Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Side 2

Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Side 2
vestlirska I rp.ETi.* blad:" VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ SÍMI4011 1 I vestiirska ~1 FRETTABLAÐIÐ Vestfirska fréttablaðið kemur út síðdegis á fimmtudögum. Upplag 3750 eintök. Blaðið er borið út ókeypis á hvert heimili i öllu Vestfjarðakjördaemi. Auk þess eru á fimmta hundrað áskrifendur utan Vestfjarða. Ritstjórn og auglýsingar: Aðal- stræti 35, Isafirði, símar 94-4011 og 94-3223. Póstfaxsími: 94-4423. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Pór Magnússon. Blaðamenn: Hörður Kristjánsson og Helga Guðrun Eiríksdóttir. Auglýsingar: Helga Guðrún Eiríksdóttir. Útlitsteikning og Ijósmyndun: Hörður Kristjánsson. Útgefandi: Isprent-Grafíktækni h.f. Prent- vinnsla: Isprent, Aðalstræti 35, (safirði, 94-3223, frkvstj. Hlynur Þór Magnússon. Vestflrska fréttablaðið er í Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Vestfirska fréttablaðið er aöili að upplagseftiriiti Verslunarráðs Islands. Bitur reynsla Því miður þá hefur reynsla verkafólks af kjarasamningum undanfarinna ára verið vægast sagt bitur. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar sem leiða áttu þjóðina út úr ógöngum verðbólgu og kjaraskerðingar. Niðurstaðan hingað til af slíkum samningum hefur þó oftar en ekki orðið hrikaleg kjaraskerðing láglaunahópanna í þjóðfélaginu oft með afleiðingum sem varla má tala um. Nú er enn eina ferðina búið að gera samninga sem verið er að leggja fyrir verkalýðsfélög vítt og breitt um landið. Þessir samningar eiga að hafa algjöra sérstöðu hvað varðar það göfuga markmið að ná niður verðbólgu og þvf að stöðva sjálfvirkni í vqrðlagsmyndun f landinu. Vart þarf að efast um að góður hugur er að baki þessari samningsgerð, en reynsla fólks af slíkum samningum er því miður afar slæm og því þarf mönnum ekkert að koma það á óvart að margir komi til með að efast um árangurinn. Þrátt fyrir að í þessum samningum sé talað um að lækka nafnvextí, þá er óvíst að það dugi. Vaxtaokur hefur viðgeng- ist hér á landi það lengi að það er búið að gegnsýra allt þjóðfélagið. Of margir græða á niðurrifsstarfseminni sem vaxtaokrið hefur fætt af sér til að maður geti búist við að í samningum um kaup og kjör felist neitt raunhæft gegn þeim ósóma. Eða hvað erum við ekki oft búin að hlusta á há- stemmdar yfirlýsingar ráðherra um handvirka niðurfærslu vaxta, án árangurs? Þó menn vilji binda allar sínar vonir við að nýgerðir kjara- samningar leiði til hjaðnandi verðbólgu og betra þjóðfélags, þá veltur niðurstaðan að verulegu leyti á gjörðum okkar háttvirtu ráðherra á næstu misserum. Það vill svo einkenni- lega til að einmitt þessir ráðherrar sem við nú hljótum að horfa til varðandi þær aðgerðir sem stuðlað geta að góðri niðurstöðu af markmiðum þessa samnings, eru einmitt sömu mennimir og vilja hú ekki borga skattana sína eins og öllum öðmm sem njóta hlunninda í þjóðfélaginu er ætlað að gera. hk. ÓKEYPIS smá- auglýsingar TIL SÖLU er Suzuki Fox árg. 1984, ekinn 55 þús. km. Uppl. gefur Bjarní í s. 1130 á kvöldin. TRÉSMÍÐAVÉL Óska eftir að kaupa sam- byggða trésmíðavél. Uppl. I s. 8874 eða 4554. TAPAÐ-FUNDIÐ Fundist hafa gleraugu m/ gylltri umgjörð á bílastæði við Mjallargötu. Eigandi hafi samband í s. 4463. TIL SÖLU kommóða, skrifborð og skrif- borðsstóll frá IKEA. Uppl. I s. 3732 á kvöldin. ÍBÚÐ ÓSKAST Óska eftir 3ja - 4ra herbergja íbúð til leigu sem fyrst. Skil- vísum greiðslum heitið. Uppl. í s. 4445, e.kl. 20. S Isafjarðarkapella Guðsþiónusta á sunnudag kl. 11.00 Altarisganga. Athugið breyttan messutíma. Suðureyrarkirkj a Guðsþjónusta á sunnudag kl. 11.00 Aðalskipulag ísafjarðar 1989-2009 Ný tillaga að aðalskipulagi liggur nú frammi, og leita bæjaryf- irvöld eftir áliti og hugmyndum bæjarbúa við tillöguna. Á undan- förnum árum hefur þessi háttur verið hafður á og mælst vel fyrir enda allnokkur þátttaka bæjarbúa í kynningarfundum um skipulags- málin. Höfundar skipulagsins hafa líka lagt sig fram um að samráð við bæjarbúa væri sem best, og hafa ávallt hlustað vandlega eftir hug- myndum og ábendingum sem frá þeim hafa komið. Mig langar til, af þessu tilefni, að rifja upp nokkur atriði varðandi skipulagsvinnuna allt frá því hún hófst árið 1972, og um leið að koma fram með nokkrar ábend- ingar er þetta varðar. Gleymum ekki upphafinu. Upphaf skipulagsvinnunnar var 1972 þegar fyrir lágu úrslit í sam- keppni sem Skipulagsstjóri ríkisins hafði efnt til um skipulag sjávar- kauptúna. Fyrsta viðurkenning var veitt tillögu um aðalskipulag fyrir ísafjörð og svæðaskipulag fyrir Vestfirði. Þetta átti sér stað árið 1972, eða á fyrsta ári eftir sameiningu Eyrar- hrepps og ísafjarðar. Höfundar þessarar verðlaunatillögu voru þeir: Ingimundur Sveinsson arki- tekt, Ólafur Erlingsson verkfræð- ingur, Dr. Ólafur Ragnar Gríms- son lektor, núverandi fjármálaráð- herra og Garðar Halldórsson arki- tekt, núverandi húsameistari ríkis- ins. Þessi starfshópur var síðan ráð- inn til að vinna tillögu að aðal- skipulagi fyrir ísafjörð fyrir árin 1974-1994. Það er eftirtektarvert og má vera minnisstætt að aðalskipulagshug- mynd fyrir ísafjörð hafði síðast komið fram árið 1927, og engin skipulagsvinna verið unnin frá þeim tíma til ársins 1974 eða í hart- nær 50 ár. Að vísu hafði Isafjörður ekki yfir neinu landi að ráða til skipu- lags. Kaupstaðurinn var landlaus og hafði ekki stækkunarmögu- leika. Með sameiningu Eyrarhrepps og ísafjarðar árið 1971 var lagður grundvöllur að þeirri uppbyggingu ísafjarðar sem átt hefur sér stað frá árinu 1972. Sameiningin varð að eiga sér stað, og það er núna fullsannað að þeir sem fyrir henni börðust fóru með réttan málstað. Ennþá tæpum 20 árum síðar eru þó til fólk sem liggur baráttu- mönnum sameiningarinnnar á hálsi fyrir þá framkvæmd, en það er sem betur fer ekki fólk sem hefur kynnt sér sögulegar stað- reyndir, heldur setur málflutning sinn fram með sleggjudómum um einstaka menn sem því hentar að tengja því máli. Sameiningin var eitt mesta fram- faraspor sem stigið hefur verið, og forsenda þeirrar skipulagsvinnu sem unnið hefur verið að síðan á þessu svæði. Enn á ný er svo birt í þessum tillögum hugmynd um stækkun ísafjarðar einmitt á því landsvæði sem tilheyrði Eyrarhreppi fyrir sameininguna 1971. Þessar staðreyndir skulu hafðar í huga þegar nýjar hugmyndir eru ræddar, og þegar stjórnendur bæjarfélagsins dreifa þjónustu og efla samskiptamöguleika bæjar- búa sem munu ávallt búa í þremur bæjarhlutum þ.e. á Eyrinni í Hnífsdal og í Innfirðinum. ísafjörður er því aðeins vel byggð- ur að nokkurt jafnræði ríki milli þessara byggðakjarna, þannig að íbúarnir séu sem jafnastir fyrir þjónustu samfélagsins eins og hún er boðin á hverjum tíma. Markmið skipulagsvinnunar Það dylst ekki ísfirðingum hvert markmið skipulagsvinnunnar er, jafn ítarlega sem um þessi mál hefur verið fjallað á liðnum árum. Það skiptir ekki heldur máli hvort við köllum skipulagið áætlun, stefnumörkun eða stefnuyfirlýs- ingu, umfjöllum skipulagsmálanna verður ávallt til þess að við horfum til framtíðar og reynum að gera okkur grein fyrir þeim þörfum sem næsta framtíð krefur okkur um, um leið og við reynum með skipu- lögðum hætti að marka uppbygg- ingu bæjarins þann farveg sem heillavænlegastur geti talist. Mér finnst að höfundar skipu- lagsins sérfræðingarnir Ingimund- ur Sveinsson og Ólafur Erlingsson, sem unnið hafa með okkur alla tíð, hafi einmitt lagt þyngstu áherslu á þessi sjónarmið. Þeim hefur tekist að móta skynsamlega valkosti fyrir bæjaryfirvöld að fjalla um, og bæjarstjórn hefur þrátt fyrir land- þrengsli, ávallt haft um fleiri en einn kost að velja þegar um ný uppbyggingaráform hefur verið að ræða. Þetta er stór kostur, og er árangur skipulagsvinnunnar. Skipulagsvinna er viðkvæm í allri umfjöllun og framkvæmd. Mistök eru því varla óumflýjanleg. Hér hjá okkur hafa verið gerð mistök hin síðari ár, og sjást þau glöggt á þeirri tillögu sem hér er lögð fram. Þó þessi mistök séu veruleg og verði ekki bætt, hvorki t.d. á Tunguskeiði né heldur bak Aðal- strætis, þá má þó hiklaust fullyrða að ef skipulagsvinnan skipaði ekki þann sess í hugum flestra okkar sem hún gerir, þá hefðu mistökin orðið enn fleiri og stærri. Markmið skipulagsins er því einnig það að hafa stjórn á skipulagðri uppbygg- ingu bæjarfélagsins, og koma í veg fyrir að hentistefna og skamm- tímasjónarmið fái ráðið. Skipulagslög kveða mjög skýrt á um þær vinnureglur sem fara ber eftir þegar unnið er að skipulags- málum. Bæjarstjórn hefur að mestu virt þessar reglur, þó það hafi ekki verið alfarið, enda má rekja skipulagsmistökin til þeirra frávika. Slík vinnubrögð ber að varast. Aðalskipulagið markar heildarramma skipulagsins, en deiliskipulags einstakra bæjar- hluta er síðan hið endanlega skipu- lag svæðisins. Deiliskipulag getur þó alls ekki orðið til nema að fyrir liggi aðalskipulag fyrir svæðið. SKIPULAGSTILLAGAN Innfjörðurinn Ég hef ekki enn kynnt mér til fullnustu aðalskipulagstillöguna, enda ávallt hægt að sjá nýjar leiðir um útfærslur. Aðalskipulagið er þó að mínu mati sæmilega skýrt um þau meginatriði sem fjalla ber um í svona tillögu. Fyrirferða- mesta breyting skipulagsins er ný íbúðabyggð útí Pollinn neðan nú- verandi þjóðvegar á Skeiði. Þessi hugmynd er í raun gömul, því þegar aðalskipulagið 1974 var unn- ið kom þessi hugmynd fram, en Guðmundur H. Ingólfsson. þótti ekki ástæða til að marka það í tillögugerð. Þetta erað sjálfsögðu sæmilegur kostur, en hann verður dýr. Þó má hugsa sér svipaða fram- kvæmd á fyllingu á þessu svæði eins og gert var þegar Torfnesfyll- ingin var gerð, dælingu af sjávar- botni bæði úr Sundunum og öðrum heppilegum stöðum í hentugri fjarlægð. Á þessi svæði þ.e. Skeiðinu finnst mér tillagan losaraleg og ekki samræmi í henni miðað við þær útfærslur sem ræddar hafa verið um svæðið í heild til þessa. í tillögunni er að mínu mati farið illa með hið ákjósanlega bygginga- land sem við eigum enn ónotað á Skeiðinu og í Tungudalsmynni. Þarna ber líka mikið á einum af þeim mistökum sem gerð hafa verið, og virðast höfundarnir bara sætta sig við orðinn hlut og haga tillögu sinni í samræmi við það, og er það miður. Nýting landsins á þessu svæði finnst mér ekki nægjanlega góð, og þegar horft er á nýtingu landsins í svonefndu Holtahverfi þá er það ljóst að miklu betur má gera á þessu svæði sem nú er um fjallað, ef nýting þess ætti að vera eins góð. Ég vil endurmat á þessum hluta tillagnanna, því ég tel það megin- mál að nýting þess eina lands sem við eigum verði eins hagkvæm og kostur er. Hafnarsvæðið Þetta svæði er viðkvæmt og vandmeðfarið. Á undanförnum árum hafa komið fram stórfelldar breytingar á svo til allri umferð og nýtingu hafnarsvæðisins. Ætla má þó að nú séu flestar meiriháttar breytingar komnar fram, og því sé ekki óeðlilegt að skipuleggja nú til nokkurrar framtíðar á þeirri reynslu og þekkingu sem fyrir er. Það er sjálfsagt að þrengja ekki að þeim atvinnurekstri sem tengj- ast þarf hafnarsvæðinu, og það verður alls ekki gert, en í skipu- lagstillögunni er það mjög áber- andi að við eigum ónotuð land- svæði undir atvinnustarfsemi á fjölmörgum stöðum um allt skipu- lagssvæðið. Það er engin þörf á að hrúga allri atvinnustarfsemi á hafnarsvæðið. Mér finnst því liggja alveg ljóst fyrir að ef lokið væri landfyllingum á hafnarsvæðinu og Suðurtanga þá opnaðist möguleiki á að nýta hluta þess lands til allt annarra nota en sem atvinnusvæði. Hvar er t.d. tillagan um takmarkaða íbúðabyggð á þessu svæði? Er nokkuð óeðlilegra að byggja íbúð- arhús á þessu svæði en t.d. blokk- ina sem nú er í byggingu við gömlu Framhald á bls. 5.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.