Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 3
—(3M0ES3I
Friðsæl áramót
á Reykhólum
— bundið slitlag á götur
og götuljósum fjölgað á liðnu
ári
Mannlíf í Reykhólahreppi
var rólegt yfir hátíðarnar.
Messað var í Reykhólakirkju
og Garpsdalskirkju á jóladag
og síðan í Gufudalskirkju á
annan jóladag. Kirkjusókn
var allgóð.
Áramótin voru friðsæl og
mikið um flugelda, sem svifu
um loftið í öllum regnbogans
litum.
Á nýliðnu ári hafa Reykhól-
ar breytt um svip. Bundið slit-
lag var sett þar á götur og götu-
Ijósum fjölgað að mun. Ekk-
ert hefur borið á atvinnuleysi
á Reykhólum í vetur.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan:
Tiltekið svæði
út af Vestfjörðum
verði framvegis
lokað allt árið
fyrir togveiðum
— þannig verði komist hjá árekstrum
og fundin lausn á áralöngu deilumáli
Aðalfundur Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Bylgj-
unnar á Vestfjörðum var hald-
inn daginn fyrir gamlársdag á
Hótel ísafirði. Fundurinn
samþykkti að leggja til við
sjávarútvegsráðherra, að
svæðið frá lóranlínu 46370 í
46420 út á 12 sjómílur frá
grunnlínupunktum verði frið-
að allt árið fyrir togveiðum.
I greinargerð með þessari
samþykkt segir, að þrátt fyrir
að flestir togarasjómenn og
línusjómenn hafi átt með sér
gott samstarf á miðunum út af
Vestfjörðum, þá hafi komið til
árekstra. Pess vegna leggur
Bylgjan til að þetta tiltekna
svæði út af Vestfjörðum verði
áfram Iokað þegar grunnslóð-
arsvæðið er opnað að hausti.
Tillaga þessi „er gerð í trausti
þess að í henni sé að finna
lausn á áralöngu deilumáli".
ÓKEYPIS
smá-
auglýsingar
TIL SÖLU VÉLSLEÐI
Kawasaki Drifter 440, árg.
’82, gott eintak.
Uppl. í s. 7808.
SUNNUKÓRSFÉLAGAR
Nú er það mjög áríðandi
æfing á þriðjudaginn 6. jan.
kl. 20.15 t Tónlistarskólan-
um. Mætum öll. Og líka þið
sem voruð í fríi fyrir áramót.
Stjórnin.
JEPPI TIL SÖLU
Til sölu Datsun King cab
árg. '83, yfirbyggður, 8
manna, með sparneytinni 4
cyl. bensínvél. Skipti á
ódýrari koma til greina.
Uppl. gefur Rögnvaldur í vs.
3223 eða hs. 4554.
VANTAR LITLA
talstöð, CB-stöð.
Uppl. gefurÁrmann í s. 7548.
HALLÓ
Ég er 6 ára og vantar eitt-
hvað til að sofa á og
kommóðu (fyrir lítinn eða
engan pening). Svo vantar
mömmu og pabba eidhús-
borð.
Uppl. í S. 4674.
KETTLINGAR
fást gefins. Eru vanir.
Uppl. e.kl. 19.
ELDRI BORGARAR!
Sunnudaginn 6. janúar kl.
15, á Hlíf annarri hæð, verða
Kiwanisfélagar með þrett-
ándagleði. Kaffiveitingarog
dans. Allir eldri borgarar
eru hjartanlega velkomnir.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir 3ja herb. íbúð á
leigu, helst sem fyrst. Þarf
að vera á Eyrinni.
Uppl. í s. 4634 e.kl. 18.
☆
Föndurloftið auglysir:
VESTFIRÐINGAR ATHUGIÐ!
Mikil verðlækkun á ýmsum vörum,
svo sem jólavörum peysum o.fl.
Alltaf nóg úrval
af efni til tómstundastarfa.
Námskeið hefjast 15. janúar. Innritun hafin.
Föndurloftið
Mjallargötu 5, ísafirði, sími 3659
gjaldskrár-
hækkun
hjá OV
Um áramótin hækkaði
gjaldskrá Orkubús Vestfjarða
um 5%, en það er sama hækk-
un og hjá flestum öðrum orku-
veitum landsins.
ÓKEYPIS
smá-
auglýsingar
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir að taka á leigu ca.
2ja herb. íbúð á Isafirði.
(Þarf að vera á Eyrinni).
Uppl. í s. 3223 eða 4554.
ATVINNA
Starfsfólk óskast til hótelstarfa.
Upplýsingar veitir hótelstjóri.
*
Frá Ármanni Leifssyni:
Vetraráætlun
tekur gildi
Farið úr Reykjavík seinnipart
mánudaga og fimmtudaga.
Frá ísafirðiþriðjudaga ogföstudaga.
Farnar verða fleiri ferðir
ef færð og ástæður leyfa.
Vöruflutningar
Ármanns Leifssonar