Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Qupperneq 2
Vestfirska fréttablaðið kemur út síðdegis á fimmtudögum.
Ritstjórn og auglýsingar: Aðalstræti 35, ísafirði, sími
(94-)4011. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnús-
son. Útgefandi: Grafíktaekni hf. Prentvinnsla: ísprent hf.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna á ísafirði heldur fund föstudag-
inn 14. júní nk. kl. 20.30 að Hafnarstræti 12, 2. hæð.
Dagskrá:
Bæjarfulltrúar flokksins gera grein fyrir meirihlutasam-
starfi við Framsóknarflokkinn og Alþýðubandalagið.
Önnurmál. .
St]ornm.
Guðsþjónusta
í ísafjarðarkapellu á sunnudag kl. 14.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarprestur.
Konur á öllum aldri!
á ísafirði og nágrenni
Munið 19. júní-samkomuna áheimavistMÍ kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá.
Kvenfélagið Ósk.
Pétur Kr. Hafstein:
Sanngirni í staö hleypidóma
Hjá því verður ekki komizt
að gera nokkrar athugasemdir
vegna umfjöllunar í forsíðu-
frétt Vestfirska fréttablaðsins
í síðustu viku um þann atburð,
er lögreglan á ísafirði veitti
hinn 1. júní s.l. tilteknum öku-
manni eftirför í Hnífsdal. Þótt
blaðinu þyki við hæfi að taka
það sérstaklega fram, að það
sé ekki dómbært á neinn hátt,
er frásögn þess mörkuð slíkum
sleggjudómum, að ekki er
samboðið svo ágætu blaði og
virtum ritstjóra þess. Þarna er
í hálfkveðnum vísum látið að
því liggja, að lögreglan eigi
með aðgerðum sínum, sem
hún sæki fyrirmyndir í til of-
beldiskvikmynda og ýktra
spennuþátta í sjónvarpi, sök
á slysförum manna og jafnvel
dauða. Ekki var látið svo lítið
að ræða við yfirmenn lögregl-
unnar, áður en þessi boð-
skapur var látinn ganga á
þrykk.
Það orkar vissulega allt tví-
mælis, þágert er. Menn skyldu
þó ekki gleyma því, að hin við-
kvæmu og vandasömu störf
lögreglumanna eru þess eðlis,
að oftar en ekki þurfa þeir að
meta aðstæður og taka
ákvarðanir í skyndingu.
Gagnrýnendur þeirra geta
hins vegar metið málin eftirá
og sjá þá hlutina oft í öðru
Pétur Kr. Hafstein.
ljósi. Það er engum ljósara en
lögreglumönnunum sjálfum,
að stundum hefði mátt gera
eitt og annað með öðrum
hætti, ekki sízt ef atburðarás-
ina hefði mátt sjá fyrir. Ég tel
mig þó geta fullyrt það með
góðri samvizku, að lögreglu-
menn á ísafirði leitast við að
haga störfum sínum með þeim
hætti, að öryggi og velferð al-
mennings sé jafnan í fyrir-
rúmi. Hitt er annað, að svo er
því miður allt of oft, að þeir,
sem mest fjargviðrast yfir að-
gerðarleysi lögreglunnar,
verða fyrstir til að kvarta yfir
yfirgangi hennar og ofríki, ef
aðgerðir beinast á einhvern
hátt gegn þeim sjálfum.
Þegar lögregla gefur öku-
manni, sem ekur langt yfir
leyfilegum . hraðamörkum,
stöðvunarmerki og hann sinn-
ir þeim í engu. blasir ekki ein-
ungis við, að brotnar eru þær
umgengnisreglur samfélags-
ins, sem settar eru til verndar
öryggi hins almenna borgara
og lögreglunni er ætlað að
halda uppi. Hitt er jafnljóst,
að þessi ökumaður er bæði
sjálfum sér og umhverfi sínu
hættulegur, hvort heldur hann
er drukkinn eða allsgáður.
Það er starfsskylda lögregl-
unnar að reyna að koma í veg
fyrir, að illa fari. Hún þarf
með öðrum orðum að gera sitt
ítrasta til þess að koma í veg
fyrir þau skaðaverk. er óheft
framganga slíkra ökumanna
gæti leitt til. Þaðgerir hún ekki
með því að halda að sér
höndum. Hún verður hins
vegar að haga aðgerðum sín-
um í fyllsta samræmi við að-
stæður hverju sinni. Það ætti
svo tæpast að þurfa að taka
það fram, að aðvörunarmerki
með hverfiljósum og sírenu
gefa lögreglumenn ekki til
þess að skemmta sjálfum sér,
heldur til þess að vara fólk við
og gera það svo ljóst, sem
verða má, að hættuástand sé á
ferðum.
Það er óréttmætt að slá því
föstu, að með því að veita
þeim ökumönnum eftirför,
sem aka með ofsafengnum
hætti og sinna ekki stöðvun-
armerkjum, sé lögreglan að
„fæla þá upp" og stofna lífi
barna og annarra vegfarenda
í stórhættu. Menn verða að
hugsa þá hugsun til enda,
hvaða tjóni slíkir ökumenn
geta valdið, ef lögreglan lætur
þá afskiptalausa. Hverjaryrðu
þá upphrópanirnar um ábyrgð
lögreglunnar? Eru fréttamenn
í færum til að fullyrða, að
sú eftirför, sem lögreglan
veitti ógæfusömum ökumanni
í Hnífsdal laugardaginn 1.
júní, hafi verið „ástæðulaus"
og ná hefði mátt „fullum ár-
angri" án hennar? Hvaða ár-
angri?
Lögreglan skorast að sjálf-
sögðu ekki undan ábyrgð á
verkum sínum. Hún hlýtur
hins vegar að gera þá kröfu til
þeirra, sem um verk hennar
fjalla á opinberum vettvangi,
að þeir viðhafi bæði sanngirni
og réttsýni en láti ekki hleypi-
dóma villa sér sýn. Undan
þeirri ábyrgð mega fjölmiðlar
ekki víkjast.
Höfundur er bœjarfógeti
á ísafirði og sýslumaður
í ísafjarðarsýslum.
UTBOÐ
Hafnarstjórn Súðavíkur býður út og óskar
eftir tilboðum í verkáfanga við hafnargerð
í Súðavík. í verkinu er innifalið:
1. Brjóta upp þekju og fjarlægja alls
230 fm.
2. Leggja vatnslagnir.
3. Leggja frárennslislagnir.
4. Setja fyllingu í rétta hæð.
5. Leggja snjóbræðslulagnir.
6. Steypa nýja þekju á bakkann alls um
897 fm.
Verktaki skal hafa lokið verkinu fyrir 22.
ágúst 1991.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Súða-
víkurhrepps Njarðarbraut 14, Súðavík
gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstu-
daginn 21. júní 1991 kl. 14.00.
Súðavíkurhreppur
Njarðarbraut 14, Súðavík
sími 94-4912.
ísfirðingar
Vestfirðingar
ferðamenn!
Komið og hlustið á hina óviðjafnanlegu Anitu
Pearce Kántrí söngkonuna víðfrægu sem
syngur og talar á samkomum í Hvítasunnu-
kirkjunni Salem dagana 18. og 19. júní nk.
kl. 20.00. Hressilegur söngur og hrífandi
ræðumennska. Beðið fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
HVÍTASUNNUKRIKJAN SALEM
Vilborg Davíðsdóttir:
Kveðja til blaðamanns „á toppnumu
Ég undirrituð legg það ekki
í vana minn að skrifa lesenda-
dálka, enda hef ég atvinnu af
skrifum sem blaðamaður. En
nú get ég þó ekki orða bundist
lengur, eftir að hafa fylgst með
bréfaskiptum þeirra Róberts
Schmidt fyrrum blaðamanns
Bæjarins besta og Sigurjóns J.
Sigurðssonar ritstjóra BB.
Tilefnið er fyrst og fremst
klausa í grein Róberts í Vest-
firska þann 30. maí sl. þar sem
hann gefur í skyn að allir fyrri
blaðamenn BB hafi hætt þar
störfum vegna ósættis við rit-
stjóra. Þar þykir mér ómak-
lega vegið að Sigurjóni og
öðrum fyrri samstarfs-
mönnum í H-prent.
Ég starfaði sem blaðamaður
BB frá hausti 1988 til vors 1990
og tek það skýrt fram að sam-
starf við Sigurjón var með
ágætum og átti engan þátt í
því að ég hætti þar störfum og
flutti til Reykjavíkur. Og ég
er alveg viss um að allir þeir
blaðamenn sem hafa starfað
við Vestfirska fréttablaðið
hafa ekki heldur skipt um störf
vegna ósættis við sinn rit-
stjóra.
Eftir að hafa unnið með rit-
stjóra BB í þetta langan tíma
þykist ég fullfær um að vitna
um heiðarleika hans sem
blaðamanns og get upplýst að
þau vinnubrögð sem Róbert
ásakar hann um, þ.e. „úr-
klippublaðamennska" tíðkuð-
ust ekki meðan ég var þar við
störf. Róbert tók við starfi
mínu nokkru síðar og ég get
ekki ímyndað mér að við það
eitt að hann hóf þar störf hafi
fréttaöflun verið umbýlt í þá
veru sem hann lýsir á svo
dramatískan hátt.
Það að blaðamenn fylgist
Vilborg Davíðsdóttir.
vel með því sem fram kemur í
öðrum fjölmiðlum er þeim til
lofs en ekki lasts og raunar
nauðsynlegt í starfi. Það er
hverjum hugsandi manni aug-
ljóst að þó einn fjölmiðill birti
frétt af sama atburði og annar
er hann ekki að stela neinu;
enginn á einkarétt á birtingu
fréttar nema hann hafi keypt
hann af málsaðilum og slíkt
tíðkast ekki hér á landi.
Aðdróttanir um að BB steli
jafnvel upp úr svæðisútvarp-
inu þykja mér bara fyndnar og
ekki svara verðar. Hafi það
gerst hefur eitthvað meira en
lítið breyst frá minni tíð á BB.
Þó ég sé flutt suður er ég að
sjálfsögðu enn áhugasamur
lesandi bæði BB og Vestfirska
og satt að segja fæ ég ekki séð
hvað það er sem ergir Róbert
svo mjög. Hann virðist liggja
í blaðinu í örvæntingarfullum
tilraunum til að finna eitthvað
sem hægt er að setja út á.
Hjálpi mér hamingjan, er ekki
hægt að finna sér skemmti-
legra áhugamál?
Róbert talar einnig um
„minnimáttarþanka" S.J.S. í
garð Vestfirska fréttablaðsins.
Ég bið nú bara lesendur sjálfa
að dæma um hvort blaðið
flytur meira af fréttum, hvort
þeirra er skrifað á faglegri
máta og hvort þeirra leggur
meiri vinnu í fallegt útlit og
uppsetningu.
Róbert, til þín beini ég
þeirri ósk að þú látir af þessum
blekaustri og snúir þér fremur
aftúr að því sem þú gerir betur
en margir aðrir; þ.e. að skrifa
fréttir um gæsaskytterí,
rjúpnaskytterí, tófuskytterí
og silungsveiði.
Bestu kveðjur,
Vilborg Davíðsdóttir
blaðamaður.
Húsnæði óskast
Vegna jarðgangagerðar óskar ístak hf.
eftir því að taka á leigu einbýlishús
eða raðhús á ísafirði.
Upplýsingar gefur
Sigurður Einarssoní síma (91) 622700.
ÍSTAK
ATVINNA
Starfskraft vantar í sumarafleysingu.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Kaupfélag
ísfirðinga
Einar & Kristján