Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Side 3

Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Side 3
FRETTnBLADIS VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ SÍMI4011 traetfipeta Árni Sigurðsson, stjórnarformaður Bjartmars hf Um hörpudiskkvóta, titring í Landsbankanum og fjölmiðla Málefni hlutafélagsins Bjart- mars hafa verið ofarlega á baugi ísfirskrar atvinnu- og byggða- málaumræðu undanfarinna miss- era og aðstandendur félagsins hafa ekki farið varhluta af athyglinni persónulega. Þeir hafa þó kosið að taka ekki að ráði þátt í fjölmiðla- umræðu. Telja raunar að það sé ekki fábreyttu vestfirsku atvinnu- lífi til framdráttar að aðilar beiti fyrir sig misvönduðum fjölmiðlum í hagsmunaátökum. Einn þáttur málsins, það er um vinnsluieyfi Bjartmars hf. er sér- staklega í umræðunni um þessar mundir. Varðar það framtíð félagsins og aðstandenda þess svo mjög að rétt þykir að gera nokkra grein fyrir honum opinberlega. UPPHAFIÐ OG STAÐAN NÚ Rétt þykir að leggja áherslu á það, að Bjartmarsmenn stofnuðu sitt félag af alvöru og fullir bjart- sýni, eins og nafn félagsins ber með sér. Þeir lögðu félaginu til fjár- magn af ítrustu getu og vitnar það um ásetning hluthafa að veita félaginu þann kraft í formi eigin fjár, sem duga mundi til langra og árangursríkra lífdaga jafnvel í því undarlega rekstrarumhverfi, sem íslensk fiskvinnsla og sjávarútveg- ur þarf við að búa um þessar mundir. Það voru 13 hluthafar, einstakl- ingar og félög, sem lögðu Bjart- mari til 30 milljónir króna í eigið fé, og var það greitt inn til félagsins að langmestu leyti á fyrstu starfs- vikunum. Án þess að fara í sértstakar út- skýringar á framvindu mála hjá Bjartmar hf. hér, þykir rétt að geta þess að staða félagsins nú er í stuttu máli sú, að vinnslustöð þess hefur verið seld á nauðungarupp- boði og rækjuvinnsluleyfi félagsins hefur verið úthlutað öðrum, að minnsta kosti að sinni. Félagið vinnur nú að því að koma upp alhliða skelvinnslu og ætlar þar að byggja á vinnsluleyfi fyrir hörpudisk, sem félaginu var úthlutað með bréfi sjávarútvegs- ráðuneytisins 13. október 1988. Samkvæmt bókhaldi Bjartmars hf. er eignastaðan viðunandi, svo notað sé þekkt orðalag úr við- skiptaheiminum, og hvernig sem allt fer, þá á félagið fyrir skuldum og mun gera þær upp eftir að vinnsla hefst, eða að lokinni sölu þeirra afurða, sem félagið á nú í frystigeymslum og í sölumeðferð. BJARTMAR HF. - O.N. OLSEN HF. Ekki er ástæða til að fara í sam- jöfnuð á Bjartmar hf. og O.N. Ol- sen hf. hér, að öðru leyti en því að stillt skal upp staðreyndum varð- andi vinnsluleyfi félaganna, vegna þráláts misskilnings á eðli gjald- þrots O.N. Olsen hf. annarsvegar og hinsvegar á nauðungarsölu vinnslustöðvar Bjartmars hf., sem félagið hafði kaupsamning um, en sem því hafði ekki tekist að standa við til fullnustu, vegna fáránlegrar afstöðu Landsbanka íslands til félagsins. 1. Við gjaldþrot O.N. Olsen hf., hætti það félag að vera til sem sjálfstæður lögaðili og skipta- stjóri seldi eignir félagsins og vinnsluleyfi þess féllu niður, en var síðan úthlutað af sjávarút- vegsráðuneytinu til annars félags, þ.e. Bjartmars hf. 2. Þrátt fyrir nauðungarsölu vinnslustöðvar Bjartmars hf., sem var raunar þinglesin eign O.N. Olsen hf. og boðin upp vegna skulda þess félags, þá heldur Bjartmar áfram að vera til. 3. Þar sem skýrt og greinilega var fram tekið í uppboðsskilmálum að engin vinnsluleyfi fylgdu sölunni, þá telur Bjartmar hf. rétt sinn ótvíræðan til þeirra vinnsluleyfa, sem félaginu var úthlutað 13. október 1988. HVAÐ ER FAMUNDAN? Það hefur verið gert töluvert úr því í umræðu undanfarinna vikna að ef Bjartmar hf, fái að halda sín- um vinnsluleyfum fyrir hörpudisk, þá komi ýmsir aðilar til með að bera skarðan hlut frá borði. Ekki hefur að því er ég minnist verið lögð sérstök áhersla á hagsmuni Bjartmars hf., eða þeirra einstakl- inga og félaga, sem að því félagi standa. Það hefur verið sagt, að fái Bjartmar að halda leyfum sínum, þá muni félagið: 1. Flytja hörpudiskvinnsluna til Bolungarvíkur. 2. Rýra kost skelveiðibáta þeirra, sem nú hafa skelveiðileyfi í Isa- fjarðardjúpi. 3. Verða til þess að tekjumögu leikar vinnslustöðvar ísvers og þar með veð Landsbanka Is lands í vinnslustöðinni rýrni. Um þessi atriði vil ég fara hér nokkrum orðum og reyna að skýra hvort og þá hvernig þau koma inn á hagsmuni einstakra aðila málsins. STAÐSETNING VINNSLUSTÖÐ V AR Þótt Bjartmar hf. sé ísfirskt félag, stofnað til að starfrækja rækju- og hörpudiskvinnsluvinnslu á ísafirði, hafa ýmsar kringum- stæður orðið til þess, að nauðsyn- legt hefur reynst að skoða aðra kosti einnig, til þess að tryggja rekstur fyrirtækisins. Eitt af því sem nú kemur til greina er að setja upp alhliða skel- vinnslu, þar sem nýttir yrðu eftir megni þeir kostir, sem fyrir hendi eru í veiðum og vinnslu hinna ýmsu skelfisktegunda og sérhæfa fyritækið í þeirri grein. Það hafa menn talið mun heppilegra og arð- vænlegra fyrir heildina, heldur en að nota hörpudiskmiðin í ísafjarð- ardjúpi sem „hækju með rækj- unni“, eins og góður maður komst að orði. Þegar frumathugun var gerð á hagkvæmni slíks rekstrar þá kom í ljós að möguleikar til að koma upp vinnslunni voru betri í Bolungar- vík, og því var farið að íhuga hverju það breytti fyrir hagsmuna- aðila á ísafirði, ef vinnslan yrði flutt á milli sveitarfélaga og er rétt að sýna fram á það hér. Vinnslukvóti Bjartmars hf. af hörpudiski úr ísafjarðardjúpi var árið 1989, 500 tonn. Breytilegur kostnaður við vinnslu afurðar úr þessu magni er áætlaður vera 15,3 milljónir króna. Aðstöðugjalda- tekjur bæjarsjóðs ísafjarðar myndu því vera kr. 99.450. Við framleiðslu afurðar úr hörpu- diskinum eru áætluð vinnulaun ásamt með launatengdum gjöldum Árni Sigurðsson. kr. 3.025.000. Þarnaer um aðræða 5.500 manntíma, eða 2,65 ársverk. Menn geta svo gert allskonar samanburð og séð til dæmis, að nú þegar Byggðastofnun opnar útibú sitt á ísafirði, þá munu starfsmenn hennar fljótlega verða fleiri en þetta, og tekjur bæjarins af útibú- inu, beinar ogóbeinar, væntanlega verða miklu hærri en af umrædd- um hörpudiskvinnslukvóta. Það er svo langt frá sjálfgefið, að þeir sem myndu hafa vinnu af skelvinnslunni yrðu endilega bú- settir í því sveitarfélagi, sem hún yrði staðsett. Fjöldi manna fer á milli byggðarlaga við Djúp til þess að stunda sína atvinnu, og þykir engum tiltökumál, enda ekkert eðlilegra en að svæðið við ísafjarð- ardjúp sé eitt atvinnusvæði. Benda má á til samanburðar til dæmis, að á Guðbjörginni starfa Bolvíkingar og Bessanum eru Isfirðingar. Ekki veit ég um heimilisfesti allra skipverja á Júlíusi Geirmundssyni, hinum nýja frystitogara Gunnvarar hf. Menn skulu heldur ekki gleyma því, að við tilkomu þess skips, þá raskaðist hráefnisöflun íshúsfé- lagsins alvarlega. UM VEIÐISKIPIN OG ÞEIRRA KVÓTA Varðandi það að kostur skel- veiðibáta frá ísafirði yrði rýrður, þá óskar Bjartmar hf. eindregið eftir því að þessir bátar haldi áfram sínum veiðileyfum, sem og félagið sínum vinnsluleyfum, og að þeir skipti við vinnslustöð félagsins. Bjartmar hf. hefur síður en svo uppi áform um að skerða mögu- leika þeirra á tekjuöflun við hörpudiskveiðarnar og mun ekki þrýsta á neinar breytingar á núver- andi fyrirkomulagi veiðanna í Isa- fjarðardjúpi. Það hafa forráða- menn félagsins lagt á ríka áherslu í viðræðum við sjávarútvegsráðu- neytið. TITRINGUR í LANDSB ANKA, ÍSVER OG VEÐIN Þriðja atriðið, sem tekið er til hér að framan er sú skoðun að haldi Bjartmar hörpudiskvinnslu- leyfi sínu, þá rýri það möguleika vinnslustöðvar fsvers til tekju- öflunar og þar með verðmæti veðs Landsbanka íslands, í verksmiðju- húsinu við Sindragötu. Það er nú mín skoðun, að veðin komi þessu máli ekki hið minnsta við og jafnvel þó svo væri, hvers- vegna ættu menn að taka sérstakt tillit til hagsmuna Landsbanka íslands, framyfir hagsmuni þeirra einstaklinga og fyrirtækja, sem í þessu máli eru beinlínis að verja eignir sínar og framtíð vegna Landsbankans, eftir þá svívirði- legu framkomu, sem hann hefur haft í frammi gagnvart Bjartmari hf. ? Það er daglegt brauð, að banka- stjórinn sem valin hefur verið sú samlíking, að hann væri eins og fíll í postulínbúð. Það sama hve langt aftur er leitað til að finna slíks dæmi, þau finnast ekki. Þægir þjónar ganga erinda við- hafi sérkennileg vinnubrögð hans við að drepa í dróma afl og vilja þeirra, sem að Bjartmari hf. standa og nú er seilst til þeirrar langsóttu röksemdar,' að fái Bjartmar hf. tækifæri til að halda áfram hörpudiskvinnslu, þá titri allt veðsetningarkerfi fiskvinnsl- unnar í landinu. Því þykir rétt að benda hér á, að verðmæti verksmiðjunnar sem veðs, hefur þá vaxið við það að nú hefur ísver hf. verið úthlutað 20% rækjuvinnsluheimilda úr Isafjarð- ardjúpi, en verksmiðjan hafði aðeins 15% fyrir. Þar með eykst kvótinn í meðalári úr 450 tonnum í 600 tonn, sem þýðir um 45 tonna framleiðslu af pillaðri rækju, en CIF verðmæti hennar með verð- jöfnun er nú um kr. 21.5 millj. og ársframlegð viðbótarrækjukvót- ans er áætluð vera 8.8 millj. króna. Hörpudiskvinnsluheimild Bjart- mars hf. úr ísafjarðardjúpi, sem ísver sækist nú eftir að fá er eins og fyrr segir 500 tonn, en ekki er sjálfgefið, og raunar vafasamt að leyft verði að veiða það magn á hverju ári. CIF verðmæti afurða úr því magni er nú áætlað vera 29 milljónir króna. Ársframlegð hörpudiskvinnslunnar úr Djúpinu er um 13.5 milljónir. Þarna er að vísu nokkur munur á framleiðsluverðmætum, en rangt er að halda því fram, að gildi verk- smiðjunnar, sem veðs rýrni neitt fyrir þessar breytingar, í atvinnu- grein, sem er jafn sveiflukennd og vinnsla rækju og skelfisks. FJÖLMIÐLARNIR Það er ekki síst til mótvægis við óvandaða umfjöllun Ríkisútvarps- ins, Svæðisútvarps Vestfjarða um þetta mál, sem tilefni telst til þessara skrifa nú. Með henni hefur tekist að magna upp ýmsan mis- skilning og gera málstað félagsins tortryggilegan í augum þeirra, sem ekki vita betur. Hin ísfirska fjölmiðlun er svo sem kapítuli út af fyrir sig, sem vert væri að fara nokkrum vel völdum orðum um, þó það verði ekki gert hér að ráði. Eru ýmsir þeirrar skoðunar, að á eftir erfið- leikum í fyrirtækjarekstri og fjár- hagsbasli sveitarfélaga, stafi mest hætta á byggðaröskun af vanda- málastagli, hlutdrægni og nesja- mennsku Svæðisútvarps Vest- fjarða hjá Ríkisútvarpinu. Það er kannske ekki sanngjarnt, eða nauðsynlegt að gera jafn ákveðna kröfu til vandaðrar um- fjöllunar um menn og málefni hjá vikublöðunum, eins og krefjast verður af Ríkisútvarpinu. Hins vegar er það til leiðinda og stundum skaða, að annað blaðið skuli byggja svo mikið á óvönduð- um fréttaflutningi, sem takmark- ast af lítilli þekkingu og iðulega annarlegum viðhorfum ritstjóra og blaðamanns, sem auðvitað velja sér til umfjöllunar menn og mál- efni, en sleppa því, sem hentar, hvað sem líður fréttnæmi. Þá eru ekki síður varhugaverð nafnlaus skrif aðila, sem hafa geð í sér til þess að nota þennan vettvang, sjálfumgleði sinni og hégómleika til eflingar, auk þess sem þeir víla ekki fyrir sér að grafa þannig undan þeim, sem við þykir þurfa og koma höggum á menn úr launsátri. Hitt blaðið hafði lengi kappkost- að að byggja upp jákvæða ímynd af nokkrum metnaði og sjálfsvirð- ingu. Var reyndar til þess stofnað að hafa uppi jákvæða og upplýs- andi umræðu um málefni Vest- fjarða. Það þarf nú rækilega nafla- skoðun, þar sem farið er að bera ískyggilega á misheppnuðum menntaskólahúmor og kjána- bröndurum um menn og málefni, en það er síst til framdráttar þeim, sem vilja láta taka sína fjölmiðlun alvarlega. NIÐURLAG Ég tel að með þessu greinar- korni hafi ég farið nokkuð nálægt kjarna þessa máls og vonandi hef- ur tekist að vekja lesendur til um- hugsunar. Ætíð má þó við bæta og tel ég það ekki eftir mér, ef þörf krefur. Ég vil að lokum hvetja alla góða menn til þess að taka virkan þátt í atvinnumálaumræðu Vestfjarða, því slíks er vissulega brýn þörf. Það má þó aldrei gleymast, hvort sem um er að ræða opinbera umfjöllun í blöðum eða á ljósvaka, eða jafnvel þegar menn stinga saman nefjum yfir kaffibolla, að grundvallaratriði gagnlegrar um- ræðu er nokkur þekking á málefn- inu og að minnsta kosti snefill af jákvæðri hugsun. Útvarpið stendur við allar fréttir afBjartmari Vegna ummæla Árna Sigurðs- sonar um Svæðisútvarp Vestfjarða og Ríkisútvarpið, bar blm. Vest- firska fréttablaðsins þau undir Finnboga Hermannsson, for- stöðumann Ríkisútvarpsins á ísa- firði. Finnbogi vildi ekki tjá sig um ummæli Árna að öðru leyti en því að Ríkisútvarpið stæði við allar fréttir af málefnum Bjartmars, enda væri ekki um neinar efnisleg- ar athugasemdir í skrifum Árna að ræða. Ef menn hefðu efnislegar athugasemdir fram að færa við fréttaflutning, þá væri alltaf opið fyrir slíkar athugasemdir og út- varpinu skylt að birta þær. OKEYPIS smá- auglýsingar BÁTUR TIL SÖLU 20 tonna eikarbátur til sölu. Uppl. í s. 7466. HÚS TIL SÖLU Einbýlishús við Ljosaland 4 Bolungarvík er til sölu. Uppl. í S. 7466. TRÉSMIÐUR Kona í Reykjavík óskar eftir að komast í samband við trésmið sem getur smíðað amboð af gömlu gerðinni. Uppl. í s. 91-39039. TIL SÖLU frambyggður trébátur, 2,9 tonn, allur ný endurbyggður og vel tækjum búinn. Uppl. í s. 94-1495 eða 94-1416. SUZUKI FOX Óska eftir að kaupa upp- hækkaðann Suzuki Fox árg. ’82-’83. Dekkjastærð 31 “-33“. Uppl. í s. 7304. HRAÐFISKIBÁTUR til sölu ’84 módel með 136 hö. BMW vél, dýptarmælir, talstöð, rafmagnsrúlla, gúmmíbátur og vagn. Uppl. ís. 4862 og 4926e.kl. 18.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.