Vestfirska fréttablaðið - 28.11.1991, Síða 1
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ 43. TBL. 17. ÁRG. 28. NÓVEMBER 1991
Jóla-
bækurnar
streyma að
Nýkomnar
eru eftirtaldar:
ÆVISÖGUR
Kristján Eldjám
Gylfi Gröndal 3.980,-
Erró
Aðalsteinn Ingólfsson 3.980,-
Lífsháski
ÆvisagaJónasarJónass. 2.880,-
Lifróður
æviÁmaTryggvasonar 2.950,-
Heiðar(snyrtir)
...einsoghanner 2.980,-
Laddi
Þráinn Bertelsson 2.890,-
GagnnjósnariBreta
IbÁrnason Riis segirfrá 2.480,-
Nýjar íslenskar
BARNABÆKUR
Fjólubláirdagar
Kristín Steinsdóttir 1.340,-
Leyndarmál gamla hússins
Heiður Baldursdóttir 1.340,-
Grettir sterki
Þorsteinn Stefánsson 980,-
Kjarriogskemmubófamir
JónDan 980,-
Bestuvinir
Andrés Indriðason 1.598,-
Auk þess fjöldi annarra
fallega myndskreyttra
barna- og unglingabóka
BÓKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
Sími 3123, ísafirði
og jafnframt jólafundur Sjálf-
stæðiskvennafélags Isafjarðar
verður haldinn á Hótel ísafirði
föstudaginn 6. desember nk.
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðatfundarstörf.
2. Önnurmál.
3. Skemmtidagskrá og veitingar.
Sjálfstæðiskonur, mætið vel
og stundvíslega.
Stjómin.
Rækjuveiðarnar:
Enn lifa leifar verslunar-
ánauðarinnar frá 1602
Einokunartíminn á lslandi
1602-1787 er svartasta skeiðið
í sögu íslensku þjóðarinnar,
tíminn þegar stjórnvöld og
æðri máttarvöld lögðust á eitt
gegn fólkinu sem hjarði á
þessu volaða landi. Það var
eitt einkenni hinnar illræmdu
verslunareinokunar, að lands-
menn á tilteknum svæðum
voru skikkaðir til að skipta
aðeins við einn tiltekinn
kaupmann og var stranglega
bannað að skipta við aðra.
Ymis dæmi eru um stranga
refsidóma, sem menn tóku út
á eigin skrokki, fyrir þau
glæpaverk að fá röngum kaup-
manni nokkra fiska í skiptum
fyrir mjöl eða snæri.
Svipað kaupsvæðafyrir-
komulag og einokun gildir
þann dag í dag hvað snertir
rækjusölu. Bílddælingum t. d.
er bannað að leggja upp
rækjuna, sem þeir veiða, hjá
öðrum en aðeins einni tiltek-
inni rækjuverksmiðju, þótt
aðrir rækjukaupendur vildu
glaðir skipta við þá og borga
jafnvel viðunandi verð í
staðinn.
Þegar þetta blað fór í prent-
un voru bílddælskir rækjusjó-
menn farnir suður á konungs-
fund ráðherrafund til þess að
reyna að fá réttingu mála
sinna, samskonar og aðrir ís-
lenskir þegnar fengu fyrir
meira en tvö hundruð árum.
Símaofsóknir á hendur
/
Mogganum á Isafírði
Undanfarið hafa verið
nokkur brögð að því á ísafirði,
að hringt hefur verið og sagt
upp áskrift að Morgunblað-
inu, án vitundar og vilja áskrif-
endanna sjálfra. Einnig hefur
verið hringt og kvartað yfir út-
burði Morgunblaðsins og
frammistöðu einstakra blað-
bera, án þess að nein ástæða
hafi verið til þeirra umkvart-
ana.
Hér er að verki unglingur,
sem af einhverjum ástæðum
virðist vera í nöp við Morgun-
blaðið eða dreifingarfólk
blaðsins á ísafirði. Enn hefur
ekki verið gripið til ráðstafana
í þessu máli, en það verður ef-
laust gert ef þessu háttalagi
linnir ekki, enda er vitað hver
á hér í hlut.
Líður að frumsýningu á frumsömdu
ævintýraleikriti á Isaflrði:
/
Asthildur CesU og leikar-
arnir sömdu verkið sjálf
Litli leikklúbburinn og
Félagsmiðstöðin á ísafirði eru
nú í þann veginn að ljúka æf-
ingum á nýju leikriti, sem Ást-
hildur Cesil Þórðardóttir
samdi í samvinnu við leikend-
urna að loknu leiklistarnám-
skeiði. Leikurinn fjallar um
tvo nútímanáunga sem detta
inn í Ævintýralandið og hitta
þar Rauðhettu, Öskubusku,
Stígvélaða köttinn og margar
fleiri ævintýrapersónur. Leik-
endur eru tólf talsins á aldrin-
um 12 ára til fertugs.
Frumsýnt verður í Grunn-
skólanum á ísafirði eftir viku,
fimmtudaginn 5. desember.
*
Tónleikar á Isaíirði á laugardag:
Guðný Guðmundsdóttir
leikur á íslenska birkifíðlu
Á laugardaginn, þann 30.
nóvember, munu þau Guðný
Guðmundsdóttir fíðluleikari
og Kristinn Örn Kristinsson
píanóleikari halda afar for-
vitnilega tónleika í sal Frímúra
á ísafírði og hefjast þeir kl. 17.
Á efnisskránni eru m. a.
fíðlukonsert Elgars, sem
Guðný ætlar að flytja með Sin-
fóníuhljómsveit íslands síðar
í vetur, en það var einmitt með
flutningi á því verki sem
Yehudi Menuhin varð heims-
frægur á einni nóttu, þá aðeins
fjórtán ára. Þá flytur Guðný
nýtt verk eftir Hafliða Hall-
grímsson. sem hlotið hefur
frábærar undirtektir.
Síðari hluti tónleikanna
verður helgaður þekktum og
vinsælum fíðlulögum - Síg-
aunamúsík og Vínarvölsum -
Guðný Guðmundsdóttir.
eftir Kreisler, Sarasate o. fl.,
sannkallað eyrnakonfekt.
Einnig verða þar vinsæl ís-
lensk lög, jafnvel eftir ísfírska
höfunda, og ætlar Guðný
hreinlega að spila eins lengi og
áheyrendur endast til að
hlusta! Þá mun hún einnig
taka upp úr farteskinu íslensk-
ar fiðlur úr birki, nýsmíðaðar
af Kristni Sigurgeirssyni á
Sauðárkróki og leyfa okkur að
heyra í þessum merkishljóð-
færum.
Hér eru á ferðinni einstak-
lega spennandi tónleikar með
frábærum listamönnum, og
eru ísfirðingar og nærsveita-
menn eindregið hvattir til að
mæta.
Aðgöngumiðar eru seldir
við innganginn, en nemendur
Tónlistarskólans 20 ára og
yngri fá ókeypis aðgang eins
og að öðrum tónleikum Tónl-
istarfélagsins.
(Frá Tónlistarfélagi
ísafjarðar).
FAMILY GAME
leikjatölvan
Fullkomin tölva með 2 stýripinnum
og einum leik
FRÁBÆRT VERÐ AÐEINS KR. 9.300,
Mikið úrval af leikjum
T.D. Rock Man 3
Super Mario 4 Robocop 1 og 2
Simpsons Verð frá kr. 1.790,-
ATH: Hægt að nota leiki frá:
Nintendo ——— Nasa ........ Redstone
Einnig hægt að nota Family Game
leikina í áður taldar vélar
SALA & ÞJÓNUSTA ggj 3F92