Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Qupperneq 6
vestfirska
TTABLADID
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ SÍMI4011
SÚÐAVÍK
— þeir komast
heim svona
endrum og eins
Bessi landaði á mánudag um 80
tonnum og Haffari landaði einnig
á mánudag um 50 tonnum. Hluti
af afla Haffara var settur í gáma og
varð skipið að fara til ísafjarðar til
löndunar af þeim sökum, enda
voru samgöngur erfiðar landleið-
ina til Súðavíkur vegna snjóa.
Ekki er ólíklegt að Halldór Jóns-
son hjá Frosta hafi bölvað ófærð-
inni hressilega, en hann fór til ísa-
fjarðar á laugardag til að taka þátt
í dómnefndarstörfum vegna.
söngvakeppni sjónvarpsstöðva.
Skemmst er frá því að segja að
ekki komst Halldór til Súðavíkur
aftur fyrr en á mánudag og þá sjó-
leiðina. Sömu sögu mun vera að
segja af fleirum og mun Frosti
Gunnarsson verslunarstjóri hjá
Kaupfélagi ísfirðinga sem einnig
tók þátt í dómnefndarstörfum vera
orðinn því nokkuð vanur að kom-
ast ekki heim til Súðavíkur eftir
vinnu nema endrum og eins.
BOLUNGARVÍK
— Júpíter mokar
upp loðnunni
Heiðrún landaði 64 tonnum á
mánudag. Dagrún átti að selja um
140 til 150 tonn af karfa í Pýska-
landi í gær. Júpíter landaði full-
fermi eða um 1200 tonnum á
þriðjudag. Hann landaði einnig á
fimmtudag í síðustu viku um 1205
tonnum og landaði svo á Eskifirði
um helgina. Veiðisvæði loðnubáta
mun nú vera komið vestur fyrir
Ingólfshöfða. Sólrún var í höfn á
þriðjudag.
Þjóðólfur fór tvo róðra í síðustu
viku og vra með 2,6 tonn. Kristján
var með 19 tonn í fimm róðrum.
Jakob Valgeir var með 21 tonn í
fjórum róðrum. Flosi var með 46
tonn í fimm róðrum.
BÍLDUDALUR
— ný andlit
Sölvi Bjarnason landaði 55
tonnum á laugardag og fór aftur á
veiðar á þriðjudagsmorgun. Það
var komin rjómablíða á Arnarfirði
á þriðjudag og rækjubátar flestir
ef ekki allir á sjó.
Á sunnudagskvöldið fréttist af
Aðalvíkinni sem hafði flúið undan
veðri inn á Arnarfjörð. Bílddæl-
ingar sem þekktir eru fyrir gest-
risni hóuðu að sjálfsögu í strákana
og voru þeir drifnir á spilavist um
kvöldið. Var þetta að vonum upp-
lyfting fyrir skipverja í brælunni og
kannski ekki síður fyrir þorpsbúa
sem þykir tilbreyting í að sjá ný
andlit þegar allar aðkomuleiðar
eru ófærar.
Júlíus Geirmundsson að veiðum út af Vestfjörðum.
TÁLKNAFJÖRÐUR HÓLMAVÍK ÍSAFJÖRÐUR
— aflinn að glæðast hjá — gott veður á þriðjudaginn — Júlíus fiskar fyrir 18,5 milljónir
togaranum
Togarinn Tálknfirðingur land-
aði á sunnudag um 82 tonnum og
setti í tvo gáma. Var aflinn talsvert
blandaður. Vinna er því komin í
gang hjá frystihúsinu og hélt togar-
inn aftur á miðin á þriðjudags-
morguninn.
Hjá Þórsbergi var það að frétta
að María Júlía fór fimm ferðir og
var með 36 tonn. Þá var máni með
20 tonn í þremur ferðum í síðustu
viku.
PATREKSFJORÐUR
i
— Þrymur heitir
nú Latravík BA 66
Vestri var með 49,7 tonn í þrem-
ur löndunum í síðustu viku, en
hann er með tvöfaldan gang. Pat-
rekur var þá með 48,3 tonn einnig
í þrem löndunum. Þrymur hefur
nú fengið nýtt nafn og heitir í dag
Látravík BA 66 kom til heima-
hafnar eftir slippferð og nafnbreyt-
ingu þann 11. febrúar.
Hjá Straumnesi fengust þær
fréttir að ágætur afli hafi verið hjá
línubátum í síðustu viku. Þá var
Tálkni með 32,6 tonn í fjórum
róðrum. Andey fór fimm róðra og
var með 43,6 tonn.
BRJANSLÆKUR
1
—brösótt sjósókn
vegna lélegs
tíðarfars
Skelbátar komust á sjó á þriðju-
dag. Leiðinda brælutíð hefur verið
á miðum bátanna og var til dæmis
stöðug bræla frá 24. janúar til 4.
febrúar. En þegar bátarnir reru
þann 4. febrúar voru þeir með 8 og
10 tonn. Þann 6. febrúar var
Magnús með 10,5 tonn og Ingi-
björg var þá með 2 tonn. Daginn
eftir var Magnús með 9,5 tonn og
Ingibjörg tæp 9 tonn. Þann 8.
febrúar var Magnús með 2 tonn og
Ingibjörg 2,5 tonn. Annars hefur
veðrið verið afleitt fram undir
þetta, en á þriðjudag var komin
sól og gott veður.
Hilmir, Freyr og Sigurbjörg
voru með rúm 3 tonn af rækju hver
í síðustu viku. Ásbjörg og Guðrún
Ottósdóttir voru með tæpleg 6,1
tonn hvor. Donna var með rúm
2,4 tonn.
Besta veður var komið á Hólma-
vík á þriðjudaginn og verið að
moka landleiðina suður.
DRANGSNES
1
— um 9 tonn af
rækju á land
í síðustu viku
Grímsey, Sundhani, Gunnhild-
ur, Stefnir og Gjörvi voru allir með
rúm 3 tonn. Gunnvör var með 2,7
tonn tæp. Orvar var með 2,8 tonn
rúm og Donna var með 617 kíló af
rækju í síðustu viku.
SUÐUREYRI
1
— togarinn með
55 tonn
á mánudag
Sigurvon var með um 41 tonn í
síðustu viku eftir fimm veiðiferðir.
Ingimar var með 5,8 tonn. Elín
Þorbjarnardóttir landaði 22,5 tonn
rúmum á mánudag í síðustu viku
og landaði nú á mánudaginn aftur
um 55 tonnum. Hélt togarinn aftur
á veiðar á þriðjudag. Vinnslan fer
því að komast í eðlilegt horf hjá
Freyju og von manna að veðrið fari
að verða skaplegra.
FLATEYRI
1
Júlíus Geirmundsson átti að
halda á miðin aðfararnótt mið-
vikudags. Hann landaði á þriðju-
dag frosnum fiskafurðum til út-
flutnings að verðmæti 18,5 milljón-
ir króna.
Páll Pálsson landaði á mánudag
um 60 tonnum og setti í einn gám.
Togarinn hélt aftur á miðin eftir
hádegi á þriðjudag.
Guðbjartur landaði á mánudag
um 52 tonnum. Línubáturinn Orri
var með 32 tonn og Guðný var með
um 43 tonn. Hálfdán í Búð landaði
um helgina um 50 tonnum. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
héldu línubátar á sjó á skrifstofu-
tíma á þriðjudag.
Togarinn Guðbjörg var með um
80 tonn sem landað var á mánudag
og sett var í þrjá gáma.
ÞINGEYRI
i
— Gyllir veiðir
í siglingu
Vísir var með 24,8 tonn rúm í
síðustu viku. Jónína landaði rúm-
um 25 tonnum hjá Hjálmi í síðustu
viku. Gyllir landaði tæpum 39
tonnum eftir fjóra daga í síðustu
viku. Hann landaði um 50 tonnum
á mánudag og er nú farinn að veiða
í siglingu.
— Sléttanes
með 51 tonn
Sléttanes landaði á mánudag um
51 tonni, en það var með rúm 22,6
tonn í síðustu viku. Þá var Fram-
nes með 25,1 tonn rúm, en landaði
á ísafirði í þessari viku. f síðustu
viku var línubáturinn Tjaldanes
var með 18,1 tonn í þrem róðrum.
Mýrafell var þá með 5 tonn rúm í
tveim róðrum. Björgvin Már var
með um 3 tonn og Bibbi Jóns var
með 4,8 tonn og fóru báðir þessir
bátar einn róður.
Viö mætingar og
framúrakstur á mjóu
(einbreiðu) slitlagi þarf
önnur hlið bílanna að
vera utan slitlagsins.
ALLTAF ÞARF
AÐ DRAGA ÚR FERÐ!
W'hk
M m.
mÉUMFERÐAR
Vráð
I
ísafjarðardjúp:
— tæplega 104
tonn af rækju á
land í síðustu viku
Þrátt fyrir leiðinlega tíð, fór þó
ekki svo að einhver rækja kæmi á
land úr Djúpinu í síðustu viku.
Hjá Bakka í Hnífsdal komu 24
tonn 164 kíló á land í síðustu viku.
Þar af var Finnbjörn með rúm 4,2
tonn. Gunnar Sigurðsson var með
rúm 4,9 tonn, Haukur var með tæp
5,2 tonn, Ritur var með rúm 3,7
tonn og Sigurgeir Sigurðsson var
með rúm 6 tonn.
Hjá Frosta í Súðavík komu 12
tonn 227 kíló af rækju á land. Þar
af var Guðmundur Ásgeirsson
með rúm 5,5 tonn, Hafrún var með
rúm 2 tonn og Stundvís var með
tæp 4,7 tonn.
Hjá íshúsfélagi Bolungarvíkur
komu 16 tonn 287 kíló á land. Þar
af var Bryndís með rúm 4,4 tonn,
Húni var með tæpleg 1,1 tonn,
Neisti var með rúm 2,4 tonn, Oli
var með rúm 5 tonn og Sædís var
með rúm 3,2 tonn.
Hjá ísveri á ísafirði komu 26
tonn og 900 kíló á iand. Þar af var
Guðrún Jónsdóttir með rúm 1,1
tonn, Gunnvör var með rúm 4,9
tonn, Halldór Sigurðsson var með
tæp 5,3 tonn, Kristín Jónsdóttir
var með rúm 2,8 tonn, Sæbjörn
var með rúm 3,9 tonn, Ver var með
rúm 3,8 tonn og Örn var með rúm
5 tonn.
Hjá Niðursuðuverksmiðjunni
hf. á ísafirði komu 20 tonn 796
kíló á land. Þar af var Aldan með
tæp 6 tonn, Auðunn var með tæp
5,6 tonn, Dagný var með rúm 2,2
tonn, Gissur hvíti var með rúm 4,1
tonn og Hafrún var með rúm 2,8
tonn.
Hjá Rækjustöðinni á ísafirði
komu 3 tonn 553 kíló á land í síð-
ustu viku. Þar af var Halldór Sig-
urðsson með 799 kíló, Ver var með
rúmlega 1,1 tonn og Örn var með
rúmlega 1,6 tonn.
Valur var sem fyrr við stofnmæl-
ingarannsóknir á vegum Hafrann-
sóknastofnunar og var með rúm
10,1 tonn í síðustu viku.
ísafjarðardjúp:
Skipting rækju-
afla eftir
svæðum á
haustvertíð
- yfir þrjú þúsund og fimm hund-
ruð klukkutímar fóru í að veiða
rúmlega eitt þúsund og fimmtíu
tonn á haustvertíðinni
Skipting rækjuafla í ísafjarðar-
djúpi eftir svæðum í október varð
sem hér segir:
f Inndjúpi veiddust 79 tonn og
44 kíló og var togtími alls 172,2
klukkustundir. í Skötufirði veidd-
ust 52 tonn 201 kíló og var togtím-
inn 123,6 klukkustundir. í Útdjúpi
veiddust 60 tonn 178 kíló og þar
var heildar togtíminn 193,8
klukkustundir. Þá veiddust 68
tonn 160 kíló í Jökulfjörðum og
var togtíminn þar 238,4 klukku-
stundir.
Skiptin rækjuafla í nóvember
var sem hér segir:
í Inndjúpi veiddust 367 tonn 852
kíló og var þá togað í 1182,4
klukkustundir. í Skötufirði veidd-