Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 4
Vestfirska fréttablaöið kemur út síðdegis á fimmtudögum. Blaðið er
ókeypis og sent áskrifendum hvar sem er á landinu og erlendis og
þá einungis gegn greiðslu á sendingarkostnaði. Ritstjórn og auglýs-
Ingar: Aðalstræti 35, (safirði, símar 94-4011. Póstfaxsími: 94-4423.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon. Útgefandi:
Grafíktækni h.f. Prentvinnsla: (sprent h.f. Aðalstræti 35, isafirði,
94-3223. Vestfirska fréttablaðið er i Samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða. Vestfirska fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslun-
arráðs islands.
... og fríður á jörðu
með þeim mönnum
sem hann
hefur velþóknun á
Það varð sannarlega ekki fátt um kveðjur um
þessi jól og áramót fremur en endranær, sama
hvort var í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi. Sum
stórfyrirtæki sendu meira að segja öllum lands-
mönnum bestu jóla- og nýársóskir, svo sem
Búnaðarbankinn og Coca Cola á íslandi. En
stærsta fyrirtækið á (slandi, sem auk þess er
sameign allrar þjóðarinnar, sendi bara einum
tilteknum hópi landsmanna óskir um farsæld á
komandi ári. Það var sjálfur Ríkissjóður
íslands. Frá honum birtist aftur og aftur auglýs-
ing í Sjónvarpinu þar sem einungis kaupendum
og áskrifendum spariskírteina var óskað árs
og friðar. Þeir landsmenn sem hafa annað við
peningana sína að gera en safna spariskírtein-
um ellegar eiga enga peninga fengu ekki
neinar hátíðakveðjur frá Stóra Bróður.
Sjómenn
smábátaeigendur
Siglingamálastofnun ríkisins
vill minna á lög nr. 112/1984
um atvinnuréttindi skipstjórnar-
manna á íslenskum skipum.
Þar eru ákvæði um að skipstjórnar-
réttindi þarf á öll skip 6 m og lengri.
Siglingamálastofnun ríkisins.
Þakkir
til skólabarna
Þau börn sem glöddu mig
með jólagjöfum og kortum yfir jólin
hafi hjartans þakkir fyrir.
Með bestu óskum um gleðilegt nýtt ár.
Sjáumst!
Kær kveðja,
Geiri.
Athuga-
semd
frá
✓
Oskari
Eggerts-
syni
varðandi
kirkju-
mál
✓
á Isa-
firði
Óskar Eggertsson bað Vest-
firska fréttablaðið að koma
þeirri áréttingu á framfæri
vegna frétta af fundi sóknar-
nefndar ísafjarðar sl. mið-
vikudag, að hann hefði „ekki
setið umræddan fund, né
heldur Gunnar Jónsson, sem
verið hefur sóknarnefndar-
formaður í vetrarleyfi Björns
Teitssonar.
Helga
Sigurðardóttir
íþróttamaður
ísafjarðar
í þriðja sinn
Helga Sigurðardóttir ásamt
Albert prins af Monaco.
Myndin er tekin á Smáþjóða-
leiknnum í Monaco árið 1987.
Helga Sigurðardóttir sund-
kona í Vestra hlaut titilinn
íþróttamaður ísafjarðar 1990.
Þetta er í þriðja sinn sem
Helga hlýtur þessa útnefn-
ingu; hún var einnig íþrótta-
maður ísafjarðar 1986 og
1989.
Helga byrjaði að æfa sund
árið 1982 og setti sitt fyrsta fs-
landsmet árið 1984. Árið 1985
var hún í fyrsta sinn valin í
landslið til að keppa á Kalott
og hefur verið einn af burðar-
ásum landsliðsins síðan. Hún
hefur hlotið ótal íslandsmeist-.
aratitla.
Sóknarnefnd Isafjarðar hafnar
tillögum Húsafriðunarnefndar
um endurbyggingu og stækkun
Isafjarðarkirkju
Vestfirska fréttablaðinu hefur borist bréf það og ályktun, sem birtast hér að neðan.
Mergurinn málsins er sá, að á fundi Sóknarnefndar ísafjarðar sl. miðvikudag var algerlega
hafnað tillögum Húsafriðunarnefndar ríkisins um endurbyggingu og stækkun ísafjarðar-
kirkju og byggingu safnaðarheimilis, en þær tillögur voru kynntar á ísafirði og hér í
blaðinu fyrr í vetur.
Fréttatilkynning frá sóknarnefnd ísaf jaróarsóknar.
Vinsamlegast birtið meöfylgjandi samþykkt og látiö þess getið
aö hún var gerð í sóknarnefnd ísafjarðarsóknar þann 2. janúar
1991 með fímm samhljóða atkvæðum. Einn aðalmaður var
f jarverandi og greiddi varamaður hans atkvæði. Viðstaddir voru
tveir aðrír varamenn í sóknarnefnd, sóknarprestur og
kirkjuvörður og lýstu allir stuðningi við tillöguna.
Virðingarfyllst.
Björn Teitsson, formaður sóknarnefndar.
fsafiröi, 2, Jan 1991.
Ályktun frá Sóknarnefnd Isaf jarðarsóknar, þann 2. jan. 1991.
Vegna bréfa frá Húsafriðunarnefnd ríkisins á árinu 1990, tiilðgu
að stækkun Isafjarðarkirkju og byggingu safnaðarheimiiis frá I.
nóv. 1990 og þeirrar umræðu sem orðið hefur um
kirkjubyggingarmáiiö á Isafirði frá því 1 októbermánuði s.i.
ályktar sóknarnefnd eftirfarandi;
1.
Tillaga Húsafriðunarnefndar um stækkun Isafnarðarkirkju og
byggingu safnaðarheimilis frá I. nóv. s.l. fullnaegir ekki þeim
skilmálum sem fram komu í byggingarforsögn sóknarnefndar frá
9. júli 1990. Því skal halda fast við fyrri samþykktir
sóknarnefndar frá 9. júlí 1990 og 15. nóv. 1990 um að byggð
verði ný kirkja og safnaðarheimili á lóðunum á horni
Hafnarstrætis og Sólgötu.
2.
I bréfi frá formanni Húsafriðunarnefndar, dagsettu 28. sept.
1990 er fallíst á flutning gömlu kirkjunnar.
Þá hefur bæjarstjórn Isafjarðar með bréfi dagsettu 15. okt.1990
heitiö liðsinni sínu viö að rýma lóð gömlu kirkjunnar.
I framhaldi af bréfum þessum áréttar sóknarnefnd samþykkt sína
frá 15. nóv. 1990 um að gamla kirkjan skuli tekin ofan i hlutum
og komið fyrir í vörslu til síðari tima ráðstöfunnar. Sóknarnefnd
mun hið fyrsta ráða sérfræðing til að hafa umsjón með ofantöku
kirkjunnar.
3.
I bréfi Húsafriðunarnefndar frá 28. nóv.1990 er talið að koma
þurfi bein umsókn frá sóknarnefnd hyggist hún taka gömlu
kirkjuna ofan eöa flytja hana. Af þessu tilefni vill sóknarnefnd
taka fram að hún er sömu skoðunar og áður sbr. bréf
sóknarnefndar til Húsafriðunarnefndar, dagsett 6. april 1990 um
rétt Isafjarðarsafnaðar til að rífa gömlu kirkjuna og að ekki sé
hægt að krefja söfnuðinn um að kosta endurbyggingu hennar og
varðveislu.
4.
Stefna skal að því að halda aðalsafnaðarfund snemma sumars,
eða um það bil ári eftir að siðasti aðalsafnaðarfundur var
haldinn.