Vestfirska fréttablaðið - 07.09.1988, Qupperneq 6
6
að hnýta ómaklega í, en hafa lagt
í verulegan girðingarkostnað
vcgna sinna hrossa. Eða ertu að
storka þeim sem fara að lögum og
mannasiðum?
Gæti þetta ekki orðið. svo vitn-
að sé í guðspjallið „að hent verði
fram af hcngiflugi óbætanlcgum
aðgerðum sem engin geti séð end-
ann á hvaða hörmungum geti
valdið".
Það er auðvitað ódýrt og þægi-
legt að vera með stóð sem gengur
í öðrum hreppum, vor, sumar og
haust og á túni og í fjóshaug ná-
grannans að vetrinum, en eins og
hreppamörkin er það bráðum liðin
tíð og vonandi áttarðu þig áður en
verra hlýst af. Pétur sýslumaður
veit að hann á nóga og einbeitta
stuðingsmcnn hér í Nautcyrar-
hreppi til að þurrka þessa
ómennsku út í eitt skipti fyrir öll.
„Sá er vinur er til vamms scgir"
svo vitnað sé enn í gamlan
orðskvið. Að því ættirðu að hyggja
áður en þú eykur meiru við um
framangreint efni. Notaðu heldur
orku og tíma til að girða utan um
hrossin þín og fækkaðu þeim í
haust. Og blessaður seldu mér þá
kjöt, ég borga skilvíslega.
Og úr því að þú ert nú orðinn
„maður vikunnar" í sjónvarpi allra
landsmanna og fórst það vel, vona
ég að þú hugsir betur um orðstýr
þinn í skrifum framvegis og látir
ekki annan eins endemis þvætting
og ég hef hér um rætt, frá þér fara,
öðru sinni.
Þinn einlægur,
Indriði á Skjaldfönn.
smá-
auglýsingar
ÞÝSKALAND
Þýsk fjölskylda í Bonn, óskar
eftir strák eða stelpu til heim-
ilisstarfa í eitt ár. Einhver
þýsku- eða enskukunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar gefur Matthildur í
síma 4304 eða Karen Schurich,
Bernhard Str. 15
53 Bonn 3, W-Germany,
sími 9049228440468.
Heimshlaupið ’88
út um allt land
Þann 11. september n.k. mun
Rauði Kross íslands standa fyrir
svokölluðu MEIMSHLAUPI ’88
hér á landi. Heimshlaupið ’88 er
liður í einni mestu fjársöfnun sem
fram hcfur farið, þ.e. SPORT AID
’88. Búist er við að á bilinu 20 - 30
milljónir manna um heim allan
muni leggja hjálparvana börnum í
heiminum lið með því að hlaupa.
Fjölmörg hlaup verða haldin um
allt ísland. Öll munu hlaupin hefj-
ast á sama tíma, kl. 15:00 að bresk-
um meðaltíma, bæði hér og um all-
an heim. Pað skal tekið fram að
hlaupin eru ekki keppni milli ein-
staklinga, heldur er hinn eini sanni
sigur fólginn í því að sem flestir
taki þátt.
Rauði Kross íslands hefur að
undanförnu staðið fyrir leit að
verðugum fulltrúum íslands til að
fara til New York og vera viðstödd
upphaf aðalhlaupsins sem fer fram
þar. Sú leit hefur nú borið þann
árangur að tvö 14 ára ungmenni
hafa verið valin til til þessarar
farar, en það eru þau Sólveig Þór-
arinnsdóttir og Karl Guðmunds-
son.
Markmið hlaupsins er að vekja
athygli á slæmri stöðu barna víða
um heim, sérstaklega í þriðja
heiminum og safna fjármagni til að
bæta úr því.
Samkvæmt reglum samtakanna
sem að hlaupinu standa er gert ráð
fyrir því að 80% af söfnuðu fé í
hverju landi renni til aðstoðar
börnum utanlands en 20% til
innanlandsverkefna. Á íslandi
mun söfnunarféð renna til áfram-
haldandi þróunar á starfsemi
Rauðakrosshússins í Tjarnargötu
til fíkniefnavarna á vettvangi
barna og unglinga.
Söfnunarfénu vegna erlenda
verkefnisins verður ráðstafað í
gegnum „Child Alive“ verkefni
Alþjóða Rauða Krossinssem berst
gegn barnadauða af völdum niður-
gangs og barnasjúkdóma. Talið er
að um 290.000 börn deyi i viku
hverri í heiminum af þessum
sökum cða um 15.000.000 (fimmt-
án milljónir!) á ári.
Tekjuöflunin hér á landi mun
fyrst og fremst fara fram með sölu
þátttökunúmera sem fengin verða
hjá Sport Aid samtökunum í
London.
Sjónvarpað verður beint frá
hlaupinu víða um heim m.a. frá
íslandi. Valdar hafa verið 23 borg-
ir til að sjónvarpa beint frá og varð
Reykjavík ein af þeim borgum scm
varð fyrir valinu.
Markmiðið er að minnsta kosti
15.000 manns taki þátt í hlaupinu
hér á landi og er vonast til að bæði
börn og fullorðnir leggi málinu lið.
Að sögn Hilmars Gunnarssonar
sem er í framkvæmdarnefnd
hlaupsins hér á landi, þá er góð
stemming fyrir hlaupinu. Hann
sagði eins víst að þátttakendur
gætu orðið hátt í 20.000 á landinu
öllu, en það færi þó mikið eftir
veðri. Hlaupið verður víða um
land og fyrir helgina var vitað um
að minnsta kosti 20 staði þar sent
ráðgert væri að hlaupa. Þátttak-
endur geta hlaupið, skokkað eða
gengið 10 km., 4 km. eða styttra,
allt eins og hverjum hentar.
Hlaupið verður ræst frá bygg-
ingu Sameinuðu þjóðanna í New
York kl. 15:00 sunnudaginn 11.
september n.k., að viðstöddum 2
börnum frá hverju þátttökulandi.
Tímariðið
Þroskahjálp
Tímaritið Þroskahjálp, 4. tölu-
blað 1988, er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
Sem dæmi um efni má nefna
viðtal við þriggja barna móður frá
Vestmannaeyjum, cn fjölskyldan
bjó um nokkurra ára skeið í Nor-
egi. Okkar maður í Amcríku,
Rannveig Traustadóttir, spjallar
við tvær mæður vcstan hafs um
þátt foreldra í fræðslu, ráðgjöf og
upplýsingamiðlun til annarra for-
eldra. Elt'n Stephcnsen skólasafns-
kennari ritar athyglisverða grcin
um SKÓLASÖFN OG ÞROSKA-
HEFTA NEMENDUR og erindi
Jóns Björnssonar félagsmálastjóra
á Akureyri SKIP Á LEIÐ TIL
PARADISAR birtist í þessu hcfti.
Þá er þar greint frá mikilvægum
áfanga sem náðst hefur í málefnum
fatlaðra í Vestmannaeyjum.
Fastir pistlar eru á sínum stað,
svo sem AF STARFI SAMTAK-
ANNA, FRÉTTAMOLAR og
BÓKAKYNNING.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út
sex sinnum á ári. Þaðersent áskrif-
endum og fæst í lausasölu í bóka-
búðum, blaðsölustöðum og á skrif-
stofu Þroskahjálpar að Nóatúni
17, 105 Reykjavík.
Áskriftarsíminn er 91-29901.
Sjávarsíðan
Hugmyndir um að
ríkissjóður afli
tekna með kvóta-
söiu, fáránlegar að
mati fólks í fisk-
vinnslu og útgerð á
Vestfjörðum
í kjölfar efnahagsráðstafana
ríkisstjórnarinnar hefur ýmsum
hugmyndum skotið upp varðandi
lausn efnahagsvandans. Ein af
þessum hugmyndum er komin
frá Jóni Baldvin Hannibalssyni
og varðar kvótasölu. Þar er gert
ráð fyrir að ríkissjóður nái inn
verulegum tekjum vegna sölu á
fiskinum í sjónum til útgerðar og
fiskvinnslu. í sjónvarpi á dögun-
um mátti sjá útreikninga á þvi
hversu miklu þetta gæti skilað í
ríkissjóð og var helst á fréttum
að skilja að þarna væri bara kom-
in allsherjarlausn á efnahags-
vanda framtíðarinnar. Þar mætti
á tiltölulega auðveldan hátt fylla
uppí allt að 14 milljarða göt í fjár-
lögum. Eins er víst að margir líta
á þessar hugmyndir sem fúlustu
alvöru og leið sem vert væri að
skoða. Fólk í fiskvinnslu og út-
gerð á Vestfjörðum var þó ekkert
að liggja á skoðun sinni á þess-
um málum í samtölum við Vest-
firska fréttablaðið. Þar lýsti það
framkomnum hugmyndum sem
fáránlegum og vart væri hægt að
taka þær alvarlega. Það kæmi
bara alls ekki til mála að koma
þessu í framkvæmd því þar með
væri verið að kveða upp endan-
legan dauðadóm yfir þessum at-
vinnugreinum á Vestfjörðum.
Eins vildu sumir meina að í dag
væri í raun verið að borga stór-
kostlegan auðlindaskatt með
rangri gengisskráningu. Og ekki
sögðust menn heldur fá séð hvar
ætti að taka peningana fyrir
þessu hjá fyrirtækjum sem þegar
væru rekin með verulegum halla.
Slíkar greiðslur vegna kvótasölu
gætu engir greitt nema að eiga
peninga, og þar með væri Ijóst
að kvóti yrði lluttur í stórum stíl
frá útgerðarstöðum á lands-
byggðinni. Að öðru leyti vildu
menn ekki tjá sig um þessi mál,
hugmyndirnar væru svo fárán-
legar að ekki tæki því að tala um
þær.
PATREKSFJORÐUR:
SIGUREY hefur verið í siglingu.
ÞRYMUR kom inn til ísafjarðar
vegna bilunar, en fór út aftur á
föstudag. MiRið fiskleysi hefur
verið hjá hraðfrystihúsinu og er
nú verið að vinna kola sem safn-
að hefur verið saman og hann
heilfrystur. Kolinn er nú tekinn og
þíddur upp til vinnslu. Skakbátar
voru að fara á sjó á þriðjudag
eftir langt óveðursstopp.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Togarinn hefur verið í slipp og
skakbátar verið í höfn undanfar-
inn hálfan mánuð vegna brælu.
Það er helst af dragnótabátum
sem einhvern fisk er að fá til
vinnslu þessa dagana.
BÍLDUDALUR:
SÖLVI BJARNASON fór á veið-
ar 28. en kom inn þann 30. vegna
veðurs með um 30 tonn. Drag-
nótabátar hafa verið að afla
ágætlega.
FLATEYRI:
GYLLIR er enn í höfn, en er að
búa sig undir að halda á veiðar.
Að öðru leyti eru nánast engar
aflafréttir frá Flateyri. Dragnóta-
bátar fóru út um helgina, en
höfðu ekkert uppúr krafsinu. í
frystihúsinu Hjálmi er tíminn nú
notaður til að mála og gera við.
SUÐUREYRI:
Litlar aflafréttir var að hafa frá
Suðureyri að þessu sinni. Skak-
bátar hafa þó verið að fá eitthvað
nú síðustu daga og von var á
togaranum inn í dag.
SÚÐAVÍK:
BESSI landaði á mánudag um
40 tonnum. Þann 4. september
landaði Arney 5 tonnum af rækju.
Mummi landaði sama dag um
1600 kg. og ORRI landaði þá
einnig fjórum tonnum.
BOLUNGARVÍK:
DAGRÚN var aö landa á þriðju-
dag um 75 til 80 tonnum. Færa-
afli hefur verið frekar tregur, en
var þó eitthvað að glæðast nú
síðustu daga.
ÍSAFJÖRÐUR:
GUÐBJARTUR er enn í slipp og
VÍKINGUR III er hættur á drag-
nótinni, en hann landaði síðast á
laugardag. Lítinn fisk er að hafa
hjá þeim í Norðurtanganum
þessa dagana. Það er þó ekki
neinn bilbug að finna á mönnum
og telja þeir þetta ekkert annað
en venjulegt ástand miðað við ár-
stíma.
GUÐBJÖRG landaði um 100
tonnum á mánudag, en þar af var
sett í fjóra gáma. Einnig landaði
JÚLÍUS GEIRMUNDSSON
sama dag um 60 tonnum og settu
þeir í tvo gáma.