Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Side 4

Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Side 4
 Vestfirska fréttablaöið kemur út síðdegis á fimmtudögum. Blaðið er ókeypis og sent áskrifendum hvar sem er á landinu og erlendis og þá einungis gegn greiðslu á sendingarkostnaði. Ritstjórn og auglýs- Ingar: Aðalstræti 35, (safirði, símar 94-4011. Póstfaxsími: 94-4423. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon. Útgefandi: Grafíktækni h.f. Prentvinnsla: (sprent h.f. Aðalstræti 35, isafirði, 94-3223. Vestfirska fréttablaðið er i Samtökum bæjar- og héraðs- fréttablaða. Vestfirska fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslun- arráðs islands. ... og fríður á jörðu með þeim mönnum sem hann hefur velþóknun á Það varð sannarlega ekki fátt um kveðjur um þessi jól og áramót fremur en endranær, sama hvort var í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi. Sum stórfyrirtæki sendu meira að segja öllum lands- mönnum bestu jóla- og nýársóskir, svo sem Búnaðarbankinn og Coca Cola á íslandi. En stærsta fyrirtækið á (slandi, sem auk þess er sameign allrar þjóðarinnar, sendi bara einum tilteknum hópi landsmanna óskir um farsæld á komandi ári. Það var sjálfur Ríkissjóður íslands. Frá honum birtist aftur og aftur auglýs- ing í Sjónvarpinu þar sem einungis kaupendum og áskrifendum spariskírteina var óskað árs og friðar. Þeir landsmenn sem hafa annað við peningana sína að gera en safna spariskírtein- um ellegar eiga enga peninga fengu ekki neinar hátíðakveðjur frá Stóra Bróður. Sjómenn smábátaeigendur Siglingamálastofnun ríkisins vill minna á lög nr. 112/1984 um atvinnuréttindi skipstjórnar- manna á íslenskum skipum. Þar eru ákvæði um að skipstjórnar- réttindi þarf á öll skip 6 m og lengri. Siglingamálastofnun ríkisins. Þakkir til skólabarna Þau börn sem glöddu mig með jólagjöfum og kortum yfir jólin hafi hjartans þakkir fyrir. Með bestu óskum um gleðilegt nýtt ár. Sjáumst! Kær kveðja, Geiri. Athuga- semd frá ✓ Oskari Eggerts- syni varðandi kirkju- mál ✓ á Isa- firði Óskar Eggertsson bað Vest- firska fréttablaðið að koma þeirri áréttingu á framfæri vegna frétta af fundi sóknar- nefndar ísafjarðar sl. mið- vikudag, að hann hefði „ekki setið umræddan fund, né heldur Gunnar Jónsson, sem verið hefur sóknarnefndar- formaður í vetrarleyfi Björns Teitssonar. Helga Sigurðardóttir íþróttamaður ísafjarðar í þriðja sinn Helga Sigurðardóttir ásamt Albert prins af Monaco. Myndin er tekin á Smáþjóða- leiknnum í Monaco árið 1987. Helga Sigurðardóttir sund- kona í Vestra hlaut titilinn íþróttamaður ísafjarðar 1990. Þetta er í þriðja sinn sem Helga hlýtur þessa útnefn- ingu; hún var einnig íþrótta- maður ísafjarðar 1986 og 1989. Helga byrjaði að æfa sund árið 1982 og setti sitt fyrsta fs- landsmet árið 1984. Árið 1985 var hún í fyrsta sinn valin í landslið til að keppa á Kalott og hefur verið einn af burðar- ásum landsliðsins síðan. Hún hefur hlotið ótal íslandsmeist-. aratitla. Sóknarnefnd Isafjarðar hafnar tillögum Húsafriðunarnefndar um endurbyggingu og stækkun Isafjarðarkirkju Vestfirska fréttablaðinu hefur borist bréf það og ályktun, sem birtast hér að neðan. Mergurinn málsins er sá, að á fundi Sóknarnefndar ísafjarðar sl. miðvikudag var algerlega hafnað tillögum Húsafriðunarnefndar ríkisins um endurbyggingu og stækkun ísafjarðar- kirkju og byggingu safnaðarheimilis, en þær tillögur voru kynntar á ísafirði og hér í blaðinu fyrr í vetur. Fréttatilkynning frá sóknarnefnd ísaf jaróarsóknar. Vinsamlegast birtið meöfylgjandi samþykkt og látiö þess getið aö hún var gerð í sóknarnefnd ísafjarðarsóknar þann 2. janúar 1991 með fímm samhljóða atkvæðum. Einn aðalmaður var f jarverandi og greiddi varamaður hans atkvæði. Viðstaddir voru tveir aðrír varamenn í sóknarnefnd, sóknarprestur og kirkjuvörður og lýstu allir stuðningi við tillöguna. Virðingarfyllst. Björn Teitsson, formaður sóknarnefndar. fsafiröi, 2, Jan 1991. Ályktun frá Sóknarnefnd Isaf jarðarsóknar, þann 2. jan. 1991. Vegna bréfa frá Húsafriðunarnefnd ríkisins á árinu 1990, tiilðgu að stækkun Isafjarðarkirkju og byggingu safnaðarheimiiis frá I. nóv. 1990 og þeirrar umræðu sem orðið hefur um kirkjubyggingarmáiiö á Isafirði frá því 1 októbermánuði s.i. ályktar sóknarnefnd eftirfarandi; 1. Tillaga Húsafriðunarnefndar um stækkun Isafnarðarkirkju og byggingu safnaðarheimilis frá I. nóv. s.l. fullnaegir ekki þeim skilmálum sem fram komu í byggingarforsögn sóknarnefndar frá 9. júli 1990. Því skal halda fast við fyrri samþykktir sóknarnefndar frá 9. júlí 1990 og 15. nóv. 1990 um að byggð verði ný kirkja og safnaðarheimili á lóðunum á horni Hafnarstrætis og Sólgötu. 2. I bréfi frá formanni Húsafriðunarnefndar, dagsettu 28. sept. 1990 er fallíst á flutning gömlu kirkjunnar. Þá hefur bæjarstjórn Isafjarðar með bréfi dagsettu 15. okt.1990 heitiö liðsinni sínu viö að rýma lóð gömlu kirkjunnar. I framhaldi af bréfum þessum áréttar sóknarnefnd samþykkt sína frá 15. nóv. 1990 um að gamla kirkjan skuli tekin ofan i hlutum og komið fyrir í vörslu til síðari tima ráðstöfunnar. Sóknarnefnd mun hið fyrsta ráða sérfræðing til að hafa umsjón með ofantöku kirkjunnar. 3. I bréfi Húsafriðunarnefndar frá 28. nóv.1990 er talið að koma þurfi bein umsókn frá sóknarnefnd hyggist hún taka gömlu kirkjuna ofan eöa flytja hana. Af þessu tilefni vill sóknarnefnd taka fram að hún er sömu skoðunar og áður sbr. bréf sóknarnefndar til Húsafriðunarnefndar, dagsett 6. april 1990 um rétt Isafjarðarsafnaðar til að rífa gömlu kirkjuna og að ekki sé hægt að krefja söfnuðinn um að kosta endurbyggingu hennar og varðveislu. 4. Stefna skal að því að halda aðalsafnaðarfund snemma sumars, eða um það bil ári eftir að siðasti aðalsafnaðarfundur var haldinn.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.