Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 4
4
Miðvikudagur22Júnn994^^^^^^^^^^^^^^^^J
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
iTnnrrmnniT' i
Við sjávarsiðuna
Œ ■ ~ » —• T » V. T —
ŒTTABLAÐIÐ |
Vestfirska fréttablaðið er víkublað, óháð stjórnmálaflokkum.
Blaðið kemur út síðdegisá miðvikudögum og fæst bæði í lausasölu
og áskrift. Verð kr. 170 m/vsk.
Ritstjórn og auglýsingar: Austurvegi 2, Isafirði; sími (94)-4011,
fax (94)-4423. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja
í síma (94)-3223 (ísprent) eða farsíma 985-39748.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon.Túngötu 17,
ísafirði, hs. 4446.
Blaðamaður: Gísli Hjartarson, hs. (94)-3948, farsími 985-39748.
Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf., Austurvegi 2, ísafirði.
Prentvinnsla: ísprent hf., Aðalstræti 35, ísafirði, Simi (94)-3223.
Leiðari
Ferðaþjónust-
an er vaxtar-
broddurinn í
atvinnulífi
á Vestfjörðum
Sumarið er komið á Vestfjörðum, á því ieikur
enginn vafi. Með hverju árinu færist meiri kraftur
í hverskonar sumariðju, ferðamannaþjónustu,
útivist og uppákomur. Óshlíðarhlaupið verður
þreytt í annað sinn um næstu helgi, skíðamenn
ganga miðnæturgöngu um sumarsólstöður,
golfmót eru haldin um hverja helgi víða um
Vestfirði, sjóstangaveiðimót eru á döfinni.
Hér er fátt eitt talið.
Þegar fiskurinn bregst, þegar kvótinn fer
minnkandi, þá verður að róa á önnur mið.
Ferðaþjónusta er atvinnugrein sem á mikla
vaxtarmöguleika á Vestfjörðum. í henni liggja
miklir peningar, miklu meiri en fólk virðist al-
mennt gera sér grein fyrir. í þeirri grein er ekki
kvóti, enn sem komið er, og þess vegna geta
Vestfirðingar krækt sér þar í stærri skerf en
hægt er á þeim sviðum þar sem allt framtak og
frumkvæði er hneppt í fjötra meðalmennsku,
forræðishyggju og annarrar sunnlensku. Þetta
eiga Vestfirðingar að geta, bæði vegna eigin
dugnaðar og ekki síður vegna alls þess sem
Vestfirðir hafa upp á að bjóða frá náttúrunnar
hendi.
Að þessu leyti eru Vestfirðir því sem næst ó-
numið land.
Megináherslu verður að leggja á uppbygg-
ingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Erlendum
gestum á íslandi fjölgar ár frá ári og Vestfirð-
ingar verða að ná til sín góðum hluta af þeim
hópi. Jafnframt má ætla að ferðalög íslendinga
sjálfra innanlands færist í vöxt á komandi árum,
og þann garð verða Vestfirðingar einnig að
rækta vel.
í þessu liggja framtíðarmöguleikarnir á Vest-
fjörðum. Þetta er vaxtarbroddurinn, þótt furðu
margir sveitarstjórnarmenn og aðrir virðist ekki
átta sig á því.
Hlynur Þór Magnússon.
Skutull á Flæmska
hattinn
Rækjuskipið Skutull kom til
Isafjarðar á 17. júni eftir að hafa
verið nokkra daga í slipp á Ak-
ureyri. Var um venjulegt við-
hald að ræða og lagfæringar á
stýrisbúnaði. Skutull fór á
sunnudaginn til Reykjavíkur að
sækja sér togvíra og hélt þaðan
á Flæmska hattinn við Ný-
fundnaland til að veiða utan-
kvótarækju.
Orri meó 10 tonn
Rækjuskipið Orri kom inn til
Súðavíkur á fimnitudaginn og
landaði 10 tonnum af úthafs-
rækju eftir viku veiðiferð norð-
ur af Húnaflóa. Rækjan fór öll
til vinnslu hjá Frosta ht'. í
Súðavík. Skipstjóri á Orra er
Sveinn Pálsson Vestmannaey-
ingur.
Framnes landaði
36 tonnum
Framnesið kom inn til Isa-
fjarðar 16. júní sl. með 36 tonn
af úthafsrækju sem skipið fékk
út af Húnaflóa í viku veiðiferð.
Rækjan fór til vinnslu hjá
Bakka hf. í Hnífsdal nema 3,5
tonn sem voru fryst á Japans-
markað. Skipstjóri á Framnesi
er Valdimar Elíasson frá
Sveinseyri.
Stefnir fékk 140
tonn
Togarinn Gyllir kom inn til
Isafjarðar á mánudag og land-
aði 140 tonnuni, aðallega karfa
og ufsa, sem skipið fékk vítt og
breitt út af Vesturlandi í fimm
daga veiðiferð. Skipstjóri á
Stefni er Grétar Kristjánsson
frá Litlabæ í Súðavík.
Aflinn í Víkinni
Tuttugu og átta færabátar
lönduðu 54 tonnum í 90 sjó-
ferðum í Bolungarvík í síðustu
viku. Hæst var Asdís með 5,8
tonn í þremur róðrum.
Hafrún II sem er á dragnót
fékk 1.800 kg í þremur sjó-
ferðum og Máni sem einnig er
á dragnót fékk 1.400 kg í
Hálfmaraþon, 10 km hlaup og
skemmtiskokk:
Óshlíðarhlaup
og markaðs-
dagur á ísafirði
á laugardag
- kvöldverður í Skíðaskálanum að
loknu hlaupi, pasta fyrir alla
kvöldið áður, Edinborgarferð í
verðlaun
Óshlíðarhlaupið verður haldið öðru sinni á laugardaginn
kemur, 25. júní. Þátttakendur geta valið um þrjár vegalengdir:
Hálfmaraþon sem er 21,1 km, 10 km hlaup og 4 km
skemmtiskokk. Allir koma í mark á Silfurtorgi.
Hlaupið hefst kl. 14.00 og verður ræst samtímis á öllum
vegalengdum.
Rásmark fyrir hálfmaraþonið er í Bolungarvík. Hlaupið er um
Óshlíð, gegnum Hnífsdal, um Eyrarhlíð, inn Skutulsfjarðar-
braut og inn í fjörð og síðan til baka og inn á Silfurtorg. Þeir sem
hlaupa 10 km leggja af stað í Hnífsdal og fara síðan sömu leið
og þeir sem hlaupa hálfmaraþonið. Skemmtiskokkið hefst á
Silfurtorgi. Hlaupið er inn að Grænagarði og aftur til baka.
Flokkaskipting í hálfmaraþoni og 10 km hlaupi er þessi: 50
ára og eldri, 40-49 ára og 16-39 ára, og auk þess 15 ára og
yngri í 10 km hlaupi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin
í hverjum flokki. Allir sem Ijúka hlaupinu fá verðlaunapening.
Keppendur skulu greiða þátttökugjald við móttöku keppnis-
gagna, en þau verða afhent á föstudag kl. 8-21 í Upplýsinga-
miðstöð ferðamála, Hafnarstræti 8 á ísafirði. Gjaldið er kr.
1.500 fyrir hálfmaraþon (innifalin rútuferð frá ísafirði til Bol-
ungarvíkur), kr. 1.000 fyrir 10 km hlaup (rútuferð í Hnífsdal) og
kr. 500 fyrir 4 km hlaup.
Allir keppendur í hálfmaraþoni og 10 km hlaupi fá frítt í sund
eftir hlaupið í Sundhöll ísafjarðar.
Verðlaunaafhending verður á Silfurtorgi að loknu hlaupinu.
Aðalverðlaunin eru ferð til Edinborgar með ferðaskrifstofunni
Úrval-Útsýn. Hér er að sjálfsögðu ekki átt við þá Edinborg sem
stendur við Aðalstræti 7 á isafirði.
Þess má geta, að á föstudagskvöldið (kvöldið fyrir hlaupið)
bjóða allir veitingastaðir á ísafirði upp á pastarétti á matseðl-
inum, en slíkt ku heppilegt fyrir hlaupagikki.
Á laugardagskvöldið að loknu hlaupinu verður haldið til
hæða og verður kvöldverður snæddur í Skíðaskálanum á
Seljalandsdal. Þar verður sungið og trallað og mikil gleði fyrir-
huguð. Sætaferðir neðan úr bæ.
A laugardaginn meðan Óshlíðarhlaupið fer fram verður
götumarkaður við Silfurtorg eins og í fyrra, þar sem ýmislegt
verður á boðstólum.
Skráning og allar nánari upplýsingar í Upplýsingamiðstöð
ferðamála á ísafirði, Hafnarstræti 8, sími 5121.
tveimur róðrum.
Rakel María sem er á línu
fór í einn róður í vikunni og
fékk 1.700 kg.
Gunnbjörn landaði einu
sinni í vikunni og var með 4,8
tonn. Hann er á botntrolli.
Kofri með 33 tonn
Rækjuskipið Kofri frá Súð-
vík kom inn til Súðavíkur á
mánudag með 33 tonn af út-
hafsrækju eftir viku veiðiferð
á rækjumiðunum út af
Húnaflóa. Rækjan fór til
vinnslu í rækjuverksmiðju
Frosta hf. í Súðavík. Skipstjóri
á Kofra er Jónas Hrólfsson.
Haffari landaði 35
tonnum
Rækjuskipið Haffari frá
Súðavík landaði 35 tonnum af
úthafsrækju í Súðavík í gær.
Var hann úti í viku og var á
sömu slóðum og Kofri, eða úti
af Húnaflóa. Rækjan fór til
vinnslu í frosta hf. Skipstjóri á
Haffara er Jónatan Asgeirsson.
140 tonn á land á
Tálknafirði
Að sögn Steindórs Ög-
mundssonar á Tálknafirði
komu þar á land í síðustu viku.
Þar af áttu 43 skaktrillur 97
tonn og afgangurinn var af
tveimur dragnótarbátum og
einum netabát. Obbinn af afl-
anum er unninn á Tálknafirði,
meiri hlutinn hjá Þórsbergi hf.
en afgangurinn hjá Hraðfrysti-
húsi Tálknafjarðar.
Rúðubrot
á ísafirði
Á miðvikudagskvöldið var
brotin rúða við útihurð í ís-
prenti á ísafirði. Ekki er vitað
hver var þarna að verki en
þetta skemmdarverk var
unnið um níuleytið um
kvöldið. Steinninn sem
kastað var í rúðuna lá inni
á gólfi i anddyrinu.
-GHj.
Isfirðingar þjóðleg-
ir á þjóðhátíðardag
ísfirðingar hafa alltaf haft orð á sér fyrir að vera þjóðlegir.
Þegar Vestfirska átti leið um flugstöðina á ísafjarðarflugvelli
á 17. júní sl. tók blm. eftir því að Fjóla Hannibalsdóttir, sem
rekur Flugbarinn á flugvellinum fyrir Bílaieiguna Ernir, var við
afgreiðslustörf í íslenskum þjóðbúning. Blm. gat ekki stillt
sig um að smella af henni mynd.
-GHj.
Aðalstræti 20 ísafirði.
Tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð. Toppíbúð á
toppstað. Getur losnað fljótlega.
Arnar G. Hinriksson Silfurtorgi 1, sími 4144