Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 2
Miðvikudagur 22. júní 1994
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Siglt með Blika ÍS 879 í Æðey í ísafjarðardjúpi:
Skemmtilegur
ferðamöguleiki jafnt
fyrir löggilta land-
krabba sem veðurbarðar
sjohetjur
- undir öruggri stjórn Hafsteins og Kiddýar
Ferðaþjónusta er sívaxandi
atvinnugrein hér á landi. Vest-
firðingar eru smátt og smátt að
vakna til vitundar um að þjón-
usta við ferðamenn sé annað og
meira en föndur eða fúsk ein-
hverra sérviskupúka. Einstak-
lingar eru sífellt að færa sig upp
á skaftið í þeim efnum og nú
bjóða fjölmargir aðilar á Isa-
firði og í nágrenni upp á hina
ijölbreyttustu ferðamöguleika.
Síðastliðinn laugardag
kynntu þau Hafsteinn Ingólfs-
son og Guðrún Kristjana
Kristjánsdóttir (Kiddý) nýjan
ferðamöguleika um Isafjarðar-
djúp. Ætla þau hjón að bjóða
fólki upp á í sumar þriggja og
hálfs til fjögurra klukkustunda
siglingu frá Isafirði inn í Æðey
með bát sínum Blika. Gert er
ráð fyrir skoðunarferð um eyj-
una undir leiðsögn og býður
heimilisfólk í Æðey upp á
hressingu áður en lagt er af stað
með Blika aftur til Isafjarðar.
Blaðamaður Vestfirska slóst
í för með þeim hjónum á laug-
ardaginn ásamt fleiri gestum.
Lagt var af stað frá Sundahöfn
og haldið sem leið liggur aust-
uryfir Djúp, inn með Snæ-
fjallaströnd og alla leið inn í
Æðey.
Ekki var veðrið upp á það
besta þennan dag og að sögn
þeirra hjóna var það á mörkum
þess að boðlegt væri ferða-
mönnum. Töiuðu þau um
brælu og samkvæmt vind-
mælum í Æðey lá hann f sjö til
átta vindstigum og sló jafnvel
upp undir tíu í hviðum.
Þrátt fyrir all nokkurn sjó-
gang lét báturinn vel að stjórn
og fyrir löggiltan landkrabba
var þessi sjóferð hin mesta
skemmtun sem er vel þess virði
að endurtaka.
Eins og áður sagði liggur
leiðin yfir Djúp og inn með
Snæfjallaströnd. Svæði þetta er
um margt merkilegt og hver
skyIdi trúaþví í dag að fyrir svo
sem einni öld hafi búið þarna
um þrjú hundruð manns og þar
hafi verið stunduð mikil útgerð
árabáta.
Æðey er ekki síður merkileg
frá sögulegum sjónarhóli. Þar
var m.a. vettvangur Spánar-
víga, þegar skipreika sjómenn
sem strandað höfðu skipi sínu
á Ströndum, voru hundeltir og
drepnir af bændum við Djúp.
I Æðey er landslag mun
fjölbreyttara en maður gæti
ímyndað sér og landsþekkt er
það mikla æðarvarp sem þar er.
I einni eru li'ka merkilegar
rústir og byggingar frá liðnum
öldunt.
Jónas Helgason bóndi í
Æðey lóðsaði ferðalanga um
eyjuna og heilsaði upp á æðar-
kollur í leiðinni sem víða lágu
á eggjum. Ekki var ónýtt að
afloknu rölti um eyjuna að
setjast niður í stofunni hjá
Æðeyjarhjónum og þiggja
veitingar. I íbúðarhúsinu er h'ka
margt forvitnilegt að sjá. Tæki
og tól til veðurathugana eru
eins sjálfsögð bækurnar í hill-
unum. Þar gat líka að líta mik-
inn tækjakost japanskra vís-
indamanna sem hafa fengið
heimilisfólkið í Æðey til að
fylgjast með síritandi mæli-
tækjum sem skrá niður allar
hreyfingar og orkuflæði norð-
urljósanna.
Hægt væri í löngu máli að
segja frá því sem fyrir augu
ferðamannsins kann að bera í
stuttri heimsókn í Æðey, hins-
vegar látuin við væntanlegum
ferðalöngum það eftir að geta
í þær eyður, því sjón er sögu
ríkari.
Sigling með Blika ÍS 879 um
Isafjarðardjúp er nokkuð sem
sannarlega er hægt að mæla
með. Og ef fólk vill skoða fleiri
staði við Djúp eða inni í Jökul-
fjörðum, þá eru þau heiðurs-
hjón Hafsteinn og Kiddý til-
búin til að sigla nánast hvert
sem er, enda er báturinn mjög
vel tækjum búinn til slíkra
ferðalaga.
-hk.
Æðarkolla á eggjum.
Dagsgamlir æðarungar eins
og dúnhnoðrar í hreiðri.
Jónas bóndi í Æðey mættur á Færeying sínum að hlið Blika
til að ferja mannskapinn í land.
Hafsteinn og Kiddý við stýrið á Blika. Þau hafa nú opnað ferðamönnum enn einn
möguleikann til að njóta vestfirskrar náttúru.
Sómabáturinn Bliki ásamt Færeying Jónasar bónda við legufæri í skemmtilegri höfn í Æðey
sem tilbúin er frá náttúrunnar hendi.
Byggðin í Æðey. Fyrir framan íbúðarhúsið er ráðgert að koma fyrir flotbryggju svo ferðalangar
af Blika geti stigið beint á land.
Landslag í eyjunni er mun fjölbreyttara en hægt er að ímynda sér úr fjarlægð.
Færeyingur Jónasar ferjaði mannskapinn til og frá borði í Blika. Þarna er ráðgert að setja
upp flotbryggju í sumar.