og tilveruna, sem Ragnar H. Ragnar hélt á lofti. Úr miðju verksins, þar sem grágrýtið opnast, mun eirblanda brjóta sér Ieið milli bjarghlutanna. Til þess að gera hugmynd þessa að veruleika verður að leita til al- mennings um fjárframlög. Það er ljóst, að fjölmargir, bæði fsfirðing- ar og aðrir, munu hafa hug á að ieggja þessu máli lið í því skyni að heiðra minningu Ragnars H. Ragnar. Þeim, sem það vilja, gefst nú kostur á að leggja það framlag, sem þeir kjósa, inn á ávísanareikn- ing nr. 10197 við Útvegsbanka ís- lands h.f. á ísafirði. Nöfn gefenda verða skráð í sérstaka bók, sem afhent verður bæjarstjórn ísa- fjarðar til varðveizlu, um leið og minnisvarðinn verður afhjúpaður. Stefnt er að því, að það verði gert hinn 28. september á hausti kom- anda, en þá hefði Ragnar H. Ragn- ar orðið níræður, hefði hann lifað. Safnist meira fé en sem nemur kostnaði við gerð og framkvæmd þessa verks, mun því verða varið í þágu Tónlistarskóla ísafjarðar, sem verður fjörutíu ára nú í haust og Ragnar H. Ragnar helgaði drýgstan hluta starfsorku sinnar hér á ísafirði. Þess skal að lokum getið, að Guðmundur E. Kjartansson, lög- giltur endurskoðandi, hefur góð- fúslega tekið að sér að færa reikn- ingsskil vegna þessara fram- kvæmda. ísafirði, 10. maí 1988. Með vinsemd og þakklæti. Pétur Kr. Hafstein, Jón Páll Halldórsson, Kristján Haraldsson. Suðureyri: Dagvist aldradra tekin í notkun Annan dag hvítasunnu verður formlega tekið í notkun dagvistar- heimili aldraðra á Suðureyri (þótt þegar sé búið að taka það í notkun í raun, eins og gengur). Heimilið er að Túngötu 2, þar sem áður var hjúkrunarfræðingur til húsa, og milli klukkan eitt og fimm á daginn koma þar saman „eldri borgarar“, eins og nú er farið að kalla roskið fólk og gamalt. Þarna stundar fólk föndur, fer í leikfimi, spjallarsam- an og styttir sér stundir með ýms- um hætti. Börnin af barnaheimil- inu hafa komið í heimsókn og sungið fyrir afa og ömmu, og fyrir nokkru settu gömlu konurnar upp söngleik frá því að þær voru ungar. Guðný ÍS leggst að bryggju á ísafirðl síðastliðlnn mánudag. Góður línuafli á Vestfjörðum: Metvertíð hjá Guðnýju IS 266 — hefur aldrei fiskað svo mikið á vetrarvertíð síðan hún kom fyrst til ísafjarðar 1959 Þeir hafa svo sannarlega ástæðu til að vera kátir þessa dagana, karl- arnir á Guðnýju ÍS 266, því í lok síðustu viku var ljóst að þá þegar höfðu þeir slegið fyrra aflamet skipsins sem var frá árinu 1967. Það ár veiddust á vetrarvertíð sem lauk 22 maí, 762 tonn og 300 kíló, en á föstudaginn 13. maí síðastlið- inn hafði Guðný komið með að landi 765 tonn og nokkrir dagar eftir af vertíðinni. Guðný var keypt til ísafjarðar 1959 frá Djúpavogi, og að sögn Jóns Magnússonar eins af eigend- um skipsins var það smíðað í Hol- landi ásamt 5 samskonar bátum 1957. Fimm bátar til viðbótar voru smíðaðir um svipað leyti, en þeir voru 10 tonnum minni samkvæmt mælingum þess tíma. Einn þeirra var Tálknfirðingur frá Tálknafirði, mikið aflaskip. Jón taldi Guðnýju vera mikið sjóskip og þrátt fyrir ýmsar breytingar þá væri hún það enn, enda hefði ávallt verið fylgt ýtrustu kröfum sérfróðra manna varðandi allt sem gert hefði verið við bátinn. Frá fyrstu tíð hefur Guðný ávallt verið gerð út á línu á vetrum, en á sumarvertíðum verið stundaðar aðrar veiðar. í sumar er gert ráð fyrir að farið verði á rækju og þykir sumum úr áhöfninni það lítið spennandi sökum þess hve lítið er um stopp í landi meðan þær veiðar standa yfir. Skipstjóri á Guðnýju er Jón Pét- ursson, Rósmundur Skarphéðins- son er stýrimaður, Guðmundur S. Einarsson vélstjóri og Þorsteinn Geirsson kokkur. Auk þeirra eru svo sex menn sem beita í landi. Panasonic - Sony - Samsung - Technics hljómflutningstæki, myndbönd og sjónvarpstæki FLUGFRAKT Óbreytt verð fram að helgi SÆKJUM - SENDUM /f- (hækkun eftir helgi 15%) —, pm oinarQiAofcn/isson n. 5. FLUGLEIDIR

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.