Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Blaðsíða 7
vestfirska
rRETTABLADID
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ SÍMI4011
ust 98 tonn 780 kíló og reyndist
togtíminn vera 299,1 klukkustund.
í Útdjúpi veiddust 97 tonn 621
kíló og var togtíminn 332 klukku-
stundir. Þá veiddust 29 tonn 320
kíló í Jökulfjörðum og var heildar-
togtíminn þar 184,9 klukku-
stundir.
Skipting rækjuafla í desember
var sem hér segir:
í Inndjúpi veiddust 93 tonn 383
kíló og var þá togað f 372,6
klukkustundir. í Skötufirði veidd-
ust 40 tonn og 100 kíló og var tog-
tíminn þar 151,2 klukkustundir. í
Útdjúpi veiddust 50 tonn og 200
kíló á 250,3 klukkustundum. í
Jökulfjörðum veiddust 13 tonn 746
kíló og var togtíminn þar 81,6
klukkustundir.
Það hafa því farið 3582,2
klukkustundir í að veiða 1,050,585
tonn á tímabilinu otóber til des-
ember á síðastliðnu ári í Djúpinu
öllu sem jafngildir 293,3 kílóum
veiddum að meðaltali á hverri
klukkustund sem veiðarnar tóku.
hk.
Um hvao snýst nýtt
kvótfrumvarp
Á fundi sjávarútvegsráðherra á
ísafirði gerði Árni Kolbeinsson,
ráðuneytisstjóri grein fyrir drögum
að nýju frumvarpi um stjórn fisk-
veiða. Og með því að margir les-
endur Vestfirska fréttablaðsins
áttu þess ekki kost að sitja
fundinn, sakir ófærðar og fj arlægð-
ar verður hér gerð nokkur grein
fyrir nýmælum í fiskveiðistjórn, ef
þetta eða líkt frumvarp nær fram
að ganga fyrir næstu áramót.
Það sem vekur fyrst athygli er,
að nú er ætlunin að setja lög um
stjórn fiskveiða til ótakmarkaðs
tíma, það er með öðrum orðum
verið að festa kvótakerfið í sessi.
Áður hafa lög um fiskiveiðistjórn
gilt til eins, tveggja eða þriggja ára
og um næstu áramót rennur út
þriggja ára skeið kvótakerfis með
afla- og sóknarmarki.
í þessum nýju drögum er aðeins
gert ráð fyrir aflamarki og þá er
það nýmæli að leyfður heildarafli
botnfisktegunda skal miðaður við
veiðar á tólf mánaða tímabili, frá
1. september ár hvert til 31. ágúst
á næsta ári og nefnist það tímabil
fiskveiðiár.
Leyfi til tómstundaveiða hefur
fengið mikla umfjöllun í fréttum
og Árni Tryggvason, leikari látið
ýmis ummæli falla um þann þátt
frumvarpsins. Leyfi til tómstunda-
veiða skal bundið við skip, það
skal veitt þeim er þess óska til eins
árs í senn. Tómstundaveiðileyfi
veitir heimild til að stunda fisk-
veiðar með handfærum án sjálf-
virknibúnaðar til eigin neyslu.
Afla sem veiddur er skv. heimild í
þessari grein er óheimilt að selja
eða fénýta á annan hátt. Ákveðið
gjald verður að reiða af hendi fyrir
þetta leyfi.
Varðandi sölu á fiskiskipi, þá
hefur orðið að fá umsögn sveitar-
félags og verkalýðsfélags um sölu-
na. Nú ber að tilkynna sveitar-
stjórn og útvegsmannafélagi að
sala sé á dagskrá, en einnig ber að
auglýsa í lögbirtingablaðinu að út-
gerð hyggist selja fiskiskip. Verði
gerður bindandi samningur um
sölu fiskiskips innan mánaðar eftir
birtingu tilkynningar, fylgir afla-
hlutdeild skipsins ekki við sölu.
Þetta tekur ekki til opinna báta.
Heimilt að selja aflahlutdeild
Heimilt verður að selja aflahlut-
deild skips að hluta eða öllu leyti
og sameina hana hlutdeild annars
skips enda leiði flutningur aflahlut-
deildar ekki til þess að veiði-
heimildir þess skips sem flutt er til,
verði bersýnilega umfram veiði-
getu þess. Þá er heimilt að flytja
aflamark milli skipa sömu útgerðar
eða skipa sem gerð eru út frá sömu
verstöð, enda sé um jöfn skipti að
ræða að mati ráðuneytisins.
í athugasemdum við lagafrum-
varpið og sem fylgja frumvarps-
drögunum eru meginbreytingar
frá núverandi kerfi dregnar saman
í átta liði:
1. Lögin verði ótímabundin eins
og algengast er um lagasetningu
hér á landi.
2. Botnfiskveiðiheimildir verði
miðaðar við tímabilið 1. septem-
ber til 31. ágúst ár hvert en ekki
almanaksárið eins og nú er. Nefn-
ist þetta tímabil fiskveiðiár.
3. Útgáfa veiðileyfa verði ein-
földuð verulega frá því sem nú er
og gerð eru skil milli veiða í at-
vinnuskyni og tómstundaveiða.
4. Óheimilt verði að fjölga öllum
gerðum og stærðum fiskiskipa sem
fá leyfi til veiða í atvinnuskyni.
Jafnframt verða teknar upp sam-
ræmdar endurnýjunarreglur fyrir
þessi skip.
5. Tekið verði upp eitt samræmt
aflamarkskerfi. Aflahlutdeild
einstakra fiskiskipa verði ákvörð-
uð í upphafi árs 1991 á þeim teg-
undum, sem sæta ákvæðum um
leyfilegan heildarafla. Sóknar-
mark verði afnumið og sérreglum
um veiðar smábáta fækkað frá því
sem nú er.
6. Tekinn verði upp opinber til-
kynningaskylda við sölu á fiski-
skipum.
7. Hámarksálag vegna útflutn-
ings á óunnum þorski og ýsu verði
hækkað úr 15% í 20% en há-
marksálag á öðrum botnfiskteg-
undum verði 15%, sem er óbreytt
frá gildandi lögum.
8. Flestar meginreglur fiskveiði-
stjórnar verði lögbundnar og þeim
atriðum sem ætluð eru ráðherra til
ákvörðunar verði fækkað.
(ickvii
Kirkjulff
Kirkjuskóli ísafirði.
Laugardag kl. 11:00.
Kirkjuskóli Hnífsdal.
Laugardag kl. 10:00.
Messa ísafjarðarkapellu.
Sunnudag kl. 11.
Messa Suðureyrarkirkju.
Sunnudag kl. 14:00:
Leiðrétting við
Vísnaþátt
Valgerður Kristjánsdóttir var
sögð kona Kristjáns smiðs í síðasta
vísnaþætti.
Hér var farið kynslóðavillt, því
hún var dóttir hans. Er fljótfærni
og flumrugangi undirritaðs um að
kenna og beðist velvirðingar á.
Kona Kristjáns var Kristín Jóns-
dóttir Halldórssonar bónda á Ytri-
Veðrará, en hann var bróðir Torfa
Halldórssonar á Flateyri.
Þá er vísan „Margur held ég
fengi frið... “ talin vera eftir
Kristján Grím, þann sem nefndur
er í vísunni á undan, en hún var
svar við þessari.
Pétur Bjarnason.
Framtalsaðstoð
Frágangur skattframtals
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Bókhaldsþjónusta
Bókhaldsvinna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Skattuppgjör. Útreikningur VSK og
tölvuvinnsla á viðskiptamannabókhaldi þ.m.t.
reikningsyfirlit og gíróseðlar.
Launaútreikningur
Útreikningur launa og frágangur
allra fylgigagna. Tölvuvinnsla.
Fylkir Ágústsson
Fjarðarstræti 15,
400 ísafirði 53“ 3745.
FJÖLSKYLDUFARGJALD
FLUGLEIDIR
INNANLANDSFLUG
Fjölskyldufargjald gildir á allar brottfarir
* 900 kr. flugvallarskattur innifalinn.
50%AFSLÁTTUR FYRIR MAKAOG BÖRN
VERÐDÆMI
Tveir fullorðnir og tvö börn.
Aðeins 4.816,-á mann.*
Forsvarsmaður
Maki
2-11 ára
9.482,-
4.891,-
2.445,-
ísafjörður - Reykjavík
Flug no. Brottf.
FI-013ET-
FI-015
FI-015
FI-017
FI-023