Feykir - 15.01.1982, Qupperneq 3
Umsjón:
Kristján Þ.
Blöndal.
BRIDGE
F. v.: Sveinn Friðvinsson, Helgi Rafn Traustason, Sigmundur Ámundason, Aðalsteinn Hermannsson, Snorri Björn Sigurðsson.
70 milljón stafir
Bridgefélag
Blönduóss
Aðalfundur Bridgefélags Blöndu-
óss var haldinn 15. október. Stjórn
skipa nú: Vilhelm Lúðvíksson for-
maður, Jón Sigurðsson gjaldkeri.
Guðmundur Theodórsson ritari.
Firmakeppni var fyrsta málið. I
efstu sætum urðu: stig
1. Trésmiðjan Stígandi hf. 851
Hallbjörn Kr. --
Ari Einarsson
2. Mjólkursamlag S.A.H. 850
Jón Arason —
Þorsteinn Sigurðsson
3. Tryggingarmiðstöðin 848
Jón Ingi Ingvason —
Kristinn Jóhannes
4. Sýslusjóður 840
Eðvarð Hallgrímsson —
Guðmundur Haukur
6. des. fór fram bæjarkeppni —
Blönduós-Hvammstangi. í fyrri
umferð voru úrslit þessi:
Blönduós 69 stig
Hvammstangi 31 stig
Spiluð er tvöföld umferð og
verður sú seinni í vor.
Hið árlega Þorsteinsmót
(sveitarkeppni eftir pattonkerfi)
var 3. janúar. 11 sveitir tókiu þátt í
mótinu. Voru þær frá Blönduósi,
Skagaströnd og Hvammstanga. í
fimm efstu sætum urðu:
Sveit stig
1. Hallbjörns Kristjánss. Bl. 102
2. Eðvarðs Hallgrímss. Sk. 100
3. Kristínar Jóhanesd. Bl. 99
4. Jóns Inga Ingvarss. Sk. 95
5. Örn Guðjónsson Hvst. 82
Sveitarkeppni hefst í janúar.
Bridgefélag
Siglufjarðar
Mánudaginn 14. des. var til lykta
leidd þriggja kvölda hraðsveita-
keppni, sem í tóku þátt 7 sveitir.
Sveit Ara Más Þorkelssonar tók
forustu eftir fy rstu umferð af þrem-
ur og hélt henni allt til loka þrátt
fyrir góðan vilja sveitar Boga Sig-
urbjörnssonar. Auk Ara eru í
sveitinni þeir Asgrímur Sigur-
björnsson, Jón Sigurbjörnsson og
Þorsteinn Jóhannsson. Röð sveita
varð annars þessi: stig
1. Ari Már Þorkelsson 1414
2. Bogi Sigurbjörnsson 1400
3. Níels Friðbjarnarson 1320
4. Björn Þórðarson 1311
5. Valtýr Jónasson 1233
Félagsstarfið á nýja árinu hófst
svo á aðalsveitakeppni og byrjaði
hún mánudaginn 4. jan.
Bridgefélag
Sauðárkróks
Miðvikudaginn 13. jan. hefst aðal-
sveitakeppni félagsins og er útlit
fyrir að um metþátttöku verði að
ræða hjá félaginu. Þegar þetta er
skrifað hafa 9 sveitir skráð sig til
leiks og gerum við okkur von um
þá 10. í vetur stendur til að
heimsækja Siglufjörð og einnig er
hugur í mönnum hér á norðurlandi
vestra að halda stórmót og bjóða
pörum víðsvegar að. Að lokum vill
umsjónarmaður þáttarins biðja
menn að vera duglega við að skrifa
þættinum bridgefréttir.
Þessi grein átti að birtast i jólablaði
Feykis en varð að víkja vegna þrengsla.
örfáum dögum eftir að greinin var
skrifuð lést Helgi Rafn Traustason
kaupfélagsstjóri. Aðstandendur Feykis
minnast Helga Rafns með þakklæti.
Á dögunum var fulltrúum Sauðár-
uróksbæjar og fleirum boðið til
kynningar á nýjum tölvubúnaði
Kaupfélags Skagfirðinga.
Þar skýrði Helgi Rafn Trausta-
son, kaupfélagsstjóri þróun tölvu-
vinnslu fyrir kaupfélagið. Tölvu-
vinnslan hófst á því, að fyrst var
eingöngu úrvinnsla sláturafurða
framkvæmd í tölvu Sambandsins í
Reykjavík, en síðar voru bókhalds-
færslur einnig sendar suður og
tölvuunnar þar. Síðar fékk kaup-
félagið tæki til að skrá upplýsing-
amar hér heima, símsenda þær
suður til úrvinnslu og móttaka þær
símleiðis, til útskriftar á litlum
prentara hér heima. Hinn 15. maí í
sumar fékk kaupfélagið síðan sína
eigin tölvusamstæðu, til að geta
unnið úr öllum gögnum heima fyr-
ir.
Aðalsteinn Hermannsson deild-
arstjóri nýju tölvudeildarinnar
fræddi gesti síðan um uppbyggingu
tölvunnar, þau verkefni, sem unnin
eru í tölvunni í dag og'notkunar-
möguleika hennar.
Síðar náði blaðamaður Feykis
tali af Aðalsteini og að sjálfsögðu
var tölvan notuð til að koma sam-
talinu á pappír.
A öalsteinn, þú ert aökomumaður
í Skagafjörðinn. Viltu segja okkur
frá fyrri dögum þinum?
Já, við erum aðkomuhlutir hér
bæði, ég og tölvan. Hún er rökvís-
ari, en ég er vonandi mannlegri.
Ég hef búið á Reykjavíkursvæð-
inu frá unga aldri en er reyndar
ættaður úr Strandasýslu og fæddur
á Drangsnesi.
Að loknu Samvinnuskólanámi
hóf ég störf hjá Olíufélaginu h.f. í
Reykjavík starfaði þar í rúm 15 ár,
eða þar til í ársbyrjun að ég flutti
hingað norður.
Tölvubúnaöurinn, sem þið hafið
hér, hvað viltu segja okkur um
hann?
Þessi tölva er frá IBM og gengur
undir nafninu System/34. Hún
kom fyrst á markað árið 1977, að
mig minnir, og hér á landi eru
nokkrir tugir af þessari tölvu í
notkun og fer fjölgandi. Enda er
hún ein vinsælasta tölvan á heims-
markaði í dag.
Tölvan samanstendur af mjög
öflugri stjómstöð, sem inniheldur
minni tölvunnar, en það getur verið
frá 32k (þ.e. 32.768 stafir) og upp í
256k. Þar er einnig ytra minni
Tölvunnar, seguldiskar, sem geyma
frá 8,6 til 257 milljónir stafa. Þess-
um stærðum má breyta eftir þörf-
um notandans. (I dag er minnis-
stærðin hjá okkur 64K og segul-
diskarnir rúma 70 milljón stafi.) í
stjórnstöðinni er einnig diskettu-
lesari til að lesa inn nýjar upplýs-
ingar inn í tölvuna og frá henni til
varðveislu.
Þá er við tölvuna stjónskermir
með lyklaborði til að stjóma að-
gerðum eða fá fram upplýsingar.
Prentarar geta verið litlir eða
stórir, skrifað frá 80 stöfum á sek-
úntu og upp í 650 línur í mínútu.
Hægt er að tengja við tölvuna allt
að 64 jarðartæki, þ.e. skerma eða
prentana, sem geta verið staðsett
nálægt eða órafjarri tölvunni og öll
þessi tæki geta verið að störfum á
sama tíma.
Jahá. Það er auðheyrt að þetta er
mjög öflugt tœki. Hvaða verkefni
eru unnin með tölvunni i dag og
hverjar eru nýtingarhorfurnar í
framtiðinni?
í dag er allt bókhald kaupfélags-
ins unnið hér, en það skiptist í
megin dráttum í viðskiptamanna-
bókhald, fjárhagsbókhald, afurða-
bókhald, launabókhald og
innlánsdeild. Þá er í smíðum verk-
efni fyrir kjötvinnsluna og lager-
kerfi og ýmis smærri verkefni inn-
an seilingar. Fyrir fiskiðjuna er
framkvæmdur útreikningur á bón-
us og fjárhagsbókhald uppfært fyr-
ir steypustöðina og Ræktunarsam-
band Skagafjarðar og hitaveitu-
reikningar gerðir fyrir hitaveituna.
Fyrir þessa tölvutegund hafa
verið hönnuð og eru víðsvegar í
notkun kerfi fyrir hin fjölbreyttustu
notkunarsvið. T.d. gjaldendabók-
hald fyrir bæjar- og sveitarfélög,
lífeyrissjóðakerfi, rafveitukerfi,
aflabókhald, skipverjauppgjör o.fl.
o. fl.
Eins og fram hefur komið er
þetta mjög afkastamikið tæki og
gæti án nokkurs vafa leyst alla
tölvuinnsluþörf héraðsins í náinni
framtíð, enda stendur slík þjónusta
til boða frá okkar hendi.
Ég vil sérstaklega benda launa-
greiðendum með margt starfsfólk á
þægindi og sparnað við tölvuunnið
launabókhald og framtalsgögn.
Nú er bókhald og launagreiðslur
fyrirtækja oft viðkvæmt mál. Ertu
ekki hrœddur um að menn veigri sér
við að láta aðra hnýsast íþau?
Jú, þetta er vissulega rétt, en
tölvuvinnsla er i öllum tilfellum
trúnaðarmál og auk þess hefði
maður ekki undan við að skoða allt
það pappírsflóð, sem tölvan fram-
leiðir. Þá má geta þess, að þó svo að
mörg tæki séu tengd við móður-
tölvuna þá getur hver um sig ein-
göngu fengið upplýsingar um það,
sem honum kemurvið.
Aðalsteinn nú hefur þú starfað
lengi við tölvur. Hvaða menntun
þarf til þessarra starfa?
Já, ég hef unnið við tölvur sam-
fleytt í um 11 ár og reyndar i tvö ár
til viðbótar, en það apparat telst
varla tölva í dag.
Besti skólinn hér á landi í dag er
að komast í vinnu þar sem maður
verður að komast inn í hugsana-
gang tölvunnar, ef svo má segja.
Annars er farið að kenna undir-
stöðuatriði tölvuvinnslu í flestum
grunnskólum í dag, einkum á
verslunarbrautum. T.d. kenndi ég
sjálfur 3 vetur í stúdentadeild
Samvinnuskólans. En góð ensku-
kunnátta, bókhalds- og rekstrar- og
stærðfræðiþekking er æskilegur
forskóli. Á norðurlöndunum eru í
dag mjög góðir tölvuskólar, sem
útskrifa kerfisfræðinga og forritara,
en hér á landi eigum við enga skóla
í líkingu við þá.
Flestir þeir, sem stjóma tölvum
hér í dag hafa þróað menntun sína
með því að glíma við tölvuna sjálfa
og sækja fjölda námskeiða, bæði
hérlendis og erlendis, og ég er einn
af þeim skóla.
Guðm. Theodórsson, ritari.
Frá Innheimtu
Sauðárkróksbæjar
Gjalddagar fasteignagjalda eru:
15. janúar, 15. febr. og 15. mars.
Vinsamlegast greiðið á gjalddaga.
INNHEIMTA SAUÐÁRKRÓKSBÆJAR.
íþróttafólk og
trimmarar
Vetrarsportvörur fást í Kaupfélaginu.
Snjóþotur, skautar og skíði skíðaskór, lúffur og
hanskareru íbyggingavörudeildinni.
Trimmgallar, skíðafatnaður, snjógallar, kuldafatn-
aður og norsku ullarnærfötin fást í vefnaðarvöru-
deildinni.
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHUÐ - FLJÓTUM
AEG-heimilistæki
Eldavélar,
þvottavélar,
kæliskápar,
frystikistur,
uppþvottavélar,
ryksugur,
grillofnar,
brauðristar,
hraðgrill-vöfflujárn,
straujárn.
Milliliðalausinnflutningurfrá Vestur-Þýskalandi.
Gæðavara á góðu verði.
Kaupfélag Skagfirðinga
Byggingavörudeild, sími 95-5200.
n&msskgjfsSEgpffijm
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHUÐ - FUÓTUM
Aðalsteinn Hermannsson við tölvuna.
Feykir . 3