Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1990, Page 1
vestfirska
FRÉTTABLAÐIÐ
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Póstfaxsími 4423
10. tbl.
8. mars 1990
16. árg.
Jarðgöng
og holugjöld
Um þessar mundir er verið að
kynna hjá stjórnarflokkunum drög
að frumvarpi sem miðar að því að
flýta jarðgangagerð á Vestfjörð-
um. Þar er gengið út frá því að hér
fyrir vestan verði hafin verði inn-
heimta á aukagjaldi á bensíni og
dieselolíu 1. apríl n.k.
Ef til þess kemur verða það
bensín- og olíukaupendur á Þing-
eyri, í Mýrahreppi og Mosvalla-
hreppi, á Flateyri og Suðureyri, í
Bolungarvík og Súðavík og á ísa-
firði sem koma til með að greiða
krónur 4,50 ofan á gildandi verð á
olíu- og bensínlítra.
Áætlaður heildarkostnaður við
jarðgöngin er um þrír milljarðar
króna. Vegaáætlun gerði ráð fyrir
að framkvæmdir við göngin hæfust
á árinu 1992 og þeim lyki 1999, en
ef tillögur samgönguráðherra ná
fram að ganga mun verkið hefjast
ári fyrr, eða á næsta ári, og verða
lokið síðla árs 1995.
En til að það sé hægt er þetta
eldsneytisgjald talið nauðsynlegt,
auk þess sem lagt er til að tekið
verði lán allt að 1,3 milljörðum
króna á árunum 1990-’94, sem
greitt verði upp á þremur árum
eftir að framkvæmdum lýkur með
fé af vegaáætlun, sparnaði af
snjómokstri og áðurnefndu elds-
neytisgj aldi.
Áætlað er, að eldsneytisgjaldið
skili um 18 milljónum króna á ári
fyrstu tvö árin, 20 milljónum á ári
1993-1995 og 27 milljónum á ári
fram til ársloka 1998, en þá á inn-
heimtu „holugjaldsins“ að ljúka.
Samgönguráðherra hefur lagt til
að skipuð verði sjö manna nefnd
með fulltrúum úr samgönguráðu-
neyti, heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti, félagsmálaráðuneyti,
Byggðastofnun og menntamála-
ráðuneyti ásamt tveimur fulltrúum
Vestfirðinga, sem tilnefndir yrðu
af Fjórðungssambandi Vestfirð-
inga. Nefndinni er ætlað að endur-
skoða áform um framkvæmdir og
fjárfestingar opinberra aðila og
fyrirkomulag opinberrar þjónustu,
sem hagræða mætti eftir komu
fyrirhugaðra jarðganga.
hge
Bj órkvöld
á Bíldudal
Leikfélagið Baldur á Bíldudal
hélt heljarmikið bjórkvöld síðast-
liðinn laugardag við góðar undir-
tektir heimamanna.
Að sögn Hannesar Friðriksson-
ar var þarna um tveggja tíma
skemmtidagskrá að ræða, með
söng, gríni og gleði. Var skemmt-
unin sett upp í kabarettstíl og
mættu um 100 manns á samkom-
una og var mikið fjör. Sagði
Hannes að Leikfélagið Baldur væri
með þessu að undirbúa sig vegna
25 ára afmælishátíðar sem verður
í maí. Leikstjóri hefur verið ráðinn
til að stýra hátíðinni í vor, en það
er enginn annar en Bílddælingur-
inn og leikarinn Þröstur Leó
Gunnarsson sem starfað hefur hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Er hann
væntanlegur vestur nú í aprílmán-
uði. Hvað gert verður á hátíðinni
í vor sagði Hannes að væri leyndar-
mál enn sem komið er. Þó taldi
hann óhætt að segja að dagskráin
yrði eldfjörug og létt og ekki ólík-
legt að „eitthvað" yrði heima-
samið.
Öflug menningarstarfsemi hefur
verið á Bíldudal í gegnum tíðina
og leiklistarhefð sterk í plássinu.
Á fimmtudag í síðustu viku kom
Leikfélag Patreksfjarðar í heim-
sókn til Bíldudals og setti upp sýn-
ingu á leikritinu „Saga úr dýra-
garðinum" og fékk ágæta aðsókn.
Að sögn Hannesar lukkaðist sýn-
ingin vel og fékk góða dóma hjá
áhorfendum.
hk.
Er sjálfvirki sleppibúnaðurinn aðeins falskt öryggi fyrir sjómennina okkar?
Sjóslysið um síðustu helgi:
Sjálfvirkur sleppi-
búnaður virkaði ekki
Talsverð umræða er nú orðin
enn á ný um öryggismál sjómanna
í kjölfar þess að sjálfvirkur sleppi-
búnaður um borð í Guðmundi B.
Þorlákssyni virkaði ekki er hann
sökk í Jökulfjörðum nú á sunnu-
daginn.
Það hlýtur að vera mönnum
mikið umhugsunar- og áhyggju-
efni þegar það er orðið algengara
en ekki að sjálfvirkursleppibúnað-
ur, sem menn eru skyldaðir til að
hafa um borð, virkar ekki. Þá
vekur það mönnum falska öryggis-
kennd að vita af þessum búnaði í
bátnum og líkur eru á að menn
reyni síður að skera björgunarbát
lausan ef óhapp verður, þegar þeir
vita að um borð er björgunarbátur
sem „á að“ fljóta upp ef skipið
sekkur.
Ég hafði samband við Magnús
Jóhannesson siglingamálastjóra og
Hólmvíkingar eru mikið gleði-
fólk og ekki í vandræðum með
það, ef svo ber undir, að verða sér
úti um ástæður til hátíðarhalda.
Nú er Þorrinn á enda með öllum
sínum blótum og teitum, og Góa
tekin við völdum. Það er orðin
hefð fyrir því hjá Hólmvíkingum
að halda Góugleði ár hvert. Það
gerðu þeir líka á laugardaginn og
innti hann eftir því hvort von væri
á einhverj um úrbótum í þessu efni.
„Því er ekki að leyna að þetta
hefur verið okkur umhugsunar-
efni, og við erum með rannsóknir
í gangi á sleppibúnaði og höfum
verið í nokkurn tíma. Þær eiga að
afla okkur meiri vitneskju um
virkni þessa búnaðar við mismun-
andi aðstæður, en þessum rann-
sóknum er ekki lokið. Á bátum
undir átta metrum að lengd er ekki
gálgi eða skotbúnaður sem skýtur
bátum frá skipinu heldur einungis
búnaður sem á að losa bátana frá
þegar skip sekkur. Við höfum
viðurkennda skoðunarmenn sem
skoða skipin einu sinni á ári og
taka þá út björgunarbúnað um
leið.“
- Nú hefur því verið haldið
fram að árleg skoðun sé ekki nægi-
leg, þar sem þessi búnaður sé í
samkvæmt hefðinni sáu karl-
mennirnir á staðnum um allan
undirbúning og framkvæmd gleð-
innar.
Það er reglan á Hólmavík að
konurnar sjá um Þorrablótin og
karlarnir um Góugleðina.
Skemmtiatriðin eru frumsamin af
heimamönnum og söngvar og leik-
þættir eru fluttir með tilþrifum af
stöðugri seltu og hætta sé á að hanr>
ryðgi á mun skemmri tíma en ári.
Skipstjórinn á Guðmundi sagðist
telja að skoðun á þriggja mánaða
fresti væri nauðsynleg. Hvert er
þitt álit á þessu?
„Það er að sumu leyti nýr sann-
leikur fyrir okkur ef það liggur
fyrir að þessi búnaður þarf meiri
skoðun en árlega. Eitt af því sem
meiningin er að skoða núna er
m.a. hvernig þessi búnaður fer við
álag, og þá kemur það vonandi í
ljós hvort þarna sé einhver hætta á
tæringu eða ryðmyndun. Flestir
efnishlutar eru úr ryðfríu stáli sem
á ekki að rústa, þannig að það
kemur mér nú svolítið á óvart ef
þetta ryðgar“, sagði Magnús Jó-
hannesson siglingamálastjóri að
lokum.
hge
skemmtinefndinni sem kosið er í
ár hvert. „Þarna vinna menn stóra
Ieiksigra“, sagði viðmælandi blaðs-
ins á Hólmavík. Skemmtunin fór
hið besta fram og veislugestir voru
vel á annað hundrað.
Góugleðin fór fram í Sævangi í
Kirkjubólshreppi annað árið í röð,
því Hólmvíkingar eiga enn ekki
boðlegt félagsheimili. Það stendur
þó til bóta því í smíðum cr veglegt
íþrótta- og samkomuhús á Hólma-
vík. Verkinu miðar vel áfram, alls
er þetta framkvæmd upp á ríflcga
hundrað milljónir, og er bygging-
arhraði miðaður við efnahag sveit-
arfélagsins ár hvert!
hge
Góugleði
á Hólmavík
Tilboð á kjúklingum hlutuðum
KAUPFELAG ISFIRfllNGA
Aðalbúð
IH9
mm\
Reglubundnar ferðir
frá Reykjavík 6-7 sinnum í
mánuði til Vestfjarða
RÍKISSKIP
NÚTÍMA
FLUTNINGAR