Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1990, Side 2
vestlirska I
rRETTABLASIS
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ SÍMI4011
I vestfirska I
FRETTABLADID
Vestflrska fréttablaðiö kemur út síðdegis á fimmtudögum. Upplag 3750 eintök.
Blaðið er borið út ókeypis á hvert heimili ( öllu Vestfjarðakjördaemi. Auk þess eru
á fimmta hundrað áskrifendur utan Vestfjarða. Rltstjóm og auglýslngar: Aðal-
stræti 35, (safirði, sfmar 94-4011 og 94-3223. Póstfaxsfml: 94-4423. Rltstjórl og
ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon. Blaðamsnn: Hörður Kristjánsson og
Helga Guðrún Eiriksdóttir. Auglýslngar: Ingibjörg Daníelsdóttir. Útlitsteiknlng og
IJósmyndun: Hörður Kristjánsson. Útgefandi: fsprent-Grafíktækni h.f. Prent-
vlnnsla: (sprent, Aðalstræti 35, (safirði, 94-3223, frkvstj. Hlynur Þór Magnússon.
Vestflrska fróttablaðlð er í Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Vestflrska
fréttablsHt er aötii að upplagseftiriiti Verslunarráðs fslands.
Tekur Isafjarðarkaupstaður
þátt í þjóðarsátt?
Nýlega barst bæjarstjórn ísafjarðar bréf frá Vinnuveit-
endasambandi íslands, Alþýðusambandi íslands og Vinnu-
málasambandi samvinnufélaganna varðandi kjarasamning-
ana sem undirritaðir voru fyrir skömmu. Á það er lögð þung
áhersla í bréfinu að sveitarfélögin endurmeti forsendur sínar
varðandi gjaldskrárhækkanir og skattheimtu. Tilefni bréfs-
ins var það, að Samband íslenskra sveitarfélaga hafði gefið
deiluaðilum loforð um að sveitarfélög myndu taka þátt í að
reyna stöðva þenslu og verðbólgu með því að halda aftur af
hækkunum á þjónustu, aðstöðugjöldum, útsvörum og fast-
eignasköttum. Sjálfur bæjarstjórinn á ísafirði fór suður og
skrifaði undir samninginn með fyrirvara um samþykki
F.O.S. Vest. Síðan var hann borinn undir atkvæði á bæjar-
stjórnarfundi og samþykktur samhljóða.
Almennt ríkti bjartsýni á landinu öllu eftir samningsgerð-
ina. Forsætisráðherra, verkalýðsfrömuðir og vinnuveitend-
ur með bjargvættinn í fararbroddi brostu út undir eyru og
héldu hverja lofræðuna eftir aðra og tilkynntu að nú yrðu
allir að taka á. Fjármálaráðherra dró niðurskurðarhnífinn
úr efstu skúffu og hjó fjárlögin í herðar niður. Jakinn setti
á fót verðlagsskrifsstofu. Fyrrverandi bæjarfulltrúi ísfirð-
inga, Jón Baldvin Hannibalsson, tilkynnti allsherjar fjár-
málabindindi. Pétur Sigurðsson formaður A.S.V. steig á
stokk og mótmælti öllum hækkunum og bað fólk að vera á
varðbergi.
En spurning dagsins er þessi: Ætlar meirihluti bæjar-
stjórnar ísafjarðar að skera niður og taka þátt í þessari
þjóðarsátt? Svarið er seisei nei. í frumvarpi að fjárhagsáætl-
un kennir ýmissa grasa. Þar leggur meirihluti félagshyggju-
aflanna til að útsvar hækki verulega, „aðeins“ um tæpar
tuttugu og fjórar milljónir sem er um tuttugu þúsund á
meðalfjölskyldu. Þar boða menn hátt í tvöfalda álagningu
aðstöðugjalda á fiskveiðar (sennilega eru félagshyggju-
flokkarnir að koma í veg fyrir kvótakaup) með nærri
hundrað prósent hækkun á aðstöðugjöldum (í krónum
verða teknar alls tíu milljónir til viðbótar úr sjávarútvegi).
Og í ofanálag geta félagshyggjumenn borið höfuðið hátt
þessa dagana því allt bendir til þess að hæstu fasteignagjöld
á íslandi séu á ísafirði.
Mér er spurn: Ætlar meirihluti félagshyggjuflokkanna að
taka þátt í þjóðarsáttinni? Þetta og margt fleira kemur í ljós
í kvöld í seinni umræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs ísa-
fjarðar.
Einar Garðar Hjaltason.
Auðkúluhreppur leggst við
Þingeyrarhrepp 1. apríl
Leikfélag Patreksfjardar:
Saga úr dýragarðinum
Auðkúluhreppur verður sam-
í i.iaður Þingeyrarhreppi um næstu
mánaðamót. Þessi sameining
hefur staðið til um nokkurn tíma,
enda er lagaskylda að sveitarfélag
sem hefur færri en 50 íbúa sam-
einist öðru sveitarfélagi. íbúar í
Auðkúluhreppi eru nú 37.
Undirbúningur sameiningarinn-
ar hefur farið fram í bróðerni og
hefur verið eining um allt nema
nafnið á hinu nýja og sameinaða
sveitarfélagi. Það mun bera nafnið
Þingeyrarhreppur, en tillaga kom
fram um nafngiftina Hrafnseyrar-
hreppur.
í núverandi Þingeyrarhreppi
munu vera 465 íbúar, þannig að
íbúafjöldinn í sveitarfélaginu mun
losa 500 manns eftir næstu mán-
aðamót.
Sigurður Jónsson, VF, Patreksfirði
Nýlega sýndi Leikfélag Patreks-
fjarðar einþáttunginn Sögu úr
dýragarðinum, eftir bandaríska
leikskáldið Edward Albee. Sagan
gerist raunar ekki í dýragarði
heldur almenningsgarði stórborg-
ar þar sem tveir menn hittast eina
síðdegisstund, og lýsir verkið sam-
ræðum þeirra.
Pétur, sem leikinn er af Sigurði
Skagfjörð, er sléttur og felldur
millistéttarmaður með allt sitt á
þurru, en þó átakanlega laus við
að vera lífsglaður eða hamingju-
samur og fer frekar einförum en
að blanda geði við fólk.
Jerry, sem Kristinn Pálmason
leikur, er óhefluð og nærgöngul
persóna sem gefur sig á tal við
Þeir deyja ekki ráðalausir
Hólmvíkingar. Nokkrum eldhug-
um þar á bæ fannst alveg ófært að
hafa ekki skíðalyftu. En þar sem
þessháttar fyrirtæki kostar tölu-
verða fjármuni eins og gefur að
skilja, ákváðu þeir að smíða sér
sína skíðalyftu sjálfir.
Þeir tóku þrjátíu og fimm hest-
afla ljósavél úr bát og smíðuðu við
hana viðeigandi búnað. Að vísu
urðu þeir að kaupa til einstaka
efni, til að mynda tóku þeir fram
að þeir hefðu ekki fléttað kaðlana
sjálfir, en í heild var lyftan hönnuð
og smíðuð að öllu leyti af heima-
mönnum, sem fengu pláss í slátur-
húsinu við verkið.
Að smíðinni lokinni skunduðu
þeir með búnaðinn upp í Kálfanes,
sem er eyðibýli fyrir ofan flugvöll-
inn. Þar komu þeir lyftunni fyrir;
hún virkar fullkomlega og hefur
verið Hólmvíkingum mikill og
góður gleðigjafi síðan, eða um það
bil þrjár vikur.
Ég þakka ykkur innilega fyrir
blaðið, það eru venjulega einu
fréttirnar sem ég fæ að heiman, og
hef ég mjög gaman af að lesa hvað
um er að vera fyrir vestan.
Það eru nú orðin rúm 17 ár síðan
ég fluttist að vestan og hingað til
Englands, og að sjálfsögðu hefur
margt breyst heima síðan.
Það sem mér þykir einna leiðin-
legast að lesa um, er hvernig ríkið
úthlutar veiðileyfum kringum
ísland. Skilningur minn er nú
sennilega einfaldur á þessum
málum, en frá mínum sjónarhóli
lítur út fyrir að það sé verið að
skapa nokkurs konar fiskveiði-
mafíu, sem hefur á endanum ein-
okun á hverjir fiska og hverjir
ekki.
Mér var kennt að auðlindir hafs-
ins tilheyrðu allri þjóðinni, en ekki
fáeinum einstaklingum.
Ég er ekki frá því að svipaða
sögu megi segja um afurðavinnsl-
Pétur, sem situr einn við lestur á
bekk í fyrrnefndum almennings-
garði. Jerry reynir hvað hann getur
til að skyggnast bak við skel
Péturs, sem verst nálega allra
frétta og sú vörn endar með skelf-
ingu.
í leikskrá kemur fram að leikrit
þetta er fyrsta leikverk höfundar,
skrifað árið 1958. Þvt var fyrst
hafnað af bandarískum leikhúsum
og frumflutt í Berlín 1959.
Albee varð fyrst heimsfrægur
1962 með leikriti símu Hver er
hræddur við Virginiu Woolf?
Síðan hefur hann notið almennrar
viðurkenningar, m.a. tvívegis
fengið Pulitzer-verðlaunin fyrir
leikverk sín.
Sýningar Leikfélags Patreks-
fjarðar á Sögu úr dýragarðinum
urðu alls þrjár, þar af ein á Bíldu-
Héraðssamband Strandamanna
hefur undanfarið verið með skíða-
námskeið í fjallinu, og haft skíða-
kennara í fjallinu til leiðbeiningar
fyrir byrjendur og aðra sem hafa
nú fengið kærkomið tækifæri til að
blása rykið af gömlu skíðunum
sínum.
Jóhann Ólafson forstöðumaður
Vinnueftirlits ríkisins á Vestfjörð-
um kom á staðinn og lagði blessun
sína yfir notkun lyftunnar, þannig
að nú er allt „löglegt og siðlegt"
eins og Stefán Gíslason sveitar-
stjóri á Hólmavík orðaði það.
Þetta framtakssama hugvitsfólk
á Hólmavík hefur svo sannarlega
sýnt fram á að það er engin regla
að hlutirnir þurfi að kosta offjár
þegar vilji og dugnaður eru fyrir
hendi. Fleiri mættu að skaðlausu
tileinka sér það hugarfar Hólmvík-
inga.
una. Að það séu fáeinir einstakl-
ingar sem telji sig eiga rétt á henni,
og ef utanaðkomandi aðilar voga
sér að koma þar inná, þá skal nota
hver þau vinnubrögð sem til greina
koma til að þeir hætti vinnslu.
Minnir á Mafíuna.
Kær kveðja,
Sverrir Jóhannesson
1. Mezellion Place
Fairfield Park
Bath, Avon
BAl 6EJ
England.
Við á Vestfirska fréttablaðinu
þökkum Sverri kærlega fyrir
bréfið. Pað er alltaf gaman að
heyra frá brottfluttum Vestfirðing-
um hérlendis eða erlendis, og við
viljum nota tækifærið til að hvetja
þá til að senda okkur línu um
hvaðeina sem þeim kemur í hug.
hge
dal, og sýndu þeir Sigurður og
Kristinn ágætan leik í oft býsna
erfiðum og átakamiklum atriðum
verksins og skiluðu hlutverkum
sínum í heild með sóma, svo og
leikstjóri sýningarinnar, sem var
Jósep Blöndal.
Leikfélagið bauð gestum upp á
kaffi og bakkelsi meðan á sýningu
stóð og mæltist sú nýbreytni að
vonum vel fyrir. Ekki eru fyrir-
hugaðar fleiri sýningar á verkinu
að þessu sinni, því miður fyrir þá
sem ekki sáu verkið, því hér var á
ferð metnaðarfull sýning sem var
sannarlega þess virði að sjá.
ísafjörður:
Miðsvetrar-
tónleikar
Tónlistar-
skólans
Hinir árlegu miðsvetrartónleik-
ar Tónlistarskóla ísafjarðar verða
haldnir laugardaginn 10. ogsunnu-
daginn 11. mars í Grunnskólanum
og hefjast kl. 16:30 báða dagana.
Þar koma fram allflestir nemendur
skólans í ýmiskonar samleik;
strengjasveit, gítarsveit, kór og
margt fleira. Aðgangur er ókeypis
en í hléi verða seldar veitingar og
mun ágóðinn renna í húsbygg-
ingarsjóð Tónlistarskólans.
Isafjörður:
Framboðslisti
Framsóknar-
flokksins
Framboðslisti Framsóknar-
flokksins á Isafirði til bæjarstjórn-
arkosninganna í maí var ákveðinn
á þriðjudag. Sex efstu menn á list-
anum eru: 1. Kristinn Jón Jónsson
rekstarstjóri, 2. Einar Hreinsson
sjávarútvegsfræðingur, 3. Guðríð-
ur Sigurðardóttir íþróttakennari,
4. Magnús Reynir Guðmundsson
bæjarritari, 5. Fylkir Ágústsson
bókari og 6. Sigrún Vernharðs-
dóttir húsmóðir.
Kristinn Jón Jónsson.
Hólmavík:
Smíðuðu skíðalyftu
í sláturhúsinu
— notuðu meðal annars Ijósavél úr bát
hge
Bréf frá Englandi