Feykir


Feykir - 15.01.1982, Blaðsíða 4

Feykir - 15.01.1982, Blaðsíða 4
FeykÍR UTGEFANDI: FEYKIR H/F. Rltstjóri og ábyrgðarmaður: BALDUR HAFSTAÐ. Auglýsingar: BJÚRN MAGNÚS BJÚRGVINSSON, Slml 95-5661. Ritstjórn: ARNI RAGNARSSÚN, HILMIR HÚHANNESSÚN, HJALMAR JÚNSSON, JÚN ASBERGSSON, JÚN FR. HJARTARSON. Rltnetnd á Sigluflrðl: BIRGIR STEINDÚRSSON, SVEINN BJÚRNSSON, GUNNAR RAFN SIGURBJÚRNSSON, KRISTJAN MÚLLER, PALMI VILHJALMSSÚN. Rltnefnd á Hvammstanga: HÚLMFRlÐUR BJARNADÚTTIR, EGILL GUNN- LAUGSSON, HELGI ÚLAFSSON, ÞÚRVEIG HJART- ARDÖTTIR, HAFSTEINN KARLSSON, MATTHlAS HALLDÖRSSON. Ritnefnd á Blðnduósi: MAGNÚS ÓLAFSSON, SIGMAR JÚNSSON, BJÚRN SIGURBJÚRNSSON, ELlN SIGURÐARDÓTTIR. Ritnefnd á Skagaströnd: ELlN NJALSDÓTTIR, SVEINN INGÓLFSSON, JÚN INGIINGVARSSON, MAGNÚS B. JÚNSSON, ÓLAF- UR BERNÚDUSSON. Útllt: REYNIR HJARTARSON. PRENTVERK ODDS BJÚRNSSONAR HF. AKUREYRI 1981 Feykir er hálfsmánaðarblað. Askrift 10 kr. á mánuði. Lausasala 8 kr. „Égferífríið“ Þegar þetta er skrifað eru liðnar tæpar tvær vikur frá áramótum. Þeir sem ekki lentu í verkfalli sjó- manna eða atvinnuleysi í kjölfar þess eru teknir til við fyrri störf sín og líf komið í eðlilegt horf. Margir munu hafa litið um öxl að loknu umstangi jólanna og spurt sjálfa sig: Hvernig var fríið? Gerði ég það sem ég ætlaði að gera? Skrifaði ég vininum í útlandinu bréfið sem ég ætlaði að skrifa fyrir ári? Hélt ég í við mig í mat og drykk, neitaði ég mér um snafsinn sem vekur timburmenn og slæma samvisku? Las ég bækurnar sem ég var búinn að ætla mér að lesa? Hvað eyddi ég miklu fé í jólastand- ið? Var heilsubótargangan gengin? Gerðist ég þreyttur á að vera í fríi undir lokin? Þetta geta orðið áleitnar spurningar. í mjög mörgum tilvikum er ein manneskja á heimilinu sem kannske þarf ekki að spyrja svona spurninga. Hún vissi það fyrir að fríið yrði ekkert frí. Hún vissi hvað í hönd fór. Hún vissi að ætlast var til þess að smákökur yrðu bakaðar, að jólahreingern- ingu mundi enginn annar gera, steikina mundi enginn annar steikja. ,,Fríið“ varð ekkert frí, heldur þrældómur frá morgni til kvölds. Þessar manneskjur þurftu á fríi að halda þegar allt brambolt var afstaðið og síðustu sprengjur ný- ársnætur sprungnar. Margar þeirra hafa verið atvinnulausar frá áramótum vegna þess að fisk- ur hefur ekki borist á land. Þær eru í kauplausu fríi rétt eins og í ióia,,fríinu“. En skyldu þær ekki hafa þurft á þessu seinna fríi að halda. Skyldi þær ekki hafa langað til að senda vini bréf frá í hitteðfyrra, lesa jólabækur frá í fyrra, stunda heitar laugar eða hressandi göngur. Eigum við að kaupa jólin iafndýru verði næst og við gerð- um í þetta sinn? Eigum við að kveikja undir færri pottum, eta minna konfekt, baka smærri kök- ur, bora gat á góðu staupin okkar? Elías B. Halldórsson hefur búið á Sauðárkróki í mörg ár. Hann hætti í ágætri vinnu sem verkstjóri hjá Sauðárkróksbæ árið 1974 og hefur helgað sig listinni síðan. Fram að þeim tíma hafði hann málað á sunnudögum og síðkvöldum, „henti 15 árum í ekki neitt", eins og hann orðaði það. Hélt þó einar þrjár sýningar á þeim tíma, m.a. í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1967. Elías hefur haldið nokkrar sýningar á síðari árum og hlotið lof gagn- rýnenda. í vor hyggst hann sýna í sal Norræna Hússins í Reykjavík og vinnur nú ötullega að undir- búningi þeirrar sýningar. Elías er ætttaður úr Borgarfirði eystra, fæddur í Snotrunesi, þar sem foreldrar hans báðir voru einnig fæddir, þau Halldór Ár- mannsson og Gróa Björnsdóttir. Um Snotrunes er getið í álfasögum. Þarna bjuggu lengi Elín og Björn, móðuramma Elíasar og afi, og var hann skírður í höfuðið á, þeim hjónum. Bjöm bóndi í Snotrunesi þótti maður höfðingdjarfur og var í konungsmóttöku þar eystra árið 1907. „Fyrst heilsaði ráðherrann, svo biskupinn og svo ég“, sagði Björn, og bætti við: „Síðan komu Sunnlendingar, sjómenn og alls konar drasl“. Björn þessi var ber- serkur, maður ekki einhamur, og neitaði að gefast upp, einnig eftir að hann var orðinn blindur. Þegar hann var í þann veginn að missa sjónina tók hann sér ferð á hendur til að sjá fyrstu sláttuvélina í byggðarlaginu. Hann gleymdi sér við að fylgjast með henni og það varð að gæta hans svo hann stigi ekki á ljáinn. Þegar blindan var orðin alger villtist hanh eitt sinn á leið til kirkju, gekk upp í fjall og ætlaði að neita að snúa við, svo viss var hann um að hann væri á réttri leið. Hann söng söguljóð á nóttum í æsku Elíasar. En í hinum enda hússins söng Halldór faðir Elíasar sálma upp úr svefni. Þegar Elías fór fyrst að heiman fannst honum eitt- hvað vanta, hann saknaði söngsins og átti erfitt með svefn! Þegar blaðamann bar að garði hjá Eliasi einn illviðrisdag milli jóla og nýárs voru þeir að störfum hann og sonur hans Sigurlaugur, sem nú stundar nám í Handíða- og mynd- listaskólanum. Vinnustofan er í af- hýsi við bústað Elíasar, ekki mikið stærri en bílskúr, en með stórum glugga á móti suðri. Þarna sátum við innan um ófullgerðar og full- gerðar myndir við kaffibolla og súkkulaðimola. Fyrst var aðeins vikið að skólagöngu Elíasar. Hann var í Eiðaskóla hjá Þórarni Þórarinssyni og fleiri góðum kennurum. Hann teiknaði ekki í barnaskóla, og ekki heldur á Eið- um fyrst í stað. En það kom að því að hann teiknaði uppstoppaðan fálka. Þórarinn skólastjóri sem var liðtækur málari sjálfur leit á myndina og mælti þessi hughreyst- andi orð sem Elias er honum verknað listanna. Arkitektar læra af myndlistarmönnum og þannig fær myndlistin hagrænt gildi. Þannig mætti lengi telja." — OJbýður þér smekkleysi manna? „Mér ofbýður fátt. En ég vor- kenni fólki oft, t.d. fólki sem á nóga peninga og vill gera heimili sín fal- leg. Það leitar að einhverju sem það hefur séð annars staðar. Stundum eru keyptir góðir hlutir, t.d. falleg húsgögn. Svo eru hengdir upp lé- legir hlutir og drasl innan um góðu hlutina og útkoman er haliærisleg- ur samtíningur. Fólkinu hefur ekki verið sagt til. Það hefur ekki hlotið þá menntun sem þroskar það, það finnur oft ekki þessa kennd sem felst í góðu listaverki. Einhvern tíma heyrði ég haft eftir Laxness að sveitastúlka kom í vist á „menn- Myndlistarskólanum. Hann lang- aði stundum til að hætta við alla myndlist og komast eins Iangt frá skólanum og mögulegt væri, nefni- lega í Glettinganesvita, og í þá kyrrð, sem þar hlaut að vera. En hann hélt áfram námi og var hjá góðum kennara, Sigurði Sigurðs- syni (frá Sauðárkróki). „Sigurður var góður við þá sem vildu læra, hann kenndi okkur að bera virð- ingu fyrir starfinu og berjast, en reyna ekki að komast létt út úr list- inni“. Leiðin lá svo til áframhald- andi náms í Stuttgart, og árið eftir til Kaupmannahafnar. Svo hefjast brauðstritsárin. Blaðamaður spyr hvort ekki hafi verið bölvað að sleppa góðri vinnu og hætta á ótrygga afkomu. „Sjálfsagt þætti mörgum afraksturinn ekki beysinn. Pening- ar streyma ekki stöðugt inn. Ég hef t.d. ekki selt nema eina smámynd síðan í vor. En það er fleira verð- mætt en peningar. Maður verður leiður, umhverfist, verður smám saman að umskiptingi, ef maður fær ekki að sinna áhugamálum sínum. Myndlistin lét mig aldrei í friði. — Hitt er reyndar líka rétt að það klýfur mann ef maður þarf að taka mikið á og „krítisera" sjálfan sig stöðugt. í listinni þarf alltaf að verjast við hlutina. Annars hættir maður að þroskast. Menn eiga að geta þroskast fram á elliár ef þeir eru á verði. Það sakar ekki að lesa góðar bækur og skoða verk ann- arra“. — Mú maður vera of gagnrýninn á sjálfan sig? „Maður verður auðvitað að finna jákvætt í því sem maður er að gera. Margir hafa strandað á of mikilli sjálfsgagnrýni. Lífsviðhorf- ið mótast af innri birtu — eða myrkri. Stundum gengur vel, stundum illa. Ég geri mér ekkert of háar hugmyndir um mig. Ég veit hins vegar að ég má vel við una. Þetta gengur mest út á vinnu. Ef maður hefur neistann og lær- dóminn, þá er það sem eftir er vinna og jákvætt lífsviðhorf. Ed- vard Munch, sá frægi norski mál- ari, sagði að árangur í málaralist byggðist 99% á vinnu, en í þessu eina prósenti þyrftu að vísu að vera hæfileikar“. — Gera menn sér almennt grein fyrir mikilvœgi listarinnar? „Ætli það, enda kannski erfitt að mæla slíkt. En það mætti hugsa sér hvað heimurinn yrði fátækur án lista. Húsin t.d. breytast fyrir til- þakklátur fyrir: ekki verður þú nú listamaður". Elías hugsaði honum þegjandi þörfina og varð næsthæstur í teikningu um vorið. Leiðin lá í Kennaraskólann, og voru það mikil viðbrigði. „Mér fannst þar allt svo vitlaust að ég lagðist í fyllirí. Flestir kennararnir voru ógurlegir þursar. Tveir stóðu þó upp úr, þeir Ásmundur Guð- mundsson biskup og dr. Broddi Jóhannesson. I stærðfræðinni hjá Brodda gengu öll dæmin upp í rollum, svörtum og hvítum. — Það var ekki fyrr en löngu seinna að Elíasi datt í hug að fara í Myndlist- arskólann. Þá var hann orðinn 25 ára og búinn að ala með sér skáld- skapardrauma. Hann hafði kynnst nokkrum málverka Kjarvals í æsku heima í Borgarfirði, skoðaði þau að vísu meira sem landslag en lista- verk. Haft er eftir Kjarval að Borg- arfjörður eystri væri staður til að ala af sér listafólk, slík væri náttúrufegurð þar. Kjarval gaf Elíasi fyrsta túkallinn. Þeir voru nokkrir strákar sem áttu að lyfta blóðugri hnísu upp á klakk. Þeim óaði eitthvað við þessu félögum hans og lenti það því á Elíasi. Kjarval þótti þetta vasklegt og gaf drengnum túkall. Elías fer ennþá austur í Borgar- fjörð á hverju sumri, gengur þá um fjörðinn og „Víkurnar", jafnvel alla leið í Loðmundarfjörð, og „sækir þangað stemmningar sem aldrei gleymast" og koma fram í myndum hans. Hann málar fremur lítið úti. Það er búið að mála svo mikið landslag. „Víkumar“ eru sambland af íslandi og Færeyjum í gróðurfari og landslagi. Þar er Glettinganes og vitinn sem Elías dreymdi um að gæta eftir að hann var byrjaður í Listamenn taka á sig ýmis gervi. Ellas með mexikanahalt um tvftugt. ingarheimili" og sá þar sérkenni- legt abstraktmálverk. Stúlkunni fannst það ljótt og sagði að þessu mætti nú henda. Seinna fannst henni að það mætti kannski henda öllu á því heimili nema þessari mynd. — Ég hef oft vitað svipaða sögu endurtaka sig. Menn þurfa ekki nauðsynlega að hafa neitt sérstakt vit á myndlistlil að geta notið hennar. En fordóm- arnir og bjánalegt viðhorf til lista- fólks eru til baga. Menn eru svo gjarnir að dæma það sem þeir þekkja ekki. Ég held að það fólk sem lærir að njóta lista verði á eftir betra fólk og víðsýnna. Listamað- urinn sjálfur er auðvitað ekkert betri en aðrir, hann nýtur verksins öðruvísi." — Eru sýningar þínar hér á Sauðárkróki vel sóttar? „Það koma færri á sýningar mínar nú en áður. En viss hópur kemur alltaf og sýnir myndlist mikinn áhuga. Það er algengt að menn rugli saman mynd og mótífi. Margir halda að mynd sé best ef hún er sem nákvæmust eftirmynd af landslagi, en slíkt segir auðvitað ekkert um myndina. Hér um árið vildi bæjarstjórn Sauðárkróks fá myndastyttu í bæinn og hún varð endilega að vera af hrossi. Það var þó nóg af hrossum í Skagafirði! Það hefði óneitanlega verið skemmtilegra að koma fyrir glæsi- legu listaverki uppi á Nöfunum sem bæri við himin og vekti eftir- tekt, setti svið á bæinn. Það er forsmán hvernig skólarnir hafa brugðist listunum. Hvenær hefur listdans verið kenndur í skólum, leiklist eða framsögn? Ég trúi þvi að þetta séu nauðsynlegir hlutir. Sá sem ekki getur borið fram getur ekki borið virðingu fyrir móðurmálinu. Ég fyllist vorkunn og leiðindum þegar ég heyri ein- hvern fara með texta sem kann ekki að bera fram. Það ætti ekki að vera neitt ógurlegt stórt átak að fá leik- ara á staðinn. Skólarnir og leikfé- lagið ættu að geta notfært sér hann í sameiningu. Það þarf eitthvað að fara að ger- ast í menningarmálum hér. Nú- tíminn kallar á þetta. Það þurfa að koma upp fleiri klúbbar en matar- og drykkjuklúbbar. Það er komið hingað fólk sem getur kennt allt mögulegt og stuðlað á ýmsan hátt að menningarlífi. Þeirri hugmynd hefur verið sleg- ið fram hér að bæjarfélagið festi kaup á litlu húsi þar sem lista- mönnum verður boðið að dvelja nokkra mánuði hverjum. Þessir listamenn gætu svo kynnt sína list fyrir skólafólki og almenningi. Það er margt listafólk sem þráir að komast út úr skarkala borgarinnar um tíma, skipta um umhverfi. Staðurinn hér er að mörgu leyti upplagður til að hýsa slíkt fólk. Én það þarf að standa vel að þessu. Það þarf að sýna fólki fram á að þetta borgar sig. Menn ættu nú að skilja gildi auglýsingarinnar. Svona framtak vekti athygli víða. Og kynni okkar af listafólkinu mundu vekja áhuga okkar á hugðarefnum þess. Annars konar húsnæði í þágu listanna væri mjög æskilegt. Það er vinnustofa þar sem fólk gæti komið þegar það vildi og málað eða stundað aðra list. Leiðbeinandi gæti svo komið einu sinni í viku eða svo og sagt mönnum til, laumað inn þekkingu sinni. Slíkt mundi smita út frá sér. Áhugamenn hafa rætt þetta sín á milli þótt ekki hafi orðið af framkvæmdum, því miður.“ Talið barst að ýmsum efnum, og aðeins fátt eitt var fest á blað. Það var gaman að koma í vinnustofuna til Elíasar þennan illviðrisdag. það var dimmt yfir þótt um miðjan dag væri. „Ef ég ætla að ljúka við myndir er ég háður dagsbirtu. Ég legg mikið upp úr að fá hreinan tón, og hann sést ekki nema við dags- ljós.“ Þegar blaðamaður kveður hugsar hann um tónana og birtuna i myndum Elíasar B. Halldórsson- ar, og dansinn sem þar er stundum stiginn. Það er líka eins og gamalli þjóðsögu hafi brugðið fyrir, jafnvel broti úr löngu gleymdu ljóði. Ljóð- ið hefur löngum verið Elíasi hug- leikið. Fyrir mörgum árum teikn- aði hann myndir undir áhrifum ljóðabálksins Tíminn og vatnið eftir Stein Steinar. Maðursérþau kvæði í nýju ljósi eftir að hafa skoðað þessar myndir. Álfgrímur í Brekkukoti fékk tíeyring að gjöf frá séra Jóhanni þegar hann steig sín fyrstu skref í leitinni að hinum hreina tóni. Elías í Snotrunesi fékk túkall hjá Kjarval þegar hann lyfti hnísunni upp á klakkinn. Það er eins og Kjarval hafi séð eitthvað í þeim atgangi sem listamaður þarf að vera búinn: „karakter" lausan við yfirborðs- mennsku, og góðan skammt af þrjósku, stífni og þolgæði. Við kveðjum Elíás með þökkum og óskum honum alls hins besta. Sparkað I vindinn. 4 . Feykir Feykir .. 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.