Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Side 5
ísafj arðarhátíð
í júnílok
Nú fer brátt að líða að einni
Ísafjarðarhátíðinni enn, hún
verður dagana 28.-30. júní nk.
Sú fyrsta var haldin 1982, og
síðan hafa þær verið á þriggja
ára fresti. Þessi verður því sú
fjórða í röðinni.
Grunnurinn hefur verið
keppnisgreinar báta og er
hraðbátarallið um ísafjarðar-
djúp einskonar burðarás. A
fyrri hátíðum hefur sjóstanga-
veiðimót jafnan verið á dag-
skránni, en vegna vaxandi um-
fangs var ákveðið að taka það
út og verður það haldið næstu
helgi á eftir, föstudag og laug-
ardag. Sjóstangaveiðimótin
sem hófust hér með hátíðinni
1982 hafa verið haldin hvert ár
síðan og hafa verið hluti af Is-
landsmeistaramóti frá því slík
mót hófust.
Helstu keppnisgreinar í ár
eru: Hraðbátarall Reykjavík-
ísafjörður (þó er óvissa um
það vegna lítillar þátttöku);
Djúprallið, hraðbátarall frá
ísafirði um ísafjarðardjúp,
viðkomustaðir Súðavík,
Vigur, Reykjanes, Æðey,
Bolungarvík og endað á Isa-
firði; Spyrnukeppni hraðbáta
á Pollinum; Keppni gúmíbáta
björgunarsveita á Pollinum;
Furðufleyjakeppni (heima-
smíðaðar unglingafleytur) og
róðrabátakeppni barna.
Þá verður námskeið og sýn-
ing seglbrettamanna, almenn-
ingi verður boðið á sjóstanga-
veiði, og siglt verður með börn
og unglinga á hraðbátum á
Pollinum. Gert er ráð fyrir
hópsiglingu Snarfaramanna úr
Reykjavík vestur, og verður
farið til móts við þá á bátaflota
Isfirðinga.
Á Silfurtorgi verður götu-
markaður síðdegis á föstudag-
inn, með sölubásum, stór-
hljómsveitum af ýmsu tagi og
öðrum skemmtiatriðum. Og
ef þannig stendur á að hér
verði þá starfandi bæjarstjóri,
mun hann setja hátíðina með
ræðu kl. 18.00. Útvarp verður
starfrækt yfir hátíðina.
Mikið verður um allskonar
verðlaunagripi. sem allir eru
gefnir af Hrönn hf., útgerð
aflaskipsins Guðbjargar.
Sportbátafélagið Sæfari er
lykilaðilinn að mótinu, en með
í spilinu eru bæjarsjóður,
ferðamálasamtök, björgunar-
sveitir, seglbrettafélag, Sjó-
stangaveiðifélagið, Smábáta-
félagið Huginn, auk fjölda
einstaklinga.
Mótsmerkið er teiknað af
Pétri Guðmundssyni og er
stílfærð mynd af Skutulsfjarð-
areyri.
Nú það þarf svo ekki að
segja frá því að það er alltaf
óskaplegt fjör á þessum hátíð-
Aftur
kvennahlaup
Á síðastliðnu ári var haldið
kvennahlaup í tengslum við
íþróttahátíð f.S.Í. á ísafirði og
víðar um land. Alls tóku tvö
þúsund konur þátt í hlaupinu,
og þótti það takast svo vel að
íþróttasamband íslands hefur
samþykkt að hlaupið fari aftur
fram laugardaginn 22. júní kl.
14.00.
Safnast verður saman á
grasflötinni á Austurvelli, og
hitað upp með léttum æf-
ingum. Vegalengdin verður
tveir og hálfur kílómetri og
mega þátttakendur hlaupa
hana, skokka eða ganga.
Markmiðið er að allar
konur, yngri og eldri verði
með í hollri hreyfingu og úti-
veru. - Byrjaðu að æfa strax,
og fáðu vinkonur og ættingja
með.
flyndás
S. 4561
LOKAÐ VEGNA SUMARLEYFA 18.-20. júní
Skólaspjöldin eru tilbúin J||f
Stúdenta hópmyndin tilbúin
Hjónabandið
á
að vera
Þess vegna býður Óðinn bakari
25% AFSLÁTT
af brúðkaupstertum í sumar.
Opið laugardaga 9-4 og sunnudaga 10-4
OÐINN BAKARI
Hafnarstræti 4, s. 4707 og Silfurgötu 11 s. 4770.
Við kynnum utanhússmálningu föstudag
frá kl. 13 til 18 og laugardag frá kl. 10 til 16
MALUN A
STEINI, TRÉ OG JÁRNI
UTANHÚSS
Sölumenn frá Málningu hf. á staðnum.
Fagleg ráðgjöf, aðstoð við efnis- og litaval
15% KYNNINGARAFSLÁ TTUR
Nú mála allir fyrir 17. júní
ATH.
Litakort frá Málningu hf.
fylgir með Vestfirska fréttablaðinu