Vestfirska fréttablaðið - 07.09.1988, Qupperneq 4
4
Isaijarðarkaupstaður
Forstöðumaður kvöldskóla
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns
kvöldskólans. Umsóknarfrestur er til 12.
september n.k.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í
síma 3767.
Hafnarsvæði
Þeir sem eiga veiðarfæri og annað á svæði við
Sundahöfn sem notað hefur verið sem
geymslusvæði, eru beðnir að fjarlægja eigur
sínar fyrir 20. september n.k. Eftir þann tíma
verður öllu fleygt sem þar er, á ábyrgð við-
komandi eigenda.
Búið er að afgirða geymslusvæði við höfnina
fyrir veiðarfæri og eru þeir sem óska eftir
geymslureiti á hafnarsvæðinu vinsamlega
beðnir að hafa samband við hafnarstarfs-
menn.
Hafnarstjórínn á ísafirði.
LÖGREGLAN
Á ÍSAFIRÐIOG íÍSAFJARÐARSÝSLU
SKOTVOPNANÁMSKEIÐ
Skotvopnanámskeið verður haldið í fundar-
sal slökkvistöðvarinnar á ísafirði dagana 12.
og 13. september n.k.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku skrái sig hjá
yfirlögregluþjóni í síma 94-4100 fyrir kl. 16:00
þann 9. september.
Afhending námsgagna og greiðsla nám-
skeiðsgjalds fer fram þann 10. september kl.
16:00.
Lögreglan á ísafirði.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur klúbbanna öruggur akstur á ísa-
firði og nágrenni verður haldinn á Hótel ísa-
firði fimmtudaginn 8. september kl. 20:30.
Fundarefrú:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Umræður um umferðarmál, frummæl-
endur, Gísli Eiríksson umdæmisverk-
fræðingur Vegagerðarínnar, Jónas
Eyjólfsson yfirlögregluþjónn og Þor-
steinn Bjarnason fulltrúi
3. Verðlaunaveitingar
4. Kaffi í boði klúbbanna
5. Fyrirspumir og frjálsar umræður.
Súðavíkurhreppur
Lögtaksúrskurður
Hjá bæjarfógetaembættinu á ísafirði var hinn
27. ágúst síðastliðinn kveðinn upp lögtaksúr-
skurður fyrir gjaldföllnum útsvörum, að-
stöðugjöldum og fasteignagjöldum til Súða-
víkurhrepps gjaldárið 1988 og fyrri ára,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Gjaldendur sem í vanskilum eru mega búast
við lögtaksaðgerðum án frekari fyrirvara að
liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa.
Oddvitinn í Súðavfk.
tí
vestíírska
TTABLADIS
Indriði á Skjaldfönn skrifar
Hærribæjar-
guðspjallið
Opið bréf til Jens í Bæjum frá
Indriða á Skjaldfönn
Sæll og blessaður, Jens minn.
Það er nú meira hvað staðið hefur
illa í bælið þitt í Vestfirska 10. á-
gúst s.l. Aðra eins þvælu hef ég
ekki séð á prenti í háa herrans tíð.
Ég reiknaði því með að greinin
dæmdi sig sjálf og þarflaust væri að
taka þig til bæna, en svo gerist það
að sóknarpresturinn fer að vitna í
hana vegna sameiningarkosning-
anna, eins og viðbótarguðspjall
væri, og þá sá ég að við svo búið
mátti ekki standa, vitandi mörg
dæmi þess að dómgreind þinni og
framsýni er mjög ábótavant. Eða
varst þú ekki á sínum tíma tals-
maður þess að Rafveita Snæfjalla
nærri því gæfi rafmagnið, með
þeim afleiðingum að hún gat
hvorki borgað sig upp eða safnað
í sjóði til að mæta áföllum og varð
því að ganga í Orkubúið, sem þú
greiddir auðvitað atkvæði gegn,
ásamt Ásu á Laugalandi? Nú hafa
línurnar hrunið hér ár eftir ár og
hvar stæðum við nú, einir sér?
Sama var uppi á teningnum með
Ræktunarsambandið, þó verkefni
væru engin að verða, sökum sam-
dráttar í landbúnaði og útboðs-
stefnu Vegagerðarinnar, þú vildir
ólmur halda áfram rekstri, en sem
betur fer réðu aðrir. Og ekki veit
ég betur, en þú haldir því fram
ennþá að Mórillubrúin hafi á ' ín-
um tíma farið í vatnsflóði, en ekki
snjóflóði. Er engu líkara en þú
hafir verið ráðgjafi Vegagerðar-
innar um brúarstæðið, þarna í
þjóðleið snjóflóða, og verðir því
að berja höfðinu við steininn' í
þessu máli, fram á grafarbakkann.
Ég get því ekki horft upp á það að
sundrungarmenn vitni í Hærribæj-
arguðspjallið í tíma og ótíma og
þig sem einhvern óskeikulan Mess-
ías, sem leitt hafi þjóð sína frá
voða sameiningarinnar.
„Margtuggið og einskis nýtt
blaður"
Ég fæ ekki betur séð en þú hafir
lesið skýrslu samstarfsnefndarinn-
ar um sameiningu Inn-Djúps-
hreppanna á svipaðan hátt og
kölski ákveðna bók, þar eru „að-
eins tvö orð af viti“ segir þú, annað
„margtuggið og einskis nýtt
blaður“!! Að þínu mati er því eftir-
talið „sómakært heiðursfólk hér
við Djúp“ algerlega heillum
horfið, heilaþvegið og viti svipt.
Ástþór í Múla, Auðun í Súðavík,
Benedikt á Nauteyri, Engilbert á
Mýri, Halldór í Ögri, Hákon í
Reykjarfirði, Oddný á Birnu-
stöðum, Páll í Bæjum, Reynir í
Hafnardal, Skarphéðinn í Reykja-
nesi, Snævar á Melgraseyri og Sig-
urjón á Hrafnabjörgum. Við þenn-
an guðsvolaða hóp bætir þú svo
þremur ráðherrum - samgöngu,
mennta- og félagsmála, slatta af
ráðuneytisstjórum, deildarstjóra,
fræðslustjóra, vegamálastjóra og
framámönnum Byggðastofnunar.
Mér finnst því liggja ljóst fyrir
að ofangreind ummæli þín um
greinargerð samstarfsnefndarinn-
ar séu rakalaus sleggjudómur og
að engu hafandi.
Snúum okkur þá næst að þessum
tveimur orðum af viti, sem þú
fannst, semsé að samgöngur og
strjálbýli séu „verulegur ann-
marki“ á að hrepparnir verði fé-
lagsleg heild í einu sveitarfélagi.
En í framhaldi af þessu bendir
nefndin á „að hrepparnir eru allir
eitt skólahérað og skólanefndar-
menn í tveimur skólanefndum úr
öllum hreppunum, hafi fundað eft-
ir þörfum." Því telur nefndin „að
ekki séu vandkvæði á að halda
hreppsnefndarfundi á eðlilegan
hátt, þrátt fyrir torveldar sam-
göngur.“
Undir þetta skrifa allir nefndar-
menn. Von er að þú hangir á þess-
um „annmarka" eins og hundur á
beini, samgöngurnar eru það al-
einasta sem telja má til raka gegn
sameiningum, en ástæðulaust er að
halda fundi nema þegar til þess
gefur og ef allt um þrýtur má stilla
saman síma eða nota talstöðvar ef
mikið þykir við liggja. Samgöngu-
erfiðleikar ykkar sundrungar-
manna eru því haldlítil viðbára.
Slæm þykir þér nú „fiskeldistuggan
margfræga og aðrar slíkar dillur"
en það eru ekki margir mánuðir
síðan þú í Morgunblaðinu hlóðst
lofi og prís á fiskeldisbændur hér í
Indriði Aðalsteinsson.
byggðarlaginu. Væri nú ekki rétt,
Jens minn, að þú skrifaðir þriðju
greinina, sem tæki af skarið um
hvort þú ert með eða móti þessum
vaxtarbroddi í framleiðslu og at-
vinnusköpum hér um slóðir? Þú
kjamsar mikið á „áframeldi bænda
í sjókvíum“ finnst það víst óljóst
og klúðurslegt orðalag í skýrsl-
unni, og vera má að nokkuð sé til
í því, en mér er til efs að þú sért
rétti maðurinn til að vanda um við
aðra vegna óskýrleika í texta. Og
áður en ég skil við fiskeldið verð
ég að segja að miklu ánægjulegra
þætti mér að vita af þér í „áfram-
eldinu" heldur en merarkóng eins
og nú.
Af „dúsum" og ómögum
Þér finnst „dúsan“ að borga úr
jöfnunarsjóði laun sveitarstjóra í 4
- 5 ár ef hrepparnir sameinuðust,
ansi rislág. Ég sé ekki að það komi
neinu „risi„ við, horki háu eða lágu
enda úr sögunni að þær milljónir
komi inn í héraðið í þessu formi,
þökk sé ykkur sundrungar-
mönnum. Engu er líkara en þú
kennir í brjóst um jöfnunarsjóð og
viljir forða honum frá þeirri niður-
lægingu að fylgja endursköpuðu
sveitarfélagi hér nokkuð á veg eins
og góðum forsjármönnum þó
sæmir. Fyrstu skref nýsameinaðra
sveitarfélaga eru þó væntanlega
bæði erfiðust og vandstignust á
meðan verið er að bræða saman
hina gömlu hreppa og móta í nýja
heild. Því er í lögum gert ráð fyrir
margháttaðri aðstoð og fyrir-
greiðslu „að sunnan“ til að létta
þennan róður.
Hvað tekur við að 5 árum liðn-
um veit ég ekki frekar en þú, en
vel mætti hugsa sér, ef jöfnunar-
sjóðurinn væri sannnefni, að hann
stæði þá áfram straum af launa-
kostnaði við stjórnun fámennustu
og fjárhagsgetuminnstu sveitarfé-
laganna.
Ætla mætti að þú hafir verið svo
hugfanginn af „annmarkanum" og
„áframeldinu“ að þú hafir ekki les-
Frá Ögri.