Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Síða 8

Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Síða 8
Allar málnincfarvörur og verkfæri lllllllllllllllllllll Pensillinn lllllllllllllllllllll ISPRENT GRAFÍKTÆKNI HF. PRENTSMIÐJA - ÚTGAFA Það hefur verið nóg að gera í snjómokstri á Suðureyri. Suðureyri: Þverlyndur þorri — ekki mun stytta upp fyrr en í dymbilvikunni að sögn fornviturs sjómanns Teknir í bakaríið Heyrst hefur að Alþýðu- flokksmenn á ísafirði hyggist fá atvinnu bakara á listann hjá sér fyrir næstu kosningar. Segja gárungarnir að honum sé ætlað að bæta úr þeim vand- ræðum sem þegar er búið að baka í bæjarmálunum. Firmakeppni Sunddeildar Vestra Okkar maður, Tryggvi G. Inga- son stóð sig með prýði í firma- keppni Sunddeildar Vestra sem fram fór í Sundhöll Isaf jarðar þann 28. janúar síðastliðinn. Lenti hann í fjórða sæti og bætti sig um 120 stif>. I fyrsta sæti á mótinu varð Kristjana Einarsdóttir sem synti í 800 metra skriðsundi fyrir Heild- Verslun Hafsteins Vilhjálmssonar hf. og bætti sig um 171 stig. í öðru S^eti varð Sæþói; Harðarson sem synti 50 metrajTskriðsund fyrir Myndás hf. og bætti sig um 130 stig. í þriðja sæti varð Linda Björk Magnúsdóttir sem synti 800 metra skriðsund fyrir Eyr hf. og bætti sig um 126 stig. I fjórða sæti varð svo Tryggvi G. Ingason sem synti 800 metra skriðsund fyrir Vestfirska fréttablaðið eins og áður sagði og bætti sig um 120 stig. í fimmta til sjötta sæti varð Arna Lára Jóns- dóttir sem synti 800 metra skrið- sund fyrir ísver hf. og bætti sig um 117 stig og sömu framförum náði Hlynur Tr. Magnússon sem synti 800 metra skriðsund fyrir Orkubú Vestfjarða. Þá kom Ingi Pór Ágústsson í sjöunda sæti og synti 800 metra skriðsund fyrir Pólinn hf. og bætti sig um 102 stig. I átt- unda sæti varð Gunnar Ingi Haf- steinsson og synti hann 800 metra skriðsund fyrir Vélsmiðjuna Pór hf. og bætti sig um 90 stig. í níunda sæti varð Sigríður I. Birgisdóttir sem synti 800 metra skriðsund fyrir íshúsfélag ísfirðinga hf. og bætti sig um 83 stig. í tíunda sæti varð svo Sæþór Harðarson sem synti 800 metra skriðsund fyrir Reikni- stofu Vestfjarða og bætti sig um 82 stig. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin verða afhent á árlegu sundmóti Sunddeildar Vestra sem haldið verður 10. til 11. mars n.k. Snorri Sturluson, Suðureyri Súgfirðingar hafa ekki síður farið á mis við þverlyndan þorrann fremur en aðrir Vestfirðingar. Strembinn reynist hann nú sem oftar og ætti engum að koma á óvart hér norður við Dumbshaf. Pað snjóaði geysimikið á stuttum tíma og kom það sumum nokkuð í opna skjöldu. Á Suðureyri er engin snjóflóðahætta, en handan fjarðarins á Norðureyri hafa aftur á móti oftast komið snjóflóð í byggð á íslandi að því er sögur herma. Snjóflóð þar valda oft flóð- bylgju sjávar sem gengið getur á land í þorpinu handan fjarðar svo ekki erum við með öllu óhult. Starfsmenn siglingamálastofn- unar og tryggingafélagsins Norsk Veritas hafa nú skoðað togarann Bessa, en eins ogfram hefur komið í fréttum hafa plötur dældast á stefni skipsins og bönd bognað. Plöturnar eru þynnri en gert var ráð fyrir þegar skipið var hannað, eru sjö millimetrar í stað tólf. Hafa Nokkrar skvettur hafa komið úr Norðureyrargilinu en engin flóð svo heitið geti. Lítið hefur gefið á sjóinn síðustu vikur og atvinna því í lágmarki. Ekki hafa menn þó tapað líkam- legu atgerfi sínu í atvinnuleysinu, því nóg hefur verið að gera í snjómokstri. Það þarf að moka upp hús, svo nágranninn geti aflað sér vista og kíkt til veðurs. Þaö þarf að leita að týndum bílum í sköflum og merkja þá svo ekki fari fleiri í kjaftinn á snjóruðningstækj- unum. Og það þarf að moka upp bátana í höfninni svo snjórinn kaffæri þá ekki fleiri í orðsins fyllstu merkingu, en 5 tonna trilla, Percy IS, sökk undan snjófarginu á dögunum. verið getgátur uppi um að orsaka þessara skemmda sé einmitt að leita til hönnunar á stefni skipsins. Áætlað er að Bessi fari í siglingu um miðjan mars og hugsanlega fer skipið í slipp í Noregi eftir þá löndun, ellegar ekki fyrr en í maí, en þá á Bessi einnig löndun. Pegar svo viðrar sem nú að undanförnu, eru samgöngur okkar Súgfirðinga nánast engar. Ein- staka ferð með snjóbíl er nánast eina leiðin úr firðinum. Síðasta mánuðinn hefur akvegurinn verið opinn tvisvar sinnum hluta úr degi. Því mætti ætla að mikið væri lagt upp úr traustum flugsamgöngum þar sem svo háttar til, en svo er þó aldeilis ekki. Þvert á móti er nánast búið að leggja þær af svo ótrúlegt sem það hljómar nú á tækniöld. Þótt skíðaganga sé vísast með holl- ari íþróttum, eru þó ekki allir sem notað geta þá lausn í samgöngu- málum. Steingrímur samgöngu- málaráðherra kom vestur um daginn. Engir komust héðan á fund hans, en ég held ég taki ekkert of djúpt í árinni þótt ég full- yrði að allir Súgfirðingar standi fast með honum í áætlunum um byggingu jarðganga milli byggða hér vestra og telji reyndar að jarð- göng séu skilyrði fyrir frekari þróun byggðar á þessu svæði. Glúrnir veðurspámenn höfðu það á orði fyrr á þorranum að bylnum linnti þann 9. febrúar á nýju tungli og tæki þá við asahláka til vors. Sú spá rættist ekki og ræddi ég því í gær miðvikudag við gamlan og .fornvitran sjógarp um veður- horfur. Sá gamli taldi að lítið mundi stytta upp fyrr en í dymbil- vikunni, en þangað til eru rúmar sex vikur. Við skulum bara vona að sú spá rætist ekki heldur. Bikarmót SKÍí göngu á ísafirði Á bikarmóti SKÍ í göngu sem haldið var á ísafirði um síðustu helgi, var keppt í flokki karla 20 ára og eldri og í flokki karla 17 til 19 ára. í eldri flokknum sigraði Haukur ( Eiríksson frá Akureyri á 46 mín- útum og 23 sekúndum, en gengnir voru 15 km. í öðru sæti varð Sig- urður Aðalsteinsson frá Akureyri sem fékk tímann 52,00 mín., og í þriðja sæti varð Þröstur Jóhannes- son sem fékk tímann 56,09 mínút- ur. í flokki 17 til 19 ára var keppt í 10 km. göngu og varð Sölvi Sölva- son frá Siglufirði sigurvegari með tímann 37,07 mínútur. Daníel Jakobsson ísafirði varð annar með tímann 37,30 mínútur. Þriðji varð Óskar Jakobsson ísafirði með tím- ann 41,00 mínútur. Þá mætti Bjarni Brynjólfsson ísafirði einnig til leiks, en hann hætti keppni eftir fyrsta hring. Úrslit í opnu þorramóti SKÍígöngu Á opna þorramóti SKÍ í göngu sem fram fór á Isafirði síðastliðinn laugardag var keppt í þrem flokkum. Það voru 15 til 16 ára drengir sem gengu 7,5 km., 13 til 14 ára drengir sem gengu 3,5 km. og í flokki 13 til 15 ára stúlkna voru gengnir 3,5 kílómetrar. Sigurvegari í flokki 15 til 16 ára drengja varð Kristján Ólafur Ólafsson Akureyri sem náði tím- anum 25,24 mínútur. Annaríþeim flokki varð Gísli Einar Árnason Isafirði sem fékk tímann 26,30 mínútur. Þriðji varð Kári Jó- hannesson Akureyri og fékk hann tímann 27,22 mínútur. Fjórði varð Árni Freyr Elíasson ísafirði sem gekk vegalengdina á 28,08 mín- útum. í flokki drengja 13 til 14 ára varð Hlynur Guðmundsson ísafirði sig- urvegari á tímanum 14,35 mín- útum. Annar varð Arnar Pálsson ísafirði á 13,54 mínútum og þriðji varð Eyjólfur Þráinsson scm gekk á tímanum 30,52 mínútum. í flokki stúlkna 13 til 15 ára varð Guðbjörg Sigurðardóttir ísafiröi sigurvegari á tímanum 17,46 mínútum. Viðgerð framundan hjá Bessa SIEMENS — PHILIPS — JVC Sjónvörp — videó — hljómflutningstæki í MIKLU ÚRVALI r^, pÓLL|||N HF ® 3092 Húsgagnaviðgerðir Eru húsgögnin þín farin að lýjast? Hafðu þá samband, eða komdu með þau og við reynum að lagfæra þau. STEINIÐJAN HF. Steiniðjan h/f Timbursala S* 3472

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.