Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1992, Side 5
LVESTFIRSKA'
Fimmtudagur 12. mars 1992
5
Happaleikur Holiday Inn
— glæsileg verðlaun
„Herbergin á Holiday Inn
eru stór og við höfum því mj ög
góða aðstöðu til að taka á móti
fjölskyldum“, segir Wilhelm
Wessmann hótelstjóri, en hó-
telið leggur áherslu á helgar-
gistungu fyrir fjölskyldur af
landsbyggðinni. Ekkert auka-
gjald er tekið fyrir börnin í,
þannig að þau gista frítt.
„Rúmin eru líka óvenju stór
og þetta er að þakka alþjóð-
legum gæðakröfum Holiday
Inn hótelkeðjunnar, sem er
hin stærsta í heimi. Fyrsta
Holiday Inn hótelið var opnað
í Memphis í Tennessee í
Bandaríkjunum 1952 og
hanna og byggt sem fjöl-
skylduhótel.“
„Hér í næsta nágrenni
höfum við Laugardalslaugina,
húsdýragarðinn og skauta-
svellið og allt er þetta ókeypis
fyrir gesti okkar,“ segir hótel-
stjórinn. „Þá útvegum við
barnagæslu á kvöldin, ef for-
eldrar vilja bregða sér frá eina
kvöldstund.“
Hótel Holiday Inn efnir til
spurningaleiks í marsmánuði
undir heitinu „Happaleikur
Holiday Inn.“ Leikurinn er
kynntur í blöðum úti um land-
ið um þessar mundir og verð-
launin eru óvenju glæsileg,
- helgarferð fyrir alla fjöl-
skylduna til Reykjavíkur,
flug, bílaleigubíll og veislu-
matur á Setrinu. Dregið verð-
ur í beinni útsendingu á Bylgj-
unni þriðjudaginn 31. mars.
nk. Spurningarnar í happa-
leiknum ásamt svarseðli voru
birtar í Vestfirska í síðustu
viku og verða aftur í næstu
viku.
Á Bylgjunni fer jafnframt
fer fram kynning á ýmsum
girnilegum réttum á nýjum
matseðli, sem meistarakokk-
arnir á Setrinu á Holiday Inn
hafa sett saman. Þar starfa þrír
af þeim fimm matreiðslu-
meisturum, sem gerðu garð-
inn frægan í alþjóðlegri
keppni í Bandaríkjunum sl.
vor og búa sig nú undir
Olympíuleika matreiðslu-
manna, sem verða í Frankfurt
í haust.
Á þriðjudögunt og föstu-
döguni næstu þrjár vikur
koma matreiðslumeistararnir
á Holiday Inn í heimsókn í
þátt Sigurðar Ragnarssonar á
Bylgjunni, „Rokk og róleg-
heit,“ sem hefst kl. 12.30. Þeir
leiða hlustendur í gegnum
uppskrift að rétti dasins, scm
birtist samdægurs í Morgun-
blaðinu. Heppnum hlustend-
um er svo boðið í mat á Setr-
inu.
Bílaþjónusta Daða auglýsir:
Ljósa- og húddhlífar
á flestar gerðir bifreiða, t.d.
Subaru Legacy
Ford Explorer
Ford Bronco II
Ford Ranger
Ford Econoline
Nissan Terrano
Nissan Pathfinder
Toyota Hi-Lux
Vindhlífar á glugga fyrir Toyota Hi-Lux
Fjölbreytt úrval varahluta, svo sem viftureimar, kerti,
Ijósaperur og samlokur, þurrkublöð, smursíur,
loftsíur, eldsrieytissíur o.s.frv.
Umboð fyrir Suzuki, BMW og Renault.
BÍLAÞJÓNUSTA DAÐA
FJARÐARSTRÆTI20 • ® 94-3499 ÍSAFIRÐI
AL-ANON
Ef þú berð umhyggju fyrir
einhverjum sem á við
áfengisvandamál að stríða
getur AL-ANON leiðin
hjálpað þér. Fundir eru
á mánudögum kl. 21
í Aðalstræti 42
húsið opnað kl. 20.30.
Föndurloftið
Mjallargötu 5, sími 3659
Sunnukórsfélagar
— myndakvöld —
Myndakvöld verður föstudaginn 13. mars kl.
20.30 í salnum í húsi Norðurtangans við
Sundahöfn.
Veitingar.
Félagar, mætið og hafið með ykkur myndir
úr ferðum kórsins, bæði nýjar og gamlar.
Myndakvöldsneínd.
FLUGLEIDIR
Aðalfundur
Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 19.
mars 1992 í Höfða, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til
sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða af-
hent á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hluta-
bréfadeild á 2. hæð, frá og með 12. mars kl. 14:00. Dagana
13. til 18. mars verða gögn afgreidd frá kl. 09:00 til 17:00
og á fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna
sinna fyrir kl. 12:00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
Skemmtikvöld á Hótel Isafírði
Lítið eitt úr Víkinni
Skemmtiflokkurinn Lítið eitt úr Víkinni
skemmtir laugardagskvöld.
Fjölbreyttur matseðill að vanda.
Einstakt tækifæri til að fara út að borða
oghlusta á heimagerða skemmtidagskrá.
Pantið borð Verið velkomin