Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 5

Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 5
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ Huliðs- heimakort - og göngutúr um álfabyggðir ísafjarðar Um Jónsmessuna verður gefið út „huliðsvættakorf fyrir ísafjörð og nágrenni — þ.e. kort um huliðsheima eða byggðir huliðsvætta. Erla Stefánsdóttir sjáandi kemur síðan vestur ásamt Kolbrúnu Þóru Oddsdóttur landslagsarkitekt í tengslum við útgáfu kortsins (og jafnframt í tengslum við sýningu í Slunkaríki á mynd- um úr huliðsheimum ísafjarðar). Erla mun halda fyr- irlestur í matsal Framhaldsskóla Vestfjarða eftir rúma viku, fimmtudagskvöldið 30. júní kl. 20.00. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000 en að fyrirlestri loknum verður farið í gönguferð um álfabyggðir ísafjarðar. Tekið skal fram að fyrirlesturinn átti að vera annað kvöld, 23. júní, en hann frestast um rétta viku frá því sem áður var á- formað. Fyrir nokkrum dögum var viðtal við Erlu í fréttatíma annarrar hvorrar sjónvarpsstöðvarinnar vegna fram- kvæmda við Vesturlandsveg við Grafarhoit, þar sem merkilegur álagasteinn stendur og varð mannsbani síðast þegar hróflað við honum. Þess má ennfremur geta, að Erla tekur að sér að skoða sig um í húsum og á lóðum kringum hús. Flún finnur orkulínur (og þar með hvar gott er að hugleiða og hvar gott er að rækta) og teiknar upp hvar huldar vættir búa í garðinum og hverjar þær eru. Við þetta nýtur hún aðstoðar Kol- brúnar Þóru landslagsarkitekts. Hótelhaldari á Spáni færir Listasafni ísafjarðar málverk eftir föður sinn, ísfirska listmálarann Kristján H. Magnússon: Gefur portrett foreldra sinna heim til ísafjarðar Jón Sigurpálsson safnavöröur á ísafiröi veitir viötöku myndunum tveimur eftir ísfirska listmálarann Kristján H. Magnússon úr hendi Magnúsar sonar hans. Á þjóðhátíðarsýningu Lista- safns Isafjarðar í sal frfmúrara í Hafnarhúsinu var tekið saman úrval úr verkum fjögurra ísfir- skra listamanna. Þar var annars vegar um að ræða tvo löngu látna karlmenn, þá Kristján H. Magnússon og Jón Hróbjarts- son, og hins vegar tvær konur sem enn eru ungar og í fullu fjöri, þær Söru Vilbergsdóttur og Guðbjörgu Lind Jónsdóttur. Hér verður Kristján gerður að umtalsefni vegna tveggja mynda sem sonur hans færði Listasafni Isafjarðar að gjöf á þjóðhátíðinni. Kristján H. Magnússon fæddist á Isafirði árið 1903 og naut á unglingsárum tilsagnar í teikningu og útskurði hjá Guð- mundi frá Mosdal. Sautján ára gamall hélt Kristján til Vestur- heims og stundaði um árabil myndlistarnám við Massachu- setts School of Arts, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1926. Á afmæli Isafjarðarkaup- staðar fyrir átta árum hélt Listasafn Isafjarðar sýningu á 39 verkum Kristjáns. Nú á þjóðhátíðinni kom Magnús sonur Kristjáns í heimsókn til ísafjarðar og færði Listasafni Isafjarðar að gjöf tvær myndir eftir föður sinn, sjálfsmynd og mynd af Klöru Helgadóttur, eiginkonu hans og móður Magnúsar. Þær eru málaðar á árunum 1928 og 1929. Magnús sonur Kristjáns H. Magnússonar listmálara hefur verið búsettur á Spáni um margra áratugaskeið og rekið þar hótel og hefur ekki verið tíður gestur á Islandi um dag- ana. SMÁ Vanur sjómaður óskar eftir starfi á færabát annað hvort sem háseti eða að vera með bát. s. 6180 VILTU HRESSA ÞIG VIÐ? Andlitsbað Handsnyrting Fótsnyrting Vax-meðferð Förðun o.fi Snyrtistofan Sóley Sími4022 (Studio Dan) f SUMARVÖRUR! Bensínsláttuvélar frá 17.900 stgr. Rafmagnsloftpúðavél 16.131 stgr. Handsláttuvél 9.801 stgr. Rafmagnsorf 4.289 stgr. ÓDÝR GARÐVERKFÆRI í ÚRVALI GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Nýkomið timbur og stál - gott verð Opið virka daga 9-12 og 13-18 og laugardaga 13-16 I b|b|bÍhÍbíB HHH H|H|H| 7353 ODDDDDOD nnnnnnnn JFE Byggingaþjónustan hf. Bolungavík w íþrótta- og leikjanámskeið BÍ fyrir 5-10 ára börn Iþrótta og leikjanámskeið BI verður haldið dagana 27. júní til 8. júlí fyrir börn á aldr- inum 5-10 ára. Dagskráin verður fjölbreytt, m.a. verður farið í íþróttahúsið á Torfnesi, Studio Dan og Sundhöllina. Markmið námskeiðsins verður að kynna bömunum sem flestar íþróttagreinar á sem skemmtilegastan og ein- faldastan hátt. Fjallað verður um mikilvægi hollrar fæðu og hreyfingar fyrir líkamann, auk þess verður talað um helstu vöðvahópa líkamans. Fimm til sjö ára börn verða tvo tíma á dag fyrir hádegið en átta til tíu ára böm tvo tíma eftir hádegi. Skráning og nán- ari upplýsingar í Sporthlöð- unni. Systkini fá afslátt. Leið- beinendur eru Anna María Malmquist íþróttakennari og Ásdís Sigurðardóttir þolfimi- kennari. Úrvals kartöflur r STORDANSLEIKUR og rófur íg er nú enn einu sinni staddur á ísafirði með jarðarávöxt iir Þykkvabænum. Sérlega bragðgóðar kartöflur og rófur. Ég er með bílinn á planinu milli Hamraborgar og Elísu. Ef Vestfirðingar vilja Ijúffengar kartöflur ættu þeir nú að bregðast fljótt við. Sverrir Gíslason. MEÐ HLJÓMSVEITINNIMANNAKORN föstud. 24. júníki. 23-03 og laugard. 25. júníkl. 23-03 Hljómsveitlna skipa: Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson og úr Mezzoforte þeir Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunnarsson. Þátttakendur og gestir á Búnaðarsambandsþingi og aðalfundi Sparisjóðs Bolungarvíkur eru boðnir sérstaklega velkomnir. £§ VÍKURBÆR Bolungarvík 5 VIDE0 AMBUSHIN WAC0 Þeir trúuðu eru hermenn hans. Konur þeírra eru í kvennabúri hans. Sjálfur telur hann sig Jesús, endurborinn I þeim tilgangi að telja hinum vantrúuðu hughvarf með Biblíuna í annarri hendinni og vél- byssu í hinni. Nafn hans er David Koresh. Hann sest að með alvæpni í smábæ í Texas ásamt 75 trúsyst- kinum, þarámeðal19 eiginkonum sínum. Nafn bæjarins varð brátt þekkt um allan heim WACO, TEXAS. í fréttum sást hvað gerðist utan múranna. Hér er skýrt frá því sem gerðist innan þeirra. THE KILLING B0X Borgarastyrjöldin milli Norður- og Suðurríkja Bandaríkjanna var skelfi- legt blóðbað og hér er fjallað um hana á óvenju- legan hátt. Strayn, ofursti í her Suðurríkjanna (Corbin Bernsen) og Harling, höfuðsmaður ( Norðurríkja- hernum (Adrian Psadar) eru kvaddirtil að rannsaka hroðalegan atburð, þar sem mörg hundruð her- menn úr báðum liðum voru stráfelldir. Þeir komast fljótlega á snoðir um að óvinurinn, sem þeir leita að, er skelfilegri en hægt er að hugsa sér - hann er ómennskur. VIDEO S. 4299

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.