Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Side 2
2
I vesttirska I
FRETTABLASIS
Vestfirska fréttablaðið kemur út á miðvikudögum. Ritstjórn og auglýs-
ingar: Aðalstræti 35, ísafirði, simi 4011 og 3223. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Hlynur Þór Magnússon, heimasími 4446. Auglýsingar: Hans-
ína Garðarsdóttir, heimasími 4057. Útlitsteikning, Ijósmyndun og
efnisöflun: Hörður Kristjánsson. Útgefandi: Grafíktækni h.f., (safirði.
Framkvæmdastjóri: Rögnvaldur Bjarnason. Setning, umbrot, filmu-
vinna og prentun: Prentstofan ísrún h.f., Aðalstræti 35, Isafirði. Verð
kr. 70. Lausasala og áskrift.
UMHVERFIÐ
OG VIÐ
Vorið er komið. Það birtist skyndilega einn daginn og
umhverfið skipti um svip. Jafnframt vöknuðu menn til
vitundar um umhverfi sitt eins og gerist helst á vorin.
Umhverfisvernd er vinsælt orð, þótt menn leggi í það
mismunandi merkingar. í víðri merkingu fjallar það um
hvemig við getum best stuðlað að því að lífríki og náttúr-
legt umhverfi okkar haldi velli og því svipmóti sem eðlilegt
er.
Það sem næst okkur stendur er síðan okkar nánasta
umhverfi, hús og garðar, stræti og torg, opin svæði frá
fjalli til fjöm.
Vestfirðingar hafa lítið sinnt þessum þætti þar til á
síðustu ámm að breyting er að verða á. Við varanlega
gatnagerð í þéttbýli breyttist svipmót garða sem að götun-
um lágu, á eftir fór málun húsa og fækkun skúra og kofa,
sem víða finnast þó enn.
Hér á ísafirði er nú starfandi nefnd sem hvatt hefur
bæjarbúa að undanfömu til þess að taka til hendinni.
Náttúm- og umhverfisverndarnefnd bæjarins gekkst
fyrir svipuðum brýningum fyrir ári síðan og varð nokkuð
ágengt.
Út með Eyrarhlíðinni standa margir gamlir fiskhjallar,
sumir þeirra í stöðugri notkun, aðrir mega muna sinn fífil
fegurri. Þessir hjallar setja svip á bæinn og bera gömlum
hefðum vitni. Þeir mega ekki hverfa af sviðinu. Nauðsyn-
legt er hins vegar að sinna þeim betur, hressa upp á útlit
þeirra, mála þá og snyrta. Hér er kjörinn vettvangur fyrir
unglingavinnu bæjarins, auk þess sem leggja mætti lið
öldruðum eigendum gamalla húsa við það að snyrta þau
og fegra.
Dreifbýlismenn kvarta gjarnan yfir ýmsu misrétti sem
þeir verða fyrir og láta þá til sín heyra á opinberum vett-
vangi. Hitt gleymist stundum, að lífið á landsbyggðinni er
oft á tíðum harla gott, ekki síst á vorin.
Til þess að njóta þessara eiginleika til fullnustu er okkur
nauðsynlegt að sinna umhverfi okkar, bæði í víðum og
þröngum skilningi. Við eigum greiðan aðgang að heimsins
hreinustu og fegurstu útivistarsvæðum, þar sem eru skíða-
ferðir í vorsnjónum; við getum róið til fiskjar á björtum
sumarkvöldum, okkur stendur til boða útivistarsvæði og
gönguleiðir í ósnortinni íslenskri náttúru. Allt er þetta
innan seilingar og ókeypis.
Við skulum hafa þessa kosti í huga þegar við metum
stöðu okkar og virða umhverfi okkar þess að ganga vel og
snyrtilega um það.
Pétur Bjarnason.
IsaQarðarkaupstaður
ÚTBOÐ
Bæjarsjóður ísafjarðar óskar eftir tilboðum í
innanhúsfrágang á tengibyggingu við
grunnskóla.
Um er að ræða einangrun, múrverk og loka-
áfanga á hluta hússins.
Útboðsgögn verða afhent á tæknideild frá og
með þriðjudegi 24. maí n.k. gegn 5.000 kr.
skilatry ggingu.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
íf ‘
'mfóm
Hér er Gunnlaugur Jónasson bóksali að sýna okkur aðalvinninginn fyrir krossgáturnar okkar, Landið þitt -
ísland í sex bindum.
Verðlaunakrossgáta
nr. 5
Glæsileg verðlaun í boði
Og hér birtist fimmta og síðasta vestfirska krossgátan, sem við veitum verðlaun fyrir í einu
lagi, þannig að nú má fara að senda inn lausnirnar, allar fimm saman. Klippið leystar gáturnar
úr blöðunum og sendið okkur eða komið með þær á skrifstofu Vestfirska, Aðalstræti 35 á
ísafirði (þar sem Prentstofan ísrún er). Lausnirnar þurfa að vera komnar í síðasta lagi þriðju-
daginn 31. maí, en þá um kvöldið verður dregið úr réttum lausnum.
Aðalverðlaunin eru ritsafnið Landið þitt, Island frá Erni og Örlygi, sex bindi í öskju, að
söluverðmæti nærri nítján þúsund krónur (18.900).
Þegar við komum til Gunnlaugs Jónassonar í Bókaverslun Jónasar Tómassonar á ísafirði
til að ákveða hver verðlaunin ættu að vera, var reyndar úr vöndu að ráða. Þar er hvert ritsafnið
öðru eigulegra. En þetta varð niðurstaðan.
Síðan eru þrenn aukaverðlaun: Árs áskrift að Vestfirska fréttablaðinu.
skólasetur í Bjarnarfirði býliá Hjarðarnesi ■F flíkur seinláti maðurinn keyr þorp A- Barð titill hugar burðurinn borð- stokkurinn leik- félag
1+ ▼
gamaldags farartæki vinnusömu ►
4 Kópavogur Stranda- sýsia ► óðagot Austurriki ► mannsnafn (eignarf.)
ílát með drykk ► w' w
Húnavatns- sýsla ► fyrstur ► Ungverja- land til sótt- hreinsunar ► enska: loft barefli ►
Akureyri ► tóbaks- biti lærði ► nafns ekki getið ►
sætti mig við ► ▼ líffæri ►
göngin ►
HPM samstæðir ► Rauði krossinn ► höfuðáttir ►