Vestfirska fréttablaðið - 07.09.1988, Page 1
Slátrað í Bolungarvík
— byrja í síðasta lagi 19. september
ef undanþága fæst
yrði í síðasta lagi byrjað 19. sept-
ember.
I fyrra var slátrað hjá Einari
Guðfinnssyni hf. fé úr Bolungar-
vík, Hnífsdal, Álftafirði og Seyðis-
firði auk fjár af nokkrum bæjum í
Ögurhreppi. Einnig var slátrað í
Bolungarvík fyrir tvo aðila í Vest-
ur - ísafjarðarsýslu 1 fyrra. Einar
sagði líka að menn sem áður hefðu
lagt inn hjá Kaupfélaginu á ísafirði
og í fyrra létu slátra á Flateyri,
hefðu nú komið að máli við þá í
Bolungarvík og óskað eftir
slátrun. Sem kunnugt er verður
ekki slátrað á Flateyri að þessu
sinni, en ekki bjóst Einar þó við að
slátrun ykist mikið í Bolungarvík
af þeim sökum.
Orkubú Vestfjarða:
Veríð að kanna
nýja virkjunarmöguleika
— skýrsla væntanleg frá Orkustofnun
á næstunni
Um þessar mundir er Orku-
stofnun að vinna að forathugunum
á stækkun Mjólkárvirkjunar um
helming. Og að sögn Kristjáns
Haraldssonar orkubússtjóra, þá
lofa fyrstu niðurstöður góðu. Sam-
kvæmt þeim má búast við að þessi
virkjunarkostur geti skilað sam-
keppnishæfu raforkuverði miðað
við það verð sem Landsvirkjun
greiðir fyrir nýjar virkjanir á land-
inu. Búist er við skýrslu frá Orku-
stofnun um þetta mál á næstunni.
Aðrir möguleikar í virkjunar-
málum á Vestfjörðum hafa líka
verið skoðir og má þar nefna virkj-
un í Vatnsfirði, virkjun Hvalár á
ströndum og virkjun Þverár í ísa-
fjarðardjúpi. Fram að þessu hefur
verið gengið út frá því að fullnýta
það vatn scm til fellur og þá oft
með miklum kostnaði, en Kristján
sagði að í fyrra hefði verið breytt
um stefnu í þcssum málum. Þá var
Orkustofnun beðin að kanna hver
kostnaðurinn yrði,“ef þeir fleyttu
rjómann ofanaf", eins og Kristján
orðaði það. Og er þá miðað við að
virkja aðeins það sem arðbærast
er. í framhaldi af því hefði svo
þessi hugmynd um stækkun Mjólk-
árvirkjunar komið upp, því þar
væri allt til staðar og kostnaður
yrði því aðallega í því fólginn að
setja upp nýjar vélar og byggja
pípur.
Hærribæjar-
guðspjallið
Indriði Aðalsteinsson á
Skjaldfönn svarar Jens í
Bæjum í opnunni.
Og skefur ekki utan af því.
LEO
LITMYNDIR
Einar Jónatansson hjá Einari
Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík
sagðist fastlega búast við því að
slátrað yrði hjá þeim að þessu
sinni. Þegar blaðið hafði samband
við hann fyrir helgina voru þeir þó
ekki enn búnir að fá tilskilin leyfi.
Sagði Einar að dýralæknir væri
búinn að vera í sambandi við þá og
reynt hefði verið að gera sér grein
fyrir hvað þyrfti að gera svo undan-
þága fengist líkt og undanfarin ár.
Kröfurnar væru svipaðar og áður
varðandi aðbúnað og væri nú verið
að vinna að endurbótum sam-
kvæmt þeim. Ekki var endanlega
búið að taka ákvörðun um það fyr-
ir helgina hvenær slátrun hæfist.
Einar sagði að cf leyfi fengist, þá
Skemmdarverk á bílum
— óprúttnir aðilar í bensínleit stórskemma bíla hjá
Vélsmiðjunni Þór og hjá Hjólbarðaverkstæði ísafjarðar
Aðfararnótt þriðjudags voru
skemmdarvcrk framin á bílum
sem stóðu inni á girtu athafnar-
svæði við Vélsmiðjuna Þór hf.
Að sögn Rannsóknarlögreglunn-
ar á ísafirði virðast þeir aðilar
sem hér eiga hlut að máli, aðal-
lega hafa verið í leit að bensíni.
Hafa þeir klifrað yfir háa girð-
ingu sem umlykur athafnasvæðið
á bak við vélsmiðjuna og gengið
á bíla sem innan girðingarinnar
voru. Mestar skemmdir uröu á
nýjum bílum við það að reynt var
að spenna upp bensínlok. Eitt-
hvaö var einnig átt við bíla sem
stóðu við Hjólbarðaverskstæði
Isafjarðar og valdið skemmdum á
lakki.
Þess má geta að varla hafa
þessir skemmdarvargar haft mik-
ið bensín upp úr þessum leiðang-
ri, því á nýjum bílum sem þarna
standa er venjulega nær ckkert
bensfn. Ekki var ljóst hverjir
þarna hafa verið á ferð, en málið
er nú í rannsókn hjá Rannsókn-
arlögreglunni á ísafirði.
FRAMKÖLLUN
24 MYNDA FUJICOLOR LITFILMA
Á AÐEINS KR. 160.-
ísafjörður:
Lögreglan kannar verksummerki í gærmorgun.
Góð berjaspretta
á Vestfjörðum
Berjaspretta virðist vcra góð
víðast hvar á Vestfjörðum að
þessu sinni. Nokkuð erþó misjafnt
hvernig ástandið er og virðist það
nokkuð fara eftir því hvernig við-
komandi svæði liggja við veðri. Af
sunnanverðum Vestfjörðum eru
þær fréttir að mikið er af bcrjum
og spretta á mörgum stöðum mjög
góð. Þykir þetta gott sérstaklega
ef tekið er tillit til þess að sumarið
hefur ekki verið uppá marga fiska,
bæði sólarlítið og kalt. Þó hafa
komið góðviðriskaflar inná milli
sem hafa skilað sér vel í mikilli
berjasprettu. Vætutíðin að undan-
förnu virðist þó hafa haft slæm á-
hrif á sumar berjategundir, þannig
eru bláber og aðalbláber farin að
láta verulega á sjá sumstaðar þó
krækiberin láti sér þetta vel líka.
VEFNAÐARVORUDEILD
Nýkomið!
Kvenblússur milcið úrval
oinarffuðfjinnsson k. /j.
FLUGFRAKT
sækjum — sendum
FLUGLEIDIR
símar 3400 og 3000
7. september 1988
vestfirska
35. tbl. 14. árg
PRETTABLAÐID