Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Page 7
Föndurloftið auglýsir
Ódýru íslensku sumarbolirnir komnir aftur,
barna-og fullorðinsstærðir
Mikið úrval af minjagripum nýkomið.
Einnig bómuHar- og ullarvörur s.s. peysur,
jakkar og værðarvoðir.
Allskonar hannyrða- og gjafavara.
Kynnið ykkur urvalið.
VERIÐ VELKOMIN
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 10-16
Föndurloftið
— verslun og sumargisting
Mjallargötu 5, sími 3659
í safj arðarkaupstaður
Sundhöll ísafjarðar
s. 3200
Verðuropinfrá 10. júnítil 18. ágústþannig:
Mánudaga-föstudaga
kl. 7.00-11.30, 14.00-18.00, 20.00-21.30
Laugardaga kl. 10.00-16.00.
Sunnudaga kl. 10.00-12.00.
Saunabað
Mánud.-þriðjud.-miðvikud. kl. 20.00-21.30 konur.
Fimmtud.-föstud. kl. 20.00-21.30 karlar.
Laugard. kl. 13.00-16.00 karlar.
Ekki selt inn 30 mín fyrir lokun.
Sundhöll ísafjarðar.
Lesendur:
Ekkert er nýtt
undir sólinni
“Bílamaöur" skrifar:
Vegna fréttar í síðasta „Skutli" um daginn um „nýja“
bílaþjónustu hér á (safirði hjá Ómari Matthíassyni, þá vil
ég benda á að þar er ekkert „nýtt“ á ferðinni. Þess má
geta í því sambandi, að Veturliði Veturliðason
bifvélavirkjameistari rak um tveggja ára skeið samskonar
þjónustu í húsnæði Kofra hf. Auk þess hafa verkstæði hér
í bæ verið með og eru með bón og þvott á bílum, að
ógleymdum félagsmönnum Sunddeildar Vestra, sem hafa
stundað þetta um nokkurt skeið til fjáröflunar fyrir starf sitt.
Varðandi reiðhjólaþjónustuna, þá er samskonar þjónusta
rekin í Þór hf. og hafa krakkar og unglingar fengið lánuð
þar verkfæri og einnig fengið ráðleggingar endurgjalds-
laust.
Bílamaður.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Vélbátaábyrgðarfélags
ísfirðinga verður haldinn
laugardaginn 22. júní nk. kl. 16.00
á Hótel ísafirði.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
m
SJALLINN -
★ ★
Fimmtudagskvöld kl. 20-1 pöbbinn opinn
Föstudagskvöld kl. 22-03
og laugardagskvöld kl. 23-03
HÖRKUDANSLEIKIR
m/ hljómsveitinni
GAL I LEO
«* mmm^ 11
18 ár
ATH: á föstudagskvöld er hálft gjald frá 10 til 12
Sunnudagskvöld kl. 20-03 pöbbinn opinn
Munið nafnskírteinin.
r*
Skrifstofu- og ritaraskólinn á ísafirði:
Fyrstu skólaslit
Skrifstofu- og ritaraskólan-
um á ísafirði var slitið á laug-
ardaginn var, eftir sitt fyrsta
starfsár hér. Það voru tuttugu
nemendur sem byrjuðu í
skólanum í haust, allt konur.
Aðeins ein hætti námi, svo
nítján skiluðu sér til vors og
teljast það góðar heimtur.
Þar er Stjórnunarfélag fs-
lands sem býður upp á þetta
nám sem tekur tvö ár. Miklar
kröfur eru gerðar til nemenda,
t.a.m. er lágmarkseinkunn sjö
í hverri grein.
Stjórnandi skólans. Sigrún
C. Halldórsdóttir lét vel af
starfinu í vetur, var lukkuleg
með bæði kennara og nem-
endur og sagði einstaka sam-
heldni hafa ríkt í hópnum,
enda væri meiningin að skella
sér í skólaferðalag.
Sigrún afhenti rós með hverju skírteini.
Leikarinn beitir (hæfileikum!)
Róbert Schmidt, Bíldudal:
Það hefur víst ekki farið
fram hjá neinum Vestfirðingi
að leikarinn góðkunni,
Þröstur Leó Gunnarsson frá
Bíldudal, hefur starfað við
beitningu og sjómennsku frá
því hann kom til Bíldudals frá
Iðnó.
Þröstur er nú á grásleppu-
veiðum á Ými BA, og er fisk-
verðið þokkalegt það sem af
er.
f ágúst pakkar Þröstur niður
og heldur suður á bóginn með
fjölskyldu sinni.
Leiklistarlífið bíður hans í
Reykjavík og að sögn Þrastar
er af nógu að taka í þeim
efnum. Slorið eða sviðið, það
breytir ekki persónunni Þresti
Leó. Ef hann vill fara á sjóinn,
Þröstur Leó í beitninguhni.
þá fer hann á sjóinn og vilji
hann fara að leika, þá fer hann
að leika,
mál.
svo einfalt er það
Ísafjarðarbíó |
SÆRINGA-
MAÐURINN
The Exorcist III
EX@ÍCIST
Allir muna eftir hinum
frægu Exorcist myndum,
sem sýndar vom fyrir
nokkrum árum við miklar
vinsældir hjá þeim sem
vildu láta hár rísa á höfði
og verða í einu orði sagt
„lafhræddir". Hér er
framhaldið komið og það
gefur „Exorcist" eitt
ekkert eftii.
TAKIÐ EFTIR:
Þessi er ekki fyrir alla,
bara fyrir þá, sem hafa
sterkar taugar.
Sýnd föstud. kl. 11.
BARNA-
LEIKUR 2
CHILDS PLAY 2
BARNALEIKUR 2
Skemmtilegri en sú fyrri
- áhrifameiri - þú öskrar
- þú hlærð. Hin þekkta
dúkka með djöfullega
glottið hefur vaknað
til lífsins.
Sýnd fimmtud.
og föstud. kl. 9.
A BLAÞRÆÐI
Þau eru hér komin á lullri
ferð, þau Gene Hackman
og Anne Archer, í þessari
stórkostlegu toppmynd,
„Narrow Margin”, sem
er
ein sú langbesta sinnar
tegundar í langan tima.
Það er hinn frábæri leik-
stjóri, Peter Hyams, sem
gert hefur margar frægar
myndir, er leikstýrir
þessari toppmynd.
„Narrow Margin“
toppmynd í sérflokki.
Sýnd sunnud.
ogmánud. kl. 9.
Ísafjarðarbíó