Vestfirska fréttablaðið - 07.09.1988, Síða 3
vEsilirska I
Man einhver eftir Samson?
Vestfirska fréttablaðinu hefur
borist bréf frá David L. Eno,
sagnfræðingi í Washington
D.C. Erindi Davíðs þessa er að
fá upplýsingar um ferðir norska
veiðiskipsins Samsons, sem
átti að hafa tekið vistir á ísafirði
15. maí 1912. Var þetta um mán-
uði eftir að Titanic fórst á
Norður-Atlandshafi, en skip-
verjar Samsons munu hafa séð
neyðarblysin frá Titanic, án
þess að gera sér grein fyrir,
hvað þar var um að ræða. En
látum bréf Daviðs tala:
Eg heiti David Eno og cr sagn-
fræðingur. Astæðan fyrir þessu
bréfi er að ég er að vinna að verk-
cfni sem felst í því að safna
gögnuni eða hvers konar upplýs-
ingum um ferðir skipsins Samson
tii Isafjaröar árið 1912. Satnson
mun hafa komið við á ísafirði þann
15. maí, eða þar um bil, um það
bil 30 dögum eftir að farþegaskipið
Titanic fórst.
Samson var á lciðinni heim til
Noregs af vciðum á Norður-Atl-
andshafi. Áhöfnin heyrði fyrst af
Titanic slysinu frá íbúum ísafjarð-
ar, er þeir komu við á ísafirði til
að taka vistir. Eað var fyrst þá, að
þeir gerðu sér grein fyrir því að
neyðarblysin sem þeirsáu um nótt-
ina, 14. apríl 1912, voru frá far-
þegaskipinu Titanic.
Ég hefði mikinn áhuga á hvers
konar frásögnum af komu þessa
skips, hvort sem væri frá vitnum
sem voru viðstödd komu skipsins
eða fjölskyldumcðlimum þcirra,
scm muna eftir frásögnum um
komuna til Isafjarðar. Mér þætti
alveg sérstaklega vænt um aö fá
afrit af hvers konar dagblaðafrétt-
um, eða jafnvcl Ijósrit af bók hafn-
sögumanns eða hvað annað prent-
að mál sem staðfestir eða lýsir
fcrðum Samsonar.
Einu staðfestu fréttirnar sem ég
hcf um heimsókn Samsonar til Isa-
fjarðar hafa borist frá Noregi, eftir
að Samson landaði þar.
Þar sem þetta mál hefur mjög
mikla þýðingu hvað snertir alþjóða
lög, vildi ég hvetja hvern og einn
sem hefur einhvers konar upplýs-
ingar um þetta atvik, að skrifa
mér.
Farið verður með allar upplýs-
ingttr sem einkamál og hef ég sér-
stakan áhuga á munnlegum frá-
sögnum vitna cða fjölskylduaðila.
Einn, eða fleiri Isfiröingar
ræddu við Norska sjónvarpsfrétta-
menn um þennan viðburö árið
1%2. Ef svo kynni að vcra að ein-
hver þessara vitna væru enn á lífi,
þá myndi ég sjálfur koma til Isa-
fjarðar til pcrsónulegs viðtals.
Með fyrirfram þökk fyrir alla
aðstoð,
David L. Eno
P.O. box 15400
Washington, D.C.
20003
U.S.A.
ísafjörður:
Einstaklingar og fyrirtæki
hljóta viðurkenningar
Séra Baldur Vilhelmsson í ræðustól.
Héraðsfundur
ísafjarðarprófastdæmis
Á sunnudag voru veittar viður-
kenningar fyrir góða umhirðu lóða
í kaupstaðnum. Garðurinn að
Krók tvö á ísafirði var að þessu
sinni valinn fegursti garðurinn, en
hann er í eigu Eyrúnar Leifsdóttur
og Skarphéðins Gíslasonar. í um-
sögn um þennan garð segir í áliti
nefndar. „ Lóðin við Krók 2 sker
sig úr öðrum lóðum vegna fegurð-
ar og sýnilegrar eljusemi við hirð-
ingu erfiðrar lóðar“.
Viðurkenningu fyrir frumleg-
asta garðinn hlutu hjónin Anna
Ragna Gunnarsdóttir og Rögn-
valdur Þ. Óskarsson, Seljalands-
vegi 14. Eins og segir í nefndará-
liti, þá vantar á að fólk noti meira
hugmyndaflugið við skipulagningu
garða sinna, því flcstir garðar eru
með svipuðu sniði. Af þeim sökum
ákvað nefndin að veita viðurkenn-
ingu fyrir þessa lóð, sem ber vott
um hugmyndaauðgi og hugrekki í
framkvæmdum.
Orkubú Vestfjarða hlaut einnig
viðukenningu fyrir lóð sína að
Stakkanesi 1. Þykirfyrirtækiðhafa
sýnt gott fordæmi með frágangi
lóðar sinnar og þá ekki síst fyrir
það að gefa starfsmönnum sínum
kost á að hanna þá lóð. Var að því
tilcfni efnt til sérstakrar sam-
keppni innan fyrirtækisins um
hönnun lóðarinnar og er nú verið
að vinna eftir verðlaunatillögunni
sem gerð var af Birnu Bragadótt-
ur.
Eins og áður sagði voru þessum
aðilum veittar viðurkenningar fyr-
ir lóðir sínar. Fór bæjarstjóri
ásamt garðaskoðunarncfnd á fyrr-
ncfnda staði og afhenti viðurkenn-
ingarskjöl.
Héraðsfundur ísafjarðarpróf-
astdæmis var haldinn á ísafirði síð-
ast liðinn sunnudag. Héraðsfundur
er árleg samkoma prófasts með
prestum, safnaðarformönnum og
safnaðarfulltrúum. Þar eru lagðir
fram reikningar kirkna og safnaða
og gerð er grein fyrir ástandi
kirkna og kirkjugarða á hérað-
sfundi og einnig, hvort eitthvað
hefur verið franrkvæmt á árinu.
Héraðsfundurinn var haldinn í
bókasafni Menntaskólans á Isa-
firði og stýrði honum settur próf-
astur, séra Baldur Vilhelmsson í
Vatnsfirði. Vaninn er að taka fyrir
sérstök mál á héraðsfundi og að
þessu sinni var fjallað um kristin-
dómsfræðslu í grunnskólum og
kennsluréttindi guðfræðinga.
Hafði séra Jón Ragnarsson í Bol-
ungarvík framsögu um það mál.
Eins og kunnugt er þá hafa guð-
fræðingar ekki réttindi til kristin-
dómsfræðslu í grunnskólum lands-
ins og eru kallaðir leiðbeinendur
við þá iðju. Hitt aðalmálið sem
tekið var fyrir á héraðsfundi var
fóstureyðingar og spunnust um
það miklar umræður.
Það er orðin venja að halda
kvöldvöku eða samkomu í tengsl-
um við héraðsfundinn. í þetta sinn
var hún haldin í kapellunni í
Menntaskólanum. Ingibjörg
Bjarney Gunnlaugsdóttir söng ein-
söng og Sunnukórinn söng nokkur
lög ú söngdagskrá Ungverjalands-
farar. Að því var gerður góður
rómur.
Eyrún Leifsdóttir og Skarphéðin Gíslason taka við viðurkenningarskjali.
Axel Eiríksson
úrsmiður, Aðalstræti 22, ísafírði
CASIO-úr í miklu úrvali,
verð frá kr. 850 til kr. 4.500.
Eigum einnig hljómborð
frá CASIO
Tölvur fyrir öll skólastig,
einnig ódýrar reiknivélar
(með strimli).
PÓSTSENDUM
I
VIÐSKIPTI i
Sundstræti 30. Glæsileg 140 fm. |
sérhæð í þríbýlishúsí. Laus.
Strandgata 19A. Lítið einbýlis- |
hús 4ra herb. og eldhús. Laust |
eftir samkomulagi. |
Smiðjugata 2. Einbýlishús, ca. I
145 fm. Byggt 1853, endurbyggt I
1978. Laust. I
Hnífsdalsvegur 13, einbýlishús, *
tvær hæðir og kjallari. Bítskúr. •
Silfurgata 11, 4ra herb. íbúð á 1. [
hæð. Ibúðin er laus og selst með
hagstæðum kjörum.
Atvinnuhúsnæði: 300 fm hús- j
næði á 1. hæð í hjarta bæjarins. |
Sérlega hentugt fyrir verslunar- .
rekstur eða léttan iðnað.
Veiðarfæraskemma á Sunda- |
höfn. Hálft bil í veiðarfæra- |
skemmu Hugins. |
Brautarholt 14, 160 fm einbýlis- I
hús ásamt bílskúr. Laust eftir 3 I
mánuði. |
Bakkavegur27,2x129fmeinbýl- I
ishús. Laust eftir samkomulagi. I
Hafraholt 28, raðhús. í húsinu J
eru m.a. 4 svefnherb. Getur losn- J
að fljótlega.
Fjarðarstræti 19. 120 fm efri J
hæð í tvíbýlishúsi ásamt bíl- .
geymslu.
Sundstræti 25, 3ja herb. íbúð á |
1. hæð.
Túngata 13. 2ja herb. kjallara- I
íbúð. |
Sundstræti 29. 2ja herb. (búð á I
2. hæð í fjórbýlishúsi.
Stórholt 13, 4ra herb. íbúð á 3ju J
hæð ásamt bílskúr. J
Sundstræti 27, 3ja herb. íbúð á |
1. hæð. Laus.
Sundstræti 35b. Lítið einbýlis- I
hús. Selst ódýrt. Laust fljótlega. |
Tangagata 26. Fallegt einbýlis- I
hús í góðu standi. Eignarlóð. Get- I
ur losnað fljótlega. I
Aðalstræti 26A. 3-4 herbergja J
íbúð. J
Engjavegur 33, 2ja herb. íbúð á J
n.h. Laus fljótlega.
Stórholt 11, 4ra herb. íbúð á 2. |
hæð ásamt bílgeymslu. Getur |
losnaö fljótlega.
Seljalandsvegur 30, 175 ferm. I
einbýlishús með innbyggðum |
bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er |
í góðu ástandi. Veðbandalaust. |
Stórholt 13,3ja herbergja íbúðá I
1. hæð. Laus eftir samkomulagi. I
Mjallargata 6, 4ra herb. íbúð á J
efri hæð í suðurenda.
Sólgata 5, 3 herb. íbúð. Laus J
fljótlega.
Sundstræti 24, 2ja herb. íbúð á J
1. hæð. J
BOLUNGARVÍK:
Skólastígur 8. 3ja herb. íbúð á |
jarðhæð, sér inngangur. ibúðin er |
laus. |
Meirihlíð. Einbýlishús. Endur- I
byggingu hússins að mestu lokið. I
Laust. |
Stigahlíð 4, 2ja herb. íbúð á I
jarðhæð.
Heiðarbrún 1. Einbýlíshús á J
tveim hæðum. Um 200 ferm.
Hjallastræti 20. Rúmlega 100 |
ferm. einbýlishús ásamt bílskúr. |
Hjallastræti 18, 120 fm einbýlis- |
hús ásamt bílskúr.
Stigahlið 4, 3 herb. endaíbúð á I
3. hæð. I
Hafnargata 110. Tæplega 100 *
ferm. álklætt einbýlishús.
Skólastígur 20, 5 herb. ibúð á J
tveimur hæðum í parhúsi.
ÞINGEYRI:
Brekkugata 50, 156 fm einbýlis- I
hús ásamt bílskúr. Stór og vel I
ræktuð lóð. |
ARNAR GEIR !
HINRIKSS0N, hdl. j
Silfurtorgi 1,
ísafirði, sími 4144 j