Feykir - 15.01.1982, Qupperneq 8
Tuttugu hitti ég tylft og átta
trylltar rottur þétt hjá pottum,
þreyttar streittust, sitt til sátta
settu upp smett og slettu skottum.
(Sveinn skotti).
Eitt sinn þeyttust út um nótt
átta kettir hratt og þétt,
tuttugu rottur títt og ótt
tættu og reyttu á slettri stétt
Dundið nú við að telja t-in,
lescndur góðir.
Ibúar og bjæjaryfirvöld
Þurfa að moka flórinn
segir Haukur Hafstað framkvæmdastjóri Landverndar
Framkvæmdastjóri Landverndar,
Haukur Hafstað, átti leið um
Sauðárkrók nú um jólin og náðum
við af honum tali sem snöggvast.
Landvemd hefur m.a. mjög látið til
sín taka umhverfi bæja og þorpa,
og í fyrra var gefin út allyfirgrips-
mikil skýrsla um ástand um-
hverfismála á einum 20 þéttbýlis-
svæðum á landinu. Sauðárkrókur
var einn þessara staða.
Ég spurði Hauk hverju hann
vildi koma á framfæri um ástand
umhverfis Króksins frá landvernd-
arsjónarmiði.
Haukur sagði bæjarstæðið á
Sauðárkróki afar fallegt frá náttúr-
unnar hendi. Aðkeyrslan væri
óvenju skemmtileg og hlýleg þegar
komið væri úr héraði, og gæti verið
það líka norðan frá ef ekki væri
búið að róta svo miklu um á Eyr-
inni, en umgengni þar út frá væri
ljót. Hann sagði að ýmislegt hefði
verið gert sem stuðlaði að því að
staðurinn yrði viðkunnanlegur og
gat um íþróttasvæði, gatnagerð,
vandaða nýbyggð og gróður við
hús.
Haukur taldi ástæðu til að nefna
fáein atriði sem betur mættu fara til
að gera staðinn aðlaðandi og um-
hverfið þægilegra að búa í. Fyrst
væri það verndun Nafanna og
uppgræðsla þar. Hann sagði að of
stórum hluta Nafanna hefði ekki
verið nægur sómi sýndur og þær
jafnvel orðið fyrir stórum spjöllum
á svæðinu upp af húsi Útgerðarfé-
lagsins. Mikið verk væri fyrir
höndum að bæta þann skaða sem
orðinn væri. „Á þeim stöðum þar
sem eitthvað hefur verið gert sjáum
við að hægt er að rækta Nafirnar
alveg upp á brúnir með margs
konar gróðri, bæði grösum og
trjám.“ Haukur tiltók í þvi sam-
bandi skika rafveitunnar, svæðið
upp af gömlu gróðrarstöðinni við
Skógargötu og brekkuna upp af
íþróttavellinum.
Annað atriði gerði Haukur að
umtalsefni, nefnilega Sauðárgilið.
„Með nýjum byggðum uppi í hlíð-
inni hefurgildi Sauðárgilsins aukist
sem kjörins útivistarsvæðis. Það er
því áríðandi að bæjaryfirvöld komi
því í verk að skipuleggja svæðið
þannig að það geti þjónað sem úti-
vistarsvæði fyrir vaxandi bæ. Fyrir
mörgum árum var efri hluti gilsins
valinn sem ákjósanlegur staður
fyrir trjárækt og þannig myndaður
vísir að útivistarsvæði bæjarbúa.
Gilið veitir skjól bæði gróðri og
fólki, og ómenguð Sauðáin rennur
þar um. En það þarf að fylgjast vel
með gróðri og umgengni svo þetta
verði sannur sælureitur. Það er
mjög mikilvægt að sá náttúrlegi
gróður sem er í Sauðárgilinu og
Skógarhlíðinni fái frið til að
endurnýja sig. Þarna er bæði birki
og berjalyng sem þarf tíma til að ná
að veita landgæði og fegurra
svipmót.
Neðri hluti Sauðárgilsins, sem
hefur um langan aldur verið not-
aður til kartöfluræktar, hefur haft
leiðinlegt yfirbragð hin síðari ár.
Stór hluti þess svæðis hefur ekki
verið notaður til matjurtaræktar og
er í óhirðu. Ég held það megi
minnka garðlendið um helming án
þess að gengið sé á möguleika fólks
til að rækta. Það þarf að sjá til þess
að matjurtabeðin hljóti umhirðu en
lendi ekki í órækt og illgresi."
Kristnihald
á
Blönduósi?
Á fundi hjá leikfélagi Blönduóss
sem haldinn var 7. janúar s.l. kom
fram mikill áhugi fyrir því að taka
til sýningar leikritið Kristnihald
undir jökli í tilefni 80 ára afmælis
HalldórsK. Laxness.
Formaður leikfélagsins er
Sveinn Kjartansson fræðslustjóri
N.-V.
— Hvað hefur þú um smábúskap
kaupstaðarbúa að sepja?
„í könnun Landverndar sem
minnst var á kom í ljós að tóm-
stundabúskapur (smábúskapur
með hross og sauðfé) var ákveðið
vandamál í bæjum. Ennþá líðst það
að búskapur þessi sé rekinn í kofa-
ræksnum sem eru til stórlýta og
mengunar. Það veitir varla mikla
ánægju að eiga sitt tómstunda-
“gaman“ við slíkar aðstæður.
Þennan búskaparmáta má sannar-
lega sjá á Sauðárrkóki, inni í bæn-
um og í næsta nágrenni hans. Ef
bæjaryfirvöld og íbúar vilja taka til
í kringum sig, „moka flórinn“, þá
hlýtur það að verða eitt af því fyrsta
að fjarlægja kofana og koma bú-
fénaðinum fyrir í byggingum sem
eru skepnum og mönnum bjóð-
andi.
Þessi atriði sem ég hef drepið á,
þ.e. uppgræðsla Nafanna, skipulag
Sauðárgilsins og „hreinsun" kofa,
þurfa ekki að kosta bæjarfélagið
mikinn pening, aðeins framtak.“
Ýmislegt fleira bar á góma á
hringsóli okkar Hauks um Sauðár-
króksbæ, svo sem brotajárn, sorp-
hauga, spillingu fjörunnar og um-
gengni kringum vinnslustöðvar.
Það allt mætti ræða betur síðar.
Ég spurði Hauk Hafstað áður en
hann fauk af stað hvort ekki væri
erfitt að vera brottfluttur Skagfirð-
ingur.
„Ég er ekki beinlínis brottfluttur.
Ég á hér alltaf athvarf á ferðum
mínum vegna starfsins. Þegar ég á
frí vil ég helst hvergi vera nema
hér.“
Sjúkrahúsi Skagfirðinga færðar
góðar gjafir
Á árinu sem var að líða, hafa
Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Sauðár-
króki, borist margar góðar gjafir. Á
því ári voru liðin 20 ár frá því að
flutt var í nýja sjúkrahúsið á
Sauðárhæðum. í tilefni af þessu
færði starfsfólk sjúkrahússins því
að gjöf 3 blóðþrýstingsmæla.
Styrktarsjóður Guðrúnar Þ.
Sveinsdóttur frá Bjarnastaðahlíð,
gaf sjúkrahúsinu hjartaafritara
(monitor). Sigurbjörg Hólm,
Freyjugötu 32, Sauðárkróki, gaf
sjúkrahúsinu mjög vandað rann-
sóknarmælitæki. í tilefni árs
fatlaðra, hafa sjúkrahúsinu borist
margar góðar gjafir. Kvenfélagið
Framför í Skarðshreppi, Kvenfélag
Rípurhrepps, Kvenfélag Sauðár-
króks, færðu sjúkrahúsinu veg-
legar peningagjafir. Verkafólk
Fiskiðju Sauðárkróks mun á
næstunni afhenda sjúkrahúsinu
vandaðan rannsóknar- og með-
ferðarbekk, ásamtfylgihlutum.
Sjúkrahúsið færir öllum hug-
heilar þakkir fyrir þessar gjafir og
metur mikils áhuga fólks fyrir
bættri aðstöðu og þjónustu við
endurhæfingu og þjálfun sjúks
fólks.
(Fréttatilkynning).
Ur skólalífi Húnavatnssýslu
Einn þáttur í starfsemi Grunnskól-
ans á Blönduósi er að nemendur 4„
5. og 6. bekkjar (10-12 ára) vinna
saman að afmörkuðum verkefnum.
Starfið hefst með gagnasöfnun t.d.
bókum, blöðum o.fl., síðan er
nokkrum kennslustundum eytt í að
vinna úr gögnum og þá oftast í 3-4
hópum. Hóparnir skipta með sér
verkefnum t.d. 1. Sögustaðir, 2.
Kirkjur og kirkjustaðir, 3. Vega-
kerfið 4. Atvinnuvegir.
Þegar vinnslu úr gögnum er lokið
er farið í 1 dags ferðalag og skoð-
aðir þeir staðir sem um hefur verið
fjallað. Nemendur 4. bekkjar fara
til Skagastrandar og skoða þar t.d.
togara, frystihús og rækjuvinnslu.
Tilgangur: kynnast sjósókn og
vinnslu sjávarafurða.
Nemendur 5. og 6. bekkjar fara
til skiptis í Skagafjörð og um Aust-
ur- og Vesturhúnavatnssýslur. Til-
gangur: kynnast nánasta umhverfi,
sögu og staðháttum.
í haust var farið að Hólum í
Hjaltadal og til Sauðárkróks. Mikil
vinna bæði hjá kennurum og nem-
endum liggur á bak við slíkar ferðir
og afrakstur vinnunnar er kynntur
á foreldrakvöldi en þar eru sýndar
teikningar og lesið upp ýmislegt
tengt verkefninu. Iþróttir eru snar
þáttur í félagslífi nemenda skólans.
I haust kom hópur nemenda úr
Varmahlíðarskóla og var keppt í
knattspyrnu og körfubolta. Fyrir-
hugað er að Blönduósingar fari til
Varmahlíðar síðar í vetur.
Keppni í USAH milli Grunn-
skóla í A.-Hún.hefur staðið yfir,
Blönduósingar unnu alla sína leiki
og eru því sigurvegarar 1981-82.
Stefnt er áframhaldi á skólakeppn-
inni eftir áramót og keppt þá í blaki
og frjálsum iþróttum innanhúss.
„Opin hús“ fara fram hálfsmán-
aðarlega hjá nemendum 5.-9.
bekkjar, þar er dansað, spilað og
farið í leiki. Bekkjakennarar yngri
nemenda hafa verið með svokölluð
bekkjarkvöld þar sem ýmislegt er
sér til dundurs gert dansað og leikið
sér.
I lok nóvember voru danskenn-
arar frá Heiðari Ástvaldssyni með
danskennslu og höfðu aðstöðu í
Grunnskólanum til kennslunnar.
B.S.
Skólabörn á Hvammstanga undirbúa litlujólin.
Hér ríkir ekki
jafnrétti til náms
Mér hefur lengi verið ljóst að hér á
landi ríkir ekki jafnrétti til náms.
En þó gerði ég mér ekki grein fyrir
hversu ástandið er alvarlegt, fyrr
en ég flutti úr höfuðborginni sem
ég átti heima í frá fimm ára aldri,
og settist að á Hvammstanga. Þeir
skólar sem ég hef gengið í um
ævina hafa allir verið vel búnir og
húsrými þeirra nægilegt.
Fyrir tveimur árum kenndi ég
’ við grunnskóla í Kópavogi. í þeim í
skóla er allt til alls: góðar kennslu-
stofur, fullkomnar sérgreinastofur,
stórt og gott bókasafn, salir, vinnu-
herbergi fyrir kennara, íþrótta-
hús, rúmgott afdrep fyrir nemend-
ur í frímínútum og utan skólatíma,
stórar forstofur og fatahengi, og
svo má lengi telja áfram en ekki
hirði ég um það. Það sem við mér
blasti er ég skoðaði skólahúsnæðið
hér á Hvammstanga var allólíkt
þessu. Það var eins og að koma úr
glæsivillu olíukóngs í hreysi fátækl-
ings. Skólahúsnæðið er alltof lítið
fyrir þá 100 nemendur sem hér eru,
forstofan er agnarlítil, engar sér-
greinastofur nema smáherbergi í
félagsheimilinu sem notað er sem
eðlisfræðistofa, ekkert íþróttahús,
engir salir, engin vinnuherbergi
fyrir kennara, ekki einu sinni skrif-
stofa fyrir skólastjóra, skólalóðin
forarvilpa, bókasafnið saman-
stendur af um það bil. 200 skrudd-
um og loks má geta þess að skóla-
húsnæðið er allt sundursprungið
og nánast að hruni komið. Ég er
ekki mjög kunnugur skólum á
landsbyggðinni en reikna fastlega
með á ástandið hér á Hvamms-
tanga sé ekkert einsdæmi. Léleg
vinnuaðstaða og slæmur aðbúnað-
ur þarf þó ekki að koma í veg fyrir
góða kennslu eins og góð vinnuað-
staða og góður aðbúnaður er ekki
trygging gegn slæmri kennslu. En
eigi jafnrétti að ríkja, eigi að leggja
sama próf fyrir alla 9. bekki á
landinu, þá verður aðstaðan að
vera svipuð. Það er hún svo sannar-
iega ekki. Hér á Hvammstanga er
ekki einu sinni 9. bekkur.
15 ára gömul þurfa börnin hér að
yfirgefa heimili sín ætli þau sér að
taka níunda bekk. Þau fara á annan
skóla, þar eru kennarar sem þau
þekkja ekki, nemendur sem þau
þekkja ekki, umhverfi sem þau
þekkja ekki og svo framvegis. Eftir
fjóra mánuði er samræmda prófið
og börnin rétt farin að átta sig á
breytingunni. Og hvernig er út-
koman úr prófunum hjá þeim? Or-
ugglega verri en hún yrði ef börnin
sætu við sama borð og t.d. börn í
Reykjavík. Þetta er hróplegt órétt-
læti.
Ég ætla ekki að fara nánar út í
þetta að sinni en gaman væri að
heyra hvað fólki finnst um þetta.
Nemendur, eruð þið sáttir við
þessa meðferð? Foreldrar, stendur
ykkur á sama um framtíð barna
ykkar? Kennarar, hvað finnst ykk-
ur? Hafsteinn Karlsson,
Hvammstanga.