Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Síða 4

Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Síða 4
véiifirskl FRETTABIADID VESTFIRSKA FRETTABLAÐIÐ SÍMI4011 Skíðasvæðið í Bolungarvík er opið alla virka daga frá 13 til 18 og um helgar frá 10 til 17. Svæðisstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn prófkjör á ísafirði Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á ísafirði hefur verið ákveðið dagana 24.-25. febrúar n.k. Kosið verður í Sjálfstæðishúsinu á ísafirði báða dagana. Frá kl. 10.00-19.00 laugardag og kl. 13.00-19.00 sunnudag. Þeir aðilar sem ekki verða heima prófkjörsdagana geta kosið á sama stað dagana 18., 19., og 20. febrúar. Frá kl. 13.00-17.00 þann 18., en kl. 17.00-20.00 dagana 19. og 20. Þá er hægt að kjósa í Valhöll, Reykjavík, 18. feb. frá kl. 13.00-17 og 19. feb. frákl. 17.00 til 21.00. Þeim, sem ekki eiga heimangengt á ísafirði prófkjörsdagana er bent á að hafa samband við kjörstjórn í síma 3232. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðis- mönnum á ísafirði, 16 ára og eldri svo og þeim sem eiga munu kosningarétt við næstu sveitarstjórnarkosningar og undirrita stuðningsyfirlýsingu við Sjálfstæðisflokkinn, samhliða þátt- töku í prófkjörinu. Eftirtaldir verða í framboði: Einar Garðar Hjaltason, fiskverkandi. Helga Sigmundsdóttir, húsmóðir. Guðmundur Marinósson, framkvæmdastjóri. Jórunn Sigurðardóttir, sjúkraliði. Sigrún C. Halldórsdóttir, skrifstofumaður. Ólafur Helgi Kjartansson, skattstjóri. Pétur H.R. Sigurðsson, mjólkurbússtjóri. Jóhann Ólafson, vélstjóri. Hans Georg Bæringsson, málarameistari. Jónas H. Eyjólfsson, yfirlögregluþjónn. Guðjón Ólafsson, menntaskólakennari. Kristján Kristjánsson, umdæmistæknifræðingur. Kjörnefnd. Ljósmyndastofan MYNDÁS VERÐUR LOKUÐ VIKUNA 19.-23. FEBRÚAR. OPNAÐ AFTUR 26. FEBRÚAR KL. 13. Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Benedikts Valgeirs Jakobssonar Bakkastíg 13, Bolungarvík Níelsína Þorvaldsdóttir Karítas Haflíða. ÓskarHálfdánsson Matthildur H. Benediktsdóttir Guðrún V. Benediktsdóttir og barnabörn. I „Þetta er ekkert nema hagsmunapakki“ — Skeggrætt við Halldór Hermannsson um fiskveiðistjórn Halldór Ásgrímsson hélt fund um sjávarútvegsmál á ísafirði í fyrri viku. Þar gerði hann og ráðu- neytisstjóri hans, Árni Kolbeins- son mönnum grein fyrir drögum að nýju kvótafrumvarpi. Fundur- inn var fjölmennur, en umræður í nokkuð fastmótuðu formi og orðn- ar kunnuglegar. Halldór Her- mannsson, skipstjóri hefur látið kvótamál til sín taka og hann ásamt Einari Hreinssyni, sjávarútvegs- fræðingi, hafa mótað ákveðnar til- lögur um fiskveiðistjórn, sem reyndar birtast með þessum skegg- ræðum við Halldór. En látum Halldór greina frá aðdragandan- um að núverandi kerfi og því sem koma skal að því er virðist: Aðdragandinn að núverandi takmörkunum nær allt til þess að þorskastríðunum er að ljúka og þá hafði svarta skýrslan, sem svo var kölluð komið út og var reyndar lóð á okkar vogarskál í baráttunni við Breta. En skýrslan kom jafn- framt miklu róti á hugi okkar ís- lendinga eigandi enn í stríði við Breta, og við vorum ekki vel undir það búnir andlega að fara að tak- marka afla. Og það er ekki hægt að neita því, að fiskveiðitak- markanir hafi þá verið orðnar nauðsynlegar. Og þá er gripið til skrapdagakerfisins svokallaða og við Vestfirðingar héldum lengi vel fram að væri ágætt. Og við höldum því enn þá fram að það hafi reynst mun betur við að takmarka heildarafla en kvótakerfið sem tók við af skrapdagakerfinu. Mönnum til upprifjunar, þá var það einkum fólgið í því, að heildarafla var út- hlutað og skipt milli togara og báta. Síðan höfðu togararnir ákveðna daga, sem þeir máttu ekki sækja í þorsk og urðu að sækja í aðrar fiskitegundir. Það var fyrst læsing á þessu kerfi sem svo var nefnd, þannig að menn urðu að tilkynna, áður en þeir fóru úr höfn, á hvaða fiskirí þeir ætluðu. Þetta var síðan rýmkað og menn gátu breytt til í túrnum. Fjölgun skipa og offjárfesting Ég tel upp á að það hafi verið mun betra að takmarka heildarafla með þessu kerfi, það er að segja að vernda þorsk. Kvótakerfi voru menn búnir að reyna í Noregi og í Kanada og fjarlægðin gerir nú fjöllin blá og menn væntu mikils af þessu kvótakerfi. Og ég segi fyrir mína parta að ég var ekkert mót- fallinn því að prófa aðra leið. En mig grunaði ekki að það myndi snúast á þessa sveif. Það hefur ekki leitt til fækkunar skipa eða hag- kvæmni í útgerð, heldur þvert á móti stuðlað að fjölgun skipa og offjárfestingu. Það er í því stórt gat hvað snertir báta undir tíu lest- um þar sem óeðlileg fjölgun hefur átt sér stað. Kerfið ber í sér brota- lamir sem geta kollvarpað tilveru heilla byggðarlaga, Þegar seldur er kvóti til varanlegrar eignar úr byggðarlagi þá er ekki spurning um það að þessi byggðarlög fara á hliðina. Hver á þá að bjarga þeim? Þá er auðvitað ennþá á dagskrá að ríkisvaldið bjargi þeim. En það er ekki bæði hægt að hafa frjálsan framsalsrétt og færa svo einhverj- um manni peninga eða kvóta. Ef Halldór Hermannsson. hann verður undir þá á að rétta hann við. Hvað meina menn með þessu. Við getum tekið Patreks- fjarðardæmið í sumar sem leið. Þá horfði heilt byggðarlag fram á það, að megnið af þorskkvótanum var farið úr plássinu. Þá var það álit forsætisráðherra, að það kæmi til greina að færa Patreksfirðingum viðbótarkvóta, það átti allt í einu að fara bæta við heildarþorskafl- ann. Halldór Ásgrímsson sagði það aldrei koma til greina. En hann benti á aðra grein af sama meiði, það mætti gjarnan færa Patreksfirðingum fé úr sjóðum ríkisins til þess að þeir gætu keypt kvóta. Ef þessir menn ætla svo að halda tii streitu frjálsu framsali á kvóta með þessum nýju frum- varpsdrögum, að það bjargi öllum málurn við, og takmarki heildar- afla, þá er það ferlegt ef þessi byggðastefna verður látin gilda. Að mönnum verði færður kvóti eða peningar. Þá er þetta kerfi fallið um sjálft sig af völdum höf- unda þess.“ Hagsmunapakkinn Nú er það staðreynd að flotinn hefur ekkert minnkað, þvert á móti hefur hann stækkað: „Kvótalögin, allt frá 1984, hafa hvorki orðið til þess að minnka heildaraflann né fækka skipum. Það er alltaf verið að auka við skipaflotann og skelfilegt að svo skuli vera. Þess vegna segja út- gerðarmenn og viðurkenna þar með að kvótakerfið hefur mistek- ist í flestum greinum.; Tilgangur- inn helgar meðalið, við verðum að eignast miðin til þess að geta verndað þau og náð hámarksnýt- ingu. En hafa menn gert sér grein fyrir því að á um það bil fimm árum, þá verður miðunum skipt niður á fjölskyldur og einstaka fyrirtæki. Hafa menn athugað, að það koma eftirkomendur eftir okkur. Við skulum segjaárið 2000. Þá koma ungir menn fram og segja: Hvað? Það er bara búið að skipta upp öllum miðunum hér fyrir einstaka menn og einstaka ættir. Hvað er á seyði? Eru menn tilbúnir að standa frammi fyrir þessum gjörningum sínum, þegar þar að kemur? Ég er ekki alveg viss um það. Koma menn til með að una þessu fyrirkomulagi í fram- tíðinni? Ég er alveg með á frjálsri samkeppni. En ef menn vilja ekki láta réttkjörin stjórnvöld taka þátt í nokkrum sköpuðum hlut, þá sé ég ekki hvers vegna er verið að kjósa menn á þing. Við getum bara ráðið einhverja menn eins og Hannes Hólmstein sem þykist vita allt milli himins og jarðar og rúm- lega það. Við þurfum þá ekki að kjósa neina löggjafarsamkundu.“ Eignast duglegir formenn ekki lengur hlut í bát? Sagan hefur nú verið sú, að dugnaðarformenn eignuðust hlut í skipi, síðan kannski heilt skip. Við skulum benda á Einar Guð- finnsson sem hafði þann hátt á að láta formennina eiga með sér bát- ana og gekk prýðilega. Nú er ekki minnst á það. Útgerðarmenn eiga að fá miðin til að vernda þau. Ég spyr eru útgerðarmenn á sjó? Ég hef bara ekki séð það yfirleitt. Það eru sjómenn, stýrimenn, vélstjórar og hásetar, þetta eru mennirnir sem eiga að vernda miðin. En hversu vænt mun þeim þykja um þau mið, sem þeir eiga aldrei og munu í raun aldrei öðlast hlutdeild í, nema þá sem þjónar einstakra útgerðarmanna? Mér finnst ein- kennilegt að forsvarsmenn sjó- manna og einkum ungir sjómenn, skuli horfa þegjandi á þetta og samþykkja þetta. Ég er bara alveg undrandi á því. Eini gærusnepillinn Svo segja menn að þetta sé eina leiðin, þessi gærusnepill, sem ég hef kallað svo. Þessi sami snepill sem menn eru búnir að togast á um síðan 1984, það er bara af því að menn hafa ekki getað séð út fyrir styrjöldina sem búin er að geisa um þennan hagsmunapakka. Og það verður að bæta því við, að þessir háskólamenntuðu menn, sem eru að fjalla um fiskveiði- stjórn, þá vantar alla þekkingu og tilfinningu fyrir eðli fiskveiða, og fiskimannseðlinu og háttu útgerð- armanna. Það skortir á þetta þegar þeir eru að tala um auðlindaskatt- inn og sölu á veiðileyfum. Það eru hinar öfgarnar. Menn hafa ekki reynt til þrautar að koma sér sarnan um velviljað kerfi, sem skil- aði árangri." Bannhelgi á auðlindaskatti? I hugmyndum Einars Hreins- sonar og Halldórs Hcrmannssonar um fiskveiðistjórn er gert ráð fyrir að Ríkissjóður selji afgangskvóta, þarna er um að ræða heimildir skipa til að vciða þann fisk, sem skip hafa ekki getað náð þrátt fyrir heimildir, en slík kvótasala færi fram ársþriðjungslega: „Þetta eru kannski 40-50 þúsund tonn í það mesta sem um er að ræða og stjórnvöld hefðu fyrir sinn snúð, til þessa að kosta fiskveiði- stjórn og hugsanlega til hafrann- sókna. Þetta yrði í mesta lagi tíu prósent. Það fé yrði líka notað til að kaupa gömul skip í úreldingu, kaupa menn út úr þessu. Og fyrst að ríkið á að halda áfram að stjórna þessu, þá er það ekki gert peningalaust. Það virðist bara komin skelfileg hugmyndaleg

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.