Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Síða 8

Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Síða 8
FYRIR NUTIMA SKRIFSTOFUR: Hljóðdeyfar fyrir prentara ■ Prentarastandar Tölvuskápar ■ Pappírstætarar BÓKAVERSLUN JÓNASARTÓMASSONAR SIMI 3123, ISAFIRÐI Anders Larsson. Harmonikutónleikar í sal frímúrara: Sænskir snillingar á ferð Þriðjudaginn 18. júní kl.2t.00 gengst Harmonikufélag Vestfjarða fyrir tónleikum fjögurra sænskra harmoniku- snillinga sem hér eru í heimsókn. Það eru þau Anders Larsson, Annika Andersson, Conny Backström og Sigrid Öjfelt. Þetta er ungt fólk, tvö þeirra eru innan við tvítugt og aðeins einn hefur náðfertugsaldri. Engu að síður er þarna á ferðinni mikið hæfileikafólk, t.d. segir í kynningu þeirra að Anders, sem er aðeins átján ára, hafi svokallað fullkom- ið tóneyra og spili allt frá vögguvísum til Sundquist og Gallarini eftir eyranu, enda spilaði hann inn á fyrstu snæld- una tíu ára gamall. Umsagnir um aðra eru mjög í svipuðum dúr, og því er greinilega tilvalið að létta sér upp á þriðjudagskvöldið. Fermingar- afmæli í Ögri Á síðustu árum hefur það mjög færst í vöxt að ferm- ingarárgangar hittist og geri sér glaðan dag þegar hæfi- lega langur tími er liðinn frá sjálfri fermingunni. Fermingarbörnin úr Ögurhreppi árið 1966 (þ.e. árg.“52) hyggjast halda upp á tuttugu og fimm ára fermingarafmæli sitt þann 22. júní nk. Verður þessi hátíð með nokkuð öðrum hætti en almennt gerist í kaupstöðum landsins. Hópurinn mun standa fyrir sveitaballi að fornum sið í Ungmennafélagshúsinu í Ögri, en það hefur nýlega verið stækkað og endurbætt. Dansleikurinn hefst kl. 22.00, og munu „Gömlu brýin“ (þ.e. Dúddi, Ásthildur og Silli) sjá um fjörið sem væntan- lega verður ekki af skornum skammti fremur en endranær. Gerist menn svangir er líður á nóttu munu verða á boðstól- um ýmsar veitingar, m.a. rabbarbaragrautur og rjómi, svo sem forðum tíðkaðist á dansiböllum til sveita. Til gleðinnar er boðið öllum Djúpmönnum, búandi og brottfluttum, ásamt mökum og afkomendum, svo og öllum samstarfsmönnum, vinum og velunnurum fermingarbarn- anna. Aðgangseyri á skemmtunina verður stillt I hóf og mun allur ágóði af henni renna óskiptur til endurbóta á Ung- mennafélagshúsinu í Ögri. Það er eindregin ósk og von fermingarbarnanna að sem flestir framantaldra sjái sér fært að heiðra og gleðja þau með nærveru sinni á þessum tímamótum. Fermingarbörn í Ögurkirkju 26. maí 1966 voru sem hér segir (í stafrófsröð): Björg Baldursdóttir frá Vigur. Þóra Karlsdóttir frá Birnustöðum. Kirkjuvígsla á ísafirði: Níutíu prósent vinnunnar gefins Kirkjuleysi ísfirðinga er orðið nokkuð umtalað þegar fjögur ár eru liðin frá því ísa- fjarðarkirkja varð ónothæf í bruna og enn er engin bót ráð- in á húsnæðisvanda safnaðar- ins. Á þessum sama tíma hefur þó kirkja nokkur verið endur- byggð á ísafirði af miklum myndarbrag af hinum tiltölu- lega fámenna söfnuði Hvíta- sunnumanna. Þótt úti fyrir væri slyddu- hraglandi var enginn hrollur í fólki á samkomusal Salem. enda salurinn troðinn af fólki, sunnudaginn níunda júní þeg- ar Hvítasunnumenn vígðu kirkju sína til guðsþjónustu- halds að nýju eftir svo viða- miklar endurbætur að tæpast er hægt að tala um sama hús. Byggt hefur verið við báða enda, allir gluggar endur- nýjaðir, húsið var klætt að utan, og innan stokks var allt endurnýjað, jafnvel gólfin voru losuð úr og ýmist hækkuð eða lækkuð eftir þörfum. Utlagður kostnaður er um níu milljónir króna á þessum fjórum árum, og þyrfti upp- hæðin því að framreiknast til að gefa rétta mynd af núvirði. Hins vegar hefur sáralítil vinna verið keypt til verksins, um níutíu prósent hennar hafa verið gefin. Bak við þetta átak stendur söfnuður sem aðeins telur um tuttugu virka með- limi og hefur engan styrk hlot- ið af opinberu fé. Húsið er komið til ára sinna, byggt 1904 af Sigurði Guð- mundssyni. Þá voru í því íbúð- ir. auk þess sem gisting var rekin uppi í risi og verslun í kjallaranum. Ýmis starfsemi og ólík hefur farið fram í hús- inu. Nokkrir af eldri ísfirðing- um lærðu þar að lesa, en sonur húsbyggjandans, Sigurður Sigurðsson kallaður Súddi, var kennari við Barnaskólann og annaðist jafnframt stöf- unardeild heima hjá sér. Um tíma var rekin áfengisverslun í þessu húsi. og síðar hús- mæðraskóli. Árið 1945 var Salem söfnuðurinn stofnaður á Isafirði og keypti hann húsið það ár af fröken Sigríði Jóns- dóttur í Eyrardal. Um það leyti hafði reyndar komið til tals að kaupa það undir sjó- mannaskóla. en af því varð ekki og sá skóli komst aldrei á laggirnar. Við vígsluna voru gestir víða að. jafnvel erlendis frá. og gjafir og heillaóskir streymdu að. Um þriðjungur af Fíladelfíukórnum í Reykja- vík var mættur og söng við at- höfnina. Einnig sungu gestir frá Vestmannaeyjum tvísöng við gítarundirleik, og að sjálf- sögðu er það svo hjá Hvíta- sunnumönnum að það er ekki aðeins sérmerkt söngfólk sem syngur, heldur salurinn allur. Nýtt píanó sem söfnuðurinn fékk að gjöf var tekið í notkun við vígsluna og sá Carolyn Kristjánsson um undirleikinn. Að lokinni athöfn var gcst- um boðið að skoða húsakynn- in, og til veglegrar kaffiveislu í borðstofu á efri hæð hússins. Séra Karl kveður söfnuð sinn á ísafirði Séra Karl V. Matthíasson sóknarprestur í ísafjarðar- prestakalli er nú að láta af starfi og kveður söfnuð sinn við guðsþjónustu í ísafjarðar- kapellu á sunnudaginn kl. 14. Að messunni lokinni verða kaffiveitingar. Eins og kunnugt er hefur sr. Karl fengið veitingu fyrir Tálknafj arðarprestakalli. Hann er nú á förum suður á prestastefnu og síðan í sumar- leyfi. Fjölskyldan mun síðan koma aftur vestur um miðjan júlí og flytja búslóðina til Tálknafjarðar og séra Karl taka þar til við ræktunarstörf á nýjum akri. Séra Karl V. Matthíasson. Ahersla er ekki síður lögð á tilfinninguna en formið. Athöfninni lauk með því að sungið var „Halelúja". Mikil gróska í skógrækt: Norskir lýðháskóla- nemar gróðursetja tré á ísafirði Þessi mynd var tekin í síð- ustu viku í brekkunni ofan við Urðarveginn á ísafirði, innst. Þar var skógræktarfólk að verki eins og svo víða hér um slóðir um þessar mundir (ekki virðist öllu minni gróska í skógræktarfólkinu sjálfu og starfi þess en plöntunum sem það er að sýsla með). Hér voru á ferð fimm norskir lýðhá- skólanemar sem dvöldust vikutíma á Isafirði, unnu að gróðursetningu á téðum stað °8 bjuggu til gróðurreit inni í Tungudal. Með þeim er á myndinni Sigríður Steinunn Axelsdóttir og ungir ísfirðing- ar sem við kunnum ekki að nafngreina. Alls komu í einni ferð til ís- lands yfir fimmtíu norrænir lýðháskólanemar, flestir norskir, og tóku þátt í skóg- ræktarátaki víðs vegar um landið. Þar á meðal voru fimm á Tálknafirði. Við leynum á okkur þó lítil séum VERSLUNIN n4"a<,°9 taðnum- upp'ýsin9ar HNÍFSDAL MIKIÐ URVAL AF REIÐHJÓLUM Garðyrkjuverkfæri í úrvali Jón Friðgeir Einarsson Byggingavöruverslun, Bolungavík, sími 7353 — ALLT TIL B YGGINGA Á EINUM STAЗ I l l

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.